Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1990, Side 9
MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1990.
9
Utlönd
ísraelskur hermaður sýnir foreldrum hvernig verjast megi efnavopna-
árás íraka. Dreifing á gasgrímum til allra ísraela er nú hafin.
Simamynd Reuter
Yitzhak Shamir:
Af hendum ekki
herteknu svæðin
- þrátt fyrir lausn Persaflóadeilunnar
Yitzhak Shamir, forsætisráð-
herra ísraels, hefur hafnað vanga-
veltum vestrænna leiðtoga um að
lausn Persaflóadeilunnar gæti
greitt fyrir lausn deilunnar milli
Israela og araba. Leiðtogar Frakk-
lands, Bandaríkjanna, Sovétríkj-
anna og Bretlands hafa nýlega lagt
áherslu á nauðsyn þess að leysa
vandamál Palestínumanna um leið
og írakar hefðu dregið herliö sitt
til baka frá Kúvæt.
Shamir sagði, um leið og hafin
var dreifmg á gasgrímum til allra
ísraela í gær, að ísrael myndi aldr-
ei verða fórnarlamb erlends sam-
særis. Þeir hefðu hingað til neitað
að fara frá herteknu svæðunum og
myndu halda því áfram.
Saddam Hussein íraksforseti hef-
ur nokkrum sinnum hótað að ráð-
ast á ísrael með efnavopnum. Hann
hefur tengt hernám ísraela á vest-
urbakkanum og Gazasvæðinu og
nærveru sýrlensk hers í Líbanon
lausn Persaflóadeilunnar. Hann
hefur hins vegar aldrei boðist til
að fara frá Kúvæt. Vestrænir leið-
togar hafa ekki beint tengt þessi
mál og krafist þess að írakar fari
fyrst skilyrðislaust frá Kúvæt.
Utanríkisráðherrar Evrópu-
bandalagsríkjanna eru sammála
um að ekki sé hægt að gera neitt
málamiðlunarsamkomulag við ír-
aka um ályktanir Sameinuðu þjóð-
anna gegn þeim. Ráðherrarnir
funduðu nálægt Feneyjum um
helgina.
Soldáninn af Oman tjáöi Kaifu,
forsætisráðherra Japans, í gær að
flest arabaríki væru orðin vonlítil
um að írakar drægju herlið sitt til
baka frá Kúvæt og væru þau farin
að íhuga hemaðaraðgerðir. Kaifu
kom til Oman frá Jeddah í Saudi-
Arabíu í gær.
Yfir hundrað sovéskir tækni-
fræðingar og verkfræðingar fóra
frá Bagdad í írak í gær til Moskvu.
Sendimaður sovéskra yfirvalda
hafði verið á ferð í írak og fariö
þess á leit við yfirvöld þar að Sovét-
menn fengju fararleyfi. Var honum
gefið loforð um að fjöldi sovéskra
þegna fengi bráðlega að fara heim.
Heimferð mannanna í gær er þó
ekki sögð tengjast heimsókn sendi-
mannsins. Um fimm þúsund Sovét-
menn eru nú í írak.
Samkvæmt frásögn bresks
stjórnarerindreka í Kúvæt eru
Bretar í landinu nú í felum hjá
Kúvætmönnum þrátt fyrir hótanir
íraka um aftöku þeirra sem feli
útlendinga. Tveir breskir stjórnar-
erindrekar komu til Bagdad í gær
og er nú aðeins breski sendiherr-
ann ásamt einum starfsmanna
sinna eftir í sendiráði Bretlands.
Yfirvöld í Egyptalandi hafa varað
Saudi-Arabíu og önnur arabaríki
við því að stuðningsmenn palest-
ínska hryðjuverkamannsins Abu
Nidals ráðgeri árásir í löndum sín-
um. Egypsk fréttastofa hefur greint
frá handtökum stuðningsmanna
Nidals en honum hefur verið lýst
af Bandaríkjunum sem hættuleg-
asta hryðjuverkamanni heims.
Voru stuöningsmennirnir sagðir
hafa haft vopn og sprengiefni í fór-
um sínum.
í Dubai syrgja nú þegnarnir þjóð-
arleiðtoga sinn, sjeikinn Rashid bin
Said al-Maktoum, sem lést í gær. í
morgun var ekki vitað um dánaror-
sök en hann hefur áður fengið
hjartaáföll.'
Reuter
HELGARFERÐIR - VERSLUNARFERÐIR
HÓTEL í MIÐBORG AMSTERDAM
í miðborg Amsterdam með morgunverði.
Flug vallarskattur ekkl Innlfallnn. Verð míðað vlð verðskrá 1.10.90 og hðtel 1.11.90.
BROTTFÖR ALLA ÁÆTLUNARDAGA FLUGLEIÐA TIL AMSTERDAM
KANARÍEYJAÁÆTLUN OG VERÐ Á SKRIFSTOFUNNI
Ferðaskrifstofan Alís býður upp á aðstoð við skipulagningu viðskiptaferða og útvegar góð
hótel og bílaleigusamninga.
Helgarferðir á áfangastaði Flugleiða, t.d. Glasgow, London, Lúxemborg (Trier), Kaupmanna-
höfn og New York svo eitthvað sé nefnt.
Hafið samband - Sjáumst
Bæjarhrauni 10
ferðaskrifstofa í samvinnu við FLUGLEIÐIR Hafnarfirði