Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1990, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990.
13
Afstaða Alþýðubandalags-
ins geymd en ekki gleymd
Sjúkraliði skrifar:
Ég hefi alltaf verið stuðningskona
Alþýðubandalagsins en nú sé ég
mjög eftir atkvæði minu til þess í
síðustu borgarstjórnarkosningum.
Þegar á eitthvað reynir fyrir alvöru
kýs Alþýðubandalagið að sitja hjá. -
Ekki styð ég lengur flokk sem ekki
treystir sér til að taka afstöðu (nær
30% sitja hjá í miðstjórn) þegar verið
er að brjóta samninga á verkalýðs-
félagi. - Þess í stað kýs flokkurinn
að ýta vandanum á undan sér. Á ef
til vill að láta aðra um að taka til
eftir sig?
Alþýðubandalagið er greinilega
búið að gleyma hvaðan stuðningur
þess kemur að mikium hluta. Það er
ekki neinn óskilgreindur „verkalýð-
ur“ heldur fyrst og fremst háskóla-
menntað fólk og aðrir opinberir
starfsmenn.
Ég held að Alþýðubandalagið sé
búið að vera! - Enginn blekkingar-
vefur fær okkur til að gleyma hvaða
afstöðu Alþýðubandalagið tók í
BHMR-deilunni. - Ég mun aldrei aft-
ur setja X við G.
Verðtrygging er ekki vextir
Kjósandi skrifar:
Nýlega skrifaöi „Ung móðir" grein
í DV þar sem hún hvatti til afnáms
verðtryggingar á lánsfé. - Það eru
sem betur fer orðnir mjög fáir nú
orðið sem ekki skilja muninn á verð-
tryggingu og vöxtum. Viö iifum á
tímum upplýsinga. Að vísu hafa
nokkrir lukkuriddarar í röðum
stjórnmálamanna (og verkaiýðsleið-
toga) reynt að blekkja fólk og rugla
þessu tvennu sífellt saman í ræðum
en flestir sjá sem betur fer í gegnum
þann skollaleik.
Ef þú, lesandi góður, lánar ein-
hveijum manni verðmæti í vissan
tíma er þaö aöeins eðhleg krafa að
þú fáir a.m.k. sömu verðmæti til
baka að lánstíma liðnum, og þá helst
með einhverjum vöxtum. - Eða hvers
vegna ættu menn að lána t.d. banka
fé ef þeir þurfa svo að borga fyrir
geymsluna? Myndi „Ung móðir“
sætta sig við það?
Hitt er svo allt annað og óskylt mál
að allt of margir ana hugsunarlítið
út í fjárfestingar sem þeir ráða engan
veginn við. Sumir vilja svo jafnvel
um leið „lifa flotf ‘ og veita sér utan-
landsferðir og annan munað en eru
svo bæði undrandi og sárir þegar
þeir geta ekki staðið í skiium og
kenna verðtryggingu eða vísitölu-
hækkun um allar ófarimar. - En
slíkt óraunsæi er auðvitað hvorki
lánastofnunum, verðtryggingu né
eigendum sparifjárins að kenna.
Onnur lygi hefur einnig veriö vin-
sælt áróðursbragð í röðum lukku-
riddara: Það er að hamra stöðugt á
því að „launþegar" og „sparifjáreig-
endur" séu einhverjar tvær and-
stæðar fylkingar í landinu. - Stað-
reyndin er sú að „sparifjáreigendur"
og „launþegar“ eru mestan part sami
hópurinn, þ.e. hinn almenni lands-
maður.
HUS OG GARÐAR
Miðvikudaginn 11. júlí nk. mun aukablað um
HÚS OQ GARÐA fylgja DV.
í blaðinu verða m.a. hollráð um ýmislegt sem að gagni má
koma við garðstörfin og ekki síður varðandi viðgerðir og við-
hald húsa. T.d. málningarvinnu og fúavörn, steypuskemmdir
og sprunguviðgerðir, hitalagnir og stéttir en einnig sigól-
veggi, leiktæki fyrir börn o.fl. o.fl.
Þeir augiýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu auka-
blaði, vinsamlegast hafí samband við auglýsingadeild DV hið
íýrsta í síma 27022.
Ath.I Skilafrestur auglýsinga er til 5. júlí.
DÖNSK GÆÐAVARA
VONDUMVAT.ID
FYRIR BÖRNIN
Við höfum ekki efni á að gleyma öryggi barnanna.
Barnahjól þurfa að endast minnst 3-5 ár. Winther hjól-
in gera gott betur, þau ganga í erfðir!
Nokkur dæmi:
Níðsterk þríhjól frá kr. 4.510,- stgr.
• Hvergi skörp hom og hættuleg göt.
• Hönnun í sérflokki með öryggið í fyrirrúmi.
• Þríhjól sem endast og með varahlutaþjónustu.
• Fyrir 1-5 ára.
Tvíhjól með 10 ára ábyrgð á kr. 11.430,- stgr.
• Breið dekk - fótbremsa.
• Níðsterkt stell með 10 ára ábyrgð.
• Þola mikla notkun.
• Fyrir 2'/2-6 ára.
• Góð varahlutaþjónusta
BMX fyrir þau yngstu á kr. 11.620,- stgr.
• Níðsterkt stell með 10 ára ábyrgð.
• Ekta BMX litir og dekk.
• Fótbremsa eins og á öllum Winther bárnatvíhjólum.
• Fyrir 2‘/2-6 ára.
• Góð varahlutaþjónusta.
OPIÐ LAUGARDAGA KL. 10-14
ÖRNINN
Spitalastig 8 vió Oðinstorg simar 14661,26888
Auglýsingadeild
SÉRVERSLUN í 65 ÁR