Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1990, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990.
Fréttir
Krýning keisara Atlantis á Stóra-Dímoni í gær:
Þetta er alveg
meiriháttar athöfn“
„Þetta hefur verið mikil ákvörðun
og vel til fallið að hafa krýninguna á
afmælisdegi okkar Sveinbjarnar.
Þetta hefur staðið tíi lengi en þetta
ár var alveg eins gott og hvert annaö
til þess. Við drifum bara í þessu núna
og þetta er alveg meiriháttar at-
höfn,“ sagði Haukur Halldórsson,
keisari Atlantís, við DV á leiðinni
niður hlíðar Stóra-Dímons í glamp-
andi sólskini um miðjan dag í gær.
Uppi á Stóra-Dímoni voru saman-
komnar um tíu til fimmtán mann-
eskjur til að vera viðstaddar fyrsta
þátt í krýningu Hauks til Mar IX.,
keisara Atlantis. Blálitum fánum
með merki Atlantis hafði verið kom-
ið fyrir í skarði austast á Dímoni, þar
sem sjá mátti bæði yfir undirlendið
til Vestmannaeyja og upp að Eyja-
flallajökli. Þá klæddust viðstaddir
sérstökum bolum með merki Atlant-
is.
Þeir Haukur og Sveinbjöm Bein-
teinsson allsherjargoði komu sér fyr-
ir og athöfnin hófst. Allsherjargoð-
inn hóf að kyrja kveðskap og þar á
eftir skiptust þeir félagar á kveðju
og héldu kórónunni á milli sín. Kór-
ónuna átti ekki að setja upp fyrr en
niðri við sjó. Eftir stutta veru uppi á
Dímoni var síðan haldið niður og til
næstu áfangastaða krýningarinnar:
Skógarfoss, Seljalandsfoss og Krísu-
víkur.
Helgaður loftinu
- En af hveiju þessir staðir, Hauk-
ur?
„Hér á Dímoni viljum við vera hátt
uppi þar sem ég er helgaður loftinu.
Dímon er fjallið eina og er orðið keis-
aralegt hér með. Síðan fömm við að
Skógarfossi og þar verð ég helgaður
vatninu. Þá fömm við að 20. lengd-
argráðu, niður að sjó, þar sem ég
verð helgaður hafinu og Atlantis. Á
20. lengdargráðu em mörk austur-
og vesturheims. Þá komum við að
Gljúfrabúa og göngum þar inn. Þar
verð ég helgaður jörðinni. Loks för-
um við að Krísuvík þar sem ég verð
helgaður eldinum. Þetta er allt mjög
táknrænt."
Hreyfingin Atlantis er ekki form-
lega til hér á landi en angar af henni
fmnast víða. Með krýningu Hauks
sem keisara Atlantis telja hann og
samfylgdarmenn hans að hreyfingin
hafi fengiö samnefnara.
„Táknrænt fyrir eyðileggingu
jarðar“
„Atlantis hvarf í hafið fyrir um það
bil 10 þúsund árum og hvarfið er
táknrænt fyri eyöileggingu jarðar.
Sú eyðilegging má ekki endurtaka
sig en því miður er mannskepnan að
eyðileggja jörðina í dag eins og áður.
Sagnir segja að Atlantis hafi horfið
vegna vangár og græðgi Atlantisbúa.
Það má heimfæra upp á daginn í
dag. Það má hins vegar taka fram
að við viljum enga öfga í friðunar-
málum, við viljum nýta jörðina skyn-
samlega."
- Hvers vegna vilt þú verða keisari
Atlantis?
„Keisaratignin er nátturlega ekki
annað en tákn en ég hef haft áhúga
á þessu lengi. Við viljum vekja fólk
til umhugsunar um þessi mál'sem
við nefndum hér á undan. Hreyfmgin
er alls ekki tengd trúarbrögðunj eða
slíku, alls ekki. Sveinbjöm var hér
með okkur þar sem ég gat ekki feng-
iö páfann til að krýna og heldur ekki
biskupinn. Sveinbjöm er löglegur
trúarleiðtogi og betri en báöir fyrr-
nefndu til samans."
Seint í haust veröur krýningar-
veislameðmikluhúllumhæi. -hlh
Sigríður Guimaisdóttir, DV, Hveragerði:
Fólki hér í Hveragerði brá nokkuð í
gærmorgun, stundarfjórðung yfir
níu, þegar lausir munir fóm að hrist-
ast og miklar dranur heyrðust. Hlut-
ir hreyföust úr stað en ekki er vitað
um neinar skemmdir og ekki féllu
munir úr hillum verslana.
Samkvæmt upplýsingum Veöur-
stofunnar mældist sKjálftinn í gær-
morgun um þijú stig á Richter. Ann-
ar minni kom nokkm síöar. Hins
vegar varð skjálftans vel vart í
Hveragerði vegna þess hve upptök
hans vom skammt frá eða aðeins sex
kílómetra norður af bænum austan
í Hengli. Talsvert hefur verið um
minni háttar skjálfta á þessu svæði.
Eiginlega jarðskjálftahrina frá því
um miðjan júní.
Haukur Halldórsson, keisari Atlantis, og Sveinbjörn Beinteinsson alisherjar-
goði við krýninguna sem fór fram á Stóra-Dímoni í gær. DV-mynd BG
- kvennasveitin langefst
ísak Öm Sigurðssan, DV, Eæreyjum:
íslensku sveitimar á Norður-
landamótinu í bridge unnu stór-
sigra á Færeyingum í gær, fúlln-
aðarsigra, og standa vel að vígi í
báöum flokkum. í kvennaflokkn-
um hefur ísland 10 stiga fomstu
en í opna flokknum em íslensku
Norðurlandameistaramir í ööm
sæti, 15 stigum á eftir Svíum.
Aðeins ein umferö var spiluð í
gær en i dag hefst síöari hluti
mótsins með tveimur umferðum.
Það leit ekki sérlega vel út í
hálfleik um góð úrslit gegn Fær-
eyjum í opna flokknum í gær.
Munurinn var aðeins 15 impar,
48-33, en í síðari hálfleik settu
ísl. strákamir í fimmta gír. Skor-
uðu .þá 74 impa gegn 10, sem
nægði í 25-3 sigur. Finnar unnu
nauman sigur á Noregi 16-14 og
sama er aö segja um'Svía gegn
Ðönum. Svíar unnu 16-14.
Staðan í opna flokknum eftir
5 umferðir. Svíþjóð 102, ísland 87,
Danmörk 82, Finnland 74, Noreg-
ur 73 og Færeyjar 22 stig.
íslensku konurnar héldu upp-
teknum hætti í 5. umferð, unnu
öruggan sigur á Færeyjum og
hafa unnið alla leiki sína í fyrri
hluta mótsins. Þjóðimar spila tví-
vegis saman innbyrðis. Forustu
þeirra kemur mjög á óvart, því
þær voru neðstar á NM, sem
haldið var fyrir tveimur áram í
Reykjavík.
Helstu keppinautar þeirra nú,
Danir, töpuðu fyrir Svíum i gær
11-19 og Island hefur 10 stíg for-
ustu eftir 25-4 slgur á Færeyjum.
Staðan í kvennaflokki er þannig,
ísland 101, Noregur 91, Dan-
mörk 87, Svíþjóö 73, Finnland 60
og Færeyjar 24 stig. í gær vann
Noregur Finnland 16-14 í
kvennaflokknum.
í dag verða tvær umferöír -
leikir gegn Noregi og Svíþjóð í
báðum flokkum.
Landsmót hestamanna á Vindheimamelum:
Sá sigurstranglegasti
heltist á keppnisdegi
Gréta Urban og Elsa Jónsdóttir í kaupfélaginu heyrðu miklar drunur og
allt fór að hristast. Gréta er við hillu og bendir á vörur sem færðust úr stað.
DV-mynd Sigríður
Hveragerði:
Miklar drunur og
hlutir hristust
Enn fjölgar hestaáhugamönnum á
Vindheimarnelum og era komin á
fimmta þúsund manns á landsmótið.
Aðstaða er öll til fyrirmyndar og
greinilegt að forsvarsmenn mótsins
hafa lagt metnað sinn í að öllum liði
véL
Bjart veður er á mótsstað en nokk-
ur gjóla. Búist er við úrvalsveöri með
sólskini um helgina og þá fer móts-
gestuni að hitna.
{gær voru dæmdir B-flokks hestar.
Hestar af Suöurlandi röðuðu sér í
átta efstu sætin. Tölthryssan Dimma
(Geysir) stendur efst fyrir röðun með
einkunnina 8,92. Knapi er Rúna Ein-
arsdóttir. Kjami (Fákur) er annar
með 8,84. Knapi er Sævar Haralds-
son. Kraki (Fákur) er þriðji með 8,81.
Knapi er Unn Kroghen. Pjakkur
(Hörður) er fjórði með 8,67. Knapi er
Ragnr Ólafsson. Frúar-Jarpur (And-
vari) er fimmti með 8,61. Knapi er
Halldór Svansson. Ögri (Sleipnir) er
sjötti með 8,61. Knapi er Þorvaldur
Sveinsson. Vignir (Fákur) er sjöundi
með 8,56. Knapi er Sigurbjöm Bárð-
arson. Gola (Gustur) er áttunda með
8,56. Knapi er Öm Karlsson. Hálegg-
ur (Þjálfi) er níundi með 8,54. Knapi
er Jens Öli Jespersen. Bylur (Funi)
er tíundi meö 8,52. Knapi er Birgir
Árnason. Þessir tíu hestar mæta í
úrslitakeppnina í B- flokki á sunnu-
daginn.
ísak frá Litla-Dal, sem spáð var
einu af efstu sætunum, slasaðist á
fæti á keppnisdeginum og féll úr
keppni.
Stóðhestar voru dæmdit í gær en
hryssur verða dæmdar í dag. Á laug-
ardaginn verða kynbótadómar birtir
' og þá hefjast miklar umræður um
hrossaræktarráðunautana og störf
þeirra. Ekki verða allir eigendur
hrossanna ánægðir.
Beint útvarp frá borgarstjórn?
Minnihlutaflokkamir í borgar-
stjóm leggja fram tvær tillögur á
borgarstjómarfundi í dag. Þessi
fundur er sá síðasti fyrir sumarleyfi
borgarstjómar.
Önnur tillagan er um að framvegis
verði beinar útvarpssendignar frá
umræðum í borgarstjóm. Flutnings-
menn tillögunnar vilja að kannað
veröi hvort mögulegt sé að nýta þá
senda sem starfandi útvarpsstöðvar
eiga. Að öðrum kosti komi borgin sér
upp nauðsynlegum tækjabúnaði.
í greinagerð með tillögunni segir
að auka þurfi möguleika Reykvík-
inga til að fylgjast með umræöum í
borgarstjóm. Þar er einnigfjallað um
áhugaleysi fjölmiðla á umræðum í
borgarstjóm.
Önnur tillaga, sem minnihluta-
flokkarnir leggja fram í dag, er á þá
leið að þeim flokkum, sem eiga full-
trúa í borgarstjóm en hafa ekki
kjöma fulltrúa í mikilvægum nefnd-
um og ráðum, verði heimilt að til-
nefna áheymarfulltrúa með mál-
frelsiogtillögurétti. -sme