Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1990, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 1990.
Viðskipti
Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða. Um
443~ milljóna króna tap eftir skatta fyrstu sex
mánuðina.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips. Um
257 milljóna króna hagnaður eftir skatta.
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins.
Um 85 milljóna króna hagnaður.
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Granda. Um
76 milljóna króna hagnaður.
Reksturinn fyrri hluta ársins:
Svona hef ur gengið hjá þeim
Afkoma nokkurra þekktra fyrir-
tækja á almenna hlutabréfamark-
aðnum fyrri hluta þessa árs liggur
nú fyrir. Ekki er annað að sjá en
hagur sé að vænkast hjá íslenskum
fyrirtækjum. Við birtum hér milli-
uppgjör nokkurra þekktra alemenn-
ingshlutafélaga svo og stærsta fyrir-
tækis landsins, Sambands íslenskra
samvinnufélaga.
Hagnaður Eimskips
549 milljónir
Hagnaður Eimskips fyrir skatta
var 549 milljónir króna fyrstu sex
mánuði ársins borið saman við 47
milijóna króna tap á sama tíma í
fyrra. Eftir skatta er hagnaðurinn
257 milljónir króna.
Heildarflutningar félagsins voru
566 þúsund tonn sem er óbreytt magn
frá sama tíma í fyrra. Að jafnaði
störfuðu 675 starfsmenn hjá félaginu
fyrri hluta ársins og er það fækkun
um 90 starfsmenn frá í fyrra,
Eimskipsmenn segja um horfumar
að vegna hækkandi olíuverðs muni
reksturinn þyngjast nokkuð seinni
hluta ársins.
Hagnaður ESSÓ
180 milljónir
Hagnaður Olíufélags íslands hf.,
ESSO, var fyrir skatta 180 milljónir
króna. Ekki liggur fyrir sambærileg
tala fyrir fyrstu sex mánuðina á síð-
asta ári en allt árið í fyrra varð 96
milijóna króna hagnaður af Olíufé-
laginu. Rekstrartekjur samkvæmt
milhuppgjöri voru 3.462 milljónir og
er það 6 prósent raunaukning miðað
við sama tíma í fyrra. Óvissa um ol-
íuverð er mikil vegna styrialdar-
ástands við Persaflóa.
Hagnaður Granda
76 milljónir
Sjávarútvegsfyrirtækið Grandi hf.
hagnaðist fyrir skatta um 76 milljón-
ir króna fyrstu sex mánuðina. Á
sama tíma í fyrra var hagnaðurinn
6 milljónir.
Búist er við að sameiningin við
Hraðfrystistöðina bæti samkeppnis-
stöðu fyrirtækisins mjög. Þorsk-
starfssamning við hið nýja flugfélag
og þangað til hafi hann ekkert um
máUö að segja.
Samstarfssamningur við hollenska
flugfélagið KLM er forgangsatriði við
stofnun hins nýja flugfélags og verð-
ur hætt við málið náist samningur-
veiðikvóti fyrirtækisins er talinn
minni en æskilegt mætti telja.
Hampiðjan hagnaðist
um 42 milljónir
Hagnaður Hampiðjunnar fyrir
skatta var 42 milljónir króna fyrstu
sjö mánuðina. Milliuppgjör fyrir
sama tíma í fyrra liggur ekki fyrir
en allt árið í fyrra var hagnaður fyr-
irtækisins um 7 milljónir króna fyrir
skatta en á árinu 1988 tapaði fyrir-
trækið rúmri 1 milljón eftir skatta.
TapFlugleiða
430 milljónir
Tap Flugleiða fyrir skatta var 430
milljónir króna fyrstu sex mánuöina.
Skattar eru 13 milljónir þannig að
heildartapið er 443 milljónir. í fyrra
var samsvarandi tala 385 mhljónir
króna fyrir sama tímabil.
Bókanir voru mun meiri þetta
sumar en í fyrrasumar. í byijun sept-
ember tók' félagiö tímabundið við
flugleiðum Arnarflugs og kemur það
til með aö styrkja stöðu félagsins.
Miklar olíuverðshækkanir að und-
inn við KLM ekki í gegn.
Ætlunin er að hlutafé hins nýja
flugfélags verði rúmlega 200 milljón-
ir króna í upphafi og hafa þegar feng-
ist loforð manna fyrir um 150 millj-
ónum, gegn því skilyrði að vísu að
samstarfssamningur við KLM náist.
anfórnu eru íþyngjandi fyrir rekst-
urinn.
Sambandið hagnaðist
um 85 milljónir
Veruleg umskipti hafa orðið í
rekstri Sambandsins á þessu ári.
Fyrstu sex mánuðina var hagnaöur-
inn 85 miiljónir króna. í fyrra varð
hins vegar tap upp á um 120 milljón-
ir króna fyrir sama tímabil.
Tæplega 2 prósenta raunaukning
varð á sölu Sambandsins fyrstu sex
mánuði þessa árs og var hún hvorki
meira né minna en 14 prósent um-
fram áætlun.
Sambandið tapaði allt árið í fyrra
um 750 mihjónum króna. Sambands-
menn þakka bætta afkomu þessa árs
fyrst og fremst þeirri hagræðingu
sem verið hefur innan fyrirtækisins
og snarminnkandi verðbólgu á þessu
ári.
Eins og undanfarin ár eru það
miklar skuldir sem eru mest íþyngj-
andi fyrir reksturinn. Unnið er að
því að skipta Sambandinu upp í sex
hlutafélög. -JGH
Þá mun verða reynt að fá KLM inn
í hið nýja félag sem hluthafa, jafnvel
með hlutafé upp á um 20 prósent.
Rætt hefur verið um nokkur nöfn
á hinu nýja flugfélagi, meðal annars
nafniö Flugfélag Reykjavíkur.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækurób. 3,0 Allir
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-4 Ib.Sp
6mán. uppsögn 4-5 Ib.Sb
12mán. uppsögn 5-5,5 ib
18mán.uppsögn 11 ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema ib
Sértékkareikningar 3.0 Allir
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5 Allir
6mán. uppsögn 2.5-3.0 Allir nema ib
Innlán með sérkjörum 3-3.25 ib.Bb
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 6.6-7 ib
Sterlingspund 13-13,6 Sp
Vestur-þýskmörk 6.75-7,1 Sp
Danskarkrónur 8,5-9.2 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv.) 13,75 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 12,25-14.25 Íb
Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 16.5-17,5 Bb
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 6,5-8,75 ib
Útlán tilframleiðslu
Isl. krónur 14-14,25 Sp
SDR 11-11,25 ib
Bandarikjadalir 9.75-10 ib
Sterlingspund 16,5-16,7 Sp
Vestur-þýskmörk 10-10.2
Húsnæðislán 4,0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23.0
MEÐALVEXTIR
óverötr. ágúst 90 14,2
Verötr. ágúst 90 8.2
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala okt. 2934 stig
Lánskjaravísitala sept. 2932 stig
Byggingavísitala sept. 551 stig
Byggingavisitala sept. 172,2 stig
Framfærsluvísitala júlí 146,8 stig
Húsaleiguvisitala hækkaði 1,5% l.júli.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,099
Einingabréf 2 2,770
Einingabréf 3 3.355
Skammtimabréf 1.718
Lífeyrisbréf
Kjarabréf 5.041
Markbréf 2,683
Tekjubréf 1,989
Skyndibréf 1.504
Fjölþjóðabréf 1.270
Sjóðsbréf 1 2.449
Sjóðsbréf 2 1,773
Sjóðsbréf 3 1.705
Sjóðsbréf 4 1.458
Sjóðsbréf 5 1,027
Vaxtarbréf 1,7285
Valbréf 1.6230
Islandsbréf 1,058
Fjórðungsbréf 1.032
Þingbréf 1,057
Öndvegisbréf 1,052
Sýslubréf 1,061
Reiðubréf 1.043
HLUTABRÉF
Spluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 544 kr.
Flugleiðir 213 kr.
Hampiðjan 173 kr.
Hlutabréfasjóöur 170 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 171 kr.
Eignfél. Alþýðub. 131 kr.
Skagstrendingur hf. 410 kr.
Islandsbanki hf. 171 kr.
Eignfél. Verslunarb. 140 kr.
Oliufélagið hf. 557 kr.
Grandi hf. 188 kr.
Tollvörugeymslan hf. 110 kr.
Skeljungur hf. 593 kr. •
(1) Við kaup á viðskiptavixlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinn,
lb= Islandsbanki Lb = Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Rússamir geta ekkert borgað:
Skrúfað fyi* sölu
flsks til Rússlands
sendinefnd út til Sovétrikjanna í dag
íslenskir fiskframleiöendúr eru
búnir að skrúfa fyrir sölu fisks til
Sovétríkjanna vegna vanskila Sov-
étmanna. Landsbankinn reyndi að
höka til í máhnu og bauðst til að
útvega Sovétmönnum lán en að
sögn Sverris Hermannssonar
Landsbankastjóra sögðu Rússarnir
nei. í dag fer sendinefnd á vegum
fiskframleiðenda og Landsbankans
út til Sovétríkjanna th að ræða
máhn frekar. Vanskil Sovétmanna
eru 10 milljónir dollara eða um 570
mihjónir króna.
„Við buðumst til aö taka þá í
venjuleg viðskipti og útvega þeim
lán svo hægt væri að greiða skuld-
irnar. Sovétmenn sögðu hins vegar
nei og að þeir gætu sjálfir útvegað
fé til að borga,“ segir Sverrir Her-
mannsson, bankastjóri Lands-
bankans.
Bjarni Lúðvíksson, fram-
kvæmdastjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, segir að það
hafi verið um mitt þetta ár sem
vart hafi orðið við vanskh hjá Sov-
étmönnum - og fyrir fisk sem seld-
ur var á þessu ári.
Bjami segir að kaupandi fisksins
sé fyrirtækið Sovrybflot og að
greiðsluvandræði þess hafi komið
þeim nokkuð á óvart.
Landsbanki íslands sneri sér hins
vagar til þess banka í Sovétríkjun-
um sem tengist utanríkisviðskipt-
um.
Að sögn Bjarna telur hann aö
ekki megi túlka svör Sovétmanna
við Landsbankann sem algjört nei
þar sem í svörum frá þeim hafi
þeir veriö með vangaveltur um
ábyrgðir. Hann segist jafnframt
binda vonir við að för sendinefnd-
arinnar til Sovétríkjaqna í dag
verði til að leysa þetta mál.
" -JGH
Stofnun hins nýja flugfélags:
Svar frá KLM í vikulok
Víglundur Þorsteinsson, formaður
Félags íslenskra iðnrekenda og for-
ingi hóps manna sem vinnur að
stofnun nýs flugfélags sem flygi á
sömu leiðum og Amarflug gerði, seg-
ir að svars sé aö vænta í vikulok frá
hohenska flugfélaginu KLM um sam-