Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Síða 3
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990.
19
Dans-
staðir
Bjórhöllin
Gerðubergi 1, sími 74420
Lifandi tónlist öll kvöld vikunn-
ar.
Danshöllin
Fjölbreytt skemmtun með fyrir-
taks skemmtikröftnm. Bjórkráin
á jarðhæðinni verður opin.
Hljómsveit André Bachmann
leikur fyrir dansi.
Casablanca
Diskótek fóstudags- og laugar-
dagskvöld.
Dans-Barinn
Grensásvegi 7, simi 688311
Opið fimmtudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld.
Tónlist sjöunda áratugarins í
hávegum höfð.
Glæsibær,
Álfheimum, s. 686220.
Upplýfting leikur fyrir dansi um
helgina. Einnig kemur fram írski
þjóðlagadúettinn Sean Cannon
og Michael Howards.
Gikkurinn
Ármúla 7, sími 681661
Lifandi tónlist um helgar.
Hollywood
Ármúla 5, Reykjavík
Diskótek föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Hótel Borg
Pósthússtrœti 10, Reykjavík,
sími 11440
Diskótek föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Sportklúbburinn
Borgartúni 32, s. 29670
Hljómsveitin Gott með Eyjólf
Kristjánsson í farabroddi leikur
fyrir dansi föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Ölkráin opin öll kvöld vikunnar.
Skálafell, Hótel Esju
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík,
simi 82200
Guðmundur Haukur leikur
föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld og nk. fimmtudags-
kvöld. Opið öll kvöld vikunnar.
Hótel ísland
Ármúla 9, simi 687111
Hljómsveit Pálma Gunnarssonar
leikur fyrir dansi á föstudags-
kvöld. Á laugardagskvöld verður
sýndur haustkabarett þar sem
fram koma þau Anna Vilhjálms,
Karl Örvarsson, Hljómsveit
Pálma Gunnarssonar og dansar-
ar sem dansa miðnæturblús.
Hótel Saga
Á laugardagskvöldið skemmtir
HLH-flokkurinn og Hljómsveit
Stefáns P. leikur fyrir dansi.
Mímisbar er opinn föstudags- og
laugardagskvöld.
Keisarinn
Laugavegi 116
Opið öll kvöld. Diskótek og
hljómsveitaruppákomur um
helgar.
Laguna og Café
Krókódíll
Diskótek um helgina.
Tveir vinir og annar I fríi,
Á föstudags- og laugardagskvöld
leika íslandsvinir fyrir dansi. Á
laugardagskvöldið kemur fram
sérstakur gestur með þeim sem
er enginn annar en Guðgeir Em-
ilsson, hinn aldni harmóníku-
snillingur sem er best þekktur
undir nafninu Geiri blinbi. Ný-
döns skemmtir sunnudags- og
mánudagskvöld.
Ölver
Álfheimum 74, s. 686220
Opið alia daga.
Veitingahúsið Ártún
Vagnhöfða 11, s. 685090
Nýju og gömlu dansamir föstu-
dags- og laugardagskvöld. Hljóm-
sveitin Kompás leikur fyrir dansi
ásamt söngkonunni Kristbjörgu
Löve.
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------——— ------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------ Ml .l..l,l.:,l.ll.llll I.J.' .li.l .1^
Á laugardag kl. 14.00 fer fram i Leirdal lokakeppni íslandsmótsins í motocross. Búast má við spennandi keppni því að staðan í mótinu er mjög
jöfn. Vegurinn inn í Leirdal liggur upp frá nýju Reykjanesbrautinni fyrir vestan Garðabæ, miðja vegu milli Reykjavikur og Hafnarfjarðar.
Hinn landskunni söngvari, Ragnar
Bjarnason, mun koma fram ásamt
hljómsveitinni Smellum á dans-
leikjum helgarinnar í Danshúsinu
í Glæsibæ.
Síðan
Áslaug Fjóla verður á sínum stað.
Þórs-
café
Það verður mikið um dýrðir í
Þórscafé um helgina. Hljómsveit
André Bachmann tekur á móti
gestum og fær til sín liðsauka.
Heimir Bergmann grínisti kynnir
skemmtiatriði og les afmæliskveðj-
ur. Sú nýjung hefur nú verið tekin
upp að afmælisbörn helgarinnar fá
frítt inn bæði kvöldin ásamt einum
gesti.
Bjarni Arason tekur nokkur vel
valin lög að hætti Elvis Presley,
Áslaug Fjóla verður á sínum stað
og dansararnir Pétur Jökull Pét-
ursson og Eydís Eyjólfsdóttir sýna
nýjustu tískudansana. Þá munu
íslandsmeistararnir í rokkdansi,
þau Jói og María, sýna glannalegt
rokkatriði.
skein sól
Síðan skein sól hefur ákveðið að
bregðast ekki sínu fólki og halda
uppi merkjum íslenskrar menning-
ar á þessum viðsjárverðu tímum
erlendra áhrifa. Það verða því
barðar bumbur og blásið í lúðra
nk. laugardagskvöld á Hlöðum
Hvalfjarðarströnd. Þar mun Síðan
skein sól magna upp rammíslensk-
an seið guðunum til dýrðar og
óvænt teikn verða á lófti. Nemend-
ur framhaldsskólanna eru sérstak-
lega boðnir velkomnir í upphafi
nýs skólaárs.
Síðan skein sól hefur að undan-
fórnu dvalið í hljóðveri við hljóðrit-
un væntanlegrar breiðskífu og
mun hljómsveitin m.a. kynna efni
af henni.
Hljómsveitin Perlan ásamt söng-
konunni Mattý Jóhanns er nú aftur
komin af stað. Hún mun leika á
árshátiðum, þorrablótum og öðr-
um dansskemmtunum. Perlan og
Mattý Jóhanns flytja alhliða dans-
tónllst.
Dansbarinn
- nýr skemmtistaður
Opnaður hefur verið á Grensás-
vegi 7 í Reykjavík nýr skemmti-
staður, Dansbarinn, sem rekinn er
í tengslum við veitingastaðinn
Mongolian Barbeque. Eigandi
beggja staðanna er Sigvaldi Viggós-
son veitingamaður sem starfaði um
13 ára skeið við veitingarekstur í
Kaupmannahöfn ásamt bróður sín-
um, Þorsteini Viggóssyni.
Dansbarinn er að nokkru sniðinn
eftir fyrirmyndum frá Kaup-
mannahöfn þar sem dansbarir hafa
rutt sér til rúms á síðustu árum.
Dansbarinn tekur hðlega 240
manns í sæti og þar verður fjöl-
breytt tónlist, bæði lifandi tónlist
og gullaldarlög leikin af diskum.
Meðal hljómsveita, sem þar leika
næstu þrjá mánuði, eru Lúdó og
Stefán, Ingimar Eydal, Mannakorn
og Sveitin milli sanda.
Dansbarinn verður opinn frá
klukkan 22 til klukkan 3 eftir mið-
nætti fóstudaga og laugardaga og
er opinn þeim matargestum Mong-
olian Barbeque sem þess óska.
Staðurinn rúmar auk þess smærri
sem stærri hópa og þá gesti aðra
sem vilja skemmta sér í kátum
hópi með fjörlegri tónlist en vilja
samt geta ræðst við án ærandi háv-
aða. Dansbarinn er ekki stærri en
svo að þar týnist enginn í hringið-
unni.
Nú um helgina verða það Lúdó
sextett og Stefán sem skemmta á
Dansbarnum en auk þess verður
Sigurður Sveinsson plötusnúður.
Sundakaffi:
Nýr salur
opnaður
Þorsteinn Örn Þorsteinsson, veit-
ingamaður í Sundakafíi, hefur opn-
að nýjan sal í vesturenda húsa-
kynnanna í Klettagörðum 1 í
Sundahöfn.
Þar verður veitingasala og bar.
Boðið verður upp á 1-2 aðalrétti,
auk skyndirétta. Salurinn tekur 36
manns í sæti og fyrst um sinn verð-
ur opið fimmtudaga-laugardaga, á
fímmtudögum frá kl. 18.00-23.30 og
hjna dagana tvo frá kl. 18.00-1.00.
Ennfremur verður hægt að leigja
út salinn fyrir fundahöld eða aðrar
samkomur.
Hljómsveitirnar Whitesnake og
Quireboys halda tónleika í Reiö-
höllinni í kvöld og annað kvöld.
Að gefnu tilefni er áhugasömum
bent á að uppselt er á fyrri tónleik-
ana.
Siðan skein sól mun m.a. kynna efni af væntanlegri breiðskífu.