Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1990, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990.
Ihaldsflokkurinn tapar í aukakosningum í einu höfuðvígi sínu:
Ósigurinn áfall
fyrir Thatcher
- Frjálslyndir sigruðu en Verkamannaflokkurinn galt afhroð
íhaldsflökkur Margrétar Thatcher
tapaöi í mikilvægum aukakosning-
um í kjördæminu Eastbourne í gær.
íhaldsmenn hafa til þessa haft undir-
tökin í kjördæminu en nú kenna þeir
versnandi efnahag um hvemig fór.
Þaö var David Bellotti, frambjóð-
andi Fijálslynda flokksins, sem fór
með sigur af hólmi. Þegar talningu
lauk reyndist atkvæðamunurinn
mikill og íhaldsmenn áttu aldrei
möguleika á að halda þingsætinu.
Þetta þykir ekki síður merkiiegt
vegna þess að síðasti þingmaður
íhaldsmanna í Eastboume var Ian
Gow, einn nánasti samverkamaður
Thatchers. Hann lét lífiö í sprengju-
tilræði írska lýðveldishersins í sum-
ar. Vegna þessara aðstæðna var búist
við að kjósendur myndu ekki refsa
íhaldsmönnum fyrir laka efnahags-
sljórn.
í kosningabaráttunni hömmðu
íhaldsmenn á því að stuðningur við
aðra en frambjóðanda þeirra væri
viðurkenning á ofbeldisverkum IRA.
Mörgum þótti þetta óheiðarlegur
áróður en þegar til kom reyndist
hann ekki duga til að koma fram-
bjóðanda íhaldsmanna á þing.
Hinn nýkjörni þingmaður Fijáls-
lynda flokksins sagði að sigurinn
markaði upphaíið aö endalokunum á
ferli Margrétar Thatchers. Það vakti
líka athygh að frambjóðandi Verka-
mannaflokksins fékk hraklega útreið
og aðeins rúmlega tvö þúsund at-
kvæði í kjördæmi þar sem um 50
þúsund manns eru á kjörskrá.
Úrshtin í Eastbourne þykja eitt-
hvert versta áfall sem Thatcher hef-
ur orðið fyrir á ferli sínum. Hún
náði að beina athyglinni frá vaxandi
verðbólgu og hækkandi vöxtum þeg-
ar flokksþing íhaldsmanna var hald-
ið og gerði hún mikið úr því að hagur
Breta færi mjög batnandi. Kíósendur
í Eastbourne virðast ekki hafa tekið
orð hennar trúanleg og nú er eins
víst að hún hugsi sig tvisvar um áður
en hún ákveður að leggja út í næstu
aðalkosningar.
Orðrómur hefur verið uppi um að
hún hyggist efna til kosninga á næsta
ári þegar eitt ár verður eftir af kjör-
tímabihnu. Eftir kosningamar í
Eastboume er sá möguleiki útilokað-
ur af flestum nema vinsældir stjórn-
arinnar fari vaxandi á ný.
Reuter
Margrét Thatcher verður að bita i það súra epli að tapa í einu sterkasta
vígi sínu. Talið er að hún hætti nú við að flýta aðalkosningum.
Símamynd Reuter
Honecker vissi allt um
hryðjuverk Líbýumanna
Erich Honecker, fyrrum flokks-
formaður og leiðtogi í Austur-Þýska-
landi, vissi með nokkurra mánaða
fyrirvara um sprengjutilræði Líbýu-
manna á diskóteki í Vestur-Berlín
vorið 1986. Þá létu þrír bandarískir
hermenn lífið í einu umtalaðasta
hryðjuverki síðari ára. Um 200 menn
særðust. Bandaríkjamenn brugðust
þá við með loftárásum á Líbýu.
Upplýsingamar um vitneskju
Honeckers koma fram í skjölum sem
fundist hafa í höfuðstöðvum austur-
þýsku leyniþjónustunnar Stasi. Þar
kemur fram að bæði hann og Erich
Mielke, yfirmaður Stasi, voru á móti
því að diskótekið yrði sprengt og
reyndu að koma í veg fyrir það. Jafn-
framt kemur fram að þeir ákváðu að
vara Bandaríkjamenn ekki við til-
ræðinu.
Tilræðið var skipulagt í líbýska
sendiráðinu í Austur-Þýskalandi.
Þegar haustið 1985 vissi Honecker
um fyrirætlanir Líbýumannanna.
Sendiherra Líbýu var þó ekki kallað-
ur fyrir í utanríkisráðuneytinu fyrr
en eftir að spregjan var sprungin og
þá var honum sagt að framferði
manna hans gæti skaöað hagsmuni
Austur-Þýskalands á alþjóðavett-
vangi.
Reuter
Um leið og flett er ofan af verkum Erich Honeckers i Austur-þýskalandi er
verið að hreinsa til í herbúðum hans. Meðal þess sem fer á haugana er
mikið af ónotuðum myndum af leiðtoganum. Símamynd Reuter
9
Utlönd
Guillermo Endara, forseti Panama. Simamynd Reuter
Samsæri gegn Endara:
Uppreisnarmanna
leitað í Panama
Lögreglan í Panama hefur nú hafið
víðtæka leit í norðurhiuta landsins
að aðilum sem grunaðir eru um að
hafa ætlað að steypa stjórn Guill-
ermo Endara forseta. Yfirvöld til-
kynntu í gær að þau heföu komið upp
um áætlunina og að fjórir lögreglu-
foringjar hefðu verið handteknir.
Samkvæmt yfirlýsingu, sem send
var frá skrifstofu forsetans, átti upp-
reisnin að hefjast í Chiriqui-héraði
sem er í norðurhluta Panama. Hefur
lögreglan undir höndum hsta með
nöfnum þijátíu meintra samsæris-
manna og er búist við að þeir náist
fljótt. Yflrvöld sögðu að næstæðsti
yfirmaður lögreglunnar í Chiriqui,
Moreno, hefði játað á sig aðild að
samsærinu. Hann er einnig sagður
hafa viðurkennt að hafa skipað
mönnum sínum að standa fyrir
sprengjutilræðum gegn raforkuver-
um.
í yfirlýsingu yfirvalda sagði að
Moreno hefði sagt fyrrum yfirmann
lögreglu landsins, Eduardo Herrera,
vera aðalmanninn á bak við áætlun-
ina um valdarán. Herrera var vikið
úr embætti í ágúst síðastliðnum.
Meðal þeirra þrjátíu sem leitað er
að eru nokkrir lögreglumenn sem
voru hhðhollir Noriega hershöfð-
ingja. Noriega var steypt við innrás
Bandaríkjamanna í Panama í des-
ember í fyrra.
Stjórn Endara hefur sætt harðri
gagnrýni undanfarið vegna versn-
andi efnahags og aukinna glæpa.
Bandarískum hermönnum í Pan-
ama var ekki skipað í viöbragðsstöðu
vegna valdaránstilraunarinnar.
Reuter
Tékkóslóvakía:
Tugir létust í námuslysi
Að minnsta kosti tuttugu og einn
námuverkamaður beiö bana í gær
er sprenging varð í kolanámu í
Tékkóslóvakíu skammt frá landa-
mærum Póllands. Samkvæmt út-
varpsfréttum frá Tékkóslóvakíu er
óttast að þeir séu fleiri.
í kjölfar sprengingarinnar, sem
varð á 750 metra dýpi, kom upp eld-
ur. Enn er ekki vitað um hvers vegna
sprengingin varð. Greint var frá því
að þetta væri eitt af verstu slysunum
í Tékkóslóvakíu á undanfömum
árum.
Rannsóknarnefnd á vegum ríkisins
er nú á leiöinni til slysstaðarins sem
er nálægt iðnaðarsvæðinu Ostrava.
Reuter
Einstakt tækifæri
Af sérstökum ástæöum verður mjög nýleg og fullkomin
bilaþvottavélarsamstæöa seld á hálfvirði. Þessi bíla-
þvottavél er sú elna á landinu sem getur þvegið allar
stærðlr af bílum, t.d. flutningabila með aftanívagni, rút-
ur, olíubíla, strætisvagna, sendlbila, jeppa og venjulega
fólksbila.
Þetta er frábært tækifæri fyrir 2-3 menn til að skapa
sér rífandi tekjur. Verðið er svipað á vélinni og þokka-
legum bíl. Þeir sem hafa áhuga hafi samb. við auglýs-
ingad. DV, Þverholti 11, simi 27022, H-5268, fyrir 26.
október.