Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1990. Otgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SÍMI (91 )27022 - FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. íslenskir aðalverktakar íslenskir aöalverktakar eru stórveldi í íslenskum at- vinnurekstri. Þaö sést best á þeim fjárhæðum, sem umleikis eru, þegar hluti fyrirtækisins skiptir um eig- endur. Milljaröar króna eru til útborgunar. Eignir ís- lenskra aöalverktaka felast í fasteignum og beinhöröum peningum og ef hreyfmg kemst á lausaféð getur þaö valdiö verulegri röskun í bankakerfmu og í peningamál- um þjóöarinnar. Hvernig hefur þessi auður oröið til í höndum eins fyrirtækis? íslenskir aðalverktakar hafa setið einir aö byggingarframkvæmdum og öörum verkum fyrir bandaríska varnarhðiö. Sú einokun hefur þrifist í skjóli laga og pólitískrar verndar. í Qóra áratugi hefur fyrir- tækið og eigendur þess getað makaö krókinn og malað guh. Þar hefur tiltölulega htih hópur ráðiö ferðinni, mest aht afkomendur þeirra manna sem í upphafi stofn- uðu Sameinaöa verktaka. Margar sögur, sumar sannar, aðrar ýktar, hafa veriö sagöar af veUystingum þess fólks sem setið hefur aö þessum forréttindum. Hermangið hefur verið eitt besta geymda leyndarmál þjóðarinnar. Forsvarsmenn íslenskra aðalverktaka hafa ekki verið íjölmiðlaglaðir. Fyrir nokkrum mánuðum var upplýst um launakjör fráfarandi stjórnarformanns fyr- irtækisins. Það mál var sussað í hel. Stöð tvö hefur gert heiðarlegar tilraunir tU að skýra frá málefnum og fjár- málum íslenskra aðalverktaka, en mest hafa það verið . óstaðfestar heimildir, sem vekja upp spurningar frekar en svör. Leyndarhjúpnum yfir íslenskum aðalverktök- um hefur ekki verið svipt af. AUt skapar þetta tor- tryggni. Verktakasambandið hefur hvað eftir annað krafist þess að verk fyrir varnarhðið verði boðin út. íslenskir vinstri flokkar hafa æ ofan í æ krafist breytinga á einok- unaraðstöðu íslenskra aðalverktaka. Menn minnast enn baráttu VUmundar heitins GyUasonar fyrir uppgjöri á „braskinu“. Jafnvel Þorsteinn Pálsson, formaður SjáU- stæðisflokksins, hefur lýst þeirri skoðun sinni að af- nema þurfi lögverndaðan rétt íslenskra aðalverktaka tU einokunar á VeUinum. Það hefur sem sagt ekki stað- ið á póhtískum upphlaupum og áskorunum um endur- skoðun á hinni ríkisvernduðu auðsöfnun íslenskra aðal- verktaka, en allt hefur komið fyrir ekki. Einhver öfl, einhverjir ósýnilegir hagsmunir, hafa getað kippt í spottana og viðhaldið hinni einstöku aðstöðu íslenskra aðalverktaka tU verka og viðurgjörnings í skjóU varnar- Uðsins. Kaup ríkisins bæta hér engu um. Þjóðnýting af þessu tagi er tímaskekkja, eins og Þorsteinn Pálsson hefur réttUega bent á. íslenskir aðalverktakar fá þar að auki áframhaldandi tryggingu næstu fimm árin tU einokun- ar. Þá má heldur ekki gleyma þeirri þversögn að ríkis- sjóður er nú að greiða háar fúlgur fyrir kaup á eignar- hluta og auði og sem hefur orðið til í krafti þeirrar einok- unar sem ríkið hefur tryggt! Hin póhtíska samtrygging er enn við sama heygarðs- homið. Hún nær út yfir gröf og dauða og hún lifir frá einni kynslóð til annarrar. Hún er hafin yfir flokka og ríkisstjórnir. Hin ósýnUega hönd auðmagns, forréttinda og valda fer sínu fram og leiðir þjóðina þegar hagsmun- irnir krefjast. íslenskir aðalverktakar em ríki í ríkinu og það breyt- ir engu þótt ríkissjóður eignist þar meirihluta. Afleiðing- in verður einfaldlega sú að nú munu póhtíkusarnir slást um bitana og bitUngana af hálfu meiri áfergju. EUert B. Schram Svo er aö sjá sem stríðshættan við Persaflóa sé liðin hjá og yið blasi langvarandi umsátur um írak. Nú sem stendur er mikil eindrægni meðal þeirra ríkja sem ætla að refsa Saddam Hussein fyrir innrás- ina í Kuwait en það má heita ósennilegt að sá einhúgur verði viðvarandi. Því lengur sem ums- átrið um írak stendur án þess að nokkuð gerist, ef Saddam Hussein hefur hægt um sig og lætur sér nægja að tryggja tök sín á Kuwait og lætur Saudi Arabíu í friði, því erfiðara verður að tryggja stuðning við refsiaðgerðir gegn honum til frambúðar og því meira mun al- menningsálitið í arabalöndunum snúast á sveif með honum og grafa undan aðgerðunum. Það eru heldur ekki írakar einir sem fá að kenna á refsiaðgerðun-. um. írak og Kuwait hafa flutt út um tíu prósent af olíu á heims- markaði. Þegar sú olía hverfur af Orrustuþotur á þilfari flugmóðurskipsins Independance. - „Vopnin gætu snúist í höndum fjandmanna Saddams Husseins," segir m.a. í þessari grein Gunnars um ástandið við Persaflóa. Islam og samstað- an gegn Saddam markaði kemur óhjákvæmilega að hækkandi verði sem mun ýta undir verðbólgu og efnahagssamdrátt meðal þeirra ríkja sem nú þrýsta á írak. Þá er óvíst hversu lengi stuðning- ur við umsátur um írak veröur al- mennur í heiminum. Þeir eru, þeg- ar allt kemur til alls, fáir sem gera sér í alvöru í hugarlund að innlim- un íraka á Kuwait verði aftur tekin. Því lengra sem frá líður án nokk- urra tíðinda því fleiri munu freist- ast til að sætta sig við hana sem oröinn hlut. Sérstaklega í araba- löndum getur orðið erfitt fyrir stjómvöld að halda uppi langvar- andi fjandskap við Saddam Huss- ein. Aödáendum hans meðal al- mennings í löndum araba fiölgar dag frá degi. Hætta er á aö umsátr- ið verði beinlínis til að gera hann að þeim leiötoga allra araba sem hann hefur lengi viljað verða, sómi þeirra, sverð og skjöldur í viður- eigninni við allt hið illa sem kemur frá Vesturlöndum og ísrael. íran Nýjast er í þessum málum að Saddam hefur boðið erkióvininum, írönum, hagstæðan friö eftir tveggja ára samningaþóf sem er mikill sigur fyrir íran. A móti kem- ur að Saddam Hussein væntir þess að íranir verði honum hliðholhr, hugsanlega með því að leyfa að- drætti til íraks um íran. Þetta þýð- ir að her Saddams getur nú ein- beitt sér að öörum vígstöövum. Vopnin gætu snúist í höndum fiandmanna Saddam Husseins, Saddam gæti snúið umsátrinu upp í baráttu góðs og ills, araba og Isl- ams gegn öllu því illa sem kemur frá Bandaríkjunum og ísrael. Eðli málsins Saddam Hussein hefur einmitt spilað á þær nótur með „tillögum" sínum um að ágreiningur um Kuwait verði leystur samhhða öðr- um ágreiningsmálum í Miðaustur- löndum. Þar á hann að sjálfsögðu við deilu ísraels og Palestínu- manna, Palestínumönnum til óblandinnar ánægju. Saddam gæti, eftir því sem um- sátrið dregst á langinn, gjörbreytt eðh málsins, snúið þvi frá Kuwait upp í uppgjör araba við ísrael og Bandaríkin. - Jafnframt er áróður Saddams gegn valdamönnum í sumum arabaríkjum þeim verulegt áhyggjuefni. Hann gæti grafið mjög undan leiðtogum á borð við Mubarak í Egyptalandi, Assad í Sýrlandi ogí. Fahd í Saudi-Arabíu. Strangtrúar- menn múslíma, sem eru áhrifa- mikhr meðal almennings í þessum löndum eins og víðar, eru þegar á hans bandi og fullyrðingar Sadd- ams um að leiðtogar þessara landa túlki ekki vilja þjóðarinnar eru óþægilega nærri sanni. En það er samt Jórdanía sem KjaUaiinn Gunnar Eyþórsson fréttamaður gæti skipt sköpum í þessu máh, bæði hvað varðar framkvæmd við- skiptabannsins og hugsanlegt upp- gjör við ísrael. Jórdanía Hussein Jórdaníukonungur er í raun í vonlausri aðstöðu gagnvart írak. Hvort tveggja er að um helm- ingur af öllum útflutningi landsins fer til írak og þaðan koma 95 pró- sent af þeirri ohu sem Jórdanía notar, svo að viðskiptabann gæti þýtt hrun efnahags landsins, og að meirihluti íbúa Jórdaníu eru Pa- lestínumenn sem styðja Saddam Hussein. Hussein konungur er veikur fyrir af fleiri ástæðum. Hann er af sömu fiölskyldu og þeirri sem nú ræður Saudi-Arabíu, Bretar settu afa- bróður hans til konungs þegar þeir bjuggu til Jórdaníu á sínum tíma, um sama leyti og þeir bjuggu th Saudi-Arabíu og hin ríkin á Arab- íuskaga. Saddam segir réttilega að stjómendur þessara ríkja, þeirra á meðal Kuwait, hafi þegið völd sín af vestrænum nýlenduherrum, ekki þjóð sinni. Jórdanía hggur milh íraks og ísraels og í Jórdaníu er hafnar- borgin Aqaba við Rauða hafið. Um þá borg fór mestur hlufi innflutn- ings íraka í stríðinu við íran og um þá borg gæti farið sá innflutningur sem þeir þyrftu th að hnekkja viö- skiptabanni Sameinuðu þjóöanna. Því eru takmörk sett hversu langt Hussein konungur getur gengið í því að framfylgja viðskiptabanni á Irak í trássi við vhja þjóðar sinnar. Helg vé Saddam hefur fleiri tromp á hendi. Nú þegar Saudi-Arabar hafa þegið liðsstyrk frá Bandaríkjunum leggur hann áherslu á að helgustu staðir múslíma, Mekka og Medína, séu saurgaðir af návist þeirra auk þess sem óvinir Islams ráði þegar þriðja helgasta staönum, Jerúsal- em. Þetta fellur í góðan jarðveg og getur einangrað Saudi-Araba með- al múshma. Staða konungsfiöl- skyldunnar í Saudi-Arabíu í araba- heiminum byggist fyrst og fremst á því að helgustu vé Islams eru í þeirra umsjá. Egyptar liggja líka vel við höggi, þeir einir hafa gert friðarsamning við ísrael og þeir þiggja meiri aðstoð frá Bandaríkj- unum en nokkurt annað ríki heims að ísrael einu undanskhdu. Sú samstaða sem nú er gegn írak byggðist á hættunni á að Saddam réöist inn í Saudi-Arabíu. Nú þegar hættan virðist hðin hjá er hætt við að sú samstaða riðhst. Saddam þarf aöeins einn til tvo bandamenn th að brjóta viðskiptabannið á bak aftur. Það er aðeins spurning um tíma þangað til hann fær þá banda- menn. ísrael og rökhyggjan ísraelsmenn reyna eftir megni að láta sem minnst á sér bera en það er samt ekki auðvelt að sjá hvernig þeir geta komist hjá þvi að verða miðpunktur þessarar dehu þegar frá líður. Þeir eru sá óvinur sem allur hinn arabíski heimur stendur sameinaður gegn. Mesti óvinur ísraels, Saddam Hussein, getur ekki th lengdar ver- ið áhtinn óvinur annarra araba- ríkja. Mesti vinur ísraels, og þar með óvinur araba, er Bandaríkin og Bandaríkin standa nú grá fyrir járnum gegn írak. Samúö með auökýfíngunum í Kuwait hefur ahhæi verið almenn. Á Vesturlöndum hafa menn th- hneigingu th að sjá þessi mál að- eins í rökréttu efnahagslegu sam- hengi og vanmeta þátt Islams og hatursins á ísrael. - Samkvæmt þeim rökum er írak í vonlausri stöðu og Saddam hlýtur að láta í minni pokann. Galhnn er hins vegar sá að vest- ræn rökhyggja hefur aldrei verið sterkasta hhð araba og því lengur sem umsátrið varir því þyngri geta þeirra eigin arabísku rök orðið á metunum. Gunnar Eyþórsson „Saddam þarf aðeins einn til tvo banda- menn til að brjóta viðskiptabannið á bak aftur. Það er aðeins spurning um tíma þangað til hann fær þá banda- menn.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.