Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 28
28
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990.
Fréttir
Gríma Sóley Grimsdóttir keppir i tveimur greinum á landsmótinu á Sikli.
DV-mynd E.J.
Gríma Sóley kepp-
ir á tvennum víg-
stöðvum með Sikil
Gæðingakeppni Gusts í Kópvogi
var haldin dagana 26. og 27. mai
síðastliðinn. Var þar einnig um að
ræða landsmótsúrtöku. Gustarar
senda fjóra keppendur í hvern
flokk gæðingakeppninnar. Fyrri
daginn voru allir gæðingamir
dæmdir, en átta hæst dæmdu jó-
amir komust í sérstaka úrslita-
keppni. Meðaltal dóma báöa dag-
ana gilti.
Gríma Sóley Grímsdóttir sló
heldur betur í gegn. Hún varð í
efsta sæti í unglingaflokki með Sik-
il sinn, fékk 8,36 í einkunn, en einn-
ig varð hún í þriðja sæti í B-flokki
með Sikil og fékk 8,33. Hún keppir
því í tveimur greinum á landsmót-
inu.
Gríma Sóley varð sem fyrr segir
í efsta sæti í unglingaflokki. Kjart-
an Þ. Óttarsson varð annar með
Þorra sinn, fékk 8,35 í einkunn og
Jóhannes Örn Erhngsson varð
þriðji með Hryðju sína og fékk 8,05
í einkunn.
í barnaflokki sigraði Victor B.
Victorsson með Snúð sinn og fékk
8,07 í einkunn. Ásta Dögg Bjarna-
dóttir fékk 7,98 fyrir Sóma sinn og
Inga Dröfn Benediktsdóttir varð
þriðja með Sendingu sína og fékk
7,64 í einkunn.
Hrafna-Flóki Guðríðar Gunnars-
dóttur, sem Vignir Siggeirsson
sýndi, stóð efstur í A-flokki með
8,29 í einkunn. Þristur, Björns Sig-
urðssonar, sem Guðný Eiríksdóttir
sýndi, var annar með 8,21 og Hær-
ingur, sem Bjarni Sigurðsson á og
sýndi var þriðji með 8,20 í einkunn.
Halldór Victorsson, bróðir Vic-
tors B., sem sýndi efsta hest í
barnaflokki, er eigandi og knapi
Haröar, sem sigraði í B-flokki með
8,40 í einkunn. Gola, Karls Bene-
diktssonar, sem Öm Karlsson
sýndi, var önnur með 8,36, en Sik-
ih, sem Gríma Sóley Grímsdóttir á
og sýndi, fékk 8,33 og þriðja sætið.
Gustarar halda þeim siö að verð-
launa knapa fyrir tamningu ung-
hross og umhirðu. Hulda Gústavs-
dóttir sigraði að þessu sinni fyrir
tamningu á Tögg. Ásta Dögg
Bjarnadóttir var í öðru sæti með
Dögg og Bjarni Sigurðsson var í
þriðja sæti með Sunnu. Þess má
geta að Bjarni er faðir Ástu Dagg-
ar, sem sló honum við að þessu
sinni.
-EJ
Andlát
Guðrún Sigurðardóttir Maillet, Al-
bany, New York, andaðist 25. maí.
Óli Matthías Einarsson, Unufelli 36,
lést í Borgarspítalanum fóstudaginn
25. maí.
Sveinbjörn Árni Pétursson, Stangar-
holti 9, Reykjavík, lést 27. maí.
Jarðarfarir
Sigurjóna Soffia Sigurjónsdóttir
verður jarðsungin frá Hallgríms-
kirkju fimmtudaginn 31. maí kl.
13.30.
Sigurður Guðmundsson, Akurgerði
19, Akranesi, sem andaðist á Sjúkra-
húsi Akraness sunnudaginn 27. maí,
verður jarðsunginn frá Akranes-
kirkju fóstudaginn 1. júní kl. 15.
Hermann Gíslason, Skúlaskeiöi 16,
Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði fostudag-
inn 1. júni kl. 13.30.
Jóhann Hjálmarsson fyrrverandi
bóndi, Ljósalandi, Skagafirði, síðar
húsvörður Menntaskólans við
Hamrahlíð, verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 31. maí
kl. 13.30.
Ólafur Þorvaldsson, Hjarðarholti 5,
Akranesi, sem lést 23. maí sl., verður
jarðsunginn frá Akraneskirkju
fimmtudaginn 31. maí kl. 14.
Páll Pálsson, fv. leigubifreiðastjóri,
Iðufelh 6, Reykjavík, sem andaðist
þann 23. maí, verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju fimmtudaginn 31. maí
kl. 15.
Auður Kristinsdóttir lést 20. maí.
Hún fæddist 5. júlí 1932, dóttir Helgu
Jónsdóttur og Kristins Vilhjálmsson-
ar. Auður lauk námi frá Kvennaskól-
anum í Reykjavík 1951 og hóf þá strax
nám í hjúkrun við HSÍ og lauk þaðan
prófi 1956. Hún starfaði við hjúkrun
á Akureyri og í Reykjavík um nokk-
urra ára skeiö, þar til hún giftist eft-
irlifandi manni sínum, Guömundi
Sigurðssyni, árið 1959. Þau hjónin
eignuðust sex börn. Útfor Auöar
veröur gerð frá Fossvogskapellu í
dag kl. 13.30.
Tilkyimingar
Framabraut, ný ráðningar-
Þjónusta og markaðsráðgjöf
Framabraut er ný ráðningarþjónusta og
markaðsráðgjöf, sem hefur í hyggju aö
bjóða upp á vandaða og sérhæfða þjón-
ustu. Ráðningarþjónustan býður upp á
viðtalstækni, undirbúning í starfsferils-
skýrslugerð og selur bæklinga til hlið-
sjónar því. Markaðsráðgjöfin er sérstak-
lega ætluð fyrir minni fyrirtæki sem ætla
að kynna nýja vöru/þjónustu á markað-
inn og/eða vantar hugmyndir í sambandi
við markaðsstefnur svo sem auglýsinga-
stefnur og markaðssetningu o.fl. Að-
standendur Framabrautar eru tveir New
York menntaðir markaðsfræðingar,
Bárður Jósef Ágústsson og Hanna Sigríö-
ur Magnúsdóttir, sem starfað hafa í
Bandaríkjunum um nokkurt skeið.
Framabraut hefur aðsetur aö Laugavegi
22A (bakhús) og símin er 91-620022.
Útibússtjóri Búnaðar-
bankans á Egiisstöðum
Á fundi bankaráðs Búnaðarbanka ís-
lands 21. maí var samþykkt einróma að
ráöa Ásgrím Hilmisson útibússtjóra við
útibú Búnaðarbankans á Egilsstöðum.
Ásgrímur hefur verið starfsmaður Út-
vegsbanka íslands frá 1964. Hann lauk
gagnfræðaprófi 1964 og áriö 1973 var
Annar þáttur bresks spennu-
myndaflokks í þrettán þáttum var
sýndur í ríkissjónvarpinu í gær-
k völdi og þriðji þáttur verður svo
að viku líðinni. Ég hef oft velt þeirri
spumingu fyrir mér hvers vegna í
ósköpunum ríkissjónvarpið tekur
ekki upp þá reglu að sýna fram-
haldsþætti sína þéttar. Hver nennir
eða getur fylgst með framhaldsþætti
sem verður á skjánum næstu þrett-
án vikumar. Og það á þeim árstima
þegar yfirgnæfandi hluti lands-
manna er á leið í frí, bæði utanlands
oginnan. Þetta er áreiðanlega ekki
leið til að flölga sjónvarpsáhorfend-
um ríkissjónvarpsins og jaðrar við
hann um sex mánaða skeið hjá National
Westminster Bank í London við nám.
Hann er fæddur 15. febrúar 1947. Hann
er kvæntur Ásu Sigríði Sverrisdóttur og
eiga þau tvær dætur.
Kúba og heimsstjórn-
málin í dag
Dennys Guzmán, sendiherra Kúbu á ís-
landi (með aðsetur i Stokkhólmi), er
staddur hér á landi. Hann heldur erindi
og svarar fyrirspurnum fimmtudaginn
31. maí kl. 20.30 á veitingahúsinu Punktur
og pasta (áður Torfan). Erindi hans nefn-
ist: Kúba og heimsstjórnmálin i dag og
fjallar ástand mála í Mið-Ameríku og
syðrihluta Afríku, atburðina í Austur-
Evrópu undanfarið og ekki hvað síst þró-
un mála á Kúbu síðustu ár. Aðaláhersl-
una leggur Dennys Guzmán á að svara
spumingum fundargesta og taka þátt í
umræðum. Túlkað verður af spönsku á
ensku og eins veröur íslenskur túlkur til
taks.
Leiklistarhátíð í Hveragerði
Bandalag íslenskra leikfélaga fagnar nú
40 ára afmæli sínu. Bandalagið er lands-
samtök allra áhugaleikfélaga landsins og
í því eru nú 89 leikfélög. I heildina má
segja að 60 leiksýningar séu nú settar á
svið árlega af þessum félögum og þær eru
sóttar af40.000 áhorfendum. Árlegur sýn-
ingafjöldi eru um það bil 550 og fjöldi
þátttakenda í sýningunum kringum
2.500. Leiklistarhátíðin í Hveragerði hefst
fimmtudaginn 31. maí og stendur til 4.
júní.
Kattaræktarfélag á íslandi
Þann 5. apríl sl. var stofnað fyrsta katta-
ræktarfélag á íslandi. Hlaut það nafnið
Kynjakettir, Kattaræktarfélag Islands.
Markmiö félagsins er að kynna katta-
ræktun með fundum félagsmanna, katta-
sýningum, útgáfu á fréttabréfi, skrán-
ingu katta og útgáfu á ættartölum. Félag-
ið ætlar að vinna með öðrum kattafélög-
um að baráttu fyrir málefnum katta,
kattaræktenda og kattavina. Símatímar
félagsins eru á mánudögum, þriðjudög-
um, miðvikudögum og um helgar kl.
20-21 í síma 91-624007. Þeir sem hafa
áhuga á að fá upplýsingar eða gerast fé-
lagsmenn geta hringt í þann síma.
Húnvetningafélagið
Félagsvist í kvöld, 30. maí, kl. 20.30 í
Húnabúð, Skeifunni 17. Allir velkomnir.
Knattspyrnuskóli
Þróttar 1990
í sumar verður starfræktur knattspymu-
skóli fyrir stelpur og stráka á aldrinum
5-13 ára. Haldin verða tjögur tveggja
vikna námskeið og standa þau frá kl.
9-12 eða frá kl. 13-16.
1. námskeið: 5.-15. júní.
2. námskeið: 18.-30. júní.
að vera móögun við þá.
Stöð 2 hefur tekiö upp þann fyrir-
myndarsiðað sýnaframhaldsþætti
mun þéttar. Til að mynda lauk í
gærkvöldi framhaldsþætti í sjö hlut-
um og tók ekki nema tvær vikur að
ljúkasýninguhans, endasýndur
tvisvar til þrisvar í viku. Mætti rík-
issjónvarpið að ósekju taka upp
þennan hátt eftir samkeppnisaðil-
3. námskeið 2.-14. júlí.
4. námskeið: 16.-28. júli.
Skráning og upplýsingar eru í síma 82817
milli kl. 17 og 21. Kennari á námskeiðum
Knattspymuskólans verður Theodór Jó-
hannsson, íþróttakennari og þjálfari.
Heimasími hans er 676865.
Námskeið
Námskeið í dáleiðslu
verður haldið þriðjudag og miðvikudag
5. og 6. júní nk. Námskeiðið stendur frá
kl. 19-23 bæði kvöldin. Á námskeiðinu
em kenndar ýmsar aðferöir við sjálfs-
dáleiðslu, einnig við að dáleiða aðra.
Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem vilja
fmna fyrir meiri slökun og auka sjálfs-
meðvitund, einnig þá sem vilja losna við
slæma ávana eins og reykingar og ofát.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er: Friðrik
Páll Ágústsson A.V.P. (Associated Vivati-
on professional). Hann hefur unnið við
lífóndun og dáleiðslu um nokkurt skeið
og haldiö mörg námskeið í lífóndun. Tak-
markaður fjöldi er á námskeiðinu svo
ráðlegt er að skrá sig sem fyrst. Kynning-
arverð á námskeiðið 5. og 6. júní 4.500
kr. Skráning og nánari upplýsingar hjá
Lífsafli, simi 622199.
Óvenjulegt stærð-
fræðinámskeið
fyrir börn
Dagana 5.-9. júní fer fram í Kennarahá-
skóla íslands tramhaldsnámskeið fyrir
kennara um stærðfræðinám. Þeir sem
sækja námskeiðiö hafa sl. tvö ár verið
að afla sér menntunar um nýjar og fjöl-
breyttar leiðir við stærðfrseðinám og
kennslu 6-12 ára bama. Kennaramir
hafa reynt fjölmörg verkefni með nem-
endum sínum úti í skólunum. Nú er kom-
ið að því að bjóða fleiri bömum að taka
þátt í þessu starfi. Boðið er upp á nám-
skeið fyrir böm sem vom í 1.-6. bekk sl.
vetur. Námskeiðið stendur dagana 6.-8.
júni kl. 9-12. Boðið verðm- upp á fjöl-
breytt verkefni bæði úti og inni og verða
margvisleg hjálpargögn notuð, svo sem
vasareiknar og tölvur. Skráning fer fram
í Kennaraháskóla íslands, endurmennt-
un, sími 688700, ekki síðar en fostudaginn
1. júní. Þátttökugjald er kr. 500.
Tapað fundið
Fress í óskilum
í Hafnarfirði
Lítiö hvitt og svart fress fannst í Hafnar-
firði. Upplýsingar í síma 50994.
umsínum.
Á dagskrá ríkissjónvarpsins í
gærkveldi var einnig þátturinn Nýj-
asta tækni og vísindi í umsjón Sig-
urðar Richter. Þessir þættir hafa
verið á dagskrá ríkissjónvarpsins
mjög lengi og eru afitafjafn-
skemmtilegir, eða þannig.
Þarna er tæpt á málunum og al-
menningur fær smánasasjón af því
sem hæst ber í heimi vísindanna á
hverjum tíma án þess að farið sé út
I flóknar útskýringar. Sem sagt, vís-
indifyriralmenning.
-Jóhanna Margrét
Fjölmiðlar___________________
í þrettán þáttum