Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1990, Side 4
4
MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1990.
Fréttir
Skoðanakönnun DV:
Enn uppsveif la
hjá ríkisstjóminni
Ríkisstjómin eykur enn fylgi sitt
samkvæmt skoðanakönnun, sem DV
gerði nú um helgina.
Stjórnin er þó enn í minnihluta
meðal landsmanna.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns. Jafnt var skipt milli kynja
og jafnt milli Stór-Reykjavíkursvæð-
isins og landsbyggðarinnar.
Spurt var: Ertu fylgjandi eða and-
vígur ríkisstjórninni?
Af öllu úrtakinu sögðust 34,5 pró-
sent vera fylgjandi ríkisstjórninni,
sem er 1,7 prósentustigum meira en
í ágústkönnun DV. 41,3 prósent segj-
ast nú andvíg ríkisstjóminni, sem er
1,5 prósentustigum minna en í ágúst-
könnuninni.
Óákveðnir eru nú 22,7 prósent, sem
er 1,5 prósentustigum minna en í
ágúst, og þeir sem ekki svara eru 1,5
prósent, 0,3 próséntustigum meira en
í ágúst.
Ef aðeins eru teknir þeir, sem taka
afstööu, styðja 45,5 prósent stjómina
sem er 2,1 prósentutigi meira en í
ágústkönnuninni. 54,5 prósent eru
andvigir stjórninni, sem er 2,1 pró-
sentustigi minna en í ágúst.
Landsmenn skiptast mjög eftir
landshlutum í þessu. Á landsbyggð-
inni á ríkisstjórnin yfirleitt meiri-
hlutafylgi, en hún er í miklum minni-
hluta á höfuðborgarsvæðinu.
-HH
Afstaðantil ríkisstjórnarinnar
Þrir toppar úr stjórninni, sem eykur fylgi sitt, þótt stjórnarflokkunum gangi misjafnlega.
Ummæli fólks í könnuninni
Karl í Reykjavik sagði að ríkis- sagði að við hefðum aldrei haft stjórnina fram á voriö. Kona nokk-
stjómin væri vond og versnaði verri stjórn. Bóndi á Suðurlandi ur sagðist á móti stjóminni vegna
stöðugt Karl sagði aö þetta væri kvaðst verða að styðja ríkisstjórn- kennslumálanna. Karl á höfuö-
besta stjórn i langan tíma. Annar ina. Kona á Suöurlandi kvað sama borgarsvæðinu kvaðst fylgjandi
sagöi of mikið um leynifundí og hvaða fífl stjórnuöu. Karl á Akur- stjóminni þótt kommarnir væru
samstarfið væri vonlaust. Kona eyri kvaðst fylgjandi stjórninni en ruglukollar. Kona á höfuðborgar-
kvað sama hverjir stjórnuðu. Þeir andvígur álsamningnum. Karl á svæðinu sagði okkur eiga að hafa
væru alltaf eins. Karl á Selfossi Vestfiörðum sagði í lagi að hafa sfiómina út árið. -HH
í dag mælir Dagfari
Svara ekki
1,5%
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar. Til samanburðar eru niðurstöður tyrri DV-kannana:
jan. mars júni ágúst okt. des. jan. apr. ág. nú
Fyigjandi 36,0% 29,6% 18.7% 23,8% 23,7% 28,0% 25,8% 30,3% 32,8% 34,5%
Andvígir 44,2% 50,0% 60,5% 56,0% 60,0% 50,0% 53,3% 50,3% 42,8% 41,3%
Öákveðnir 17,5% 20,0% 18,7% 16,2% 14,0% 20,5% 17,2% 14,8% 23,2% 22,7%
Svaraekki 2,3% 0,5% 2,2% 4,0% 2,3% 1,5% 3,7% 4,5% 1,2% 1,5%
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu verða niðurstöðurnar þessar:
jan. mars júní ágúst okt. des. jan. apr. ág. nú
Fyigjandi 44,9% 37,1% 23,6% 30,0% 28,3% 35,9% 32,6% 37,6% 43,4% 45,5%
Andvígir 55,1% 62,9% 76,4% 70,0% 71,7% 64,1% 67,4% 62,4% 56,6 54,5%
Undir hvað skrifaði Jón?
Merkilegur fundur fór fram í síð-
ustu viku. Hingað komu fimm eöa
sex menn frá útlöndum og hálfu
meiri fiöldi íslendinga var sömu-
leiðis mættur á staðinn. Fjölmiðlar
voru kallaðir til. Iðnaðarráðherra
og Jóhannes Nordal vom í forsæti.
Tilefnið var að Jón Sigurðsson
skrifaði undir plagg sem útlending-
arnir skrifuðu líka undir. Jóhann-
es skrifaði síðan sitt nafn undir það
sem hinir höfðu skrifað undir og
þannig lauk þessari undirskriftar-
Söfnun.
Þetta tilstand væri í góðu lagi út
af fyrir sig ef einhver hefði hug-
mynd um það hvað ráðherrann og
útlendingarnir voru aö skrifa und-
ir. Ríkisstjórnin segir að Jón hafi
skrifað undir fundargerð. Sjálfur
segist Jón hafa verið að skrifa und-
ir mikilvæga áfanga í samnings-
gerðinni um álið og Alþýðubanda-
lagið segir að ráðherrann hafi ekki
verið skrifa undir 'neitt.
Borgarstjórinn í Reykjavík var
spurður áhts á þessum undirskrift-
um og sagði: formaður þingflokks
Framsóknarflokksins segir að ráð-
herrann hafi undirritað sendibréf,
forsætisráðherra að hann hafi und-
irritað fundargerð og sjálfur segist
hann hafa undirritað mikilvægan
áfanga í átt að samningagerð.
Ekki er vitað hvað útlendingamir
halda að þeir hafi verið að skrifa
undir, sem ekki er nema von, ef
plaggið hefur verið á íslensku. Jó-
hannes Nordal ætlaði fyrst að
skrifa undir sem formaður Lands-
virkjunar en skrifaöi síðan undir
sem formaður samninganefndar.
Ólafur Ragnar kallar það að Jó-
hannes hafi skipt um hatt og þótt
Jóhannes hafi ekki sést með hatt í
sjónvarpinu hlýtur þetta að vera
rétt hjá Ólafi sem hefur það fyrir
sið aö éta hattana sína. Ólafur
Ragnar þekkir áreiöanlega muninn
á höttunum hans Jóhannesar.
Vafi leikur ennfremur á um það
hvaða Jón skrifaði undir. Var það
ráðherrann Jón eöa prívatmaður-
inn Jón? Ætlar Jón Sigurðsson að
byggja álverið á eigin vegum, eða
ætlar Alþýðuflokkurinn að gera
þaö? Það er eflaust gaman fyrir Jón
Sigurðsson að ferðast til og frá út-
löndum og halda stífa samninga-
fundi um hugsanlegt álver og koma
fram í sjónvarpinu til að segja hvað
samningum miðar. En það gaman
fer að kárna ef og þegar það kemur
í ljós að öll fundahöldin, samkomu-
lögin og meira að segja fundargerð-
irnar líka eru plat og grín sem eng-
inn tekur mark á og enginn vill
bera ábyrgð á.
Það fer jafnvel aö vera spurning
um það hvort mennirnir hafi verið
að skrifa undir álverssamninga eða
eitthvað allt annað. Þeir hafa
kannski einfaldlega verið að stað-
festa þaö í fundargerð að þeir hafi
hist? Hins vegar er það nokkuð
dýrt spaug ef menn feröast milli
landa til að hittast í einu landi og
staðfesta í öðru landi að þeir hafi
hist. Á venjulegum fundum er
skrifað undir fundargerðir að lokn-
um fundum og menn þurfa ekki að
leggja á sig ferðalög til að halda
fund um að þeir hafi haldið fund
en ekkert er nýtt undir sólinni og
sjálfsagt byggjast alþjóðleg sam-
skipti á svona fundahöldum og
fundargeröum.
Eftir því sem Jón Sigurðsson seg-
ir var hann skrifa undir eitt stærsta
framfaraskref í atvinnumálum
þjóðarinnar. Jón er greinilega einn
um þá skoðun því ekki kannast
Alþýðubandalagið við þessar fram-
farir og ekki kannast Páll Péturs-
son við framfaraskrefin og Sjálf-
stæðisflokkurinn vill auðvitað ekki
viö neinar framfarir kannast með
núverandi ríkisstjórn situr að völd-
um. Þessir aðilar leggja ekki meira
upp úr framfórunum hans Jóns
Sigurðssonar en svo að þeir sveria
af sér alla ábyrgð af undirskriftinni
og segja það einkamál Jóns iðnað-
arráðherra þegar hann ferðast á
milli funda til að hitta útlendinga.
Jón Sigurðsson getur skrifast á
við hvern sem er. Hann getur þar
að auki skrifaö undir fundargerðir
eins og hann lystir. Það er flestum
að meinalausu. En verra er að ráð-
herrann skuh vera upptekinn við
að semja fundargerðir og sendibréf
sem engum öðrum kemur við og
boðar svo blaðamannafundi til að
skrifa undir. Rikisstjórnin á þakkir
skildar fyrir að afneita Jóni og upp-
lýsa þjóöina um að þetta eru prívat-
mál ráðherrans. Annars hefðu
menn haldið að hér ætti að rísa
álver í alvörunni.
Dagfari