Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1990, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1990.
3
dv_____________________________________________________________________________________Fréttir
HótelDjúpavik:
Af barnum á bflaverkstæðið
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
„Þaö hefur verið mun meira aö gera
hér á hótelinu í sumar - mesta að-
sókn síðan við hófum hér rekstur -
en síðustu dága er þetta farið að ró-
ast á ný. Sumri farið að haila,“ sagði
Eva Sigurbjömsdóttir, hótelstýra á
Hótel Djúpavík, þegar ég heimsótti
hótelið á dögunum. Mikið hefur verið
um að hópar hafi gist þar en þó mest
um ferðafólk sem komið hefur á eig-
inn bílum norður á Strandir.
Það er frábær þjónusta þarna hjá
þeim hjónum Evu og Ásbirni Þorgils-
syni og eykst stöðugt. Ásbjörn setti
upp viðgerðarverkstæði í vor þar
sem gert er við bíla og er það vel
þegið af ferðafólki. Þegar við komum
á hótehð var Ásbjörn fínt uppá-
klæddur við að afgeiða öl en þegar
við fórum hittum við mann, sem bað
okkur fyrir skiiaboð. Ég spurði hann
um nafn, kannaðist ekki við mann-
inn. Hann brosti þá og sagðist heita
Ásbjörn. Þarna var þá kominn bíla-
viðgerðamaðurinn Ásbjörn, sem
nokkrum klukkustundum áður hafði
afgreitt á barnum. Nú var hann kom-
inn í galla og var að gera við bíl.
Greinilega komið vel við olíu og aur
og var óhreinn upp fyrir haus. Gam-
an þegar menn eru svona fjölhæfir,
skipta á rúmum, afgreiða öl og þrífa
gólfin en það gerir Ásbjörn oftast á
hótelinu og lagfærir svo bíla þegar
þörf er á.
Fólk, sem ég hitti þarna, var mjög
ánægt með hótehð, matinn og þjón-
ustu nema að þar vantar bensínaf-
greiöslu. Nokkra sá ég sjúga bensín
með slöngu milli bíla til að komast á
bensínafgreiösluna út á Gjögri.
Akranes:
45 teknir f yrir hrað-
akstur á 2 mánuðum
Siguröur Sverrisson, DV, Akranesi:
Fjörutíu og fimm ökumenn hafa ver-
ið teknir fyrir of hraðan akstur á síð-
ustu tveimur mánuðum, að sögn lög-
reglunnar á Akranesi.
Af þessum 45 hafa 18 verið teknir
innan bæjarmarkanna á Akranesi á
allt upp í 100 km hraða. Hinir hafa
verið teknir utan bæjarmarkanna,
fiestir á þjóðvegi nr. 51, á allt upp í
145 km hraða.
Þá hefur lögreglan tekið 30 öku-
menn grunaða um ölvun við akstur
það sem af er árinu. Þetta er svipað-
ur fjöldi og á síðasta ári en þá voru
34 teknir fyrir meintan ölvunarakst-
ur fyrstu sjö mánuöi ársins.
Vinnuglaðir menn á Akranesi:
Fyrsta sumarleyf ið í 18 ár
Siguröur Sverrisson, DV, Akranesi:
Lokun vegna sumarleyfa fyrirtækja
þykir sjaldnast frásagnarverð, svo
algeng eru þau orðin. Eitt er það fyr-
irtæki á Akranesi sem hefur óneitan-
lega sérstöðu í þessum efnum. Það
er Smurstöð Akraness.
Þaö þótti tíðindum sæta þegar
menn komu þar að luktum dyrum
fyrir skömmu. Ekki var kannski að
undra því ár og dagar eru síðan þar
var lokað vegna sumarleyfa.
„Við tókum okkur vikufrí og það
var fyrsta sumarleyfið okkar síðan
1972,“ sagði Birgir Karlsson á smur-
stöðinni af alkunnri rósemi er DV
innti hann eftir því hvenær hann
hefði síðast tekiö sér frí.
M0BLER
FAX 91-673511 SÍMI91-681199 BÍLDSHÖFÐI20 112 REYKJAVÍK
VÖPÍDUÐ-
og
múK
QJíne
REGENT MÖBEL Á ÍSLANDI
Piú getum viö boöið þér það besta sem hægt er aö fá frá
Bretlandi í sófasettum
Húsgagna-HöUín
cítiœgjulegri cikstur
betri þjónustci
lcegrci rerd
Suzuki Swifl 3ja dyra
Verð ffá kr.
623.000,- stgr.
Suzuki Fox Samurai
Verð kr. /*
929.000,- stgr. ^
Suzuki Swift sedan 4ra dyra
Verð frá kr.
783.000,- stgr. /
Suzuki Vitara JLX
Verð frá kr.
1.241.000,- stgry
Suzuki Swift 5 dyra
Verð frá kr.
698.000,- stgr.
Suzuki bílar hf.
eru fluttir í Skeifuna 17.
Opið kl. 9-18 mánud.-föstud.
og kl. 10-17 laugardaga.
" Nýskráning, númeraspjöld
og 6 ára ryðvamarábyrgð
frá verksmiðju er innifalin í verði. SKEIFUNNI 17
SUZUKIBILARHF
SÍMI 685100