Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1990, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1990.
Utlönd
Palestinsk kona grætur við börur sem ötuðust af blóði sonar hennar. Hann
var skotinn af ísraelskum lögreglumönnum á mánudaginn. Simamynd Reuter
DV
SENDLAR ÓSKAST
Á AFGREIÐSLU DV STRAX.
UPPLÝSINGAR í SÍMA 27022.
THOIMASI
IDIMADAR
RYKSUGAIM
i\iú
sama sían fyrir
ryk og vatn
50%
meiri kraftur
Verð kr. 23.400
Thomas - 10 ár
á íslandi
Allir varahlutir
og þjónusta
ASTRA
Austurströnd 8 - Sími 61-22-44 - Fax 61-10-90
Átök á herteknu svæðunum:
16 Palestínu
menn særðir
Á meöan fulltrúar í Öryggisráöi
Sameinuðu þjóðanna deildu í gær
um ályktun gegn ísrael vegna mann-
drápanna í Jerúsalem á mánudaginn
efndu arabar á herteknu svæöunum
og í ísrael til mótmæla þriðja daginn
í röö.
Sjúkrahússstarfsmenn á Gaza-
svæöinu sögðu ísraelska hermenn
hafa skotið og sært sextán Palestínu-
menn í gær. Heimildarmenn meöal
Palestínumanna sögðu aö tíu ára
drengur á vesturbakkanum heíöi
verið skotinn í höfuðið. Til átaka
kom einnig milli hermanna og araba
í ísrael sem köstuöu grjóti, kveiktu
í hjólböröum og settu upp vegatálma.
Israelsk yflrvöld, sem segja íraka
kynda undir óeiröum til aö beina
athyghnni frá Persaflóadeilunni,
skipuöu í gær þriggja manna nefnd
sem rannsaka á aðgerðir lögreglunn-
ar á Musterishæðinni í Jerúsalem
þegar tuttugu og einn Palestínuarabi
var skotinn til bana.
Tass-fréttastofan sovéska sagöi í
gær að atburðirnir í Jerúsalem hefðu
aukið stríðshættuna við Persaflóa.
írakar hafa tjáð ísraelum að morö-
anna verði hefnt og hafa þeir ítrekað
kröfur sínar um aö Sameinuðu þjóð-
irnar semji ályktun gegn ísrael.
Vestrænir stjórnarerindrekar voru
í morgun bjartsýnir á að samkomu-
lag næðist um ályktun um fordæm-
ingu á ísrael en fulltrúar Kúbu,
Malaysíu og Kólumbíu tjáðu frétta-
mönnum að þeir hefðu þegar gefiö
talsvert eftir og þyrftu að ræða málið
frekar áður en þeir gengju leijgra.
Sendiherra Kólumbíu sagði að
óháðu ríkin hefðu látið af kröfu sinni
um að Öryggisráðið sendi sendinefnd
til herteknu svæðanna til að kanna
ástandið þar. í staðinn hefðu þau
samþykkt að láta framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna skipuleggja fór
slíkrar nefndar. Óháðu ríkin vilja
hins vegar að menn hans hafi umboð
til að mæla með aðgerðum til að
tryggja öryggi Palestínumanna. í til-
lögu Bandaríkjamanna, sem þeir
hafa samið þrátt fyrir harðorð mót-
mæli bandarískra gyöinga, er ekki
nákvæmlega skilgreint hvaða vald
sendinefndin á að hafa heldur er
framkvæmdastjórinn beðinn um að
senda frá sér skýrslu um ástandiö
Klerkar Hizbollah-samtakanna i Libanon með mynd af Shamir, forsætisráð-
herra ísraels. Þeir hafa hótað að hefna þeirra sem ísraelskir lögreglumenn
skutu til bana á Musterishæöinni í Jerúsalem á mánudaginn. Simamynd Reuter
meðal bprgaranna á herteknu svæð-
unum. Óháðu ríkin vildu í upphafi
að nefnd á vegum Öryggisráðsins
yrði send þar sem hún hefði betri
möguleika á aö leggja fram tillögur
til úrbóta og hrinda þeim í fram-
kvæmd:
Fordæming Bandaríkjanna á fram-
ferði ísraelsstjórnar er ekki ein-
göngu af tillitssemi við Palestínu-
menn. Hingað til hafa Bandaríkin
haldið verndarhendi yflr ísrael.
Bush Bandaríkjaforseti er hins vegar
háður stuðningi araba í tilraun sinni
til að hrekja íraka frá Kúvæt. Hann
þykir því líklegur til að fara fram á
það við ísraela að þeir haldi aftur af
sér til að kröfurnar.um alþjóðlega
ráðstefnu um málefni Miðaustur-
landa verði ekki háværari. Á slíkri
ráðstefnu gæti Saddam Hussein ír-
aksforseti fært sér í-nyt andúð araba
á ísrael.
Reuter
SprengjutiJræði a Spáni í nótt:
Sprengja sprakk í
höndum ungrar konu
- þrír létust og 40 eru slasaðir
Þrír létust og í það minnsta 40
manns slösuðust þegar öflug
sprengja sprakk á diskóteki í bæn-
um Santiago de Compostela á
Norövestur-Spáni um miðja sið-
ustu nótt. Eftir þvi sem spænska
útvarpið segir sprakk sprengjan
um klukkam 3.30 á diskóteki sem
kallast Clangor.
Þegar eftir sprenginguna til-
kynnti lögreglan að ein kona, tutt-
ugu og flmma ára að aldri, hefði
látist. Hún á að sögn lögreglunnar
að hafa haldið á sprengjunni þegar
hún sprakk í höndum hennar. Siö-
ar var tilkynnt að tveir aörir heföu
iátist.
Þótt enn hafl enginn lýst tilræð-
inu á hendur sér þykir fullvíst að
eínhver samtök standi þar að baki.
Böndin berast þegár að aðskilnað-
arhreyfíngu Baska en frá tals-
mönnum hennar haföi ekkert
heyrst í morgun. Baskar hafa und-
aníarið staðiö fyrir tilræðum á
Spáni.
Nú í morgun var búið að tilkynna
um fjórar aðrar sprengingar í
Galicíu á Norðvestur-Spáni.
Yfirvöld í héraðinu segja aö lítt
þekkt aðskilnaðarhreyflng Galiciu-
manna hafi lýst þeim sprengingum
á hendur sér en hreyfingin neitar
að hafa sprengt upp diskótekið.
Fólk þetta kaiiar sig skæruliðana'
tii frelsunar Galicíu.
Hreyfmg aöskilnaðarsinna í
Galicíu kom fyrst fram á sjónar-
sviðið árið 1987 þegar hún hóf
sprengjuherferð gegn bönkum í
héraðinu. Þáber hreyfingin ábyrgð
á dauða manns úr þjóðvarðliði
Spánur árið 1987 og særði þá ann-
an. Fyrir utan þessi tilræði hefur
lítið til hreyfingarinnar heyrst.
Reuter