Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1990, Page 8
8
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1990.
Hraölestrarnámskeið
Viltu margfalda lestrarhraða þinn?
Viltu lesa meira af góðum bókum?
Vilt þú ná góðum árangri í skólanum í vetur?
Á hraðlestrarnámskeiðum laerir þú að margfalda
lestrarhraðann með bættri eftirtekt.
Nœsta námskeið hefst 29. ágúst.
_______Skráning er í sfma 641091.
2= HRADLESTRARSKÓLINN e
I0ÁRA
Gabriel
HÖGGDEYFAR
STERKIR,
ÓDÝRIR!
Utlönd
i ii i
/Y G ”
SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91 -8 47 88
GARÐASTAL
Góð ending — margir litir
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000
HÖFUMOPNAÐ
OKKAR ÁRLEGA
HEILDSÖLUMARKAÐ
AÐ BÍLDSHÖFÐA 16
• Barnafatnaður
• Karlmannafatnaður
• O.fl. o.fl.
Opiðfrákl. 13.00-18.00 allavirka
daga, laugardaga frá
kl. 10.00-14.00.
ATH. Aðeins opið 2-3 vikur.
HNOÐRI HF.
Bíldshöfða 16
Bandaríska herskipið Raid á siglingu á Persaflóa. Það var frá Raid sem skotið var viðvörunarskoti að irösku oliu-
flutningaskipi í Hormuzsundi á laugardaginn. Símamynd Reuter
Bush haf nar
boði Husseins
Yfirvöld í Bandaríkjunum og Bret-
landi hafa hafnaö boði Saddams
Hussein íraksforseta um aö sleppa
þrettán þúsund gíslum gegn því að
þandarískir hermenn verði fluttir frá
Persaflóasvæðinu. George Bush, for-
seti Bandaríkjanna, vill nú fá form-
legt samþykki Öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna fyrir beitingu hervalds
til að framfylgja hafnbanni gegn ír-
ak.
Fulltrúar þeirra íimm þjóða, sem
eiga föst sæti í Öryggisráöi Samein-
uöu þjóðanna, komu saman í gær til
að ræða sameiginlegar hernaöarað-
gerðir gegn írak en enn er óljóst
hvort ráðið mun heimila hafnbann
til að framfylgja viðskiptabanni.,
Fastafulltrúarnir munu halda við-
ræöum sínum áfram í dag.
Embættismenn innan bandarísku
stjórnarinnar, sem ekki vilja láta
nafns síns getið, sögöu að bandaríski
flotinn biði nú átekta þar til Öryggis-
ráðið hefði tekið ákvörðun. Um helg-'
ina skutu bandarísk herskip viðvör-
unarskotum að tveimur íröskum ol-
íuflutningaskipum. Skipin stoppuðu
ekki og fylgjast nú bandarísk herskip
með ferðum þeirra.
íraksforseti hefur nú viðurkennt í
Eitt þeirra þriggja lúxushótela i Kú-
væt sem Vesturlandabúum var skip-
aö að safnast saman á í gær.
Símamynd Reuter
fyrsta sinn að vestrænir karlar, kon-
ur og börn verið notuð sem skildir.
í opnu bréfi til fjölskyldna útlending-
anna sagði hann að með því að koma
þeim fyrir við hemaðarlega mikil-
væga staði mætti koma í veg fyrir
árásir á írak. Þar með yrði lífi tug-
þúsunda bjargað. Saddam Hussein
bauðst til að sleppa útlendingunum
þegar í stað ef Bush og bandamenn
hans lofuðu aö kalla herlið sín frá
Persaílóasvæðinu og aílétta efna-
hagsþvingunum. Forsetinn bauðst
ekki til að kalla menn sína heim frá
Kúvæt en tók það fram aö þaö væri
mál sem arabar þyrftu að leysa sjálf-
ir.
Klukkustundu eftir að ávarp íraks-
forseta hafði verið lesið upp í útvarp-
inu í Bagdad tilkynnti forseti íraska
þingsins að nokkrir Svíar, Svisslend-
ingar, Austurríkismenn, Finnar og
Portúgalir gætu farið úr landi. Sten
Andersson, utanríkisráðherra Sví-
þjóðar, sagði að þrátt fyrir boðið
myndu Svíar ekki láta af stuðningi
sínum við viðskiptabann Sameinuöu
þjóðanna gegn írak.
í morgun tilkynntu írösk yfirvöld
aö Indónesar mættu fara frá Irak þar
sem stjórnvöld í Indónesíu hefðu tek-
Mikill viðbúnaður er í sænska
sendiráðinu í Saudi-Arabíu til að
taka á móti Svíum í Kúvæt. Yfirvöld
í írak tilkynntu í gær aö Svíar væru
meöal þeirra sem fengju að fara úr
landi.
Sænska sendiráðið í Saudi-Arabíu
er í um sex hundruð kílómetra fjar-
lægð frá landamærum Kúvæts. Þær
langferöabifreiðir sem sendiráðið
hefur yfir að ráöa eru tilbúnar til að
leggja af stað um leið og skilaboð
koma um að hægt verði að sækja
Svíana og jafnvel aöra Norður-
landabúa. Sænska sendiráðið í Kú-
væt hefur tekið að sér að gæta hags-
ið ákvörðun um að senda ekki herlið
til Saudi-Arabíu.
Um níu þúsund Vesturlandabúar
og Japanir eru í Kúvæt og nær fjögur
þúsund í írak. í gærmorgun skipuðu
írösk yfirvöld Vesturlandabúunum
aö safnast saman á þremur hótelum
í Kúvæt. Bandarísk og bresk yfirvöld
ráölögöu þegnum sínum aö óhlýðn-
ast skipuninni. Um fjörutíu Bretar
hafa verið fluttir frá hótelum í Kúvæt
til óþekktra áfangastaða.
Bandaríska fréttastofan CBC sagði
frá því í gærkvöldi að þrjátíu og fimm
Bandaríkjamenn hefðu leitað skjóls
í húsnæði bandaríska sendiráðsins í
Bagdad. Ekki er vitað hvernig fólkið
komst til svæðisins.
Tveir háttsettir sendimenn frá
Sameinuðu þjóðunum munu koma í
kvöld til Bagdad til að reyna aö fá
látna lausa útlendingana í írak og
Kúvæt.
Tugþúsundir araba hafa streymt
frá Irak til Jórdaniu undanfarna
daga og hafa Jórdanir farið fram á
að írakar hægi á straumnum en yfir-
völd í írak hafa ekki viljað verða við
þeirri bón.
Reuter
muna íslendinga í landinu.
SAS-flugvél er einnig reiðubúin að
leggja af stað til Miðausturlanda og
gæti hún verið komin í loftiö fimm
til sex klukkustundum eftir að hjálp-
arbeiðni berst.
Þeir hundrað og tuttugu Svíar sem
eru í Kúvæt voru meðal þeirra út-
lendinga sem skipað hafði verið að
fara til þriggja hótela í gærmorgun
en svo kom óvænt tilkynning um að
Svíar væru meðai þeirra sem mættu
fara úr landi. Sten Andersson, utan-
ríkisráöherra Svía, taldi að alhr
Svíar, bæði í írak og Kúvæt, fengju
aðfara. tt
Búa sig undir
komu Svíanna