Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1990, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1990, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 1990. Spumingiii Hefurðu farið í leikhús á nýbyrjuðu ieikári? Arnór Guðmundsson, atvinnulaus: Nei, og hef ekki hug á því. Árdís Sigmundsdóttir, nemi i HÍ: Nei, því miður. En ég ætla að kaupa mér áskriftarkort hið snarasta. Helga Guðjónsdóttir bankastarfs- maður: Ég bý úti á landi og reyni að fara þegar ég á erindi til borgarinn- ar. Núna langar mig að sjá báða gam- anleikina sem eru í gangi. Magga Stína sundkappi: Nei, en það er ekki ólíklegt að ég smelli mér á einhveija sýningu á næstunni. Pétur Jóhannsson sjómaður: Nei, enda eru tækifærin fyrir sjó- mann fá. Daníel Agnarsson sjómaður: Nei, ég hef ekkert farið síðan í fyrra. Lesendur Er menntamálaráðherra líka iðnaðarráðherra? Kristinn Einarsson skrifar: Ég sé ekki betur og heyri en allt sé að sjóða upp úr í þessari nánast útdauðu ríkisstjóm. Og þegar kett- irnir eru að heiman leika mýsnar sér, sagði einhvers staðar. Þetta á svo sannarlega við núna þegar einir 6 eða 7 ráðherrar eru fjarverandi og þeir sem eftir em heima gegna störfum fyrir hina. Það er t.d. eins og mennta- málaráðherra haíi tekið jóðsótt, svo ákaflega blæs hann og hvæsir út af álverum, orkuverði og erlendri eignaraðild í áhætturekstri hér á Émdi. Eða er menntamálaráðherra kannski hka iðnaðarráðherra, á meðan sá síðarnefndi er erlendis? Mér heyrðist ekki betur er mennta- málaráðherra, Svavar Gestsson kom til viötals á morgunþætti Bylgjunnar hjá Eiríki Jónssyni í gær (27. sept. sl.). Eiríkur spurði ráðherra ótt og títt og allfast og varðist ráðherra lengi vel. En þar kom að hann mædd- ist og vildi að lokum lítið staðfesta, t.d. um stjórnarsht eða skilyrði - nema frá sjálfum sér, persónulega eins og þeir kalla það - og þannig endaði sá þáttur: 1:0 fyrir Bylgjuna. En viti menn! Síðdegis sama dag var sami menntamálaráðherra kom- inn í Þjóðarsálina hjá stjórnanda þáttarins, fyrrum varaborgarfull- trúa Alþýöubandalagsins. Og þar hefur ráðherra líklega átt að fá að „brillera" í sárabætur fyrir hrak- farirnar á Bylgjunni sama morgun hjá „ótuktinni" honum Eiríki, sem einskis lætur óspurt. - En allt kom fyrir ekki. Þrátt fyrir dyggan stuðn- ing stjórnanda þáttarins, t.d. þegar kennarinn hringdi inn í þáttinn og lagði til ráðherra vegna málræktará- taksins, skaut stjórnandi inn með því að spyija á móti „var þetta ekki stuðningur?“, reið ráðherrann ekki feitum hesti frá Þjóðarsál að heldur. En svona eftir á að hyggja, hvað er menntamálaráðherra að ólmast í iðnaðar- og álmálum, þegar hann á nóg með að hemja grishngana í menntastofnunum þjóðarinnar? Nema, eins og ég segi, að hann sé orðinn iðnaðarráðherra í afleysing- um. Lesendasíða DV fékk þær óljósu upplýsingar í Stjórnarráði (og síðar þær sömu í ráðuneyti) að varla gæti annar gegnt störfum fyrir iðnaðar- ráðherra en félagsmálaráðherra, Jó- hanna Sigurðardóttir. Þetta lá þó engan veginn ljóst fyrir því enginn hafði tilkynnt símastúlkum eða rit- urum hver væri staðgengill í ráö- herradómi iðnaðarráðherra í fjar- veru hans nú. St. Bernharðs hundar eru stór dýr og ekki fyrir hvern sem er að annast þau, segir Vilhelmina m.a. í bréfinu. Fimm stykki lifandi St. Bemharöshvolpar: Osmekklegir happ- drættisvinningar Vilhelmína Ragnarsdóttir skrifar: Ég heyrði samtal á útvarpsstöðinni Bylgjunni og vakti það furðu mína. Viss félagsskapur var að hefja happ- drættisátak. Og hver var vinningur- inn? - Fimm stykki hfandi St. Bem- harðshvolpar! - Hvernig geta félaga- samtök haft lifandi dýr sem happ- drættisvinninga? Lfta þau á dýrin sem hvern annan dauðan hlut? Ég vil ekki beint álasa þessum fé- lagasamtökum því þetta hiýtur að vera af fáfræði gert. - En hundarækt- andinn... ábyrgöarleysið þar geng- ur fram úr öllu hófi. Hvaða ræktandi lætur dýr fara frá sér sem happ- drættisvinninga ef hann vill dýmn- um sínum vel? Þetta hlýtur að vera gert í gróöaskyni því varla er verið að hugsa um velferð dýranna í þessu tilfehi. Ræktandinn getur varla haft hugmynd um hvert eða hjá hveijum dýrið lendir! Þetta em stór dýr og ekki fyrir hvern sem er að annast þau nema viökomandi sé alveg með það á hreinu hvað hann er aö taka að sér. Ég veit hvað ég er að tala um því ég hefi ahð, ræktað og þjálfað svipaða hunda, (Pyrenéer) og St. Bernharðs. Það er sama hvaða dýr á í hlut, þau eiga ekki heima í happdrættum. Eng- inn sannur dýravini léti sér detta í hug að láta dýrið sitt frá sér á þenn- an ömurlega hátt. - Hundaræktunar- félag íslands og Dýraverndunarfé- lagið ættu að taka þetta mál að sér, og fá bann á svona starfsemi. P.S. Hver hvolpur er metinn á 150 þús. kr. íslenskar sem er náttúrlega algjört bijálæði. Á Norðurlöndunum fáum við góða St. Bemharðs og Pyr- enéer fyrir innan við 40 þúsund krónur og í Bandaríkjunum kosta þeir svona um 12 þúsund krónur. - Svona rétt til fólk geti glöggvað sig á hlutunum! : DV áskilu r sér rétt til að stytt; ibréf 3 ocj simtc U ÖCfill UIL IdÖl Cl J.tíí5CÍXlvJ.ClE>iv/“ umblaðsins. Dvalarheimilið Alþingi: Víðar lífvænlegt Egill Jónsson skrifar: Ég vil þakka Guðmundi Magnús- syni fyrir frábæra kjaharagrein sem hann skrifar í DV í gær, 27. sept., um „Líf að lokinni þingsetu“. - Hann segir sem er að því miður séu alltof margir sem álíti að með þátttöku í stjómmálum og setu á Alþingi brenni menn allar brýr að baki sér og þeir eigi varla afturkvæmt á önn- ur starfssvið í lífinu. Þetta má til sanns vegar færa með þingmenn okkar íslendinga marga hveija. Ekki ófáir hafa setið til elh- ára og orðið bæði gráhærðir og bogn- ir í baki af setunni. Sumir hafa meira að segja skihð eftir afkvæmin í stól- unum eins og títt er um þá lands- byggðarþingmenn. Þetta er nú komið í umræðuna og er mál að linni þeim ósið að menn séu að strita við að sitja á þingi þar til ahir eru orðnir leiðir á að sjá viðkomandi í sama hlutverk- inu áratug eftir áratug. Ég er þess fullviss að Guðmundur hefur rétt fyrir sér þegar hann segir að hér þurfi að verða hugarfars- breyting og við þurfum á stjóm- málamönnum að halda sem hafa áhuga á einstökum málum og vilja Líf að lokinm þingsetu mú!lr‘íí'un^w. ulw'i'i ..Þcir eru þvi miður alltof margir sem .rfi sn?u.«.. .itan ««■ .ii álíta að með þátttöku i stjómmálum .«iuiMmim-ki. i* ogsetu á þingi séu menn aðbrenna bryr að baki sér og cigi tæpast aftur- ■ .turfi.m..u«.»,iu.um. hi.rfi kvæmt á önnur starfssvið þjóðfélags Heilbrlgt vlöhocl " Grein Guðmundar Magnússonar birtist í DV 27. sept. sl. berjast fyrir framgángi þeirra, fá þau samþykkt og hverfa svo til annarra starfa. Þessara manna verður lengur minnst en hinna sem ef til vill eru á þingi ámm saman án þess að fá nokkru sinni samþykkt þau mál sem þeir þó þykjast styðja. - Enda oft ekki hægt að sjá hvaða mál margir slíkir menn styðja í raun. i sima milli kl. 14 og 16, eöa skrifið. Hættulegt gervi- hnattasjónvarp? Jón Gunnarsson, Þverá, Snæfellsnesi skrifar: Málvöndunarmenn ýmsir hafa bent á þá hættu er þeir telja að stafl af ótextuðu efni er komi frá gervi- hnöttum, og íslendingar séu að til- einka sér í æ ríkari mæh. Kunni þetta að spiha málinu. - Ég leyfi mér aö telja að hér sé að mestu um villu- kenningu að ræða. Það er aö risu staðreynd að ah- mikill fjöldi íslendinga á mismun- andi aldri hefur ekki getað theinkað sér frambærilega íslensku eða önnur tungumál, og orðaforði þeirra er mjög fátæklegur. Þessir hópar manna eru yfirleitt alls ófærir um að nota lestrarhraða sem þarf til að lesa texta á sjónvarpsskjám. Málfar þeirra er hvorki íslenska, enska né nokkurt annað tungumál. Þessir hópar taka engum þjóðlegum tilskip- unum um málvöndun. í mörgum tilfellum eru þeir heldur ekki færir um það þrátt fyrir margra ára skólagöngu og eru uppáhalds- ávörpin oftast „hæ, hæ“, „bæ, bæ“ „ókey“, o.s.frv. - Það er erfitt að gera sér grein fyrir hvað hér er raun- verulega á ferðinni. En spyrja má hvort þeir sem hafa náð sæmilegum eða góðum árangri í tungumálanámi eftir mörg ár í grunnskóla, og eru vonandi í meirihluta, hafi ekki burði til að notfæra sér og þjálfa upp þá þekkingu í tungumálum sem mörg námsár hafa boðið upp á. - Eða var ekki meiníngin að notfæra sér þetta nám! Vissulega er fráleitt og alls óviðeig- andi að blanda erlendum málum inn í hið íslenska. Það ber vott um að kjánar og málsóðar séu á ferðinni. Flestir hafa þann metnað gagnvart íslensku máh, að þeir gera það ekki. Fokdýr og næstum óframkvæmanleg textainnsetning við gervihnattaút- sendingar breytir engu varðandi málsóðana hvort sem þeir eru ungir eða aldnir. Þar dugar aðeins öflug hugarfarsbreyting sem tvímælalaust ætti að vera verkefni skólanna, svo og allra annarra sem hugsanlega gætu haft þar áhrif á.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.