Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Blaðsíða 1
Norræna húsið:
„Sögurvið
torgið"
- haustkonsert Harðar Torfasonar
Hinn árlegi haustkonsert frum-
kvöðulsins á sviði trúbadorssöngs
á íslandi, Harðar Torfasonar,.verð-
ur aö þessu sinni haldinn í Nor-
ræna húsinu fostudagskvöldiö 7.
september kl. 21.00.
Efnisskrá þessa konserts saman-
stendur af lögum og textum ein-
göngu eftir Hörð, ólíkt því sem
hann er vanur, að leggja áherslu á
eigin lagasmíðar við Ijóð annarra
skálda. Þessir textar Harðar og lög,
sem flutt verða á konsertnum, eiga
það sameiginlegt að hafa ekki kom-
ið út á hljómplötum og tengir Hörð-
ur þá saman sem heild og kallar
konsertinn „Sögur við torgið“ með
undirskriftinni „Undir þessum
stjörnuskara standa menn
bara... og stara“.
Tónleikar Harðar hera oft mikinn
keim af leikhúsi, enda engin furða
þar sem Hörður er einnig leikari,
leikstjóri og leikmyndahönnuður.
Lýsingu annast Lárus Björnsson
en Gísli Helgason sér um hljóð-
blöndun. Þess má geta að Hörður
hefur stutta dvöl hérlendis að
þessu sinni vegna útgáfu danskrar
plötu hans í septemberlok. Það er
i fyrsta sinn sem íslenskur lista-
maður gefur út ljóð og lög í eigin
flutningi á danskri tungu.
Álfaslóðir eftir Rúnu.
Gallerí Borg:
Gestur og Rúna
P O O
I gær var opnuð sýning á verkum
Gests og Rúnu í Gallerí Borg við
Austurvöll. Sýningin stendur til
þriðjudagsms 18. september. Opið er
virka daga frá kl. 10-18 en um helgar
frá kl. 14-18.
Gestur og Rúna hafa tekið þátt í
fjölda samsýninga, bæði hér heima
og erlendis. Þau hafa haldið 12 einka-
sýningar, þá síðustu í Scandinavian
Contemporary Art Gallery í Kaup-
mannahöfn í ágúst á síðasta ári.
Þau hafa haft samvinnu um skreyt-
ingar opinberra bygginga. Þau eiga
m.a. verk á áhorfendastúku íþrótta-
vallarins í Laugardal í Reykjavik og
í nýbyggingu við Hásselbyhöll í Sví-
þjóð. A síöasta ári gerðu þau vegg-
myndir fyrir íþróttahús Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti og í anddyri
skrifstofuhúsnæðis ÁTVR að Stuðla-
hálsi 2. Á síðasta ári var einnig reist
höggmynd úr blágrýti og stáli viö
Lækjarskóla sem Gestur gerði fyrir
Hafnarfjarðarbæ. A nýliðnu sumri
tók hann þátt í samvinnu 13 nor-
rænna myndhöggvara um útilista-
verk, höggvið í norskan marmara, í
Seljord í Þelamörk í Noregi.
Gestur og Rúna eiga m.a. mynd-
verk í Listasafni íslands, Listasafni
Kópavogs, Listasafni Háskóla ís-
lands, Listasafni ASÍ og í Hafnar-
borg, menningar og listastofnun
Hafnarfjarðar.
Fyrstu réttir ársins verða um helgina. Á laugardag verður réttaö i Skarða-
rétt í Gönguskörðum og á sunnudag í Fljótstungurétt i Hvítársiðu, Hrúta-
tungurétt i Hrútafirði, Miðfjarðarrétt í Miðfirði og Reynisstaðarétt í Staðar-
hreppi.
Bragi Ásgeirsson listmálari opnar málverkasýningu i Listhúsinu að Vesturgötu 17 á laugardag. Sýningin ber yfir-
skriftina „Að hlusta með augunum - mála með skynfærunum". Sýnd verða 37 oliumálverk og eru þau flestöll unnin
á síðustu tveimur árum. Sýningin stendur til 23. september. DV-mynd GVA
Norræna húsið:
Mari Rantanen
Nú stendur yfir í sýningarsölum
Norræna hússins sýning á málverk-
um efitir finnsku listakonuna Mari
Rantanen. Á sýningunni eru 29 mál-
verk, flest máluð á síöasta ári.
Norræna listamiðstöðin í Sveaborg
hefur annast undirbúning sýningar-
innar og fer sýningin héðan til Norð-
urlandahússins í Þórshööi á Færeyj-
um og víðar um Norðurlönd.
Mari Rantanen er fædd 1965 í Esbo.
Hún nam við Finnska listaháskólann
1975-79 og síðar við Pratt Institute í
New York sem Fulbrightstyrkþegi.
Hún hefur haldið margar einkasýn-
ingar á Norðurlöndum og tekið þátt
í samsýningum með finnskum lista-
mönnum. Einnig hefur hún sýnt í
Bandaríkjunum, en þar býr hún um
þessar mundir. Auk ýmissa viður-
kenninga var hún útnefnd listamað-
ur ársins í Finnlandi 1989. -GRS