Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1990, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1990, Qupperneq 27
ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 1990. 27 Lífsstfll Matvöruverslun vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli: Kílóið af nautakjöti á 260 krónur „Ég vil fá aö koma meö smávegis útskýringar á vöruveröi hér á vellin- um. Með því vil ég reyna aö koma í veg fyrir að íslendingum finnist sér mismunað vegna lægra vöruverðs hjá okkur hér, þvi þaö á sér nokkrar skýringar," sagði Scott Wilson, upp- lýsingafulltrúi vamarliðsins á Kefla- víkurflugvelli. Neytendasíða DV fékk góðfúslegt leyfi til að skoða vöruverð í matvöru- verslun varnarhðsins til saman- burðar við verð í matvöruverslun í Keflavík. Neytendur „Fyrir það fyrsta eru laun hér á velhnum yfirleitt lægri en almennt gerist á íslandi og um 13% lægri en algeng laun óbreyttra hermanna í Bandaríkjunum. Hér eru árslaun óbreyttra eitthvað í kringum 15.000 dollarar (u.þ.b. 840.000 ísl. krónur, eða 70.000 krónur á mánuði). Það eina sem Bandaríkjaher leggur okk- ur til frítt er húsnæði. Aht annað þurfum við að greiða sjálf. Þess vegna er vöruverð í verslunum okk- ar hér haft það sama og í Bandaríkj- unum fyrir utan það að einhver flutningskostnaður leggst á vörum- ar. Bandaríkjaher flytur aht inn sjálfur og álagning er engin. „í öðrum herstöðvum Bandaríkjanna víða um heim eru flestallar vörur keyptar inn hjá viðkomandi landi,“ sagði Scott Wilson upplýsingafulltrúi varnarliðsins. DV-mynd Brynjar Gauti íslenskar vömtegundir sem seldar em hér era keyptar á sama verði og íslendingar greiða fyrir þær en her- inn niðurgreiðir þáer til að hægt sé að selja þær hér á sambærilegu verði og hliðstæðar bandarískar vörur. Ef fólk vantar vörutegund, sem er ófáanleg á vehinum, fer það og kaup- ir hana utan vallar og greiðir þá að sjálfsögðu sama verð fyrir vöruna og íslenskir neytendur. Það sem ég vil reyna að koma í veg fyrir með þessum útskýringum er að þessu verði stillt upp sem einhverju „við gegn þeim“ dæmi og viljum við fyrir alla muni forðast að rígur og öfund skapist hér á milli. Við leggjum mikið upp úr að halda vingjarnlegu og góðu sambandi við íslendinga. Ef Bandaríkjaher gæti greitt fólk- inu hér hærri laun, myndum við hvorki þurfa að flytja inn né niður- greiða vörur og hægt væri að kaupa ahar vörur hér á landi. Á öðmm herstöðvum Bandaríkjanna víða um heim em flestallar vörur keyptar inn. frá viðkomandi landi,“ sagði Scott Wilson. En lítum nú á samanburðinn. Mestur var verðmunurinn á kflói af gúrkum sem kostaði 51 krónu á vell- inum en 455 í Stórmarkaði Keflavík- ur. Mismunur á verði er 792% Þar á eftir kom kfló af eggjum sem var á 55 krónur á vehinum en 395 hjá SK. Mismunurinn er 618% Gífurlegur verðmunur var á kjúkl- jngahlutum, eða 544%. í báðum tfl- fellum var um íslenska vöru að ræða. Á vellinum kostaði kílóið af kjúkl-' ingahlutunum 117 krónur en 753 krónur hjá SK. Á nautavöðva munaði 512% á milh staða. Kílóið kostaöi 260 krónur á velhnum, en þar var um bandarískt nautakjöt að ræða. í Stórmarkaði Keflavíkur kostaði kílóið 1.590 krón- ur. Meðfylgjandi tafla talar svo sínu máli. -hge Kílóið af eggjum kostar 55 krónur í matvörumarkaði varnarliðsins á Kefla- vikurflugvelli en 395 i stórmarkaði i Keflavík. DV-mynd Brynjar Gauti Stórmarkaður Keflavikur Commissary store mismunurí kr. %mismunur Blómkál, 1 kg 279 62 217 350% Gúrkur, 1 kg 455 51 404 792% Undanrenna, 11 44 34 10 29% Mjólk, 11 65 49 16 33% Jógurt, lítil dós 44 33 11 33% Floridana, 1 I 148 105 43 41% Kókómjólk, 11 120 84 36 43% Egg, 1 kg 395 55 340 618% Kjúklingahlutar, 1 kg 753 117 636 544% Nautavöðvi, 1 kg 1590 260 1330 512% Lambahryggur, 1 kg 660 420 240 57% Lambalærissneiðar, 1 kg 899 700 199 28% Frystýsuflök (úr5 punda pakkningum), 1 kg 483 387 96 25% 4rúllurwc pappír 107 70 37 53% Colgate fluor tannkrem, 75 ml 113 81 32 40% Johnsons barnaolía, 14 fl. oz 284 131 153 117% Pilsb. Best hveiti 2,26 kg 165 59 106 180% Skorið heilhveitibrauð a la Myllan 109 77 32 42% Bílagetraun og OTCOMTHC Skilafrestur er til 5. október Ef þú ert með rétta tölu getur þú komist til Mallorka með Atlantik í vikuferð 23.-30. október nk. og tekið með þér einn ferðafélaga. SENDIST TIL DV-BÍLA Þverholti 11 pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.