Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1990.
13
Lesendur
Hæli ffyrir ósakhæfa
Öryggisgæslufangi skrifar:
Tilefni þess að ég skrifa þessi orð
er það að ekki er til eða starfrækt
svonefnt „viðeigandi“ hæli sem um
getur í hegningarlögum. Slíkt hæli
eða stofnun hefur aidrei verið stofn-
sett hér á landi. Ástæðan er sögð
vera fjárskortur. Þannig hæh er ætl-
að þeim föngum sem hafa verið úr-
skurðaðir ósakhæfir, samkvæmt
mati réttargeðlæknis.
í hegningarlögum er kveðið á um
sakhæfi og hverjir skuli teljast refsi-
hæfir. Þar segir að geðveikir menn
og andlega vanheihr séu ekki refsi-
hæfir. Þeir menn hafa í raun verið
úrskurðaðir í öryggisgæslu, þó svo
að það orð finnist ekki í hegningar-
lögum. - Öryggisgæsla er ótíma-
bundin. Henni lýkur aðeins með
samþykki læknis, greinargerð eða
skýrslu. Þama eru þó t.d. alkóhóhst-
ar settir á annan og hærri bekk, því
að í 7. kafla hegningarlaganna eru
ákvæði sem kveða á um 3 ára há-
marks refsitíma áfengissjúkhnga.
Það sem mér finnst þó vera
hneykslanlegast er að 1 ljós kemur
að ekki er til nein reglulegrð er segir
til um framkvæmd öryggisgæslu, 50
árum eftir að hegningarlögin tóku
gildi. Réttur öryggisgæslufangans er
sem sé því næst enginn. Það er því
mikilvægt að dómsmálaráðuneytið
hlutist til um að reglugerð um örygg-
isgæslu verði gefin út hið fyrsta.
I hegningarlögum segir að þeim
sem úrskurðaðir hafa verið ósak-
hæfir skuh skipaður tilsjónarmaður
og er þá forsvarsmaður fangans
sviptur öllum borgaralegum réttind-
um á meðan öryggisgæslan varir. -
Hitt er svo annað að geta öryggis-
gæslufangans til að tala sínu máh og
verja rétt sinn er oft mjög takmark-
aður. - í raun hljóta menn tvöfaldan
dóm með því að vera úrskurðaðir í
öryggisgæslu, þ.e.a.s. hvort tveggja
og bæði í senn af dómara - og af rétt-
arlækni.
Sagt var frá því í fjölmiðlum sl. vor
að „viðeigandi" stofnun væri að
komast á laggirnar, aðeins væri leit-
að að heppilegu húsnæði. Á einum
stað var skýrt frá þvi að til stæði að
kaupa Arnarholt. Ekkert varð þó af
þessu. Þar komu inn í deilur um
hvort stofnunin ætti að heyra undir
dóms- eða heilbrigðisráðuneytið.
Einnig hvort læknar frá Land- eða
Borgarspítala skyldu annast öryggs-
gæslufangana. - Sjálfur tel ég að
stofnunin eigi að heyra beint undir
Fangelsismálastofnun ríkisins.
Það sem menn hrasa þó ávallt um
er stofnkostnaöurinn, sem tahnn er
vera á bilinu 50-70 milljónir króna,
og reksturskostnaður sem skapast
við að starfrækja þetta „viðeigandi
hæh“. Þama var reiknað út að átta
manna deild myndi kosta 27 stöðu-
gildi. Tel ég það ríflega áætlað, þótt
innifaldir séu læknar, hjúkrunar-
fræðingar og aðrir starfsmenn. -
Bendi ég á Hegningarhúsið við
Skólavörðustíg 9, þar eru 10 stöðu-
gildi fyrir alls 19 fanga.
Það er á ábyrgð lækna og lögfræð-
inga að geðveikir afbrotamenn hljóta
ekki viöeigandi meðferð á réttri „við-
eigandi“ stofnun. Það hefur verið
látið reka á reiðanum í áratugi í þess-
um efnum. - Sennilega helst fyrir þá
sök að þessi hópur afbrotamanna er
ekki þess megnugur að koma fram
rétti sínum sökum veikinda sinna.
Fundin f ilma á Akureyri
Eyþór Jóhannsson skrifar:
Hér með fylgja 25 myndir, sem ég
lét framkalla að eigin framkvæði í
þeirri von að ég gæti komist að því
hver eigandi myndanna er. Það
reyndist þó borin von.
Þannig var að ég fann átekna filmu
í hulstri á bekk í Lystigarðinum á
Akureyri hinn 28.júlí sl.
Þar sem htið var annað að gera en
að taka filmuna með, þar sem enginn
virtist gera sig líklegan til að nálgast
hana þama á staðnum, lét ég fram-
kaha hana eins og áður sagði.
Nú afhendi ég þessar myndir til,
lesendasíðu DV til þess að gera til-
raun til að nálgast eiganda mynd-
anna ef hann eða aðrir viðkomandi
lesa þetta bréf.
Lesendasíða endurtekur orð bréfrit-
ara um að myndirnar má nálgast á
DV ef einhver vih kannast við eig-
andaréttinn eftir að hafa séð eina
myndanna sem við látum fylgja með
þessu bréfi. - Annars eru myndirnar
vítt og breitt frá Norðurlandi, úr
Mývatnssveit, frá Akureyri (bænum
og höfninni) svo og nokkrar lands-
lags- og mannamyndir.
BJORí HOLUN
HF.
• •
HELDUR UPPIFJORI
ALLA DAGA
YIKUNNAR
Föstudag og laugardag
Hinn eldíjörugi hljómborðsleikari Hilmar Sverrisson
leikur fyrir hressa gesti.
Sunnudag
Ann Andreasen og Einar Jónsson leika fjöruga
kántrítónlist o. fl.
MUNIÐ DANSGÓLFIÐ
ATH: Opið í hádeginu
frá kl. 12-15 laugardag og sunnudag.
Snyrtilegur klæðnaður
BJORÍHOLUNi
HF.
GERÐUBERGII
111REYKJAVÍK SIMI75800
Ein þeirra mynda sem framkölluð var úr fiimunni.
Ritstjóralaun
og þjóðarsáttin
Sigrún Jónsdóttir hringdi:
Nú er í tísku að birta almenningi
upplýsingar um laun máttarstólpa
þjóðfélagsins. Mér finnst þetta svo
sem ekki vera mikiö fréttaefni, en
eflaust era sumir sem festa sér þetta
vel í minni eða tönnlast á þessu og
hneykslast.
Ég er ein þeirra sem vinn algenga
vinnu á skrifstofu og er síður en svo
ofsæl af mínum launum, enda eru
þau í samræmi við þann árangur sem
verkalýðsforingjarnir hafa náð best-
um í samningum sínum við vinnu-
veitendur. - En það er óneitanlega
aðeins th að æra óstöðuga og ergja
hina almennu launþega þegar þeir
lesa um hin svimháu laun ýmissa
forstjóra, margra hverra sem þó
stjóma ekki nema pappírsfyrirtæki
að því er varðar rekstur og afkomu.
En svo er það þetta með ritstjóra-
launin. Ég er svo sem ekkert að býsn-
ast yfir þeim sem slíkum, enda era
þau lægri en margra forstjóranna hjá
falht fyrirtækjunum. En allgóð þó og
mun hærri en ég og mínir líkar
þekkjum eða höfum kynnst. Við höf-
um hins vegar kynnst skrifum
margra þeirra og flestir hafa verið
að hvetja th að almenningur haldi
þá „þjóðarsátt" sem er nú frekar orð-
in skammaryrði en hvatning um
samstöðu.
Ég get ekki að því gert að mér finnst
stinga í stúf að þessir menn skuh
hvetja almenning til að styðja „þjóð-
arsátt" vitandi að þessi sami almenn-
ingur hefur ekki annaö til að lifa af
en umsamda taxta verkalýðsfélag-
anna. - Menn með shkar tekjur, senf
skipta hundraðum þúsunda, geta
auðveldlega hrópað á þjóðarsátt. Það
gæti ég líka ef ég hefði þau laun, því
þá hefði ég ekki þær áhyggjur sem
ég nú hef af afkomunni. Ég hef bara
ekki slík laun og get því ekki tekið
undir neina þjóðarsátt með ritstjór-
um blaðanna.
VIDEOTILBOÐ
ALDARINNAR
!4 lítri • stór popp
og myndbandsspóla á aðeins 299, -
En þá er aðeins hálf sagan sögð...
1000. hver viðskiptavinur fær SAHYO VHR 5100 hágæða-
myndbandstæki að verðmæti
38.000 í kaupbæti.
Memory repeat • instant ioading • 360 daga minni • 8 mismunandi upptökutímar
• rammi fyrir ramma • 3 ára ábyrgð
Hver býður betur... ?
VIDEO VAL
Arnarbakka 2, sími 76611
BREYTT VIDEOLEIGA
mnGHEX
t-2-l SAfíYÓ
Þykkvabœjar-
nasl