Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1990, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1990, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 1990. Útlönd Skotid á mótmælendur Tuttugu og fímm manns létu lífið og yfir áttatíu særðust í gær er skotið var á stuöningsmenn Aouns hershöfðingja í Austur-Beírút. Að sögn öryggissveita gengu um þús- und manns, karlar, konur og böm, götur Austur-Beirút með fána og kyndla. Hrópuðu göngumenn siag- orð gegn Elias Hrawi forseta og stjóm hans sem sett hefur Aoun og menn hans í herkvi. Árásin átti sér stað aðeins fáeina metra frá varðstöð hermanna Hrawis og líbanskra þjóðvarðliða. Sérfræðingar telja að árásin verði til þess aö styrkja stöðu Aouns meðal almennings. Sjálfur for- dæmir Aoun árásina. Aounneitaraðviðurkennastiórn Aoun, yiirmaöur herafia kristinna Hrawis og hafiiar nýjum sljómar- f Libanon, fordæmir órásina. skrárbreytingum sem heimila mú- simamynd Reuter hameöstrúarmönnum meiri þátttöku í stjómmáium. Aoun var útnefndur yíirmaöur bráðabirgöastjórnar þegar Líbanon varð forsetalaust áriö 1988. Hann hefur hingað tii neitað að láta af völdum þrátt fyrir kjör Hrawis í embætti forseta i fyrra. Skortur á smokkum í Sovétríkjunum Mörg Austur-Evrópulönd og þar á meðal Sovétríkin þurfa nú á alþjóð- legri aðstoð að halda til að auka framleiðslu getnaðarvama til þess að fækka fóstureyöingum og draga úr útbreíðslu eyðni. Þetta kom fram í bandaríska tímaritinu World Watch. Þörfrn fyrir getnaðarvarnir í Sovétríkjunum og öðrum Austur-Evrópu- löndum hefur lengi verið miklu meiri en framleiðslan. í Sovétríkjunum eru 70 milljónir kvenna á bameignaaldri. Samt sem áður er engin verk- smiðja í landinu sem framleiðir nýtískulegar getnaðarvarnir. Afleiðingin er sú aö að meðaltali láta konur eyða fóstri fimm til sjö sinn- um á ævinni. Lög um frúfrelsi staðfest Patriarki rússnesku réttrúnaðarkirkjunnar var viðstaddur fund Æðsta ráðsins í gær er það samþykkti lög sem tryggja öllum sovéskum borgur- urn fullt trufrelsi. Simamynd Reuter Æðsta ráðið, þing Sovétríkjanna, samþykkti í gær lög um fullt trú- frelsi. Er þar meö bundinn endi á ofsóknir stjómvalda á hendur trúariðk- endum. í síöustu viku hafði þingið samþykkt lögin að mestu en lokaaf- greiðslu var frestað vegna ágreinings um trúfræöslu í skólum. Þeim ágreiningi lauk í gær meö þvi að hafnað var tillögu um að leyfð skyldi trúarbragöafræðsla í skólum ríkisins. Ríki og kirkja era nú aðskilin og samkvæmt lögunum er nú ríkinu bannaö að skipta sér af málefnura kirkjunnar auk þess sem trúfélögum er bannað að taka þátt í starfsemi stjómmálaflokka. Hins vegar mega préstar bjóða sig fram til pólítískra embætta. Frá því að Gorbatsjov Sovétforseti kom til valda 1985 hafa trúfélög feng- ið aö láta meira til sín taka. Hundraö kirkna, sem gerðar voru upptækar af rtkinu og notaðar sem vörugeymslut eöa söfn, hefur verið skilað aftur. Hræddir við reiði fjallagyðju Japanskri blaðakonu hefur verið meinað að vera viðstödd vígslu jarð- ganga í Japan þar sem verkamennimir óttast að fjallagyðjan verði af- brýðissöm og eyðilegg verk þeirra. Japanskt dagblað greindi frá því í gær að japanskt byggingarfyrirtæki hefði bannaö biaðakonunni að skrifa um vígsluathöfnina. Var blaöakonan beöin að yfirgefa staðinn vegna verkamannanna sem neituöu að halda störfum sínum áfram ef hún yrðí viðstödd. Thatcher vill konu I Hvíta húsið Forsætisráðherra Bretlands, Margaret Thatcher, sagði í gær að kominn væri tími til aö fleiri konur tækju þátt í stjómmálum svo að hún og stallsystur hennar skæm sig ekki jafnmikið úr. Thatcher sagöi í kvöldverðarboði í gær að loknum þriggja daga fund- arhöldum hjá Sameinuðu þjóðun- um í New York meðal fjölmargra þjóðarleiðtoga að ef tíi viU rynni sú stund upp aö kona myndi gegna æösta embætti Bandaríkjanna. Benti breski forsætisráöherrann á aö aðeins þrír þjóðarleiðtoganna á ráðstefnunni um málefni bama hefðu verið konur, hún sjálf, Cha- morro forsetí Nicaragua og Charles forsætísráðherra Dóminíkanska iýöveldisins. Margaret Thatcher, forsætisráð- herra BreUands. TeiknJng Lurie. George Bush ávarpar þing Sameinuðu þjóðanna í gær. Símamynd Reuter ísraelar ekki órólegir yf ir orðum Bush ísraelsk yfirv.öld kváðust í gær ekki vera óróleg yfir ummælum Bush Bandaríkjaforseta á þingi Sam- einuðu þjóðanna um að brottflutn- ingur íraskra hermanna frá Kúvæt gæti leitt til friðsamlegrar lausnar deilumála ísraela og araba. Yfirvöld í ísrael hafa hvatt Banda- ríkjamenn til þess að tengja ekki Persaflóadeiluna deilunni milli ísra- ela og araba þar sem það myndi mæla með árásarstefnu íraka og neyða ísraela til að láta af hendi her- tekið landsvæði. Talsmaöur Palestínumanna, Abu Ayyash, sagði að yfirlýsing Bush hefði verið óljós. Hann ætti eftir að sanna að honum væri alvara með því að krefjast þess að ísraelskir her- menn fari frá vesturbakkanum og Gazasvæðinu og að erlendir her- menn fari frá Líbanon. Palestínumenn styðja íraksforseta í Persaflóadeilunni og saka Banda- ríkin um hræsni með því að beita sér fyrir ályktunum Sameinuðu þjóð- anna gegn írák um leið og þeir láta sig engu skipta fyrri ályktanir Sam- einuðu þjóðanna um að ísraelsmenn fari frá þeim svæðum sem þeir her- tóku í stríðinu 1967. Tveir mánuöir eru liðnir frá þvi að írakar gerðu innrás í Kúvæt en enn virðist ekkert benda til að Sadd- am Hussein íraksforseti sé reiðubú- inn að verða við þeim kröfum and- stæðinga sinna að hann dragi herhð sitt til baka. George Bush Bandaríkjaforseti ít- rekaði kröfu þessa í ræöu sinni á þingi Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Frönsk yfirvöld sögðu í gær, þrátt fyrir að íraksforseti hefði lofað frelsi níu franskra gísla, að enn væri ekkert sem benti til að írakar leituðu friðsamlegrar lausnar á Persaflóadeilunni. Margaret Thatc- her lét sér ekki nægja að krefjast brottílutnings íraskra hermanna frá Kúvæt heldur fór einnig fram á þaö að írakar greiddu skaðabætur fyrir það tjón sem heíði orðið vegna inn- rásarinnar. Á sunnudaginn hvatti íraksforseti til viðræðna vegna Persaflóadeilunnar en útilokaði jafn- framt að kalla hermenn sína heim frá Kúvæt. Um þrjú hundrað sovéskir olíu- verkamenn í írak hafa farið þess á leit við sovésk yfirvöld að þau að- stoði þá við aö komast heim sem fyrst. Sögðu þeir sig nánast vera gísla, matur væri af skornum skammti og einnig drykkjarvatn. Einnig kæmi það fyrir að íraskir unglingar skytu á þá. Hundruð vest- rænna og japanskra karla eru enn í gíslingu í írak og er þeim haldið á hernaðarlega mikilvægum stöðum til að koma í veg fyrir árásir. ísraelsk yfirvöld fyrirskipuðu í gær dreifingu gasgríma til allra íbúa landsins, einnig Palestínumanna sem þó verða að borga fyrir grímum- ar. ísraelar sjálfir greiða tryggingar sem þekja kostnað vegna neyðarráð- stafana. Reuter Olía lækkar með minni spennu við PersafLóa: Kaupahéðnar taka gleði sína á ný - methækkun á verðbréfum 1 Japan 1 morgun Veröbréf hækkuðu á ný á mörkuð- um í Japan í morgun í kjölfar þess að verð á olíu hefur heldur lækkað og sljórn landsins greip til aðgerða sem eiga að auka trú kauphallar- gesta' á efnahag landsins. Undan- fama daga hafa verðbréf fallið mjög í verði vegna óvissunnar í Persaflóa- deilunni. Hækkunin í morgun var veruleg og einhver sú mesta sem um getur á einum degi. Samkvæmt svokallaðri Nikkei vísitölu, sem er hhðstæð Dow Jones verðbréfavísitölunni í Banda- ríkjunum, hækkuöu bréfin um ríf- lega 13%. I gær hækkuðu verðbréf einnig í Bandaríkjunum. Það er einnig rakiö til þess að verð á olíu hefur fariö lækkandi um leið og dregið hefur úr spennu við Persaflóa. í síðustu viku virtist sem stríö gæti brotist út þá og þegar en í gær fóru mildari orösendingar milli manna og Saddam Hussein hvatti til viðræöna. Þótt boðinu hafi ekki verið tekið þá hafði það þegar áhrif á olíuverðiö. Búist er við að olían haldi áfram aö lækka og verðbréf að hækka út þessa viku nema eitthvað óvænt ger- ist við Persaflóa. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.