Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1990, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1990, Side 8
8 f MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1990. á aóeins Vinsældir Macintosh-tölvanna eru slíkar að við höfum vart undan að anna eftirspurninni. Við þökkum frábærar mótttökur og bjóðum jafnframt lokasendinguna af Macintosh Plus-tölvum, sem okkur tókst að útvega á þessu afmælisverði. (Afhentar beint af Ath. Gildir aðeins á meðan birgðir endast! Pantanir í síðustu sendingu óskast sóttar. Radíóbúðin hf. Sími: (91) 624 800 Apple-umboðið Skipholti 21,105 Reykjavík Utlönd Francesco Cossika hefur lýst því yfir að stjórn italíu hafi ekki lengur völd í landinu öllu. Símamynd Reuter Alda ofbeldisverka ríöur yfir Ítalíu: „Mafían hefur hluta landsins á valdi sínu“ - segir Francesco Cossiga, forseti landins Francesco Cossiga, forseti Ítalíu, sagði um helgina að svo virtist sem ítalska ríkið hefði tapað völdum í sumum hlutum landins og væru þeir nú á valdi mafíunnar. Yfirlýsing Cossiga kemur i kjölfar þess að undanfarnar vikur hefur mikið borið á átökum milli hópa inn- an mafíunnar. Einnig hefur mafían ráðist á opinbera embættismenn og lét nú síðast myrða landfógetann á Sikiley. Cossiga segir aö ástandið hafi aldr- ei verið verra frá því eftir 1970 og þegar mikil alda ofbeldisverka reið yfír landið. Jóhannes Páll páfi hefur þegar látið frá sér fara bón um að landsmenn hætti að berjast en það virðist hafa koma fyrir litið. Forsetinn sagði að svo virtist sem glæpaaldan hefði náð út fyrir sín hefðbundnu svið og væru. glæpa- mennirnir farnir að snúast gagngert gegn yfirvöldum. Stjórnmálamenn hafa ekki mótmælt orðum forsetans og segja að þau sýni í þvílíkt óefni sé komið i landinu. Margir ásaka stórn Andreottis um aö ganga ekki fram af nægilegri hörku gegn glæpamönnunum. Þeir segja að stjórnina vanti bæði pólit- ískan vilja og ákveðna stefnu til að vinna eftir. Reuter Forseti Kólombíu breytir um stefnu: Viðræðum við eitur- lyfjabaróna haf nað Cesar Gaviria, forseti Kólombíu, hefur neitað að nokkrar viðræður fari eftirleiðis fram milli yfirvalda og kókaínsmyglara í landinu. Jafn- framt hefur hann gefið í skyn að hér eftir verði gengið fram af vaxandi hörku gegn smyglurunum. í síðasta mánuði bauð forsetinn smyglurum samninga gegn því að þeir gæfu sig lögreglunni á vald. Fyr-. ir vikið var þeim lofað vægum fang- elsisdómum og stóð til að stytta refs- ingar um allt að helming hjá þeim sem tækju boði stjórnarinnar. Kókaínsmyglararnir hafa svarað þessu tilboði með morðum á mönn- um í opinberum stöðum og þá hafa þeir rænt þremur Kólombíumönn- um. Meðal þeirra sem smyglararnir hafa í haldi er dóttir fyrrum forseta landsins. Forsetinn sendi frá sér yfirlýsingu sem var prentuð í blöðum landsins í gær. Þar sagði hann að engar sámn- ingaviðræður ættu sér stað milli hans og æðstu kókaínbarónanna í landinu og engir samningar kæmu til greina meðan barónarnir héldu uppteknum hætti. Tilboð forsetans um sakaruppgjöf til þeirra sem gefa sig fram stendur þó enn en það felur í sér skilyrðis- lausa uppgjöf. Eiturlyíjabarónarnir hafa undanfarið látið frá sér fara ýmsar yfirlýsingar um samninga þeirra við stjórnina en þær hafa jafn- harðan verið bornar til baka af yfir- völdum. Nú er svo komiö að útvarpsstöðv- um og blöðum er bannað að flytja boð frá eiturlyfjabarónunum. Sagt er að yfirlýsingar þeirra grafi ein- ungis undan réttarfari í landinu. Reuter ÆTLAR ÞU AÐ LEGGJA SNJÓBRÆÐSLU FYRIR VETURINN? Nú er tækifærið Hagstætt verð og greiðsluskilmálar Faglegar ráðleggingar Útvegum menn til starfans ef með þarf V VATNSVIRKINN HF. ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 - 685966 |LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416 Flokksforingi: Rekinn fyrir að reka hóruhús Leiðtogi Kínverska Kommúnista- ílokkins í háskóla nokkrum þar í landi hefur verið rekinn úr stöðu sinni og flokknum fyrir að reka hóruhús í skólanum. í brottvísuninni var sagt að honum væri vísað frá vegna siðferðisbresta. Hóruhúsið var rekið á heimavist skólans. Þar gátu flokksbroddar fengið þjónustu en starfsemin vakti mikla óánægju meöal margra ilokks- manna þegar hún spurðist út. Flokksmaöurinn fyrrverandi heitir Zhong og átti að leiða flokksmenn í háskólanum í Shanix í Norður-Kína. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.