Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1990, Page 9
FIMMTUÖAGÚR 11. 'ÓKTÓBÉR:Í99Ó.
9
Utlönd
Sovétmenn grunaðir um að koma fyrir „moldvörpum“ í sameinuðu Þýskalandi:
KGB reyndi að endurráða
gamla njósnara frá Stasi
- njósnarinn Klaus Kuron gaf sig fram í Þýskalandi eftir tilboð frá KGB
Einn þeirra, sem grunaður er um
aö hafa njósnað í Vestur-Þýska-
landi fyrir Austur-Þjóðverja, segist
hafa fengið tilboð frá KGB um að
halda áfram njósnum sínum í sam-
einuðu Þýskalandi. Hann neitaði
og gaf sig fram við þýsk yfirvöld.
Þetta er haft eftir einum af sak-
sóknurunum í njósnamálunum
sem valdið hafa miklu uppnámi í
Þýskalandi síðustu daga.
Alexander von Stahl saksóknari
sagði að maðurinn hefði unnið fyr-
ir austur-þýsku leyniþjónustuna
Stasi í átta ár en neitaði að halda
verkum sínum áfram fyrir Sovét-
menn eftir að þýsku ríkin samein-
uðust í síðustu viku.
„KGB fór þess á leit við manninn
að hann ynni eftirleiðis fyrir þá.
Þetta vildi hann ekki og gaf sig
fram við yfirmenn gagnnjósna-
deildarinnar hjá okkur þar sem
hann vann,“ sagði von Stahl í við-
tali í gær.
Maður þessi er 54 ára gamall og
hefur opinberlega verið kallaður
Klaus K. í Þýskalandi hafafjölmiðl-
ar þó fullyrt að maðurinn heiti
fullu nafni Klaus Kuron. Hann hef-
ur verið handtekinn ásamt átta
öðrum austur-þýskum njósnurum
sem allir unnu fyrir Stasi hjá
gagnnjósnadeildinni í Vestur-
Þýskalandi.
Formlegar ákærur hafa ekki ver-
ið gefnar út á hendur þeim en hjá
emhætti saksóknara er fullyrt að í
öllum tilvikunum sé um að ræða
„alvarleg dæmi um landráð".
Fullyrðingar um að KGB hafi
reynt að fá Klaus Kuron á sitt vald
eru sérlega vandræðalegar fyrir
Sovétmenn á sama tíma og þeir
reyna allt til að bæta sambúðina
við Þýskaland. Njósnamálin eru
einhver þau alvarlegustu í Þýska-
landi í flölda ára og yfirvöld hafa
sagt að því fari fjarri að öll kurl séu
komin til grafar.
Von er á Gorbatsjov, forseta Sov-
étríkjanna, til Þýskalands í næsta
mánuði. Erindi hans er að undir-
rita samvinnusáttmála við Þjóð-
verja. Allt er nú óvíst um framhald
þess máls, enda er búist við að
Helmut Kohl kanslari sitji næstu
vikur undir þungum ásökunum
um andvaraleysi gagnvart njósn-
um Austur-Þjóðverja.
Um síðustu helgi skoraði einn af
náunstu samstarfsmönnum Kohls
á Gorbatsjov að hætta öllum til-
raunum til að ráða gamla njósnara,
sem áður unnu fyrir Stasi, í vinnu
fyrir Sovétmenn. Þessu var ekki
veitt sérstök athygli þá en nú er
alvara málsins orðin ljós og upp-
ljóstranir nú gætu haft mjög slæm
áhrifásambúðríkjanna. Reutér
KGB ætlaði
að myrða ír-
anskeisara
Eftir því sem gamall KGB-
njósnari segir þá varð klaufa-
skapur eins félaga hans til þess
að bjarga lífi íranskeisara árið
1962 þegar Nikita Krutsjov, leið-
togi Sovétríkjanna, halði ákveðið
að ryöja keisaranum úr vegi.
Þetta kemur fi’am í bók eftir
Vladimir Kuzichin, sem á unga-
aldri fór í leiðangur til írans
þeirra erinda að stytta keisaran-
um aldur. Hann var þá i þjónustu
KGB en hefur nú flúið til Vestur-
landa og skrifað bók um veru sína
í herbúðum leyniþjónustu Sovét-
ríkjana.
Það var keisaranum til bjargar
að fyrir klaufaskap tókst ekki að
sprengia fjarstýrða bílasprengju.
Þeir KGB-menn höfðu fyllt
Fóiksvagen „bjöllu“ af sprengi-
efni og lagt henni þar sem von
var á að keisarinn færi um á leið
til þings.
Kuzichin segir að Krutsjov hafi
viljað láta myrða keisarann af
ótta við að hann leyfði Banda-
ríkjamönniun að fara um íran til
árásar á Sovétrikin. Reuter
Þjófagengi
pólsku leyni-
þjónustunnar
Leiðtogar Samstöðu í Póllandi
saka Jaruzelski, forseta landsins,
um aö hylma yfir með þjófagengi
sem pólska leyniþjónustan á að
hafa gert út til skarígripaþjófh-
aða á Vesturlöndum.
Sagt er að þjófagengið haft
starfað á árunum 1968-71 og stol-
ið miklu af gulli og verðmætum
skartgrípum. Menn Samstöðu
segja aö ákvöröunin um að gera
þjófana út til Qáröflunar hafl ver-
iðtekináæðstustöðum. Reuter
Þýska njósnahneykslið verður stöðugt umfangsmeira:
Lögreglan hef ur náð tíu
Stasi-mönnum á sitt vald
- Kohl að lenda 1 sömu stöðu og Brant fyrir 16 árum
Á síðustu tíu dögum hefur lögreglan
í Þýskalandi handtekið tiu njósnara
sem grunaðir eru um að hafa unnið
fyrir austur-þýsku leyniþjónustuna
Stasi í Vestur-Þýskalandi allt fram
undir það að ríkin voru sameinuð.
Níu þessara manna voru mold-
vörpur í vestur-þýsku gagnnjósna-
deildinni og tíundi njósnarinn er
kona sem vann við að taka saman
minnispunkta frá leyniþjónustunni
fyrir Helmut Kohl kanslara. Yfirvöld
í Þýskalandi kalla hana Giselu G. en
vilja ekki gefa upp fullt nafn hennar.
„Þetta eru örugglega ekki síðustu
handtökurnar og út þetta ár munum
við einbeita okkur sérstaklega að
rannsóknum á njósnum í landinu og
öryggi ríkisins," segir Alexander von
Stahl, einn saksóknara í njósnamál-
unum.
Njósnirnar virðast hafa beinst að
fjölmörgum þáttum í þýsku þjóðhfi.
Fyrir utan njósnir um Helmut Kohl
sendu Stasi-mennirnir upplýsingar
um hergagnaframleiðslu austur fyrir
járntjald. Þeir vissu þar að auki allt
sem vestur-þýska leyniþjónustan
vissi um leyniþjónustur ríkja Aust-
ur-Evrópu.
Mál þetta þykir minna um margt á
njósnahneykslið árið 1974 þegar
Willy Brant, þáverandi kanslari,
varð að hrökklast frá völdum. Þá
varð Gunter Guillaume, einn af nán-
ustu samstarfsmönnum kanslarans,
uppvís að njósnum fyrir Austur-
Þjóðverja. Brant dró sig í hlé frá
stjórnmálum eftir hneykslið.
Menn segja þó að njósnahneykslið
nú sé öllu alvarlegra en hið fyrra.
Helmut Kohl hefur ekkert látiö hafa
eftir sér beinlínis um njósnirnar nú
og segir aðeins að þeir sem gerst
hafi sekir um glæpi verði sóttir til
saka.
Þá lét hann þau orð falla í gær að
hann ætlaði sér ekki að láta „stalín-
istastjórnina í Austur-Þýskalandi
spilla fyrir í sameinuðu Þýskalandi
nú þegar hún er dauð og grafin“.
Yfirmaður rannsóknarinnar á
skjalasafni Stasi í Berlín hefur látið
hafa eftir sér að full ástæða sé til að
rannsaka feril allra þeirra manna
sem nú sitja á þingi Þýskalands
vegna tengsla við Stasi. Kohl hefur
vísað þessari hugmynd á bug og vill
halda njósnahneykslinu nú utan við
stjórnmál landins.
Njósnaheykslið kemur mjög illa
við marga Þjóðverja rétt þegar
gleðivíman eftir sameiningu Austur-
og Vestur-Þýskalands er rétt að
renna af mönnum. Það hefur að vísu
legið í loftinu lengi að ýmislegt mis-
jafnt kæmi upp á yfirborðiö þegar
farið yrði að skoða feril Stasi niður
í kjölinn.
Það sem veldur mönnum mestum
áhyggjum er hversu víðtækar njósn-
irnar virðast hafa verið og þá sér-
staklega að svo virðist sem mold-
vörpur Stasi hafi grafiö um sig í stór-
um stíl innan vestur-þýsku leyni-
þjónustunnar.
Þá er það áhyggjuefni margra að
jafnvel æðsti valdamaður ríkisins,
sjálfur kanslarinn, var ekki óhultur
fyrir útsendurum Stasi. Svo virðist
sem þessi athafnasama leyniþjón-
usta hafi árum saman haft menn á
sínum snærum við fótskör kanslar-
ans. Reuter
Willy Brant varð að hrökklast frá völdum árið 1974 eftir mikið njósna-
hneyksli i Vestur-Þýskalandi. Nú kann Helmut Kohl kanslari að lenda i
sömu sporum. Hér eru þeir við ræðuhöld vegna sameiningar Þýskalands.
Símamynd Reuter
Svartir rúskínnsskór,
stærðir 31-38.
Verð 3.980,-
Kuldaskór, hvítír og bláir,
stærðir 20-27.
Verð 3.590,-
Brúnír Ieðúrskór,
stærðir 28-39.
Verð frá 4.480,-
Leðurkuldaskór, bláír
m/grænu, stærðir 24-30.
Verð 3.885,-