Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1990, Qupperneq 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sínni 27022
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÓBER 1990.
Forræðismálið:
Faðirinn
hitti barnið
Fundur var haldinn með Stefáni
Guðbjartssyni og níu ára gamalli
dóttur hans ásamt fleirl aðilum í
safnaðarheimili Dómkirkjunnar á
sunnudaginn. Fundinum var komið
á að tilstuðlan dómsmálaráðuneytis-
ins. Viðstaddir voru meðal annars
prestur og sálfræðingur.
Faðirinn hafði óskað eftir að hitta
stúlkuna í einrúmi, til að fá úr því
skórið hvort hún vilji dvelja hjá hon-
um á Spáni eða hjá móður sinni hér
á landL Hann samþykkti síðan að
hitta bamið með þeim hætti sem
ráðuneytið hafði mælst til um.
Samkvæmt heimildum DV sagðist
stúlkan vilja vera áfram á íslandi.
Sálfræðingur mun engu að síöur út-
búa skýrslu og gera grein fyrir niður-
stöðum sínum. Barnið dvelur enn hjá
móður sinni. Eftir því sem DV kemst
næst hefur ákvörðun ekki verið tek-
in að hálfu yfirvalda um framgang
málsins en beðið er eftir niðurstöð-
um sérfræðinga.
-ÓTT
Setbergshlíð:
Nafngiftin
veldur deilum
Ákvörðun SH-verktaka um að
nefna fyrirhugað íbúðahverfi í Fjár-
húsholti í Hafnarfirði Setbergshlíö,
með leyfi bæjarstjórnar Hafnarijarð-
ar, og auglýsa það síðan með 4,5
metra háum Hollywood-stöfum, hef-
ur vakið reiði eigenda Setbergslands.
Telja þeir að um heimildarlausan
ömefnaflutning sé að ræða.
Fyrir skömmu seldu eigendur Set-
bergslands Hafnaríjarðarbæ land-
skika þann þar sem hverfið mun rísa.
Setbergsland tilheyrir annars
Garðabæ og innan landamerkja þess,
suðaustur af Fjárhúsholti, finnst
X. þegar hlíð sem ber nafnið Setbergs-
hlíð. Nánar tiltekið er Setbergshlíð
suðaustur af Svínsholti.
Telja eigendur Setbergslands að
þama sé um óleyfilegan flutning ör-
nefna að ræða og hafa ákveðið að
leita réttar síns í málinu. _hlh
Hestamaður-
Hestamaðurinn sem lést, er hann
varð fyrir flutningabíl í Stafholts-
tungum í fyrrakvöld, hét Eggert
Bergsson. Hann var 34 ára gamall,
til heimilis að Kveldúlfsgötu 18 í
Borgamesi. Eggert var ókvæntur.
-ÓTT
LOKI
Gæti ég fengiö svona
reikningsstærð inn á
heftið!
Fjárhagsleg atriði ál
samningsins frágengin
Gert er ráð fyrir að Jón Sigurös-
son iðnaðarráðherra undirriti drög
að grundvallaratriðum álsamnings
á fundi með álforstjórunum á
fimmtudaginn. Þetta verða ekki
lokasamningar en samkomulag um
vissan áfanga og í þessu er fólgið
samkomulag um meginatriði vænt-
anlegs samstarfs.
„Þarna verður staðfestur sá
grundvöllur sem aðalsamningur
mun byggja á,“ sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra í
samtali við DV í morgun þegar
hann var beðinn að skilgreina hvað
yrði undirritað á fimmtudaginn.
Hann sagði reyndar einnig að þetta
mætti kalla „staðfesta fundargerð"
þar sem það væri staðfest sem sam-
komulag væri um á millí iðnaðar-
ráðherra og erlendu aðilanna.
Á fimmtudaginn verða undirrit-
uð þau atriði sem hafa fjárhagsleg
áhrif á samninginn. Þarna verður
kveðið á um upphæð skatta, hvert
orkuverðið verður, samnings-
timinn og staðsetningin. Þarna
verður því allt sem menn þurfa til
að gera sér grein fyrir ijárhagslegri
niðurstöðu samninganna.
Þarna verður hins vegar ekkert
samkomulag um mengunarvarnir,
enda eru menn nú fallnir frá fyrri
hugmyndum um að hafa sérsamn-
inga um það. Þess í stað er ætlunin
að álverið fari eftir íslenskum regl-
um og fái úthlutað start'sleyii
Þau atriði, sem ekki er endanlega
frá gengið, eru hlutir sem hafa ekki
beina íjárhagslega þýðingu og má
þar helst nefna endurskoðunará-
kvæði hvað varðar orkusamning-
inn. Það mun ekki vera til í ná-
kvæmu orðalagí og verður ekki í
samningnum á fimmtudaginn.
„Iðnaðarráðherra er að sjálf-
sögðu frjálst að skrifa undir þetta.
Hann er náttúrulega sá sem fer
með forræði málsíns og hann er
þá fyrst og fremst að staðfesta
gagnvart hinum erlendu aðilum að
hann er tilbúinn að vinna að því
áfram á þessum grundvelli. En vit-
anlega bindur hann enean nema
sjáifan sig í því," sagði forsætisráð-
herra þegar hann var spurður um
vald iðnaðarráðherra til að skrifa
undir á fimmtudaginn. Á fundi rík-
isstjórnarinnar i gær undirstrik-
uðu þeir Svavar Gestsson og Stein-
grímur J. Sigfússon andstöðu sína
við samninginn.
Það kom fram hjá forsætisráð-
herra að hann er sannfærður um
ágæti þess að binda orkuverð við
álverö. „Ég held að þaö sé upp-
gangur framundan í álinu og ég
held að þaö sé hrein undantekning
sem gerðist á síðasta áratug þegar
álverð féll og vextir hækkuðu,"
sagði Steingrímur.
-SMJ
PéturBlöndal:
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra kom frá Ameríku í gær með yfirlýsingu að álsamningi í tösk-
unni. Hann var glaðbeittur á svip þar sem hann ræddi við fréttamenn fyrir utan ráðherrabústaðinn
við Tjarnargötu áður en ríkisstjórnarfundur hófst í gær. DV-mynd Brynjar Gauti
Pétur Blöndal seldi Búnaðarbank-
anum og sparisjóðunum í gær 51 pró-
sents hluta sinn í Kaupþingi. Þar með
eiga Búnaðarbankinn og sparisjóð-
irnir Kaupþing til helminga. Pétur
verður eftir sem áður framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins. Hann keypti hlut
sinn í Kaupþingi fyrir um sex árum
og var hlutafé hans að nafnverði
rúmar 10 milljónir króna en hann
fær fyrir það núna 115,6 milljónir
króna.
„Þessi sala er bara reikningsstærð-
ir fyrir mig og breytir ekki svo miklu
um mína persónulegu hagi. Ég mun
áfram hafa jafnmiklar áhyggjur af
því hvort karamellupokar hækka
eða ekki. Ekki má heldur gleyma að
góður hluti fer til skattsins en þar
gera menn ekki eins mikla ráðdeOd-
arsemi í ráðstöfun fjár og ég tel mig
gera. Á meðan ég bý á þriggja stjömu
hóteh erlendis búa þeir á fimm
stjörnu hóteli."
Pétur segir að hugmyndin um að
selja hafi komið þegar Landsbankinn
stofnaði verðbréfafyrirtækið Lands-
bréf. „Líklegt var að Búnaðarbank-
inn færi líka af stað og taldi ég að
markaðurinn bæri ekki fleiri fyrir-
tæki. Þar með kviknaði hugmyndin
og Búnaðarbankinn kom inn í mynd-
ina-“ -JGH
Veðrið á morgun:
Fremur
svalt
Á morgun verður norðvestan-
strekkingur og rigning eða slydda
norðaustanlands í fyrstu en geng-
ur smám saman í hæga vestlæga
átt og léttir heldur til, fyrst vest-
anlands. Fremur svalt í veðri og
hiti verður á bilinu 3-7 stig.
g KOXFEKT
— Hcildsöludmfiní!; sími: 91- 41760
Uftayggingari
lll
ALÞJÓÐA
LIFTRYGGINGARFÉLAGIÐ HF.
LÁGMÚI.15 - RF.YRJAVÍK
sími 681644