Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1990, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1990, Page 27
FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990. 35 Sviðsljós Ólyginn sagði... Sinéad O'Connor hefur yfirgefið eiginmann sinn, trommarann John Reynolds. Þau eiga saman einn son, Jake, sem er þriggja ára gamall og verður hann áfram hjá fóður sínum. Sinéad fór frá John til að geta flutt til nýs vinar. Það er Hugh Harris sem er 25 ára Breti. Hugh er söngvari og á hljómleikaferð Sinéad um Bandaríkin nýlega söng hann í upphitunarbandinu. Sögusagnir herma að Sinéad og Hugh leiti sér nú að húsnæði þar sem þau geti búið. Þau ætla sér að lifa í ró og næði þar sem þau geta skrifað tónlist saman. Mike Tyson er orðinn faðir og það í fyrsta skipti. Að vísu hafa tvær konur áður lýst því yfir að þær gengju með barn Tysons undir belti en hann hefur ekki gengist við því að vera faðir þeirra barna. Bamsmóðir Mike er Natalie Fe- ars og fæddi hún honum son. Tyson vill ekki að sonurinn hði skort og keypti fót og fleira handa honum fyrir Utla 60.000 dollara (um 3,6 milljónir íslenskra króna). Meðal annars keypti hann minkateppi og minkapels fyrir barnið. Nú leitar Mike að íbúð fyrir soninn og barnsmóður- ina í L.A. og má búast við að það verði meira en venjuleg íbúð. Auk þess ætlar hann að ráða kokk fyrir Natalie því Mike veit hve mikilvægt það er að konur með barn á bijósti borði hollan og góðan mat. Cher átti í húsnæðisvandræðum um daginn. Villan, sem hún fiárfesti í, verður ekki tilbúin fyrr en eftir að minnsta kosti tvö ár. Verið er að gera hana upp og breyta og bæta að óskum leikkonunnar. Nú voru góð ráö dýr því Cher vant- aði samastað. Hún sló því til og keypti hús sem kostaði litlar 4 milljónir dollara (um 240 milljón- ir íslenskra króna). Þetta er að- eins bráðabirgðahúsnæði sem hún þarf að búa í þar til Malibu villan er tilbúin. Kristall fyrir drottninguna * w : * í ' ■ . * . *&*f*£s$*l&* M'y'~Xíí x *?*** (< i r’- « wfc tM-i : '-lísfgJz, iZZ&zíi * >y ■ '-'"ffl *ní ** Valgeir Sigurðsson, veitingamaður í Lúxemborg, er mikfil athafnamað- ur. í tilefni af komu Elísabetar II drottningar hingað til lands lét hann gera 500 útskornar kristalsflöskur sem merktar eru nafni drottningar og heimsókn hennar hingað. í flösk- unum er svarta dauða brennivín og skoskt viskí. Þær eru íiúmeraðar og var hennar hátign afhent fyrsta ein- takið þegar hún var hér á landi. „Kristalsflöskurnar eru skomar út í Skotlandi. 250 flöskur með svarta Eins og sjá má eru flöskurnar hreint listaverk. Nafn drottningar er letrað á flöskuna og á tappanum er númer flöskunnar. dauða brennivíni verða seldar í Frí- höfninni í Keflavík en í hinum 250 flöskunum er skoskt viskí sem verð- ur selt í Bretlandi. Ég hitti ekki drottninguna sjálfa en flösku númer eitt var veitt viðtaka um borð í skip- inu og hún samþykkt," sagði Valgeir Sigurðsson. Valgeir hefur búið í Lúxemborg í 15 ár. Þar byrjaði hann að framleiða svarta dauða því illa gekk að fá hér- lenda ráðamenn til að framleiða og selja brennivín undir þessu nafni. Nú er það selt í um 30 löndum um allan heim. Kristalsflöskurnar eru I viðhafnaröskju og fylgir saga drykkjarins með. DV-myndir BG r Ekki er jafnvel fylgst með öllu kóngafólki. Díana prins- essa af Wales má sig vart hreyfa án þess að um það sé talað. Mikið er rætt um klæðnað hennar og ekki er öllum sama hvcrnig hún klæöir sig. :. Sonja krónprinsessa i Nor- egi hefur að mestu sloppið við slúður um sinn klæðnaö. Hún hefur ekki lagt það í vana sinn að versla _við dýr og þekkt tískuhús. í stað þess gengur hún í þeim Fötum sem henni detta í.hug hverju sinni og lætur aöra ekki hafa áhrif á fataval sitt. Sonja gengur , helst í hvítum eða Ijósum fót- um þó að flestir litir fari vel við brún augu hennar og gullna húð. Sonja þykir ein- staklega smekkleg í klæðnaði og kann að velja það sem á saman. Kannski hefur það haft þau áhrif að lítið hefur veriö rætt og ritað um klæðn- að hennar. Samkvæmlskjólar Sonju þykja mjög smekklegir og hér er hún i einum rósóttum. Miklar vonir eru bundnar við Monicu Seles tennisleikara en henni skaut mjög snögglega upp á stjörnuhimininn. Monica Seles tennisstjama: Ágætis laun Monicu Seles tennisleikara skaut snögglega upp á stjörnuhimininn. Hún er aðeins 16 ára gömul en það sem af er tennisferli hennar hefur hún unnið sér inn sem samsvarar 50 milljónum islenskra króna. Hún vann opna franska meistaramótið í tennis og varð með því yngsti sigur- vegari keppninnar. Monica kemst þó ekki enn með tæmar þar sem tennis- leikarinn Steffi Graf hefur hælana í launum. * Monica er fædd í Júgóslavíu en býr nú í.Bandaríkjunum. Það tók mikið á hana er hún frétti það fyrr á þessu ári aö móðir hennar væri með krabbamein en þær mæðgur eru mjög nánar. í fyrstu keppninni á þessu ári gekk henni illa en það mót var stuttu eftir að hún fékk vitneskju um veikindin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.