Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1990, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1990, Page 22
22 . LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990. -frekar sit ég í fangelsi, segir móðir í harðri forsjárdeilu Hildur Hödd litla fæddist í maí 1981. Þegar hún var tæplega fjögurra ára flutti móðir hennar að heiman enda hafði eiginmaðurinn farið fram á skilnað. Hann hóf skömmu síðar sambúð með núverandi sambýlis- konu sinni. „Ég brotnaði mikið saman við skilnaðinn. Ég kunni ekki og gat ekki staðið á eigin fótum enda hafði ég í tæp tuttugu ár falið manninum mín- um forsjá í einu og öllu og vissi ekk- ert um stöðu mína eða réttindi í sam- félaginu. Það eina sem ég kunni til að deyfa sársaukann var að leita til Bakkusar. Sem betur fer leitaði ég fljótlega að- stoðar og hef ekki bragðað áfengi síð- an snemma árs 1986. Ég er núna mjög virk í samtökum óvirkra alkó- hólista og tel mig hafa náð góðum tökum á lífi mínu. Ég tel að mitt áfengisvandamál hafi verið afleiðing skilnaðarins en ekki orsök því þetta var ekkert vandamál áður. Ég hef nú nýlega fengið loforð um íbúð í verkamannabústaðakerfinu. Það eru því bjartari tímar fram und- an en ég greiði 45 þúsund krónur á mánuði í húsaleigu þar sem ég bý nú og það er erfitt fyrir mig sem starfa við heimilishjálp. Þetta áfengisvandamál, sem ég hef nú unnið bug á, átti auðvitað sinn þátt í því að fóður barnsins var á sín- um tíma falið forræði. Umsögn barnaverndarnefndar Kjalarnes- hrepps vó einnig þungt á metunum. Sú umsögn var hins vegar ekki gefm af heilindum því konan, sem var formaður nefndarinnar, fékk ókeypis áburð hjá manninum mín- um og hann hjálpaði henni á ýmsan hátt. Hún var heimagangur hjá okk- ur og maðurinn minn hjálpaði henni að dreifa eggjum. Auðvitað vildi hún ekki fá hann upp á móti sér. Hún skrifaði enda ein undir skýrsluna og gaf öðrum nefndarmönnum ekki kost á að segja álit sitt.“ Baráttanvið ráðuneytiðhefst Þegar lögskilnaðarleyfi lá fyrir, árið 1987, þar sem kveðið var á um for- ræði Stefáns yfir bömunum, var þeg- ar farið fram á endurskoðun sem ráðuneytið hafnaði loks formlega í ágúst 1989. Árið 1987 var í annað skipti leitað umsagnar bamavemdar- nefndar Kjalamess sem í þetta skipti „Ég vissi ekkert við hverju ég mætti búast. Það fyrsta sem ég gerði þegar synir mínir hringdu og sögðu að lögreglan væri komin var að koma baminu fyrir á góðum stað. Síðan var ég svipt frelsi í næstum heilan dag. Það var ráðist inn á heimili dótt- ur minnar og þess krafist að hún gæfi upp dvalarstað barnsins. Sam- kvæmt úrskurði mátti fógeti halda mér í varöhaldi í allt að sex mánuöi eða þar til ég gæfi upp dvalarstað barnsins. Það mun ég aldrei gera. Þessi barátta er búin að standa of lengi til þess að gefast upp núna. Á endanum var mér sleppt við fangels- isdvöl vegna þess að fangelsismála- stjóri neitaði að taka mig inn vegna plássleysis. Ég get hins vegar búist við því á hverjum degi að verða sótt. Mér finnst það alveg fráleitt að ætla að neyða móður upp á vatn og brauð að framselja barnið sitt,“ sagði Hild- ur Lovísa Ólafsdóttir í samtali við DV. Síðan 1985 hefur Hildur átt í harðri baráttu við fyrrum eiginmann sinn, Stefán Guðbjartsson, og yfirvöld um forræði yfir 9 ára gamalli dóttur þeirra. Málið vex og dafnar í kerfinu og í janúar 1990 vora málsskjöl orðin 271 talsins og hefur mikið bæst við síðan. Við skilnaö þeirra hjóna að borði og sæng árið 1985 var Stefáni falið forræði barnanna. Síðan hefur Hild- ur barist við hann og dómsmálaráöu- neytið til þess að fá þeim úrskurði hnekkt. Deilan tók á sig óvenjulega mynd þegar Hildur fór til Spánar síð- astliðið sumar, þar sem fyrram eig- inmaður hennar er búsettur, og tók barnið úr vörslu foðurins og flutti heim til íslands. Síðasta aðgerðin í málinu af hálfu fóðurins var sú að fá liðveislu fógeta til þess að koma barninu til Spánar á ný. Hildur neit- aði að gefa upp dvalarstað bamsins og segist aldrei munu gefa forsjá barnsins eftir. Óeinkennisklæddir lögreglumenn vöktuðu heimili henn- ar í heilan sólarhring en hurfu eftir að fjallað var mn aðgerðir lögregl- unnar opinberlega. Bamið, sem deilt er um, er Hildur Hödd, 9 ára. Hún dvelst „á góðum stað, meðan núverandi umsáturs- ástand varir“ eins og móðir hennar orðar þaö. „Ég er eins og gísl eða fangi í sam- félaginu á mínu eigin heimili. Ég veit ekkert hvenær lögreglan hringir dyrabjöllunni og ég get ekki haft dóttur mína hjá mér. Við höfum samt náið samband og eram oft samvist- Móðir og dóttir saman í garði við heimili móðurinnar. Þar er ekki þorandi að láta barnið dvelja. DV-myndir Brynjar Gauti um allan sólarhringinn. Ég tel hana öragga þar sem hún dvelur nú og þar getur hún leikið óhindrað úti en þeg- ar hún er stödd hér á mínu heimili þori ég ekki að sleppa henni út og hún er aldrei ein. Ég hef ekkert getað unnið um langa hríð en er svo lán- söm að eiga st.óra fjölskyldu sem styður vel við bakið á mér. Þetta er auðvitað óskaplegt álag á alla aðila og hræðilegt óöryggi,“ segir Hild- ur. Rákueggjabúá Kjalamesi Árið 1974 fluttu Stefán og Hildur búferlum til Kjalarness frá Akureyri með fjögur börn sín og reistu nýbýli sém þau nefndu Sætún og byggðu þar upp eggjabú. Reksturinn gekk, að sögn Hildar, vel enda unnu þau hjónin hörðum höndum ásamt böm- um sínum að uppbyggingu búsins. Hildur segist reiðubúin að halda barál mælti með að Hildur fengi forræði. Sama ár flutti Stefán til Spánar og Hildur Hödd með honum. Næstum tvö ár hðu í stöðugri baráttu við ráðu- neytið sem engan árangur bar. í júlí 1989 fór Hildur til Spánar ásamt eldri dóttur sinni og hugðist heimsækja Hildi Hödd. Niðurstaðan varð sú að hún tók litlu dóttur sína með sér heim til íslands án samráðs við foðurinn. Fljótlega efiir komuna til íslands var Hildur Hödd sett á vistheimili á veg- um Barnavemdarráðs þar sem sál- fræðingur ræddi við hana og reyndi að komast að því hver hennar vilji væri. Niðurstaða hans var sú að bam- ið hefði „alldjúpstæða þörf fyrir nán- ara samband við móðurina en verið hefur... Sú afstaða Haddar að vilja dvelja hjá móður sinni í framtíðinni virðist skýr enda tjáði telpan þann vilja sinn opið viö mig þótt í fullum trúnaði væri“. Ákvörðun ráðuneytisins varð þó ekki breytt og lögreglustjórinn í Reykjavík tók bamið úr fangi móður og afhenti Hildi Hödd fóðumum sem kom frá Spáni til að endurheimta hana. Þá var af hálfu ráðuneytisins enginn umgengnisréttur ákveðinn til handa móðurinni en í vetur eftir harða baráttu tókst, fyrir atbeina núverandi dómsmálaráðherra, að fá leyfi til þess að Hildur Hödd kæmi til íslands í þrjár vikur að heim- sækja móður sína. Sú heimsókn stendur enn því móðirin hefur neitað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.