Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1990, Qupperneq 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 1990.
Iþróttir
• Kim Won-tak, frá Suður Kóreu, sést hér koma i mark sem sigur-
vegari í maraþonhlaupi Asiuleikanna. Hann vann öruggan sigur og
náði mjög góðum tíma. Kim Won-tek hljóp maraþonhlaupið á 2:12,56
klst og sést hér að olan fagna sigrinum á marklínunni.
Símamynd/Reuter
• Þessir kappar, Kim Yong-Kang frá S-Kóreu tll vinstri og Khaosaí
Galaxy frá Thailandi, börðust um sigurinn f „bantamvigt" unglinga
á Asiuleikunum. Sá thailenski sigraði örugglega og rotaði andstæð-
ing sinn í 6. lotu. Á myndinni að ofan leggur hann grunninn að sigr-
inum með vænu höggi.
Simamynd/Reuter
• Frjálsiþróttakeppni Asiuleikanna hefur verið jöfn og spennandi
og ágætur árangur náðst I mörgum greinum. Hér sést japanska stúlk-
an Megumi Sato stökkva yfir 1,94 metra i hástökki og það nægði
henni til slgurs. Jafnframt setti hún nýtt Asfuleikamet.
Simamynd/Reuter
• Mikit átök hafa verfð i lyftingakeppn! Asíuleikanna. Hér sést Yeom
Dong-Chul, frá S-Kóreu, jafnhatta mikia þyngd en hann sígraði i
keppninni i 82,5 kg flokki og lyfti samtals 357,5 kg.
Símamynd/Reuter
Golf:
Gott af rek
Sigurjóns
í Glasgow
Sveit íslands varð í fjórða sæti á
Glasgow Open mótinu í golfi sem
lauk í Glasgow á sunnudaginn. Sig-
urjón Arnarson stóð sig mjög vel á
mótinu og lék best af einstaklingum,
ásamt Skotanum Coltart, en báðir
léku á 141 höggi.
Skotar hlutu
gullverðlaunin
Skotar sigruðu á 284 höggum, írar
léku á 289, og sömuleiðis Englending-
ar. íslendingar urðu fjórðu á 303
höggum, Walesbúar fimmtu á 307,
Belgar sjöttu á 311 en ítalir ráku lest-
ina þar sem þeir hættu keppni.
Næstir á eftir þeim Sigurjóni og
Coltart komu þeir Bickerton frá Eng-
landi og King frá Skotlandi sem báð-
ir léku á 142 höggum, en fimmti varð
Jón Karlsson á 162 höggum.
-VS
Knattspyma:
Guðjón
endurráðinn
hjá Haukum
Guðjón varð markahæsti leikmað-
ur liðsins í 3. deildinni í sumar. Hann
er þrítugur, og lék lengi í 1. deild
með Þór og FH en var þjálfari og leik-
maður hjá ÍK í þrjú ár.
Júdó:
Halldór lenti
í 9. sæti
Tveir íslenskir júdómenn tóku um
helgina þátt í opna sænska meistara-
mótinu í júdó sem fram fór í Lundi.
Halldór Hafsteinsson og Elías
Bjarnason kepptu báðir í 86 kg flokki.
Halldór Hafsteinsson vann
Sortkjaer frá Danmörku í fyrstu
umferð. í 2. umferð beið Halldór
lægri hlut fyrir Lindgren frá Svíþjóð
en fékk síðan- uppreisnarglímu gegn
De Groen frá Hollandi og tapaði. Þeg-
ar upp var staðið hafnaði Halldór í
níunda sæti.
Elías Bjamason, sem er 18 ára að
aldri, tók þátt í sínu fyrsta móti á
alþjóðlegum vettvangi. Elías mætti
Andersen frá Danmörku í fyrstu
umferö og var viðureignin mjög jöfn
og spennandi. Undir lokin tókst Dan-
anum að leggja Elías. Ðaninn tapaði
í næstu umferð og fékk því Elías
ekki uppreisnarglímu.
Bjarni Friðriksson ætlaði upphaf-
lega að taka þátt í mótinu en vegna
anna heima fyrir varð ekkert af þátt-
töku hans.
-JKS
Guðjón Guðmundsson hefur verið
endurráðinn þjálfari knattspyrnu-
liðs Hauka úr Hafnarfiröi sem leikur
í 2. deildinni á næsta keppnistímabili
eftir níu ára dvöl í 3. og 4. deild.
Guðjón hefur stýrt Haukahðinu og
leikið með því síðustu tvö árin og náð
frábærum árangri. Haukar unnu 4.
deildina 1989, og á nýloknu keppnis-
tímabih tryggðu þeir sér sæti í 2.
deild með því að hafna í öðru sæti
3. deildar.
-VS
• Stefán Kristjánsson skorar hér eitt af níu mörkum sínum fyrir FH gegn Kyndl
55-60 land
fyrirB-kep
- horfur á heimsókn sameinaðs Þýs]
Nú er orðið ijóst aö íslenska lands-
iiðið í handknattleik leikur á bilinu
55-60 landsleiki fyrir B-heimsmeist-
arakeppnina í Austurríki 1992. Þetta
var tilkynnt á blaðamannafundi sem
HSÍ hélt í gær. Mikið verður að gerast
hjá liðinu fyrir áramót bæði hér heima
og eins á erlendri grundu.
Þaö kom fram í máli landsliðsþjálfar-
ans, Þorbergs Aðalsteinssonar, að
mjög erfitt reyndist að fá erlend lands-
hð hingað til lands, Þorbergur sagði
ennfremur að það æfingaverkefni, sem
nú lægi fyrir, legðist vel í sig og von-
andi nægði það Iiðinu til aö standa sig
vel í heimsmeistarakeppninni í Aust-
urríki.
Fyrsta verkefni vetrarins verða þrír
landsleikir gegn Tékkum dagana
22.-26. nóvember. í lok nóvember tek-
ur íslenska landshðið þátt í íjögurra
landa móti í Danmörku og í desember
var upphaflega ákveðiö að leika á
móti í Áustur-Þýskalandi. Vegna
breytinganna viö sameiningu þýsku
ríkjanna hefur verið hætt við mótiö
og þess í stað hefur HSÍ boðið landshði
sameinaðs Þýskalands hingað til lands
í desember. Því boði hefur ekki verið
svarað en vonast er eftir því á næstu
dögum.
Heimsmeistarar Svía leika í Reykja-
Knattspyma:
Líkur á að Ásgeir
þjálf i Fram áfram
„spennandi dæmi“, segirÁsgeirEliasson
„Ég hef átt í viðræðum við forráðamenn Fram að undanförnu og eftir þær
eru góðar hkur á því að ég verði áfram með liöið. Ég hef nóg um að hugsa
þessa stundina enda erum við á kafi í Evrópukeppninni og þar ætlum við
okkur að komast áfram,“ sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari íslandsmeistara
Fram, í samtali við DV í gær.
Ásgeir hefur þjálfað Framliðið undanfarin sex ár og verður ekki annað
sagt en að hann hafi náö frábærum árangri með liðiö. Á þessu tímabih hefur
Fram undir stjórn Ásgeirs unnið íslandsmeistaratithinn þrisvar og bikar-
meistaratithinn einnig þrisvar sinnum.
„Ég hef verið hjá Fram í sex ár og þar hefur mér fundist gott að starfa.
Þetta er samt alltaf spuming um hvenær breytinga er þörf en eins og lítur út
í dag finnst mér mest spennandi dæmið að halda áfram með Framhðið. Núna
á sér stað viss endurnýjun hjá liðinu, margir ungir og efnhegir strákar eru
að koma í sviðsljósið,“ sagði Ásgeir Elíasson.
. -JKS
.
I Hai
sar
um
is-
sar
forr