Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Qupperneq 24
32
Fréttir
Fyrsti heiðursborgari
Neshrepps
Stefán Þór Sigurðssan, DV, Hellissandi:
Jóhanna Vigfúsdóttir írá Munað-
arhóli, Hellissandi, hefur verið valin
fyrsti heiðursborgari Neshrepps ut-
an Ennis. Enginn sem þekkir til Jó-
hönnu og óeigingjams starfs hennar
fyrir sveitarfélag sitt og sveitunga er
í nokkrum vafa um að þar hafi verið
rétt valið.
Aðalstarfsvettvangur hennar var í
Kvenfélagi Hellissands sem hún
gekk í ung að áram og hefur verið í
stjórn þess í yfir 50 ár. Kvenfélagið
er með eldri kvenfélögum á landinu,
það verður 70 ára á næsta ári.
Á upphafsárum sínum beitti kven-
félagið, undir forystu Jóhönnu, sér
fyrir því að koma af stað vatnsveitu
Hellissands og gáfu konurnar í því
skyni mörg dagsverkin. Kvenfélagið
stofnaði dagheimili á Hellissandi sem
í upphafi var rekið í skólahúsnæði
staðarins. Jóhanna annaðist um ára-
bil safnaðarstarf fyrir böm, sem
menn þekkja venjulegast undir nafn-
inu sunnudagaskóli, og lengi mætti
halda áfram að telja.
í tilefni kjörs Jóhönnu Vigfúsdótt-
ur sem heiðursborgara hélt Kvenfé-
lag Hellissands, ásamt hreppsnefnd
og sóknarnefnd, henni veglegt hóf í
Félagsheimilinu Röst.
Jóhanna Vigfúsdóttir í garðinum fyrir framan húsið sitt á Hellissandi. Það
hefur verið henni áhugamál að rækta garðinn sinn, bæði í eiginlegri merk-
ingu sem og óeiginlegri merkingu þess orðs. Prentist myndin vel má sjá
útsýnið úr stofuglugga hennar speglast í rúðunum, fjöllin fyrir neðan Snæ-
fellsjökul, en jökullinn sjálfur er skýjum hulinn. DV-mynd Stefán Þór
Blómlegt í Súðavlk:
Bullandi atvinna og
góð greiðslustaða
„Hér hefur ekki verið atvinnleysi
frá því ég man eftir mér. Hér er bull-
andi atvinna og fólkinu í frystihús-
inu finnst gott ef það nær átta tíma
hvíld. Staða sveitarsjóðs er góð og
hér er eftirspurn eftir húsnæði meiri
en framboðið. Það er ekki hægt að
segja annað en að atvinnulíf og
mannlíf sé hér með miklum blóma,“
sagði Sigríður Hrönn Elíasdóttir,
' sveitarstjóri í Súðavík, í samtali við
DV.
Sigríður var lítt hrifm er hún las
frétt í DV í síðustu viku um gífurlega
erfiðleika í Súðavík. Þau mistök urðu
nefnilega að í stað Suðureyrar, sem
erfiðleikafréttin var um, stóð Súða-
vík í fréttinni. Sigríður vildi þess
vegna koma því á framfæri að í Súða-
vík væru alls engir erfiðleikar.
Nýi Bersi, togarinn sem keyptur
var til Súðavíkur í fyrra, fiskar vel
og frystihúsið, Frosti hf., hefur vart
undan. Þá hefur vinna í rækjuverk-
smiðjunni ekki fallið niður en hún
er í eigu Frosta. Landa Haffari, 200
tonna skip, og tvö leiguskip hjá
rækj uverksmiðj unni.
„Við héldum upp á 100 ára afmæli
Súðavíkur 7. júlí og þá kom hingað
fjöldi fólks. Voru allir mjög hrifnir
af byggðarlaginu en umhverfisátak
hefur skilað sér mjög vel. Hér er allt
malbikað, grænar flatir eru snyrti-
lega slegnar og hirtar og byggðarlag-
ið reglulega snyrtilegt í alla staði. Þó
hér búi ekki nema um 230 manns sáu
heimamenn um stanslausa dagskrá
á afmælisdaginn sem góður rómur
var gerður að. Það ber vott um gott
félagslíf.“
Sigríður sagði loks að Súðavík væri
vel staðsett en nýlega væri lokið
lagningu bundins slitlags alla leið til
ísafjarðar. Tekur ekki nema um
kortér að aka á milli.
-hlh
• Baráttan um veggplássið er hörð. Auglýsingar eru hengdar alls staðar þar sem færi gefst. Þess eru jafnvel
dæmi aö menn lími yfir fullgildar auglýsingar. Þessir voru að setja upp auglýsingar á Hverfisgötunni fyrir nokkrum
dögum vegna myndarinnar Pappírs-Pésa. DV-mynd G. Bender
FÖSTL’DAGUR 17. ÁGÚST 1990.
Ræðupallurinn á landsmótinu var hannaður af Guðrúnu Svövu, listakonu
á Hellu. DV-mynd Sigríður
Fjölmennt landsmót Votta Jehóva:
Þátttakendur á fimmta
hundrað frá níu löndum
Sigriður Guimaisdóttir, DV, Hveragerði:
Á fimmta hundrað manns á öllum
aldri sóttu hið árlega landsmót Votta
Jehóva á íslandi sem haldið var í
íþrófiahúsinu í Digranesi í Kópavogi
dagana 9.-12.ágúst undir einkunnar-
orðunum „Hið hreina tungumál“.
Þarna voru m.a. heilu fjöldskyldurn-
ar. í fjóra daga hlustaði fólk á erindi
byggð á biblíunni og ekki dró fagurt
veður úr áhuga þess. Greinilegt að
fólk hafði ánægju af að vera þama.
Það var úr öllum landsfjórðungum
og margir erlendir gestir - frá Dan-
mörku, Svíþjóð, Póllandi, Ítalíu,
Þýskalandi, Frakklandi, Sviss og
Bandaríkjunum. í sumar hafa Vottar
Jehóva haldið mót með sömu ein-
kunnarorðum og sömu dagskrá um
víða veröld.
Snyrtilegur ræðupallur var í öðr-
um enda hússins með smekklegum
blómaskreytingum en í hinum enda
salarins var hægt að fá veitingar í
dagskrárhléum. Auk erinda vora
viðtöl við þátttakendur á sviðinu og
þar voru sett upp tvö leikrit. Vottar
Jehóva skíra ekki ungbörn en sjö
manns létu skírast á mótinu í Kópa-
vogi. Sá yngsti 14 ára en sá elsti 78
ára. Síðustu fimm árin hafa 78 skírst
sem vottar hér á landi. Um 4 milljón-
ir manna teljast til Votta Jehóva í
heiminum og hér á landi eru þeir 250.
Aflahæsta sveit mótsins. Frá vinstri Sigurður Arnfjörð, Guðmundur B. Gunn-
arsson, Óskar Þór Óskarsson og Ágúst Sigurðsson.
DV-mynd Guðmundur Karl.
Sjóstangaveiði í Ólafsvík:
Konur með f lesta
og stærsta f iska
Stefan Þór Sigurðssan, DV, Hellissandi:
Sjóstangaveiðimót var í Ólafsvík á
dögunum og stóðu fyrir því 3 fyrir-
tæki í bænum, Viðskiptaþjónustan,
Hafnarkaffi og Verslunin Kassinn.
Mótið stóð í tvo daga og voru þátttak-
endur á þriðja tuginn víða af landinu.
Voru ákaflega heppnir með veður.
Alls komu á land rúmlega 3,2 tonn
af fiski á mótinu. Aflahæsta karla-
sveitin var sveit Óskars Þórs Óskars-
sonar, Sjóstangaveiðifélagi Snæfells-
ness, SJÓSNÆ, með 723,96 kg. Þá
sveit Ævars Sigurðssonar, Sjó-
stangaveiðifél. Reykjavíkur, SJÓR,
með alls 711,2 kg. í þriðja sæti var
sveit Bjarna Arnar Kærnesteds,
SJÓR, með 516,8 kg. Aðeins ein
kvennasveit tók þátt í sveitakeppn-
inni, sveit Sigrúnar Sigurðardóttur,
SJÓSNÆ, veiddi 584,1 kg.
Aflahæsti einstaklingurinn í karla-
flokki varð Erlingur Björnsson,
SJÓR, með 260,5 kg, en þeir Sigurður
Arnfjörð Guðmundsson og Óskar
Þór Óskarsson, SJÓSNÆ, komu
næstir. Aflahæsta konan var Helga
Tómasdóttir, SJÓVE, með 229,7 kg,
en Elínbjörg Gunnarsdóttir, SJÓR,
önnur og Sigrún Sigurðardóttir,
SJÓSNÆ, í þriðja sæti.
Stærsta fiskinn, 7,6 kg þorsk, veiddi
Helga Tómasdóttir, SJÓVE, reyndar
krækti Erlingur Björnsson, SJÓR, í
jafnþunga keilu, 7,6 kg. Óvenjulegt
er að svo þung keila veiðist. Þriðji
stærsti fiskurinn var 6,6 kg þorskur,
sem Óskar Þór Óskarsson, SJÓSNÆ,
sveiflaði yfir borðstokkinn.
Hjónin Helga Haraldsdóttir og Erl-
ingur Björnsson, SJÓR, veiddu flesta
fiska, Helga veiddi 231 fisk en Erling-
ur 219. Gunnar Sveinsson, SJÓSNÆ,
veiddi 212 fiska. Aflahæsti báturinn
var Egill SH, 678,9 kg. Annar var Sig-
urvík SH, 646,4 kg, og þriöji Bjarni
Sigurðsson SH með 587,2 kg.
I framhaldi skal geta þess að Sjó-
stangaveiðifélag Snæfellsness,
SJÓSNÆ, er nýstofnað. Laugardag-
inn 18. ágúst nk. stendur það fyrir
bryggjuveiðimótifyrirkrakka, 13ára
og yngri, og ákveðiö hefur verið að
halda innanfélagsmót 9.september.