Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Síða 32
TT A S l< O
• 25 •
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
T I Ð
F R É
Frjálst, óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990.
Skákmótið í Moskvu:
Jón L er í
baráttusæti
Þeir Jón L. Ámason og Jóhann
Hjartarson gerðu báðir jafntefli í
skákum sínum í 6. umferö skákmóts-
ins í Moskvu þar sem teflt er um
sæti á næsta heimsbikarmóti í skák.
Jón L. hafði hvítt og gerði jafntefli
við Dolmatov frá Sovétríkjunum en
Jóhann hafði svart gegn heimsmeist-
aranum fyrrverandi Michael Tal.
Skákin var hin fjörugasta og lét Tal
öllum illum látum en Jóhann sá við
honum og varð jafntefli niðurstaðan.
Sovétmaðurinn Bareev sigraði Sax
í gær og er nú einn efstur með 4 'A
vinning en 8 skákmenn voru með 4
vinninga. Síðan komu allmargir með
3 'A vinning og þar á meðal Jón L.
Jóhann er með 3 vinninga. Þar eð 12
efstu sætin gefa rétt til að tefla á
heimsbikarmótunum þá ættu mögu-
leikar okkar manna aö vera þokka-
legir. Sérstaklega ef tekið er tillit til
þess að aðeins flmrn Sovétmenn
mega vera á meðal þeirra. -SMJ
Kópavogur í gær:
Fjórtán óku
yfir á rauðu
Töluvert mikið hefur verið um að
lögreglu í Kópavogi hafi borist kvart-
anir að undanförnu vegna öku-
manna sem hafa ekki virt stöðu
umferðarljósa. Var því gerð könnun
á málinu síðdegis í gær.
Lögreglubílar voru staðsettir við
gatnamót Nýbýlavegar og Þver-
brekku annars vegar og við Tún-
brekku hins vegar. Fjórtán ökumenn
voru stöðvaöir eftir að þeir óku yfir
á rauðu ljósi. Auk þess voru þrír bíl-
ar stöðvaðir sem enn voru á nagla-
dekkjum og mega ökumennirnir bú-
ast við sektum.
Á meðal þeirra sem voru stöðvaðir
í könnuninni var ökumaður bíls sem
ekki hafði verið færður til skoðunar
síðan 1987. -ÓTT
Selfoss:
Samvinna
D-og K-lista
Formlegar viðræður sjálfstæöis-
manna og félagshyggjufólks verða á
Selfossi í kvöld, að frumkvæði sjálf-
stæðismanna. Eru taldar töluverðar
líkur á að þessir aðilar nái saman
um meiruhlutasamstarf. -hlh
Viðræður á Akureyri?
Viðræður Sjálfstæðismanna og Al-
þýðubandalagsmanna munu halda
áfram á Akureyri í dag. Sjálfstæðis-
menn munu funda sína á milli um
árangur viðræðnanna í hádeginu en
síðan veröur fundað með Alþýðu-
bandalaginu. -SMJ
LOKI
Það er ýmist stríð í Kópó
um Fossvogsdal eða
Geirdal!
Viöræður D-lista og B-lista í Kópavogi:
mw m m m m x
Kristjan verður
ekki bæjarstjori
- engar líkur á öðru en samkomulagi, segir Sigurður Geirdal
„Það sér hver maöur að eitthvað mundsson, núverandi bæjarstjóra. stæðisflokks, sagðíst neita öllum gætt yrði að jafnræði viö kjör i
slíkt þarf til svo einn maður týnist Sjálfstæðisflokkurhefur funmhæj- sögusögnum um gylliboð sjálfstæð- nefndir og ráð á vegum bæjarins.
ekki,“ sagði Sigurður Geirdal,bæj- arfulltrúa og Framsókn einn. ismannatilhandaSigurðiGeirdal. Þaö á eftir að útlista frekar.
arfúlltrúi Framsóknarflokksins í Framsóknarmennhafamikinnhug Framsóknarmenn gerðu sjálf- Á fyrsta formlega fundinum
Kópavogi, þegar hann var spurður á að þeirra maður verði bæjar- stæðismönnum strax grein fyrir verður farið yfir flesta og jafnvel
hvort gert væri ráð fyrir, í væntan- stjóri. þeirri kröfu sinni að handbolta- alla máiaflokka og skiptingu emb-
legum meirihlutaviðræðum Fram- „Það verður glímt við að halda höllin yrði byggð. Sjálfstæðismenn ætta á vegum bæjarins.
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, jaftiræði og skipta völdum og áhrif- hafafallistóþað.þómeðþeimskil- Framnsóknarmenn samþykktu
að hann veröi næsti bæjarstjóri i um. Ég ætla mér að stækka flokk- yrðum að hönnun og gerð hússins með miklum meirihluta aö ræða
Kópavogi.Bæjarstjórastaðanhefur inn á kjörtímabilinu,“ sagði Sig- verði endurskoðuð með það mark- fyrst við Sjálfstæðisflokk. Fráfar-
ekkí verið rædd formlega. urður Geirdal. mið að flnna leiðir til spamaðar og andi meirihlutaflokkar höfðu einn-
Fulltrúaráð beggja flokkanna Sigurður sagði að engar líkur að teknar verði upp viðræður við ig óskað eftir viðræðum við Fram-
samþykktu í gær að hefja viðræður væruáöðruensamkomulagtækist ríkissjóð um endurskoöun á samn- sókn. Innan flokksins eru margir
ummyndunmeirihlutaflokkanna. milli flokkanna um meirihluta- ingi um byggingu hússins. ósáttir vegna þess að Framsókn
Samkvæmt heimildum DV segja samstarf. Formlegar viðræður I drögum Sjálfstæðisflokks, sem fékk ekki aö vera með í meirihlut-
sjálfstæðismenn ekki koma til hefjast í kvöld, lágu frammi á fundi fulltrúaráðs anum á árunum 1986 til 1990.
greina að endurráða Kristján Guð- Gmtnar I. Birgisson, oddviti Sjálf- Framsóknarfélaganna, sagði að -sme
„Hún er hol að innan,“ segir naívistinn Stefán frá Möðrudal um uppáhaldsmyndefni sitt, Herðubreið. Stefán undir-
býr sig nú fyrir listahátíð með harmóníkuleik og söng. Á laugardag verður opnuð í Hafnarborg sýning sem ber
yfirskriftina Einfarar í íslenskri list. Á annan tug listamanna á verk á sýningunni. Allir eru þeir sjálfmenntaðir og
fylgja ekki ríkjandi hefðum í list. DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Rigning
syðst á
landinu
Á morgun verður austlæg átt,
gola eða kaldi. Rigning verður
syðst á landinu og sums staðar
þokubakkar við Norður- og aust-
urströndina, annars staðar skýj-
aö en yfirleitt þurrt. Hitinn verð-
ur 7-13 stig.
Slasaðist eftir
að hníf var beitt
Til átaka kom í íbúð við Snorra-
braut í gærkvöldi með þeim afleið-
ingum að karlmaður hlaut áverka
eftir að kona hafði lagt til hans með
hnífl. Maðurinn slasaðist þó ekki al-
varlega. Hann var fluttur á slysa-
deild ásamt tveimur öðrum sem
einnig höfðu hlotið meiðsl vegna
slagsmála sem brutust út í íbúðinni.
Þegar lögreglan kom á vettvang
voru töluvert margir í íbúðinni.
Fimm manns voru handteknir.
Grunur leikur á að fólkið hafl verið
undir áhrifum fíkniefna. -ÓTT
ísaQörður:
Viðreisn að fæðast
Viðræður Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokks um meirihlutasamstarf
á ísafirði stóðu yfir í allan gærdag. í
samtali við Ingibjörgu Ágústsdóttur,
oddamann krata, í morgun kom fram
aö vilji væri hjá báðum aðilum til að
ná saman en skýrari línur fengjust
fyrst eftir fundi í kvöld. Fulltrúar
Sjálfstæðs framboðs höfðu farið á
fjörurnar við krata um samstarf en
þeir töldu viðræðugrundvöll ekki
vera til staðar eftir aö viðræður við
sj álfstæðismenn hófust. -hlh
I LEIÐINNI HEIM
jarlínn
KRINGLUNNI
TRYGGVAGÖTU SPRENGISANDI
BÍLALEIGA
v/Flugvallarveg
91-61-44-00