Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1990, Qupperneq 26
34
FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1990.
Afmæli
Oktavía Jóhannesdóttir Amdal
Oktavía Jóhannesdóttir Arndal,
Gunnarsbraut 28, Reykjavík, er níu-
tíuáraídag.
Oktavía er fædd í Ketlavík og ólst
þar upp. Hún fluttist til Reykjavíkur
um tvítugt og var í hússtjórnarnámi
hjá frú Hallgrímsson í Rvík. Oktavía
var verslunarmaöur í vefnaðar-
vöruverslun Hansen á Laugavegin-
um í Rvík áður en hún giftist.
Fjölskylda
Oktavía giftist 10. desember 1927
Kristínusi Arndal, f. 12. október
1897, d. 1. apríl 1973, forstjóra Vinnu-
miðlunarskrifstofu Rvíkur. For-
eldrar Kristínusar voru: Finnbogi
Arndal, forstjóri i Hafnarfirði, og
kona hans, Jónína Árnadóttir. Börn
Oktavíu og Kristínusar voru: Guð-
björg, f. 28. apríl 1930, fulltrúi hjá
Pósti og síma, gift Jóhannesi Jóns-
syni, d. 1990, vélstjóra í Rvík; Stefán,
f. 24. ágúst 1931, stöðvarstjóri i Gufu-
nesi, kvæntur Rósu Steingrímsdótt-
ur skrifstofumanni, og Finnbogi, f.
9. nóvember 1932, frjótæknir á
Hvanneyri, kvæntur Guönýju Hall-
dórsdóttur rannsóknarmanni.
Stjúpdætur Oktavíu eru: Elísabet,
f. 26. desember 1917, fyrrv. starfs-
maður Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur, gift Ottó Jónassyni,
fyrrv. brunaverði, og Katrín, f. 15.
febrúar 1919, hjúkrunarfræðingur á
ísafirði, ekkja eftir Júlíus Helgason
rafvirkja. Bróðir Oktavíu var Stef-
án, f. 1895, d. 1930, sjómaður í Kefla-
vík, kvæntur Þórdísi Torfadóttur.
Systir Oktavíu sammæðra var Jó-
hanna, f. 17. desember 1889, d. 20.
janúar 1949.
Ætt
Foreldrar Oktavíu voru Jóhannes
Árnason, f. 19. janúar 1869, d. 25.
ágúst 1951, verkamaður í Keflavík,
og kona hans, Guðný Jóhannsdóttir,
f. í apríl 1860, d. 23. desember 1950.
Jóhannes var sonur Árna, b. á
Vatnsnesi í Keflavík, Nikulássonar.'
Guðný var dóttir Jóhanns, b. á Val-
strýtu í Fljótshlíð, Jónssonar, b. á
Heylæk í Fljótshlíð, Tómassonar, b.
á Teigi í Fljótshlíð, Jónssonar, b. á
Heylæk, Ólafssonar, b. og hrepp-
stjóra á Heylæk, Arngrímssonar,
prests á Kirkjubæ í Vestmannaeyj-
um, Péturssonar. Móðir Tómasar
var Þorbjörg, systir Jóns, prests og
skálds á Bægisá. Þorbjörg var dóttir
Þorláks, sýslumanns í Teigi, Guð-
mundssonar og konu hans, Guðrún-
ar Tómasdóttur, b. í Krossdal, Jóns-
sonar, eins Sellátrabræðra. Móðir
Jóns Tómassonar var Guðbjörg
Nikulásdóttir, b. á Rauðnefsstöðum,
Eyvindssonar, duggusmiðs og
klausturhaldara, Jónssonar. Móðir
Jóhanns var Guðný Árnadóttir,
skálds og sáttasemjara í Dufþekju í
Hvolhreppi, Egilssonar, prests á
Útskálum, Eldjárnssonar, prests á
Stóru-Brekku, Jónssonar. Móðir
Eldjárns var Snjólaug Þorsteins-
dóttir, b. á Frostastöðum, Jónssonar
og konu hans, Guðríðar Pétursdótt-
ur, systur Hallgríms skálds.
Móðir Guðnýjar Jóhannsdóttur
var Guðrún Stefánsdóttir, prests í
Valstrýtu, Hanssonar, bróður Ög-
mundar á Hlemmiskeiði, langafa
Þorsteins Ö. Stephensens leikara.
Móðir Guðrúnar var Guðrún Helga-
dóttir, b. í Heysholti á Landi, Er-
lendssonar, b. á Hæringsstöðum í
Gaul verj abæj arhreppi, Helgasonar,
b. í Vindási, Erlendssonar, b. á
Bakka í Melasveit, Þorlákssonar
iönaðarmanns Gunnlaugssonar,
prests í Saurbæ í Eyjafirði, Sigurðs-
sonar.
Oktavía Jóhannesdóttir Arndal.
Oktavía tekur á móti gestum á
laugardaginn 13. á Hótel Holti kl.
15-18.
Ásta Þóra Valdimarsdóttir
Ásta Þóra Valdimarsdóttir hús-
móðir, Bólstaðarhlíð 66, Reykjavík,
er sjötíu og fimm ára í dag.
Ásta fæddist á Seyðisfirði og ólst
upp þar og í Keflavík. Hún var próf-
astsfrú á Kirkjubæjarklaustri á
árunum 1938-63 og starfaði síðar á
Flókadeild Kleppsspítalans í nokk-
urár.
Fjölskylda
Ásta giftist 30.7.1938 Gísla Brynj-
ólfssyni, prófasti á Kirkjubæjar-
klaustri og deildarstjóra í land-
búnaðarráðuneytinu, f. 23.10: 1909,
d. 4.6. 1987, en hann var sonur
Brynjólfs Gíslasonar, bónda í
Skildinganesi, og Guðnýjar Jóns-
dóttur húsfreyju.
Börn Ástu og Gísla eru Brynjólf-
ur Gíslason, f. 26.12.1938, prestur í
Stafholti í Mýrasýslu, kvæntur
Áslaugu Pálsdóttur og eiga þau
þrjár dætur; Valdimar Gíslason, f.
18.10. 1940, smiður í Álftaveri,
kvæntur Sigríði Tómasdóttur og
eiga þau þrjú börn; Sverrir Gísla-
son, f. 14.11.1949, rafvirki í Reykja-
vík, en sambýliskona hans er Sigr-
ún María Guðmundsdóttir og eiga
þau tvö börn. Langafabörn Ástu
eru nú fjögur talsins.
Alsystir Ástu var Unnur Valdi-
marsdóttir, f. 24.11. 1914, d. 25.2.
1918.
Hálfsystkini Ástu, samfeðra:
Oddný, húsmóðir í Keflavík, gift
Jóni Arinbjarnarsyni og eiga þau
tvær dætur, og Þorsteinn er bjó á
Eyrarbakka en er nú látinn.
Hálfsystkini Ástu, sammæðra:
Hörður, búsettur í Reykjavík og á
hann þrjú börn; Unnur, húsmóðir
í Reykjavík, gift Þórði Kristjáns-
syni og eiga þau fimm börn; Þuríð-
ur, húsmóðir á Siglufirði, gift
Bjarna Sigurðssyni og eiga þau
fimm börn; Ágústa, húsmóöir í
Hafnarfirði, gift Árna Guðmunds-
syni og eiga þau tvö börn; Gunn-
laugur, búsettur á Siglufirði,
kvæntur Önnu Vignisdóttur og
eiga þau þrjú börn; Lorelei, hús-
móðir í Reykjavík, gift Sigþóri Lár-
ussyni og eiga þau eitt barn, og
Herdís, búsett í Kópavogi og á hún
tvö börn.
Jón Guðmundsson
Jón Guðmundsson, fyrrv. bílstjóri,
Þinghólsbraut 19, Kópavogi, er sjö-
tíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Jón er fæddur á Siglufirði en ólst
upp á Fossseli í Hrútafirði. Hann
var í námi í Reykjaskóla í Hrúta-
firði en að því loknu var hann að
bústörfum heima á Fossseli. Jón
fluttist suður til Reykjavíkur 1939
og vann ýmis störf fyrir breska her-
inn. Hann tók meirapróf 1942 og var
leigubílstjóri í tiu ár. Jón vann hjá
Strætisvögnum Reykjavíkur í fimm
ár og keyrði hjá Strætisvögnum
Kópavogs í sextán ár. Hann vann
hjá Áhaldahúsi Kópavogs í fjögur
ár. Jón var varaformaður Starfs-
mannafélags Kópavogs í mörg ár og
lengi í samninganefnd félagsins.
Fjölskylda
Jón kvæntist 26. júlí 1943 Guðrúnu
Karlsdóttur, f. 7. febrúar 1924. For-
eldrar Guðrúnar eru: Karl Jónsson,
bankaritari á Eskifirði, og kona
hans, Jörgína Margrét Guðjóns-
dóttir. Börn Jóns og Guðrúnar eru:
Karl, f. 3. október 1943, útibússtjóri
íslandsbanka í Breiðholti, börn
hans eru: Guðrún Ásta, f. 22. nóv-
ember 1963, dóttir hennar er Fanný
Norðfiörð, f. 15. desember 1985, Karl
Andrés, f. 25. júní 1966, og Pétur, f.
23. ágúst 1973; Stefán Rúnar, f. 20.
september 1945, stýrimaður á Eski-
firði, kvæntur Sjöfn Þorvarðardótt-
ir, börn þeirra eru: Vignir, f. 18.
mars 1966, og Anna Lilja, f. 3. febrú-
ar 1976; Jörgína Elínbjörg, f. 25. sept-
ember 1956, afgreiðslustjóri á
Tálknafirði, gift Torfa E. Andrés-
syni, sérleyfishafa, dætur þéirra
eru: Eva Lind, f. 28. júlí 1977, og
Ninja Dögg, f. 1. september 1983.
Bræður Jóns samfeðra eru: Krist-
mann rithöfundur, Kristinn, starfs-
maður Bíóhússins á Siglufirði, og
Jónas Thorvald, verkapiaður í Rvík.
Systkini Jóns sammæðra eru: Bööv-
ar Daníelsson, fyrrv. b. á Fossseli í
Hrútafirði, og Oddný Daníelsdóttir,
húsmóöiríRvík.
Ætt
Foreldrar Jóns voru: Guðmundur
Jónsson, smiöur og skytta á Helgu-
stöðum, og Elínbjörg, dóttir Jóns,
b. á Fossseli í Hrútafirði, og konu
hans, Guðlaugar Jónsdóttur. Guð-
mundur var sonur Jóns, steinsmiðs
í Rvík, Jörundssonar, b. á Mófells-
stööum í Skorradal, ísleifssonar, b.
á Grjóteyri í Andakíl, Jónssonar, b.
í Hvammi í Kjós, ísleifssonar, b. í
Hvammi, Ólafssonar, b. í Hvammi,
Ólafssonar, b. í Hvammi Jónssonar,
lögréttumanns í Hvammi, Hannes-
sonar. Móðir Jóns ísleifssonar var
Ingibjörg Jónsdóttir, b. í Flekkuvík
á Vatnsleysuströnd, Árnasonar og
Jón Guðmundsson.
konu hans, Margrétar Daðadóttur,
prests í Steinsholti, Halldórssonar.
Móðir Guðmundar var Gunnhild-
ur Sigurðardóttur, b. í Káranesi í
Kjós, Bjarnasonar, b. á Káranesi,
Sigmundssonar, b. í Káraneskoti,
Eyjólfssonar. Móðir Gunnhildar var
Margrét Sigurðardóttir, b. á Korp-
úlfsstöðum, Gunnarssonar, b. á
Korpúlfstöðum, Þorkelssonar, b. í
Miðdal í Mosfellssveit, Gissurarson-
ar.
Foreldrar Ástu voru Valdimar
Kristmundsson, f. 7.5.1888, d. 17.8.
1964, skipstjóri á Akureyri, og
Guðný Jónsdóttir, f. 21.7. 1894, d.
11.1. 1977, húsmóðir. Guðný giftist
Haraldi Gunnlaugssyni fiskmats-
manni árið 1920 og bjuggu þau á
Siglufirði og í Kópavogi.
Valdimar var sonur Kristmund-
ar, b. á Mosastöðum í Flóa, Jóns-
sonar og Jóhönnu Brandsdóttur,
b. á Markhóli á Rangárvöllum,
Brandssonar, b. í Galtarholti, Guð-
mundssonar, b. í Galtarholti, Er-
lendssonar, b. á Sperðli í Landeyj-
um, bróður Andrésar, langafa
Björns Halldórssonar í Laufási,
íoður Þórhalls biskups, föður
Tryggva forsætisráðherra. Erlend-
ur var sonur Sigurðar, b. á Flanka-
stööum á Miðnesi, Gíslasonar,
prests á Krossi í Landeyjum, Bárð-
arsonar. Móðir Jóhönnu var Val-
gerður Sigurðardóttir, b. á Brekk-
um í Hvolhreppi, Magnússonar, b.
Ásta Þóra Valdimarsdóttir.
á Núpi, Sigurðssonar. Móðir Sig-
urðar var Anna Jónsdóttir, b. í
Bolholti á Rangárvöllum, Þórarins-
sonar, ættíoður Bolholtsættarinn-
ar.
Ásta dvelur á Mallorca á afmælis-
daginn.
Til hamingju með afmælið 11. október
85 ára 50 ára
Jóna Jóhannesdóttir, Ytra-Laugalandi, Öngulsstaða- hreppi. Guðmundur Erlendsson, Hringbraut 78, Reykjavík. Margrét Lýðsdóttir, Meistaravöllum 5, Reykjavík. Hrafnhildur Vilhelmsdóttir, Silungakvísl 6, Reykjavík. Dröfn Jónsdóttir, Furuvöllum 15, Egilsstöðum. Bragi Eyj ólfsson, Kringlunni 87, Reykjavik.
40 ára
80 ára
Óli M. Eyjólfsson, Fífuseli 35, Reykjavík. Guðni Sigurður Óskarsson, Bárugötu 37, Reykjavík. Hafsteinn Júh'usson, Maríubakka 10, Reykjavík. Eðvarð Viggó Vilbogason, Strandaseli 6, Reykjavik. Hilmar Óskarsson,
Guðmundur Þorsteinsson, Syðri-Grund, Svínavatnshreppi. Herdís Guðmundsdóttir, Hóli, Norðurárdalshreppi.
70ára
Jón Bjarnason, Bergstaðastræti 44, Reykjavík. Guðmundur Eliníusson, Hjallabraut 33, Hafnarfirði. Hann tekur á móti gestum í Gaflin- um, Dalshrauni 13, Hafnarfirði, laugardaginn 13. þ.m. kl. 14.00-18.00. Lækjarhvammi 5, Laxárdalshreppi. Sigurjón Rúnar Vikarsson, Bragavöllum 6, Keflavík. Halldór Sigurðsson, Ugluhólum 2, Reykjavík. Hann verður að heiman á afmælis- daginn. Bjarndís S. Jóhannsdóttir, Njarðvíkurbraut 46C, Njarövík.
60 ára Halldór Kristófersson, Engihjalla 11, Kópavogi.
Maria Konráðsdóttir, Hólabraut 23, Höföahreppi. Bjarni Kristmundsson, Ytri-Melrakkadal, Þorkelshóls- hreppi. Svana I. Þórðardóttir, Seilugranda 8, Reykjavík. Gunnar Guðmundsson, Lækjarhvammi 19, Hafiiarfirði. Brynja Fríða Garðarsdóttir, Heiðvangi20, Hellu. Ólafur Grétar Egilsson, Hrafnhólum 8, Reykjavík. Hannes Einarsson, Norðurási 6, Reykjavík.