Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1990, Side 9
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990.
9
Utlönd
Irakar viðurkenna mistök í árás á franska sendiráðsmenn:
írakar biðja Frakka
afsökunar á árásinni
- Saddam hafði þó enn í hótunum við Bandaríkjamenn og Israel_
Beðiö i eyðimörkinni. Saddam Hussein hefur látið fyrstu afsökunarorðin
frá sér fara en hótar samt að gera árásir á skotmörk við Persaflóa og
i ísrael. Simamynd Reuter
írakar hafa beðið Frakka afsök-
unar á því að hafa ráðist á bústað
sendiherra Frakka í Kúvæt í síð-
ustu viku. Jafnframt ítrekaði Sadd-
am Hussein þá hótun sína að ráð-
ast á olíulindir við Persafóla ef
Bandaríkjamenn gefa ekki eftir af
viðskiptabanninu á landið.
Árásin á bústað sendiherra
Frakka varð til þess að vestræn
ríki bættu enn við herafla sinn í
Saudi-Arabíu og í kjölfarið var
samþykkt hjá Sameinuðu þjóðun-
um að flugumferð yrði einnig
stöðvuð til Iraks en leiðin í lofti
hefur verið eina samband landins
við umheiminh frá því viðskipta-
bannið tók gildi.
í tilkynningu frá utanríkisráðu-
neyti íraks sagði að hermennirnir
sem réðust á bústað sendiherrans
hefðu gert mistök og talið að húsið
væri í eigu Kúvæta sem staðið
hefðu fyrir andófi gegn írökum.
Fram til þessa hafa yfirlýsingar
frá írökum í garð vestrænna þjóða
farið harðnandi stig af stigi og fyrir
helgina hafði Saddam í hótunum
um að ef stríð brytist út þá mundi
aö það verða hið blóðugasta í sögu
mannkyns.
„Bandaríkjamenn koma fram
eins og þeir æth sér að kyrkja alla
íraka. Þeir starfa eftir frumskógar-
lögmáli í alþjóðamálum," sagði í
einni af yfirlýsingum Saddams. Þá
hótaði hann því að eyðileggja olíu-
lindir við Persaflóa og ítrekaði þá
yfirlýsingu enn eftir að Frakkar
höfðu verið beðnir afsökunar.
Þá hefur Saddam haft í hótunum
við ísraelsmenn og sagst mundu
gera árás á landið. Bandaríkja-
menn hafa gert allt til að halda
ísrael utan við deiluna við íraka
enda mikið í húfi að gera ekkert
sem gæti orðið til að fylkja aröbum
að baki Saddams. James Baker
sagði eftir hótun Saddams í garð
ísraels að hún breytti engu um
samstöðu flestra araba gegn her-
námi íraka á Kúvæt.
Reuter
Jg held
ég gangi heím “
Eftir einn -e/ aki neinn
UUMFEROAR
RÁD
UMBUÐAPAPPIR
Hvítur, 40 og
57 cm rúllur
Gjafapappír í úrvali
40 og 60 cm rúllur
Kraftpappír í rúllum
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN HF.
Spítalastíg 10 - Sími 11640
Myndsendir: 29520
SHARP
SJONVARPSTÆKI
14" skjár
svart
m/loftneti
kr. 26.315 stgr.
Super verð
20" skjár,
svart,
fjarstýring,
verð kr.
49.900
stgr.
25" skjár, svart, stereo,
Nicam, fjarstýring,
klukka, teletext,
kr. 89.800 stgr.
HUÓMBÆJARHÚSINU HVERFISGÖTU 103
101 REYKJAVÍK • SÍMI25999