Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1990, Page 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 1990.
fij
LANDSVIRKJUN
Útboð
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í fram-
leiðslu og afhendingu á leiðurum fyrir háspennulín-
ur, samkvæmt útboósgögnum BLL-14, „Transmissi-
on Line Conductors".
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum
2. október 1990 á skrifstofu Landsvirkjunar að Háa-
leitisbraut 68, Reykjavík, gegn óafturkræfu gjaldi að
upphæð 2.000,-.
Helstu magntölur eru:
Álblönduleiðari 57 km.
Stálstyrktur álblönduleiðari 56 km.
Afhendingardagur efnis er 1. maí 1991.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar, Háa-
leitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir kl. 12.00 mánu-
daginn 5. nóvember 1990, en þau verða opnuð þar
sama dag kl. 13.30 að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Reykjavík, 27. september 1990
Lýsigull á kistubotni:
Ef til vill
álversgull
Oft eru ævintýri táknmál.
Svo segir í gömlu ævintýri íslensku
aö konungur missti drottningu
sína. Áður en hún kvaddi börn sín,
sem voru 16 og 17 ára, gaf hún Ingi-
björgu dóttur sinni belti sem hafði
þá náttúru að engan svengdi sem
spennti það á sig. En Sigurði syni
sínum gaf hún hníf sem beit jafnt
á steina, tré og járn. Bað hún börn
Kjállariim
Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Bíldshöfði 16, 4. hæð, vesturendi, þingl. eig. Steintak hf., fer fram á eign- inni sjálfri fimmtud. 4. október ’90 kl. 17.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald- heimtan í Reykjavík. Smyrilshólar 6, 2. hæð B, þingl. eig. Kjartan Guðbjartsson, fer fram á eign- inni sjálfri fimmtud. 4. október ’90 kl. 16.30. Uppboðsbeiðendur eru Lands- banki íslands og Eggert B. Ólafsson hdl.
Asparfell 10,4. hæð D, þingl. eig. Sig- urður Guðmarsson, fer fram á eign- inni sjálfri fimmtud. 4. október ’90 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru Guðjón Ármann Jónsson hdl., Landsbanki ís- lands, Ævar Guðmundsson hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, íslands- banki, Veðdeild Landsbanka Islands, Gjaldheimtan í Reykjavík og Ævar Guðmundsson hdl. Efstaland 24, 3. hæð t.h., þingl. eig. Kristjana Jónsdóttir, fer fram á eign- inni sjálfri fimmtud. 4. október ’90 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru Magnús Fr. Amason hrl. og Tryggingastofhun ríkisins.
Æsufell 6, íb. 01-03, þingl. eig. Sólveig M. Ásmundsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 4. október ’90 kl. 17.00. Úppboðsbeiðandi er Guðjón Armann Jónsson hdl.
Grensásvegur 56,1. hæð t.v. B, þingl. eig. Aðalheiður Bergsteinsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 4. október ’90 kl. 15.15. Uppboðsbeiðend- ur eru Lögmenn Hamraborg 12, Bún- aðarbanki Islands, Steingrímur Þor- móðsson hdl. og Þórunn Guðmunds- dóttir hrl. BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK
Armúli 29, hluti, þingl. eig. Þorgrímur Þorgrímsson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 4. október ’90 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
AUKABLAÐ
Tölvur og tölvubúnaður
- á morgun -
í blaðinu verður Qallað almennt um tölvutækni og
tölvunotkun, tölvur og^hugbúnað á markaðnum fyrir
einstaklinga og fyrirtæki og auk þess notkun tölva á
nýjum sviðum, svo sem við uppiýsingavinnsiu, við
skipulagningu sölustarfa, á sviði verkfræði, í arkitektúr
o.fl.
fjallað verður um hugbúnað til ýmissa verka, bæði
nýjan hugbúnað og þann sem verið hefur á markaðn-
um fram að þessu, ýmis kerfi, jaðartæki og rekstrar-
vörur sem gera einstaklingum og fyrirtæig'um kleift að
nýta tölvubúnað betur en áður, búnað sem eykur ör-
yggi í gagnavinnslu og meðferð gagna o.fl.
Einnig er sagt frá menntunarmöguleikum fólks á tölvu-
sviði, bæði framboð á námskeiðum og framhalds-
menntun og sagt verður frá tölvusýningu tölfræðinema
sem opnar á morgunn í Þjóðarbókhlöðunni.
24 síðna aukabiað um
tölvur og tölvubúnað fylgir DV á morgun.
Rósa B. Blöndals
rithöfundur og kennari
hún sagði. Sigldu nú til hennar
Surtlu systur minnar í Blálands-
eyjum.
Var það máski Japan?
Loksins er þau hafði nokkuð
velkt í hafi fundu þau að kistan
naggraði við klöpp. Þá voru þau
komin til Blálandseyja. Var' það
máski Japan? Beltið og hnífurinn
komu sér vel á þessari ferð. Sigurð-
ur komst úr kistunni en sagði Ingi-
björgu að bíða.
Eyjan var mjög fjöllótt. Sigurður
sá helli uppi í björgunum. Hann
komst að hellisopinu og þaðan á
einn glugga og sá um hellinn. Þar
var stór pottur á hlóðum og skar-
aði ein ógurleg tröllskessa í glóðina
og raulaði fyrir munni sér. „Seint
koma þau og seint koma þau,
„Samningar við álhringinn minna
ótrúlega mikið á kistuna sem alltaf
dýpkaði þegar systkinin sýndust alveg
vera að grípa gullið.“
sín að fara aldrei út úr höllinni án
þessara gripa.
Þegar ár var liðið frá dauða
drottningar, og konungur sífellt
hryggur, vildu ráðgjafar hans láta
hann kvongast aftur. Fól hann þá
ráðgjafa sínum að velja fyrir sig
konu. Þegar ráðgjafmn kom með
konu þá er sagðist vera ekkju-
drottning var konungur ánægður
og mjög hrifinn af drottningunni.
En börnum konungsins geðjaðist
hún lítt.
Og sífellt dýpkaði...
Nú vildi drottning að kóngur færi
að heimta skatt af löndum sínum.
Var búið út mikið konungsskip.
Bæði börnin vildu fara með fóður
sínum. Hann bar það undir drottn-
ingu. Hún sagði það sjálfsagt vera
að Sigurður færi en Ingibjörg ætti
að vera hjá sér því hún hefði ekki
að gjöra með að fara í slíka ferð.
Sigurður sagðist hvergi fara fyrst
Ingibjörg færi ekki með.
Þegar kóngur fór fylgdu þau hon-
um til skips börn hans og stjúp-
móðir þeirra. Þegar drottning fór
að tala við stjúpbörnin, þar sem
þau gengu á ströndinni og horfðu
á eftir skipinu, þótti þeim konan
miklu betri og prýðilegri en þau
höfðu haldið.
Allt í einu festu þau augun á
stórri kistu sem rekið hafði þar alla
leið upp á eitt nes. Forvitni rak þau
öll til þess að ganga þangað. Kistan
stóð opin. Þegar þau gægðust niður
í kistuna sáu þau lýsigull á botnin-
um. Lýsigull mun hafa líkst bæði
gulli og eldi eða glóandi málmi. Þá
segir drottningin við kóngsbörnin.
- Þið megið eiga lýsigullið ef þið
getið náð því.
Þau fóru þá að seilast eftir því
niður í kistuna en svo var þessi
kista sérkennileg að fyrst virtist
ekki nema eðlileg seiling niður á
botninn, en eftir því sem kóngs-
börnin teygðu sig lengra eftir lýsi-
gullinu dýpkaði kistan, án þess að
þau tækju eftir því í ákafanum af
að handsama gullið. Þar kom að
varla stóð neitt af þeim systkinum
upp úr kistunni annað en fæturnir.
Þá tók drottning undir iljar þeim
og snaraði þeim niður í kistuna og
skellti henni í lás. Þau heyrðu að
kóngsbörnin sem hún systir mín
ætlaöi að senda mér.“ Skildi nú
Sigurður hvers kyns var, að stjúpa
þeirra var hið versta tröll. Segir
hér nú ekki meira af þessu ævin-
týri nema það að systkinin urðu
fangar hjá skessunni. En faðir
þeirra sá vita sem Sigurður kynti
eftir að þau höfðu sloppið út og
skessan, sem var blind, hrapaði
niður hamrana þegar hún elti þau
á tæpu einstigi og dó hún þar.
En kóngur fór að athuga neyð-
arbáliö sem þarna var kynt þótt
Rauður, ráögjafl hans, vildi sigla
fram hjá. Hann var bróðir drottn-
ingar og skessunnar. Komst þá allt
upp. Sigldi kóngur heim í ríki sitt
með börnin sín. Fengu nú drottn-
ing og Rauður ráðgjafi, bróðir
hennar, makleg málagjöld.
Að auðhringur sé tröllið?
Það skyldi þó ekki vera aö útlend-
ur auðhringur sé trölliö. Og lýsi-
gullið, sem Islendingar sækjast eft-
ir, sé eimyrjan í járnblendinu. Þar
er logandi eldur. - Einkennilegt að
tröllið heitir Surtla. Surtur er eld-
ur.
Samningar við álhringinn minna
ótrúlega mikið á kistuna sem alltaf
dýpkaði þegar systkinin sýndust
alveg vera aö grípa gullið. y.onandi
lendir íslenska þjóðin ekki í kist-
unni og fjötrunum hjá tröllinu í
Blálandseyjum þegar kistan hefur
dýpkað svo mikið að ekki þarf
nema eitt handtak (eitt pennastrik)
til þess að fullkomna samninginn
og kistan siglir með systkinin beina
leiö til Blálandseyja.
Er ísland sjálft ef til vill hin dána
drottning þegar fossarnir eru þagn-
aðir og fegurð öræfanna seld fyrir
álver, járnblendi og þær auð-
hringabyggingar, sem eyðileggja
alla landlagsfegurð í nánd, hvar
sem þær sjást?
Ef sagan er táknmál skyldi þá
nesið vera Keilisnes? En hvaða
land er þá Blálandseyjar? Aumasta
tillaga til að bjarga byggðum ís-
lands er stóriðja ásamt minkarækt
og stórvirkjunum.
Rósa B. Blöndals