Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1990, Blaðsíða 5
L A U G ARD AGUlí ‘8Í \
I
\
\
Fréttir
Óprúttmn leigusali:
Leigði út íbúð sem
hann átti ekki
Enn batna vegirnir
Magnús Ólafeson, DV, Húnaþingi:
Nýlega var lokiö við að leggja
bundið slitlag á vegarkaflann frá Brú
í Hrútafirði að Miklagili á Holta-
vörðuheiði. Fyrr í sumar var klæðing
lögð á tvo vegarkafla í Hvalfirði.
Eftir þessar vegabætur eru aðeins
tveir stuttir vegarkaflar í Norðurár-
dal án bundins slitlags á leiðinni
milli Blönduóss og Reykjavíkur.
Þessir kaflar eru alls um 11 km á
lengd eða tæp 4% af vegalengdinni.
Frá Blönduósi til Sauðárkróks er
aðeins Bólstaðarhlíðarbrekkan án
bundis slitlags. Að undanfórnu hefur
verið unnið að því að bera ofan í
þann vegarkafla. Bundið shtlag verð-
ur ekki lagt á brekkuna í bráð þar
sem ekki er endanlega ákveðið hVar
vegurinn kemur til með að liggja í
framtíðinni.
Snæfellsnes:
Emil Thorarensen, DV, Kskifirði:
Ungur maður frá Eskifirði og unn-
usta hans urðu fyrir. biturri reynslu
nýlega er leigusafi í Reykjavík sveik
þau um húsnæði.
Reynsluríkur eldri maður, sem
vildi mér vel, gaf mér það heilræði
er ég fór til náms í Reykjavík fyrir
19 árum að ég skyldi vara mig á
Reykjavík þvi að þar væri allt byggt
upp á svikum og lygum.
Hér eru vissulega stór orð sögð en
sem betur fer ekki algilt lögmál. Eigi
að síður fer hér á eftir frásögn pilts-
ins sem styður vissulega orð gamla
mannsins.
Pilturinn, liðlega tvítugur frá Eski-
firði, hélt til Reykjavíkur til náms
ásamt unnustu sinni. Til þess að
tryggja sér öruggt húsnæði fyrir vet-
urinn tóku þau íbúð á leigu frá 1.
júlí sl. og var gert að greiða húsaleig-
una fyrirfram næstu sex mánuði eða
180.000.
Þetta unga par greip svo í tómt
þegar flytja átti inn í íbúðina um
daginn. Kom þá í ljós að leigusalinn
hafði misst íbúðina á nauðungarupp-
boði í fyrra.
Kennslan er hafin í Fiskvinnslu-
skólanum þar sem pilturinn ætlaði í
nám en unnusta hans á að hefja nám
um miðjan mánuð í Háskólanum.
Uppákoma þessi er að sjálfsögðu
mikiö áfall fyrir unga fólkið sem nú
stendur frammi fyrir þeirri stað-
reynd að vera húsnæðislaust auk
þess sem fjárhagslega hlið málsins
er í rúst því þessi „efnilegi leigusali“
er að sjálfsögðu búinn að koma pen-
ingunum í lóg og getur ekki endur-
greitt. En það vita allir sem eiga börn
sín í skóla fjarri heimilum sínum að
skólanámið er afar kostnaðarsamt
og kemur verulega við pyngjuna hjá
flestum foreldrum.
Nýtt
SUnDA- \
KAFFI
Nýtt
Höfum opnað
nýjan matsal
í vesturenda hússins með ölkrá.
- Allar veitingar -
' . Opið:
Fimmtudaga kl. 18-23.30.
Föstudaga og laugardaga
kl. 18-1.
Verið velkomin á rólegan veitingastað.
Við munum kappkosta að gera þér til hæfis.
Sundakaffi - ölkrá - Sundahöfn
Góðberjaspretta
Ingibjörg Hirvriksdóttir, DV, Stykkishólmi:
Berjaspretta í nágrenni Stykkis-
hólms hefur verið með besta móti í
sumar. Hvar sem berja er leitað blasa
þau við.
Helst er það ungviðið í sveitum og
bæjum sem tínir berin og oftar en
ekki borða börnin berin beint af
lynginu. Hagsýnar húsmæður hafa
einnig sést við berjatínslu. Berin
nota þær svo til sultu- og í súpur.
>
Sumarsalan
búin.
Haustsalan
að hefjast.
Vantarallargerðiraf
bílum á skrá og á stað-
inn vegna mikillar
sölu. Ekkert innigjald.
Nýja Bílahöllin,
Funahöfða 1, sími 672277
(3 línur).
CM
<
V)
*
<
HUm LAKKA YFIRRm
HAMMERITE er ryðbindandi lakk, sem
bindur fast og þurrt ryð og stöðvar
ryðmyndun. Það er sjálfgrunnandi
og fljótþornandi háglanslakk, borið á
án undanfarandi grunnmálunar.
HAMMERITE hefur mjög háan
yfirborðsstyrk, þ.e. höggþol, skrapþol,
hitaþol og veðrunarþol. Ýtarlegri upp-
lýsingar fást hjá söluaðilum og í bækl-
ingnum „Beintá rydid“og einblöðungnum
„Nú má lakka yfir ryðið“sem eru fáanlegir
hjá þeim.
HAMMERITE FÆST í MÁLNINGAR-
OG BYGGINGAVÖRUVERSLUNUM
HAMMERITE lakkið fæst
í fjölda lita. Skoðaðu litakort
hjá söluaðila.