Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1990, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 1990.
Fréttir
Jeppi frá breska
sendiráðinu fór margar
veltur við Eldvafn
- eiginkona sendiráðsfulltrúa slasaðist alvarlega
Rangev Rover bifreið frá breska
sendiráðinu fór 4-5 veltur við Eld-
vatn í Landbroti á sunnudag. Full-
trúi sendiherra var í bílnum ásamt
eiginkonu sinni og vinafólki. Eigin-
kona Mltrúans kastaðist út úr bíln-
um og lenti hún um 8 metra frá bif-
reiðinni. Hún slasaðist alvarlega.
Bílnum var ekið af vegkafla með
olimnöl og út á brú með trégólfi á.
Hinum megin brúarinnar er malar-
vegur með krappri beygju. Ökumað-
urinn missti stjóm á bílnum sem
lenti utan vegar og fór nokkrar velt-
ur áður en hann staðnæmdist á
hvolfi. Konan kastaðist út og slasað-
ist hún töluvert.
Vegfarandi sem kom akandi á eftir
sendiráðsbílnum sá hann rétt áður
en honum var ekið yfir brúna. 1-2
mínútum síðar kom hann að slys-
staðnum. Þá voru þau þijú sem voru
inni í bílnum komin út til að huga
að meiðslum þeirrar slösuðu. Hún
var flutt til Reykjavíkur með sjúkra-
bíl sem kom frá Kirkjubaéjar-
klaustri. Konan ligg r alvarlega
slösuð á Borgarspítalmum. Hún er
þó ekki talin vera í hfshættu.
-ÓTT
Vilja skrif sfof ur
Álafoss norður aftur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri;
Átta stéttarfélög á Akureyri hafa
sent erindi til bæjarsfjómar þess efn-
is að bæjarstjórnin beiti áhrifum sín-
um á stjóm Álafoss hf. í þá veru að
yfirstjórn fyrirtækisins verði að nýju
flutt til Akureyrar.
Sem kunnugt er, var yfirstjóm fyr-
irtækisins flutt frá Akureyri til Mos-
fellsbæjar fyrir skömmu og var þar
um átta störf að ræða. Starfsfólkiö
hefur óttast að þetta sé upphafið að
frekari flutningi starfsemi fyrirtæk-
isins frá Akureyri, en Ólafur Ólafs-
son, forstjóri Álafoss, hefur á fundi
með starfsfólkinu á Akureyri fullyrt
að ekki verði um frekari flutning á
starfsemi Álafoss frá Akureyri að
ræða.
Málefni Álafoss hafa vérið til um-
ræðu hjá bæjaryfirvöldum á Akur-
eyri að undanfórnu og á fundi báejar-
ráðs 20. september var bæjarstjóra
falið að koma á viðræðufundi milli
stjórnar Álafoss og bæjarráðs Akur-
eyrar.
NIS5AN
MICRA
EKKI BARA FALLEGUR OG ÞÆGILEGUR
HELDUR EINNIG NÍÐSTERKUR OG ÖRUGGÚR
Rúmgóður og bjartur og auðvelt að
leggja í stæði.
Fjögurra strokka vél, sparneYtin,
hljóðlát og aflgóð.
Þríggja ára ábyrgð.
Ingvar
Helgason
Sævarhöföa 2
sími 91-674000
Christia
Hágæða, fran
snyrtivörur á
kynningarverði
Við kynnum nú í fyrsta sinn á íslandi frönsku snyrtivörurnar
fráCHRISTIANBRETON.semslegiðhafa í gegn í Frakklandi.
Til dæmis voru frönsku síúlkurnar í keppninni um ungfrú Frakkland
snyrtar eingöngu með snyrtivörum frá CHRISTIAN BRETON.
Til að tryggja lægsta mögulegt verð, eru CHRISTIAN BRETON
snyrtivörurnar eingöngu seldar í gegnum pöntunarlista sem er mjög
vandaður, á íslensku og með íslenskum verðum.
CHRISTIAN BRETON kynnir: • Það nýjasta í framleiðslu snyrtivara
• Grenningarmeðferð sem hrífur • Sólbrún án áhættu
• Töfrar andlitssnyrtingar • 28 ilmvötn handa henni og honum
• Allar vörur ofnæmisprófaðar
Hringið eða skrifið eftir ókeypis 28 síðna litprentuðum vörulista
POSTVAL
Pöntunarsimi (91) 77311
Pósthólf 9333 - Þingasel 8-129 Reykjavík
Vinsamlegast sendio mér CHRISTIAN BRETON vörulistann:
Nafn:
V, W
oOST^