Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1990, Blaðsíða 7
,MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1990.
7
Fréttir
Kópavogur:
Pýramídahús
rísa við
Huldubraut
„Eg hef þá trú aö það sé hag-
kvæmur byggingarmáti að byggja
pýramídahús, hagkvæmara en reisa
hefðbundið einbýlishús. í pýramída-
húsi er sökkull, gólf og þak en engir
veggir," segir Vífill Magnússon arki-
tekt.
Nú eru að rísa tvö pýramídahús
við Huldubraut í Kópavogi, bæði
teiknuð af Vífli og annað húsið bygg-
ir hann sjálfur. „Ég er að byggja pýr-
amídahúsið til að komast að því af
eigin raun hvort þetta er ódýrara en
byggja hefðbundið einbýlishús.
Áður hafa verið byggð þijú slík
einbýhshús hér á landi; í Vogum á
Vatnsleysuströnd, Hafnarfirði og í
Mosfellsbæ. Ég rek einnig teiknistof-
una mína í pýramídahúsi og kann
ákaflega vel við þetta byggingarlag.
Ég held líka að þeir sem búa í slíkum
húsum kunni mjög vel við þau,“ seg-
ir Vífill.
-J.Mar
Nú eru að rísa tvö pýramídahús við Huldubraut i Kópavogi og eru þau bæði teiknuð af Vífli Magnússyni arkitekt.
DV-mynd S
Undirbúningsvinna á fullu
við jarðgöng á Vestfjörðum
Reynir Trauslason, DV, Flateyii:
Undirbúningsvinna vegna jarðganga
milli Önundarfjarðar, Súgandafjarð-
ar og Skutulsfjarðar er í fullum
gangi. Nú standa yfir tilraunaboran-
ir og hönnun ganganna, þá er verið
að leggja vegarslóða að gangamunn-
unum.
Kristján Kristjánsson hjá Vegagerð
ríkisins á ísafirði sagði í viðtah við
DV að áætlað væri að hefja fram-
kvæmdir við gangagerðina næsta
sumar og verkinu lyki haustið 1995.
Forval á verktökum fer fram í haust
og útboð um áramót.
Kristján sagði næsta víst að göngin
yrðu svokölluð stjarna - ein göng
með vegamótum inni í fjallinu - en
ekki tvenn sjálfstæð göng eins og hk-
ur voru taldar á. Gangamunnarnir
verða í 140 til 180 metra hæð yfir sjáv-
armáh. Byrjað verður á göngunum,
sem eru 9 kílómetrar á lengd, í
Tungudal.
Thailand
15 dagar
Kr. 88.700,-
Kyrrahafs-
Íslendingabyggðir
3. nóv.-22 dagar
eyjar
Ástralía
— i=mr=i=ERDIR
=■ SGLRRFLUG
Vesturgötu 12, simar 620066
0fM5331
RENAULT EXPRESS
flytur virðisaukann í veltuna!
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1, sími 686633, 130 Reykjavík.
RENAULT
FER A KOSTUM
Renault Express er hreinræktaður vinnuhestur og toll-
afgreiddur sem slíkur. Því fæst VSK af innkaupsverði og
rekstrarkostnaði frádreginn sem innskattur sé bíllinn
notaður í virðisaukaskattskyldri starfsemi.
Renault Express er atvinnutæki sem skilar arði.
Hann er sparneytinn og flytur heil 575 kg í 2,6
rúmmetra flutningsrými. Við ábyrgjumst
ryðvörnina í átta ár og bílinn sjálfan í
þrjú.
Framhjóladrifið, snerpuna og þæg-
indin fá allir Renault bílar í
vöggugjöf.