Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Síða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir tivert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Frjáist,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1990.
Fluttur suður
meðþyrlu
Einn maður slasaðist nokkuð er
bíll fór út af veginum við Reykja-
-ikóla í Hrútafirði í gærkvöldi. Öku-
maðurinn mun hafa misst stjórn á
bílnum og misst hann út af veginum
þar sem hann valt. Hjón voru í bíln-
um og þótti lögreglunni réttast að
kalla til þyrlu Landhelgisgæslunnar,
enda mun maðurinn hafa slasast í
baki. Samkvæmt upplýsingum frá
Borgarspítalanum í morgun líður
manninum þokkalega. Konan var
flutt með bíl á sjúkrahúsið á Akra-
nesi, enda minna slösuð. -SMJ
Urgur í Austfirðingum:
Kópavogi fékk
virkjunarveginn
Sigrún Björgvmsdóttir, DV, Egilsstööum;
Nú er hafin vinna við vegagerð á
Fljótsdalsheiði til undirbúnings
virkjunarframkvæmdum þar. Um er
að ræða 30 km af uppbyggðum veg-
um að gangamunnum og stöðvar-
húsi. Almennt útboð var í verkið og
bárust 6 tilboð.
Lægsta tilboð kom frá Klæðningu
M í Kópavogi, rúmlega 59 milljónir
króna. Siguröur Þórarinsson á Egils-
stöðum var með næstlægsta tilboð
eða 74'/2 millj. króna. Önnur tilboð
voru allmiklu hærri eða um 84 millj.
Kostnaðaráætlun Landsvirkjunar
hljóðaði upp á 73 millj. kr. Klæðning
fékk verkið og mun nýta mannafla
og tæki af svæðinu að einhverju
leyti.
Talsverður urgur er í mönnum hér
eystra yfir því að ekki var gengið að
tilboði heimamanna því, eins og einn
verktaki sagði við fréttamann; „Þá
er reynsla okkar sú að verktakar sem
koma að skilja yfirleitt illa við eða
hætta við óklárað verk. Eru um það
að minnsta kosti þrjú nýleg dæmi.
Þá hefur heimamönnum gengið illa
' fá uppgert hjá þessum verktökum
og í sumum tilfellum hafa greiðslur
ekki skilað sér.“
Vísitala bygg-
ingarkostnaðar
LOKI
Það er sama hvert litið er, alls
staðar er stjórnarkreppa, A-
Þýskaland, Pakistan og Patreks-
fjörður...
Fenginn til að hanna
golfvelli í Frakklandi í
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi;
Hannes Þorsteínsson, náttúru-
fræðingur og kylfingur, sem hefur
á síðustu árum snúið sér í síaukn-
um mæli að hönnun golfvalla, fer
á sunnudaginn til Frakklands þar
sem hann er að vinna að hönnun
tveggja golfvalla. Hannes er með
fleiri jám í eldinum á erlendri
grundu auk þess sem hann er að
vinna að hönnun fjölda golfvalla
hér innanlands.
„Þessir vellir, sem ég er að fara
að vinna að, eru annars vegar í
Biarrizt, syðst í Frakklandi, og hins
vegar skammt frá Bordeaux, “ sagði
Hannes er DV ræddi við hann.
Hannes, sem fengið hefur ársleyfi
frá störfúm sem kennari við fjöl-
brautaskólann til þess að sinna
golfvallahönnuninni, sagði þessi
verkefni sín erlendis vera tilkomin
fyrir tilstilli Johns Garaer, lands-
liðsþjálfara í golfi. Hann er vel
kunnur innan golfheimsins og virt-
ur. Hannes hefur að auki getið sér
gott orð hér heima fyrir golfvalla-
hörrnun.
Auk vallanna í Frakklandi eru
uppi hugmyndir um að Hannes
hanni í samvinnu við Garner golf-
velli á Bretlandi, írlandi og í Nor-
egi. Þau mál eru þó öll á frumstigi.
Hér innanlands hefur Hannes
haft í nógu aö snúast. Hann hefur
verið að hanna 18 hola golfvöll í
Garðahæ, auk annars vallar í Iandi
oddfellowa viö Urriðavatn. Vinna
við þann völl er í þann mund að
hefjast. Þá hefur hann imnið við
hönnun golfvalla í Sandgerði,
Stykldshólmi og Mosfellsbæ auk 9
hola vallar við Iþróttamiöstöð ís-
lands að Laugarvatni. Þá er á
teikniborðinu 18 hola völlur í landi
Kiðjabergs sem Mggur að Hvítá í
GrímsnesL Fyrst um sinn verður
þó notast við 9 holur.
En hver skyldi galdurinn vera á
bak við golfvallahönnun? DV
spurði Hannes að þvi.
„Það er lykilatriði þegar menn
hanna golfvelli að hafa reynslu af
íþróttinni sjálfri og hafa spilað golf
í i landsliðsflokki. Allir þeir golf-
vallahönnuðir, sem eitthvaö hafa
Iátið að sér kveða, hafa ýmist verið
atvinnumenn í golfi eða áhuga-
menn í fremstu röð. Þá hefur nátt-
úrufræðinám mitt komið mér að
mjög góðum notum sem og vinna
min á golfvöllum um árabil. Án
þessa náms og reynslu minnar sem
golfieikari gæti ég ekki staðið í
þessu. Það getur nefnilega verið
talsverö kúnst að hanna golfvöil.
Það er ekki nóg að teikna brautir
á blað, maður þarf eiginlega að
spila völlinn í huganum, högg fyrir
högg, og taka tillit til allra þeírra
möguleika sem landsvæðið gefur.“
Patreksfjörður:
Stjórnarkreppa
verðurvegna
sveitarstjóra
Hagstofan hefur reiknað vísitölu
byggingarkostnaðar eftir verðlagi
um miðjan ágúst 1990. Reyndist hún
vera 172,2 stig eða 0,2% hærri en í
júlí. Þessi vísitala gildir fyrir sept-
ember 1990.
Síöastliðna tólf mánuði hefur vísi-
tala byggingarkostnaðar hækkaði
um 16,9%. Síðustu þrjá mánuði hefur
vísitalan hækkað um 1,1% og sam-
svarar það 4,6% árshækkun. -pj
Hannes með teikningu af golfveMi á teikniborðinu á heimili sinu við Viðigerði á Akranesi.
Ekkert virðist geta komið í veg fyr-
ir að meirihluti krata og framsóknar-
manna á Patreksfirði springi á næstu
dögum. Deiluefnið er ráðning sveit-
arstjóra. Kratar virðast klofnir í af-
stöðu sinni um hvort ráða eigi Úlfar
Thoroddsen, fyrrverandi sveitar-
stjóra, eða Ólaf Arníjörð, bæjarritara
í Ólafsvík, í starfið.
Ólafur Amljörð telur sig hafa verið
ráðinn til starfans. Hann hafði gert
munnlegt samkomulag um ráðning-
una. Ólafur sagði upp starfi sínu í
Ólafsvík og var tilbúinn til að hefja
störf á Patreksfirði 1. september.
Síðar skiptu kratar um skoðun og
meðal þeirra er ekki einhugur um
Ólaf. Heimildir DV herma að Úlfar
Thoroddsen verði endurráðinn með
atkvæðum krata og sjálfstæðis-
manna og að flokkarnir nái saman
um meirihlutasamstarf. Úlfar er
sjálfstæðismaður en Ólafur er krati.
-sme
Veðrið á morgun:
Bjart veður
austanlands
Á morgun verður fremur hæg
norðlæg átt norðanlands og á
Vestfjörðum, skýjað að mestu og
lítilsháttar súld við ströndina.
Vestlæg átt og bjart veður austan-
lands en austlæg átt og dáhtil
rignihg suðvestanlands. Fer að
rigna á Suðausturlandi þegar líö-
ur á daginn. Hiti verður á bilinu
8-12 stig, hlýjast sunnanlands.
11
/
Já