Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1990, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1990.
Fréttir
Atvinnurekstur á síðasta ári:
Slæm af koma
og skánar lítið
- bestafkomahjábönkumogtryggingafélögum
Samkvæmt könnun Þjóðhags-
stofnunar á ársreikningum 709 fyrir-
tækja batnaði afkoma þeirra að með-
altali um 1,1 prósent frá árinu 1988
til 1989. Hagnaður af reglulegri starf-
semi var 1,1 prósent af rekstrartekj-
um árið 1989 en var enginn, eöa 0,0
prósent, árið 1988.
Eftir sem áður var afkoma fyrir-
tækja almennt bág á árinu 1989. Þaö
er helst að bankar og tryggingafélög
hafi sýnt hagnað svo orð sé á gerandi.
Þegar einstakar atvinnugreinar
eru skoðaðar kemur í ljós að afkoma
í almennum iðnaði, byggingariðnaði
og samgöngum versnaði en afkoma
sjávarútvegs, verslunar, þjónustu og
veitingarekstur batnaði. Sömuleiðis
vænkaðist hagur banka og trygg-
ingafélaga.
Þetta er nokkuð gróf flokkun og
Erilsamt var hjá lögreglunni í höf-
uöborginni á fostudagskvöld og alls
gistu um 30 manns fangageymslur
segir því ef til vill ekki margt um
breytingar á afkomu fyrirtækja. Hún
gefur hins vegar vissa vísbendingu.
Afkoma rétt rúmlega 100 fyrir-
tækja í sjávarútvegi fór úr 9,4 pró-
senta taprekstri árið 1988 í 4,1 pró-
sents tap árið 1989. Það er athyglis-
vert að þáttur vaxta og verðbreytinga
minnkar að meðaltali i ársreikning-
um sjávarútvegsfyrirtækjanna öfugt
við fyrirtæki í öðrum atvinnugrein-
um.
Iðnaðurinn fór úr 0,1 prósents
hagnaði árið 1988 í 1,3 prósent tap
árið 1989. Stóriðja er ekki með í þess-
um tölum en mjög mikill hagnaður
varö á henni í fyrra. Byggingariðnað-
urinn fór úr 3,0 prósenta hagnaði í
0,2 prósenta tap. Fyrirtæki í sam-
göngum máttu einnig horfa upp á
hagnað snúast í tap en á síðasta ári
lögreglunnar. Mikið var um ölvun
og læti í miöbænum og hafði lögregl-
an í nógu að snúast. Laugardags-
snerist 0,2 prósenta hagnaður í 1,1
prósents tap.
Þessar fjórar atvinnugreinar voru
að meðaltali reknar með tapi á síð-
asta ári.
Verslun var hins vegar rekin með
lítillegum hagnaði í fyrra eða 1,0 pró-
sent. Árið áður var hagnaðurinn htið
eitt minni eða 0,7 prósent. Þjónusta
og veitingastarfsemi var einnig rekin
með hagnaði í fyrra eða 1,4 prósent
eftir 1,3 prósent tap í fyrra.
Þær atvinnugreinar sem blómstr-
uöu mest í fyrra voru bankarekstur
og tryggingafélög. Fyrirtæki í þess-
um greinum voru rekin með 12,3
prósenta hagnaði að meðaltali sem
er meira en árið á undan en þá var
10,5 prósenta hagnaður af starfsem-
inni.
-gse
kvöldið var hins vegar rólegt og
minna um slagsmál og ölvun.
Hinn eini sanni Jón Páll Sigmars-
son endurheimti titilinn „sterkasti
maöur heims“ í Finnlandi nú um
helgina. Eftir harða keppni stóð Jón
Páll eftir sem sigurvegari, reyndar
ekki fyrr en eftir að úrsht í síðustu
keppnisgreininni voru ljós.
Jón Páll háði spennandi keppni við
O.D. Wilson frá Bandaríkjunum sem
hafði verið í forystu allt mótið. í síö-
ustu greininni, þar sem keppendur
hlupu 200 metra með 100 kg múrstein
á öxlunum, missti sá jötunn foryst-
una, enda erfið grein fyrir mann sem
sjálfur vegur 180 kg.
Með þessum sigri hefur Jón Páh
áunniö sér þennan eftirsótta titil á
nýjan leik eftir aö hafa misst hann
til Bretans Jamie Reeves í fyrra.
Bretinn var ekki með í ár sökum
meiðsla.
Þetta er í fjórða sinn sem Jón PáU
hlýtur titiUnn „sterkasti maður
heims“.
íslenskir kraftajötnar láta ekki þar
við sitja því að framundan er liða-
keppnin „Pure Strength" í Skotlandi
en Hjalti Árnason og Magnús Ver
Magnússon munu taka þátt í henni.
Þeir hyggjast veija titil sinn en Uð
þeirra sigraði í þeirri keppni í fyrra.
-RóG
Nýskráningu báta lokið
Siglingamálastofnun veitti 51
báti veiðiheimild á fóstudag og
laugardag en þá voru síðustu da-
gamir til að sækja um skoðun fyrir
smábáta. Að undanförnu hafa ver-
ið lagðar inn skráningarbeiðnir
fyrir um 100 báta.
Að sögn Gísla Auðunssonar hjá
Siglingamálastofnun var minna að
gera síðustu dagana en búist haföi
veriö við. Ljóst er að fjöldi báta,
sem til stóð að skrásetja í ár, kemst
ekki á skrá að þessu sinni af ýms-
um ástæðum.
Til að fá haffærisskírteini þurfa
bátamir að vera sjóklárir og þar
með fæst veiðiheimild.
-RóG
Jón Páll Sigmarsson endurheimti titilinn „sterkasti maður heims“.
Jón Páll sterk-
asli maður heims
- endurheimti titilinn eftirsótta
Reykjavik:
Erilsamt f östudagskvöld
í dag mælir Dagfari
í Þjóðleikhúsið
Nú ganga um það sögur, fjöllunum
hærra, að Ragnar Amalds verð
næsti þjóöleikhússtjóri. Ekki veit
Dagfari hvers Ragnar á að gjalda
með að koma svona sögusögnum
af staö. Hann hefur veriö hinn nýt-
asti þingmaður um árabil, sem
meðal annars kemur fram í því að
Ragnar lætur sífellt minna aö sér
kveða á alþingi og hefur vit á því
að flytja sem fæst mál og taka sjald-
an til máls. Það eru einmitt bestu
þingmennirnir sem hafa vit á því
að vera ekki sífellt að gjamma um
áhugamál sín og gæluverkefni og
krefjast útgjalda af hálfu hins opin-
bera til þessara sömu verkefna.
Sumir alþingismenn em haldnir
óstöðvandi málæði og tillöguflutn-
ingi og halda að afrek þeirra mæ-
Ust í málæöinu og útgjöldunum
sem þeir stofna til.
Ragnar Amalds hefur kannski
einhvemtímann verið svoleiðis
þingmaður en hann er löngu vax-
inn upp úr því. Ragnar hefur hins
vegar nýtt þingtíma sinn og þing-
setu til aö sitja við skriftir á leikrit-
um og hefur öðlast ágæta fæmi
sem leikritaskáld, sem áreiðanlega
er því að þakka að hann hefur rú-
man tíma og eyðir ekki orku sinni
í þarflausar fundarsetur á þingi.
Ragnar
Ragnari líður vel á alþingi, hefur
traust fylgi í kjördæmi sínu og nýt-
ur virðingar fyrir hljóðláta og fyr-
irferöarlitla framgöngu sína.
Hvers vegna ætti að gera þessum
manni þann óleik að fara aflt í einu
að skipa hann sem þjóðleikhús-
stjóra? Hvað hefur hann gert af
sér? Ætlar Alþýðubandalagiö
virkilega að fara losa sig við einn
af fáum hæfum þingmönnum sín-
um? Þaö er svo sem eftir þessum
flokki, sem er á góðri leið með að
fæla allt viti borið fólk úr flokkn-
um, að bola Ragnari í burtu líka.
Birtingarliðið er farið, kjósendur
em á fömm og enginn veit hvað
verður um formanninn sjálfan. Ól-
afur Ragnar hefur ekki einu sinni
getað lýst yfir stuöningi meö sínum
eigin flokki þegar kemur að kosn-
ingum, vegna þess að það er enginn
í framboði 'sem hann getur mælt
með. Né heldur neinn í framboöi
sem mælir með Ólafi Ragnari. í
næstu kosningum verður formað-
urinn á hrakhólum með þingsæti
og framboð og ekki verður því trú-
að að óreyndu aö Ólafur sé að koma
Ragnari Ámalds upp í Þjóðleikhús,
til þess eins og taka sæti hans í
Norðurlandskjördæmi vestra. Þvi
verður heldur ekki trúað upp á
Svavar menntamálaráðherra, sem
skipár þjóðleikhússtjóra, að hann
fari að hjálpa formanninum til að
komast í framboð. Til þess er Sva-
var alltof flokkshollur og trúr mál-
staðnum til að hann spUli Alþýðu-
bandalaginu enn frekar með því að
hysja upp um Ólaf Ragnar.
Nú má að vísu halda því fram að
Ragnar Arnalds hafi góða og mikla
reynslu úr leikhúsi. Hann hefur
setið í tvo áratugi í aðalleikhúsi
þjóðarinnar við Austurvöll og er
því öllum hnútur kunnugur í leik-
araskap og leiklist. Ragnar hefur
samið mörg handrit og leikið sjálf-
ur aðalhlutverk í mörgum leikrit-
um á alþingi. En það er hins vegar
illa gert gagnvart honum að senda
hann úr öskunni í eldinn. Það má
þó alþingi eiga það starfar nokkra
mánuði á ári og hefur húsaskjól.
Ekki er því fyrir að fara um Þjóð-
leikhúsið, sem veriö að brjóta niður
um þessar mundir tU að leikarar
geti betur séð tU áhorfenda. Það er
að segja þegar áhorfendur mæta,
sem ekki kemur oft fyrir. Þjóðleik-
húsið hefur nefrúlega haft lag á því
að troða upp meö stykki, sem meir
eru fyrir leikarana heldur en
áhorfendurna, sem þýðir að leikar-
arnir eru oftast einir í húsinu.
Hvað á aumingja Ragnar að gera
með Þjóðleikhús, sem enginn
nennir að sækja, nema fólkið sem
vinnur þar og verður þar að auki
lokað næsta vetur og kannski leng-
ur, vegna þess að það er að niður-
lotum komið og heldur hvorki
vatni né vindi? Ef Alþýðubandalag-
ið vUl á annað borö koma „sínum
manni" að í Þjóðleikhúsinu eru
auðvitað heUlaráð að skipa Ólaf
Ragnar sem þjóðleikhússtjóra.
Hann veit hvemig á að stýra sökk-
vandi skipi. Hann veit hvað það er
að stjórna hripleku fleyi. Þar er
maður með reynslu, fyrir nú utan
hitt, hvað það yröi mikil lausn fyr-
ir Alþýðubandalagið að losna við
Ólaf Ragnar og Ólaf að losna við
Alþýðubandalagið. Látið hins veg-
ar Ragnar Arnalds í friði. Hann
semur góð leikrit á meðan hann
situr á þingi.
Dagfari