Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1990, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 1990.
Fréttir
i>v
Lögreglumenn á Austflörðum ósáttir við ákvörðun sýslumanns:
Engin löggæsla á dansleikj-
um vegna yf irvinnukvóta
- kvóti lögreglu á Seyðisfirði búinn vegna tollgæslu í Norrænu
Þau fyrirmæli voru gefm út frá
sýslumannsembættinu á Seyðisfiröi
í síðustu viku að engin hefðbundin
löggæsla skyldi fara fram vegna
nokkurra dansleikja sem haldnir
voru í umdæminu um helgina. Lög-
gæslusvæðið nær til lögreglunnar á
Egilsstöðum og Seyðisfirði.
Yfirvinnukvóti lögreglunnar á
Seyðisíirði er búinn í ár þar sem
mikil yfirvinna hefur verið unnin
vegna tollgæslustarfa við farþega-
skipið Norrænu í sumar. Bæði lög-
regla og starfsmenn sýsluskrifstof-
unnar hafa unnið þau tollgæslustörf.
Vinna beggja er engu að síður reikn-
uö inn í yfirvinnukvóta lögreglu-
manna.
Síðastliðiö fóstudagskvöld var
haldinn dansleikur á Seyðisfirði.
Einn lögreglumaöur var þá hafður á
bakvakt. 3-A eru venjulega á vakt
þegar dansleikir fara fram.
Tvö réttarböll átti að halda um
helgina í umdæmi lögreglunnar á
Egilsstöðum. í því umdæmi er yflr-
vinnukvótinn hdns vegar í samræmi
við áætlun en boð komu þó frá sýslu-
manni um að ekki skyldi halda úti
löggæslu vegna þeirra dansleikja.
Lögreglumenn telja mjög varhuga-
vert að engin löggæsla skuli höfð þar
sem dansleikir fara fram - ekki síst
vegna eftirlits með ölvunarakstri.
Stjórn Lögreglufélags Austurlands
mun ræða það ástand sem skapast
hefur á fundi í vikunni. Gert er ráð
fyrir að ályktun verði send til Lands-
sambands lögreglumanna og sýslu-
mannsembættisins. -ÓTT
Enn má sjá olíu á sjónum út af Laugarnesi og við Viðey eftir leka við dælingu i birgðastöð Olís á Laugarnesi.
Þegar horft er á svæðið úr lofti fer ekki á milli mála að talsverð olía er enn á sjónum. Myndirnar voru teknar í
gær. Myndin til vinstri er tekin af Laugarnesi þar sem olía virðist enn vætla úr olíuleiðslu Olis. Myndin til hægri
er tekin við Viðey þar sem f jörur eru enn þaktar olíu og brákina rekur á haf út. DV-myndir GVA
Vinnustöðvun aðstoðarlækna:
„Gróflega brotið á okkur“
„Meginástæða þessarar vinnu-
stöövunar er algert skeytingarleysi
stjórnvalda um úrbætur á endur-
skipulagningu vakta og vaktafyrir-
komulagi hjá aðstoðarlæknum. Sam-
kvæmt vinnulöggjöf og lögum um
aðbúnað og hollustuhætti á vinnu-
stöðum er gróflega brotið á okkur,“
sagði Bjöm Rúnar Lúðvíksson, að-
stoðarlæknir á Landakotsspítala, í
samtali viö DV en í dag standa um
130 aðstoðarlæknar á landinu öllu
fyrir eins sólarhrings vinnustöðvun.
Þeir funda um kjaramál sín í dag og
ákveða framhaldsaðgerðir.
„Þetta er fyrst og fremst mannrétt-
indabarátta. Við fáum aðeins sex
tíma hvíld meðan vinnulöggjöfm
kveður á um 10 tíma. Við fáum engan
frídag í viku en vinnulöggjöf kveður
á um einn. Aðstoðarlæknar vinna
óeðlUega mikið, milli 2 og 300 yfir-
vinnutíma á mánuði, og eru vakandi
í allt að 30 tíma samfleytt. Okkar
hollusta og öryggi sjúklinga er í veði.
Þá hafa lækningaleyfi ekki enn veriö
lækkuö eftir hækkun úr 4 þúsundum
í 50 þúsund og loks hafa engar efn-
islegar umræður farið fram á fund-
um með samninganefnd ríkisins
undanfarið. Menn eru orðnir lang-
þreyttir."
- Hafið þið ekki margar mUljónir í
árslaun?
„Það er ekki rétt. Ég útskrifaðist
fyrir ári og grunnkaup mitt er 86
þúsund á mánuði. Með hrikalegu
vinnuálagi verða launin hins vegar
hærri.“ -hlh
Innbrot í veitingahúsið við Bláa lónið:
Gripnir á kvennasnyrtingunni
- höfðu drukkið dýrustu tegundimar á bamum, segir eigandinn
Tveir menn um fimmtugt brutust
inn í veitingahúsið við Bláa lónið í
fyrrinótt. Þegar starfsfólkið kom til
vinnu í gærmorgun voru mennimir
enn inni í húsinu. Þeir höfðu þá setiö
lengi við drykkju:
„Eg greip þá þar sem þeir sátu
hvor á sínu klósettinu á kvenna-
snyrtingunni. Þeir vom einhvers
staðar á milli svefns og vöku en voru
örugglega jafnhissa og ég. Þetta var
frekár skondið," sagði Guöjón Jóns-
son, eigandi veitingahússins við Bláa
lónið, Í samtali við DV.
„Þeir komu hingað með leigubíl.
Annar þeirra fór að baða sig í lóninu
en hinn komst ekki yfir girðinguna
og beiö eftir hinum. Síðan fóru þeir
yfir í veitingahúsið. Til að komast
inn köstuðu þeir stóram steini í eina
rúðuna. Þetta var siæm aökoma.
Barinn var kominn hist og her um
svæðið má segja.
Mennirnir fóru í margar sortir og
yfirleitt þær bestu - viskí, þýsktkon-
íak, nokkrar tegundir af bjór, líkjöra
og fleira. Þeir kunna greinilega á
þetta. Annars létu þeir allt annaö í
friði nema hvað þeir komust líka í
lambalæri. En ég hef engar áhyggjur
af þessu. Mennirnir hafa beðist af-
sökunar og hafa heitið því að borga
það sem þeim ber. Þeir sáu greinilega
mikið eftir þessu,“ sagði Guðjón
Jónsson.
Lögreglan í Grindavík var kölluð á
staðinn og voru skýrslur teknar af
starfsfólki. Sökudólgarnir tveir vora
orðnir mjög ölvaðir og vora þeir sett-
ir í fangageymslur. Þeir voru síðan
yfirheyröir síðdegis í gær.
-ÓTT
Fjárveiting til
aukavinnu á
þrotum
- segir Lárus Bjamason, sýslumaður í N-Múlasýslu
„Þær tjarveitingar, sem embættið
hefur til aukavinnu vegna löggæslu,
eru á þrotum. Þar af leiðandi er ekki
hægt að sinna löggæslu vegna dans-
leikja nema með bakvakt. Sá lög-
reglumaður vegur það og metur í
samráði við mig hvort þurfi aö kalla
út mannskap ef tilefni gefst til,“ sagði
Lárus Bjarnason, sýslumaður í N-
Múlasýslu, í samtaÚ við DV þegar
hann var spurður hvers vegna ekki
var hefðbundin löggæsla vegna dans-
leikjahalds um síðustu helgi.
Aðspurður um tollafgreiðslu sagði
Lárus að embættiö annaðist slíkt
vegna Norrænu. „Þá þarf að fá
ákveðinn mannskap fyrir tollleit,
innheimta þungaskatt, stjórna um-
ferð og fleira. í þessu eru yfirleitt 20
manns. Þetta skerðir auðvitað þá
fjárveitingu sem viö höfum til lög-
gæslu. Embættið hefur 4600 tíma yfir
árið til að sinna þessu með öðru. Sá
kvóti er á þrotum. Því er ekkert ann-
að að gera en að reyna að sinna því
sem til fellur á skylduvöktunum.
Varðandi aðra dansleiki hefur það
verið sitt á hvað hvort Egilsstaðalög-
reglan eða við sinnum þessum böll-
um þarna uppfrá. Þeir eru þá til taks
ef eitthvað kemur upp á. Ég sá því
enga ástæðu til að gefa þeim einhver
fyrirmæli um að vera á ballvakt frek-
ar en mínum mönnum - sérstaklega
með það í huga að annar lögreglu-
stjóri hefur yfir þeim að segja.“
- Er ekki slæmt að geta ekki haft
eftirlit með ölvunarakstri þegar
sveitadansleikir fara fram?
„Jú, það kann að vera. En það er
auövitað tilfallandi ef lögreglan á
Egilsstöðum er á ferðinni og hittir
einhvern drukkinn, þá ber henni
skylda til að sinna því samkvæmt
lögum og reglum. Hins vegar get ég
ekki skipað lögreglu á Egilsstöðum
fyrir nema í gegnum fyrirmæli frá
lögreglustjóra í S-Múlasýslu,“ sagði
Lárus Bjarnason.
-ÓTT
Forstöðumaður Seljahlíðar:
Kom í veg fyrir
messu til
að fá viðtal
- sóknarprestamirmessaálaugardag
„Séra Valgeir hafði ekki tíma til
að tala við mig í allt sumar.'Ég
stoppaði messu til aö fá hann til
að tala við mig,“ sagöi María Gísla-
dóttir, forstöðumaður í Seljahlíð.
María segir þaö ekki rétt, eins og
kom fram í DV í gær, að hún hafi
haldið fund til að tilkynna að ekki
yrði framvegis óskað eftir þjónustu
prestanna í Seljasókn. Hún segist
hafa sagt þveröfugt, verið að til-
kynna að prestarnir myndu starfa
áfram á heimilinu.
„Ég er furðu sleginn yfir þessum
orðum Mgríu. Þetta eru hreinar
rangfærslur," sagði séra Valgeir
Ástráðsson, sóknarprestur í Selja-
sókn, þegar orð Maríu Gísladóttur
voru borin undir hann.
María segir að fundur sem hún
átti í gær með prestunum, séra
Valgeiri og séra Irmu Sjöfn Óskars-
dóttur og Sveini Ragnarssyni fé-
lagsmálastjóra, hafi verið haldinn
að sínu frumkvæði. Hún segir einn-
ig að fundurinn hafi verið til að
ræða túlkun á samingi sem félags-
málastofnun geröi við Prestafélag
íslands í vor. María segir að séra
Valgeir hafi aldrei haft tíma til að
ræða túlkun samningsins, en Val-
geir neitar þessu alfariö eins og
kemur fram hér að ofan.
Séra Valgeir Ástráðsson segist
helst ekki vilja ræða þetta mál.
Hann sagði þó aö þær athugasemd-
ir sem hann og Irma Sjöfn gerðu
hefðu allar verið teknar til greina
á fundinum og að Sveinn Ragnars-
son hefði verið sammála þeim. Val-
geir segir að fundurinn hafi verið
vegna ósátta en hann er ófáanlegur
til að segja í hverju ósamkomulagið
er fólgið.
Séra Cecil Haraldsson segist ekki
hafa vitaö um neinar deilur milli
forstöðumanns Seljahlíðar og
sóknarprestanna í Seljahlíð þegar
hann var meö helgistund á elli-
■heimilinu um miðjan september.
-sme