Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1990, Page 27
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1990.
35
Trump
á hausnum
Það er illa komið fyrir margmillj-
ónamæringnum og fasteignabra-
skaranum Donald Trump. Nýlega
fékk hann þekkt endurskoðunarfyr-
irtæki til að meta stöðuna í fyrirtæki
sínu og gera skýrslu. Skýrsluna
þurfti hann til að geta fengið lán til
aö borga vaxtaskuldir sínar fyrir síð-
asta mánuð.
Eftir langa baráttu fyrir því að fá
þessa skýrslu innsiglaða sem einka-
mál tapaði Trump og nú er fjár-
hagsstaða hans orðin lýðum ljós.
Fjármálaspekúlantar höfðu lengi
velt því fyrir sér hvort veldi Trumps
stæði völtum fótum og það hefur nú
endanlega verið staðfest.
í skýrslunni kemur í ljós að Trump
á eignir sem bjartsýnustu menn meta
á 4,62 milljarða Bandaríkjadala en
hins vegar eru skuldir hans upp á
3,21 milljarð og að auki stendur hann
í hvorki meira né minna en 111 dóms-
málum sem tengjast íjármálaílækj-
um hans aö einhverju leyti.
Þó svo að Trump sé langt frá því
að komast á vonarvöl og vergang
telja sérfræðingar aö veldi hans
heyri brátt sögunni til. Og alla vega
mun hann missa sæti sitt sem einn
af 10 ríkustu mönnum Bandaríkj-
anna.
Glaðbeittir Lionsfélagar eftir gróðursetninguna.
Lúpínur
gróðursettar
Stefin Þór Sigurðsson, DV, Hellissandi:
Lionsklúbbur Nesþinga, Snæfells-
nesi, ákvað á síðasta starfsári að
beita sér fyrir að gróðursnauðir mel-
ar sunnan og vestan við Rif, við þjóð-
veginn til Hellissands, yrðu græddir
upp. í því skyni keypti klúbburinn
10.000 lúpínuplöntur tl gróðursetn-
ingar. Ekki veitir af að hressa upp á
gróðurfarið þarna. Melar og mold
eru í augum flestra lítið augnayndi.
í baksýn myndarinnar má sjá grilla
í Ingjaldshólskirkju, þann fræga
kirkjustað, en sögur herma að Kri-
stófer Kólumbus haíi komið þangað
að kynna sér rit um land nokkurt í
vestri sem Vínland var kallað en
hlaut síðar nafnið Ameríka.
Rokkað á fullu. Talið frá vinstri, Eirikur Hauksson, Hanne Krogh, Jan Groth
og Marianne Antonsen.
Eiríkur Hauksson rokk-
ar með Hanne Krogh
Hanne Krogh, annar helmingur
gamla Eurovision dúettsins Lollipop,
er að leggja af stað í ferðalag um
Skandinavíu með söngsýningu.
Að sögn Norsk ukeblad mun ís-
lenski stórrokkarinn Eiríkur Hauks-
son aðstoða Hanne við sönginn
ásamt tveimur öðrum söngvurum og
birtir blaðið myndir af sýningunni.
Á sýningunni koma fyrir öll rokk-
lög 7. áratugarins. „Þessi sýning er
rokkuð og hress. Minningar frá for-
tíðinni streyma fram. Það er sungið
um ungt fólk, ást og rómantík," segir
Hanne Krogh og hrósar samstarfs-
fólki sínu fyrir þess innlegg.
Fjármálasérfræöingar segja veldi Donalds Trump brátt heyra sögunni til.
ALLT
fyrirGLUGGANN
úrval, gæði, þjónusta
Plíseruö gluggatjöld,
sérsniöin fyrir hvern
glugga í mörgum litum
og geröum. Tilvalin T
sólhúsið, glugga mót
suöri og alla vandamála-
glugga.
Sendum í póstkröfu um
land allt.
QJ) Einkaumboð á íslandi
Sími: 31870 - 688770.
Tjarnargötu 17 Keflavík -
Sími: 92-12061.