Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1990, Side 11
MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1990.
11
Utlönd
Aoun boðar frið í Líbanon
Michel Aoun, leiötogi kristinna í
Líbanon, segist tilbúinn aö færa
miklar fórnir til að binda enda á 15
ára borgarastríð í landinu. Andstæð-
ingar Aouns hafa undanfarið sótt að
höfuðvígi hans í Beirút og er hann
nú aðþrengdur.
„Ég er tilbúinn að taka í hverja þá
sáttahönd sem rétt er fram í sannri
trú á að friður geti komist á í
landinu," sagði hann í gær. „Ég er
tilbúinn að færa miklar fórnir til aö
friður megi komast á og landið verði
í raun fullvalda á ný.“
Það eru einkum kristnir með-
bræður Aouns sem sækja að honum.
Aoun hefur skorað á skæruhða ann-
arra hópa í landinu að láta átökin
afskiptalaus og ráðast ekki á menn
hans. Hann hefur nú um 15 þúsund
menn undir vopnum.
Kristnir menn hafa lagt hart aö
Aoun að láta af stjórn í her landsins
en hann var hershöfðingi hans þegar
stjórnin leystist upp. Enginn forseti
hefur verið í landinu síðustu tvö ár
og landið stjórnlaust.
TaUð er aö Aoun vilji nú vingast
við múslima þegar kristnir menn
sækja að honum. Eins og málin
standa nú virðist það eina lausnin
og geta orðið grundvöllur að nýrri
ríkisstjórn í landinu. Þó þykir mjög
óvarlegt að telja að þaó geti leitt til
friðar því að margir hópar skæruliöa
gætu aldrei stutt slíka stjórn.
Reuter
Vatni var dreift úr þyrlum til að slökkva mikla skógarelda á frönsku Rivier-
unni um helgina. Símamynd Reuter
Skógareldar valda
miklu tjóni á
frönsku Rivierunni
ENIISSAN
MICRA
NI55AIM
EKKl BARA FALLEGUR OG ÞÆGILEGUR
HELDUR EINNIG NlÐSTERKUR OG ÖRUGGUR
Rúmgóður og bjartur og auðvelt að
leggja í stæði.
Fjögurra strokka vél, sparneYtín,
hljóðlát og aflgóð.
Þríggía ára ábyrgð.
Ingvar
Helgason M
Sævarhöfða 2
sími 91-674000
-tekist hefur aö slökkva þá 1 bili
Tekist hefur að ráða niöurlögum
mikilla skógarelda sem geisað hafa
að undanfórnu á frönsku Rivierunni.
Eldarnir hafa valdið miklu tjóni á
þessum vinsæla ferðamannastað og
er taliö að skógar þar muni ekki ná
sér næstu árin.
Þótt engin eldar loguðu síðustu
nótt óttuðust menn mjög að þeir
kynnu að brjótast út á ný þá og þeg-
ar. Mjög þurrt er á svæðinu og má
ekkert út af bera til að bálið kvikni
ekki á ný.
Þurft hefur að flytja um 2500
manns frá heimilum sínum frá því á
föstudag þegar eldarnir brutust út
af auknum krafti. Mörg hús hafa
eyðilagst í eldinum. Talið er að allt
að 12 þúsund hektarar af skóglendi
hafi eyðilagst. Á sumum svæðum er
hvert einasta tré dautt.
Reykjarmökkur huldi um helgina
baðstrendur á Rivierunni, þar á með-
al þá frægustu við Saint-Tropez.
Vindur var heldur hvass og olli þaö
enn meiri eriðleikum við slökkvi-
starfið. Slökkviliðið á þessu svæði
notar þyrlur til að flytja vatn og er
talið að ef þeirra hefði ekki notið við
hefði tjónið urðið mun meira. Reuter
Jan P. Syse segir ekki af sér embætti:
Norsk stjórnmál munu líða
lengi fyrir Syse-málið
- segir Gro Harlem Bruntland
„Mál Syses á eftir að setja mark
sitt á norsk stjórnmál í mörg ár,“
sagði Gro Harlem Bruntland, fyrrum
forsætisráðherra Noregs, eftir að Jan
P. Syse hafði gefið út yfirlýsingu um
að hann hygðist ekki segja af sér
embætti.
Bruntland er helsti andstæðingur
Syses í norskum stjórnmálum en
hefur þó ekki krafist þess að hann
segi af sér embætti forsætisráðherra
vegna brotanna sem hann hefur við-
urkennt gegn hlutafélagalögum
landsins.
Þrátt fyrir ákvörðun Syses seint á
fóstudagskvöldið er því spáð að hann
eigi ekki eftir að sitja lengi í embætt-
i.Hann sætir harðri gagnrýni í Nor-
egi og þeir eru margir sem ekki sætta
sig við afsakanir hans einar. Syse
hefur margoft beðist afsökunar á
brotum sinum en segir að þau séu
svo smávægileg að þau réttlæti ekki
afsögn.
Á fóstudag fékk hann skýrslu end-
urskoðenda um brot sín og eftir að
hafa íhugað hana fram á nótt ásamt
helstu samstarfsmönnum sínum
ákvaö hann að segja ekki af sér emb-
ætti. Hægri menn í Noregi styðja
Syse flestir hverjir en mörg dagblöð
þar í landi hafa krafist afsagnar og
ekki er gert ráð fyrir að málinu sé
lokið. NTB
Sígild
borðstofu-
húsgögn
Frábært verð
Skápur, bord með tvcer stœkkun-
arplötur og sex stólar.
Verð aðeins kr. 285.000,-
Komið og skoðið hið mikla úrval
okkar af öllum gerðum húsgagna.
Opið allar helgar
TMHÚSGÖGN
SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822