Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1990, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1990, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 1990. 9 Utlönd Farþegaþotu ekið á tvær aðrar á flugvellinum í Canton í morgun: Þotan var á valdi f lug- ræningja þegar hún f órst Þotan, sem fórst á flugvellinum í Canton í morgun, var af sömu gerð og þessi frá kínverska rikisflugfélaginu. Simamynd Reuter Talið er að í það minnsta 90 manns hafi látið lífið kínversk farþegaþota rakst á tvær aðrar þotur á flugvellin- um í Canton í morgun. Fréttastofan Nýja Kína hefur staðfest að flugræn- ingjar hafi haft þotuna á valdi sínu en engar nánari upplýsingar voru gefnar. Kínversk yfirvöld hafa hins vegar staðfest að alvarlegt slys hafl orðið á flugvelhnum. „Það var hvert sæti skipað í þot- unni og það var einnig fólk í hinum sem stóðu á velhnum. Menn geta því ímyndað sér hvernig ástandi hefur veriö,“ sagði yfirmaður á sjúkrahúsi í borginni í viðtah við sjónvarpið Hong Kong í morgun. Það var haft eftir yfirmanninum að 90 manns hefðu látist þegar þot- urnar rákust saman en yfirvöld hafa ekkert látið frá sér heyra um málið. Þotan, sem árekstrinum olli, var af gerðinni Boeing 737. Ekki er þó vitað hve margir menn lentu í slysinu. Þotur af gerðinni Boeing 737 geta tekið um 120 farþega en ekki er vitað hve margir voru í hinum þotunum. Þær stóðu báðar á hliðarbraut þegar slysið varð. Einn af starfsmönnum flugvallar- ins sagði að önnur þotan, sem ekið var á, hefði verið af gerðinni Boeing 757 og væri hún mikið skemmd. Allar voru vélarnar í eigu kínverska ríkis- flugfélagins. Mikill viðbúnaður var á flugvelhn- um eftir að slysið varð en læknar þar sögðu að margir sem í þotunum voru hefðu látið lífið. Flugmálayfirvöld í Hong Kong segjast vita með vissu að þotunni hafi verið rænt skömmu eft- ir að hún fór frá bænum Xiamen áleiðis th Canton. Á milli staðanna er um 70 mínútna flug. í Hong Kong sögðu menn að stjórn flugvállarins í Canton hefði látið loka honum vegna flugráns en engar nán- ari fréttir hafa komið frá vallar- stjórninni. Útvarpið í Hong Kong sagðist þó hafa það eftir heimildum í Kína að öflug sprenging hefði orðið á flugvellinum. Flugvellinum í Canton hefur verið lokað og Reutersfréttastofan hefur það eftir heimamönnum að stöðugt sé verið að flytja slasað fólk á sjúkra- hús í borginni. Læknar sögðu frétta- manni Reuters að margir hefðu þeg- ar látist á sjúkrahúsunum. Flugvöllurinn í Canton er einn helsti alþjóðaflugvöllur í Kína og þaðan er haldið uppi áætlunarflugi til Bandaríkjanna auk allra helstu ríkja í austanverðri Asíu. Ef frá eru taldar upplýsingarnar frá Hong Kong er ekkert vitað með vissu um flugránið. Engar vísbend- ingar eru um hvernig það bar að höndum eða hvort flugræningjarnir höfðu uppi einhverjar kröfur. Reuter Stuðningsmenn Papandreou komu i morgun á sjúkrahúsið þar sem leiðtogi þeirra var lagður inn alvarlega sjúkur. Símamynd Reuter Andreas Papandreou alvarlega veikur - fluttur á sjúkrahús með hjartaáfall í morgun Andreas Papandreou, fyrrum forsætisráðherra Grikklands, var fluttur í skyndi á sjúkrahús í morg- un vegna hjartaáfalls. Mjög hefur hallað undan fæti fyrir Papandreou undanfarin misseri og hann hefur setið undir ásökunum um misferli meðan hann var leiðtogi landsins. Heilsu hans hefur hrakað ört síð- ustu daga eftir að ákveðið var að ákæra einn helsta samstarfsmann hans fyrir aðhd að fjármála- hneyksli. Þetta er Agamemnon Koutsoyrgas, fyrrum aðstoðarfor- sætisráðherra og dómsmálaráð- herra. Blaðafulltrúi Papandreou sagði að ákæran á hendur Koutsoyrgas hefði komið mjög illa við hann og forsætisráðherrann fyrrverandi hefði vart getað á hehum sér tekið upp frá því. Papandreou er nú 71 árs. Þegar hann kom á sjúkrahúsið átti hann orðið erfitt með andar- drátt og hann var þó ekki talinn í bráðri lífshættu. Á síöasta ári var ákveðið að losa Papandreou og fjóra aðra ráðherra úr stjórn hans undan þinghelgi svo ákæra mætti þá fyrir aðildina að flármálahneykslinu. Enn hefur ekki verið ákveðið hvort Papandre- ou verður ákærður en fari svo og hann verði sekur fundinn gæti hann átt lífstíðardóm yfir höfði sér. Koutsoyrgas hefur þegar verið settur í sérstaka öryggisgæslu til að koma í veg fyrir að hann flýi land. Aðgerðir dómsyfirvalda gegn honum þykja benda til að Pap- andreou og hinir ráðherrarnir verði einnig ákærðir. Hneykslið kom upp árið 1988 og várð tU þess að Papandreou og flokkur Sósíai- demókrata biðu mikinn ósigur í kosningum árið eftir. Papandreou hvarf þá úr embætti forsætisráð- herraeftiráttaárasetu. Reuter Færeyjar: Búist við kosningum Flokkarnir í færeysku landstjórn- inni hafa endanlega gefist upp á áframhaldandi samstarfi og er nú fastlega gert ráð fyrir kosningum innan tíðar þótt Jogvan Sundstein lögmaður vilji enn reyna stjórnar- myndun. Stjórnarkreppa skaU á í Færeyjum síðast liðið fimmtudagskvöld þegar mikið ósætti kom upp um hvernig staðiö skyldi' að fjárlagagerð fyrir næsta ár. Sambandsflokkurinn, einn þriggja flokka í stjórninni, vildi að útgjöld hins opinbera yröu skorin verulega niður. Fólkaflokkurinn og Þjóðveldis- flokkurinn, sem einnig sátu í stjórn- inni, vildu að landsjóðurinn tæki lán tU að halda mætti uppi atvinnu en mikið atvinnuleysi blasir nú við í Færeyjum. ÚRVALS SJÓNAUKAR Bæði In-Focus (þarf ekki að stilla) og stillanlegir VÖNDUÐ VERSLUN FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005 ! Vinningstölur laugardaginn L..._29' seP*- 90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN | VINNINGSHAFA 1. 5 af 5 0 2.154.041 Z. 4af5^f/p) 2 187.211 3. 4af 5 78 8.280 4. 3af5 3026 498 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.681.251 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULlNA 991002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.