Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1990, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1990, Page 15
FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990. 15 Mennt er máttur - eða hvað? Mennt er máttur var og er rétt- mætt orðtak sem í heiðri skyldi haft. Vissulega á hin sanna mennt að veita mátt til meiri og betri starfa og með sanni má segja að svo sé oft á tíðum. En stundum er þetta alls ekki einhhtt. Nú skal ég ekki taka undir þann hvimleiða söng, sem svo oft er sunginn, að sérfræð- ingar í hinu og þessu verði svo sér- lærðir að þeir sjái ekki út fyrir sér- fræðina sína og einangrist í alltvit- andi eigin speki án allra tengsla við virkileikann í kringum sig. Eg hygg að varla geti nokkur orðið svo langt leiddur í einhverri sérgrein, að allt samband við umhverfið rofni með öllu. Hinu er ekki að leyna að svo góð og nauðsynleg sem sérfræðiþekk- ing er þá má hún aldrei snúast upp í andhverfu gæða sinna á þann veg að hún þrengi sjóndeildarhringinn eða valdi því jafnvel að yfirlætið verði einkennið: Ég einn veit, enda sérfræðingur. Tama var skrýtin þula, munu eflaust ýmsir segja. Ég ætla hins vegar að vona að mál mitt hér á eftir megi skýra, hvers vegna pistill um afleiðingar áfeng- isbölsins upphefst svo. En að ástæðulausu er það eki. Undirrótin sjálf Mér hreinlega ofbýður það, þegar verið er að fjalla um ýmis sam- félagsleg vandamál, sem hrópa í ráun í himininn og sem eiga hvað gleggsta og um leið augljósasta skýringu - ástæðuna sjálfa, í áfeng- Kjallarinn Helgi Seljan form. Landssambandsins gegn áfengisbölinu inu, að þá er eins og áfengið sé ekki til, því sé gleymt eða það þyki einfaldlega ekki vert að vera að geta þess, svo mikið aukaatriði sé það. Og ég játa vonbrigði mín með þessa umfjöllun oft á tíðum, þegar hinir vísustu vitringar véla um of- beldi, sjálfsvíg eða afbrot ýmiss konar og leita alls kyns sálfræði- legra og samfélagslegra skýringa og kafa djúpt en engum dettur í hug að ýja að því að máski geti nú áfengisneyzla einhvers staðar komið inn í myndina. Menn mega ekki verða svo yfir- þyrmandi lærðir og gáfaðir að þeir leiti svo langt yfir skammt að or- sökum, vefji sig inn í alls konar óljósa speki en láti. sér með öllu sjást yfir hið augljósa. Oftar en ekki er það svo að spurt er beint um afleiðingu og orsök og virðist þó svo að spyrlar fjölmiðla almennt megi helzt ekki á áfengi minnast, en sé svo er venjulega farið undan í flæmingi af þeim sér- fróða og farið í mikla eftirleit um afkima sálarlífsins og ranghala samfélagsins til að snúa sig út úr málinu. Það er sem sagt verið að reyna að finna einhverja yfirskil- vitlega skýringu, annars vegar til að sýna hinn mikla lærdóm, hins vegar máski til að fría áfengiö af allri sök. Eða hvað á maður að halda? Því miður segja fréttir okkur aðra sögu þegar þorað er að segja frétt- ina til enda. Því miður gefa upplýs- ingar þeirra sem við afleiðingamar og alvöru þeirra fást okkur allt annað. Hvort sem ofbeldið er inni á heimilum eða úti á götunum, þá er áfengið oftar en ekki á einhvern veg með í fór, oftar beinlínis. ... þá ofbýður mér Hversu hörmulega oft tengjast ekki sjálfsvígin áfenginu, oftast beint. Hversu ótrúlegur fiöldi af- brota er ekki framinn undir áhrif- um þessa eiturs, sem margir lýsa einungis sem saklausum gleðigjafa, sjálfsögðum fylginaut fólks, sem eiga vill gjöfula gleðistund, allt að því eðlilegumhluta af hamingjunni sjálfri. Og mér ofbýður ekki þó einhver aumur froðusnakkur, sem sjálfur er oft ánauðugur áfengisþræll mæli svo, firri áfengið allri sök, afneiti jafnvel meö öllu aðild þess að ýmsu mannlegu böli. En þegar fólk með sérfræðiþekk- ingu í farteskinu á að kryfia ein- mitt þessi hörmulegu mál og vísa okkur í krafti menntunar sinnar til vegar, eri forðast eins og heitan eldinn að ræða raunveruleikann, flýr í þess stað langt inn í frum- skóga fræðikenninganna, þá of- býður mér, þá fer ég jafnvel stund- um að efast um gildi orðtaksins í upphafi. Nú er ég ekki að neita því að ýmis innri vandamál mannskepn- unnar og ýmsar samfélaglegar or- sakir komi ekki æði oft við sögu varðandi hin fiölmörgu vandamál, sem varða sjálfa lífshamingjuna, lífið sjálft. En það er með undrum, ef þeir sem gleggsta eiga að hafa yfirsýnina og mesta hafa menntun- ina um leið, geta vikið frá sér svo alvarlegri orsök og augljósri sem áfengið er. Það er máski ekki unnt aö hafa uppi svo háspekilega tölu um áfengið eins og sálarflækjurnar og samfélagsvandann eða þá að fólk er feimið við það einfaldlega að nefna þennan vágest á nafn, vitandi sig oft eiga hann í eigin fórum sem fylginaut. Og svo er það máski ekki fínt hjá þeim sem lyfta glösum með göróttri veig á „menningar“stundum að vera að koma óorði á þennan „gleði“gjafa sinn í opinberri um- ræðu. Spyr sá sem saknar opinskárra yfirlýsinga og upplýsinga af munni þeirra sem menntin á að hafa gefið mátt til að segja sannleikan um- búðalaust en vefia hann ekki í óskiljanlegt, innantómt orðagljáf- ur. Má ég biðja okkar ágætu sérfræð- inga að huga hér að, þegar um vandamál líðandi stundar er spurt, þau vandamál sem leika þúsundir svo hörmulega grátt, vandamál sem eiga áfengið óumdeilanlega að undirrót. Mennt á að vera máttur. Helgi Seljan „Hvort sem ofbeldið er inni á heimilum eða úti á götunum, þá er áfengið oftar en ekki á einhvern veg með í för, oftar beinlínis.“ „Allt gaman búið“ „Tilfinning fyrir hlutverkinu er enn mest á jaðarstöðvum banda- ríska heimsveldisins (the outposts of the american empire) - stöðum eins og hlutlausa beltinu í Kóreu og á Keflavíkurflugvelli á íslandi en þaðan er fylgst með sovéskum kafbátum og flugumferð á Norður- Atlantshafi." Þannig segir í titil- grein Newsweek frá 19. mars sl. en hún fiallar um samdrátt í Banda- ríkjaher. Fram kemur að útköllum frá Keflavíkurflugvelh til að fylgjast með sovéskum vélum fækkaði úr 170 árið 1985 í 65 í fyrra og í aðeins tvö í janúar í ár. Þá segir að til að halda vöku sinni æfi menn með því að láta sem umferð sé meiri en í raun og veru. Greinin verður hér endursögð. Webster, yfirmaður leyniþjón- ustunnar, CIA, segir ógn hefö- bundins styrks Sovétmanna búna að vera um fyrirsjáanlega framtíð. „Við erum lika skattgreiöendur," segja hermenn nú og flestir gera sér grein fyrir að hvorki austur né t vestur getur lengur greitt kostnað- inn sem fylgdi kalda stríðinu. í herstövum Bandaríkj amanna í V-Þýskalandi sem og heima fyrir er áhöfnum skriðdreka nú kennt í tövlubúnum hermi, sandkassar með leikfongum notaðir við að sýna bardagaaðferðir. Fé til æfinga hefur verið skorið áður en útgjöld til dýrra vopnakerfa hafa verið minnkuð en hergagnaiðnaðurinn rekur áróður fyrir þeim í Was- hington. í Fort Cranston í Colorado hafa áhafnarforingjar skriðdreka farið í járnvöruverslanir í nágrenninu og keypt inn varahluti fyrir eigið fé til aö halda þeim gangandi. Vamar- málaráöherrann áætlar 300.000 manna fækkun í 2,1 milljónar manna herafla Bandaríkjanna fyr- ir 1994. Aðrir sérfræðingar telja að fækkað muni hafa um helming í heraflanum fyrir aldamót. KjaUaiinn Jón Hjálmar Sveinsson fyrrverandi sjóliðsforingi Endurskipulagning, ný hlutverk „Árið 1917 gat enginn séð fyrir 1939. Erfitt er að sjá 2025,“ sagði Hall undirflotaforingi, yfirmaður bandaríska hersins á íslandi, við Newsweek. í kennslu foringja er nú minna lagt upp úr Sovéthernum en áður, til dæmis er fiallað um hugsanlegar aðgerðir gegn Medell- ín eiturlyfiahringnum. Þegar nem- um var sagt að nú yrðu þeir að finna ný hlutverk fyrir herstjórn- arlistina, ekki væri lengur um austur-vestur klofning að ræða, bá svöruðu þeir: „Allt gamanið er búið.“ Greinar heraflans eru nú að end- urmeta hlutverk sín. Áhersla flug- hers flyst frá langdrægum sprengjuflugvélum til beins stuðn- ings við aðgerðir landhers. Með færri skipum kynni úthald að auk- ast á skip sem aftur leiddi til þess að færri yrðu viljugir til að þjóna í flotanum. Landherinn er að hverfa frá skriðdrekum og þungum fallbyssum yfir í léttvopnað fót- göngulið til minni háttar átaka. Heraflinn hefur fengið ný verk- efni sem áður voru talin aukaatriði eða ekki við hæfi að hann sinnti. Yngri menn sjá ekkert athugavert við að herinn sé með í baráttunni gegn eiturlyfium, sérstaklega þar sem varið er miklu fé til hennar. Eldri foringjar segja herinn ekkert hafa að gera í lögregluhlutverki, slíkt geri hann jafnvel vanhæfari til hins eiginlega, hermenn eigi ekki að venja sig á að skjóta viðvö- runarskotum. Út í óvissuna Wilham D. Henderson ofursti er að gefa út bók um ástand land- hersins og segir áhyggjuefni hve liðsmenn hafi almennt sýnt lélega útkomu á gáfnaprófum en herinn hefur byggst upp á sjálfboðaliðum síðan heskylda var afnumin 1973. Hann telur að af 1,9 milljónum manna alls (atvinnuhermönnum, varahðum og borgaralegu þjón- ustufólki) í landhernum geti ein- ungis 85.000 valdið vopni. Þetta myndi einungis nægja til aðgerða í Karíbahafinu. Spáð er að samdrátturinn geti fækkað foringjum með borgaralega háskólamenntun, hlutfall foringja með eiginlega herskóla myndi þá aukast og menn óttast að þeir verði stríðsmannastétt án tengsla við borgaraleg gildi. Tap þeirrar óvinaímyndar sem kalda stríðinu fylgdi gæti slævt varnarvilja, aga gæti hrakað og slysum myndi fiölga og njósnir aukast vegna skorts á trúnaði. Niðurstaða Newsweek er að bandarískir hermenn leiti í nýjum heimi fyrirkomulags sem kæmi í veg fyrir að þeir yrðu hunsaðir eins og forverar þeirra' sem þjónað hafa á friðartímum. Hæfileiki þeirra til að lifa af styrjöld (varnavilji og þjálfunarstig) er kominn undir því hvort þeim tekst að finna það. í framhaldi af umfiöllun News- week mættu íslendingar spyrja sig hvort draumar utanríkisráðherra um varaflugvöll og afvopnunareft- irlit með miklum umsvifum á ís- landi séu raunsæir. Enskt máltæki segir: „Traveling makes á wise man better, but the fool worse“ - svo kannski er mál að ráðherra haldi sig meira heima. Jón Hjálmar Sveinsson „Yngri menn sjá ekkert athugavert við að herinn sé með i baráttunni gegn eiturlyfjum, sérstaklega þar sem varið er miklu fé til hennar,“ segir greinarhöf. m.a. - Bandarísk lögregla handtekur eiturlyfjasala á götum úti. „í framhaldi af umfjöllun Newsweek mættu íslendingar spyrja sig hvort draumar utanrikisráðherra um vara- flugvöll og afvopnunareftirlit með miklum umsvifum á íslandi séu raun- sæir.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.