Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990.
5
Fréttir
Lögreglan á Egilsstöðum upplýsti byssumál frá fyrri helgi:
Olvaður maður gekk ber-
serksgang með haglabyssu
Rúmlega þrítugur maður hefur ját-
að að hafa skotið með haglabyssu á
útihurð og innanstokksmuni á bæn-
um Fellsseli sem er skammt fýrir
norðan Egilsstaði. Maðurinn hefur
viðurkennt að hafa verið ölvaöur
- háld lagt á tvær haglabyssur og 300 skot
þegar byssuæðið greip hann.
Fellssel fór í eyði fyrir nokkrum
árum. Eigandinn kom að býlinu um
fyrri helgi. Var þá greinilegt að ein-
hver hafði komið nýlega með hagla-
byssu, skotið upp lás á hurðinni og
þannig komist inn. Skotið hafði verið
á skáp sem er við huröina. Þar fyrir
innan er rafmagnsinntak og
skemmdi haglabyssuskothríðin raf-
lagnirnar.
Lögreglan á Egilsstöðum rannsak-
aði málið í síðustu viku. Á fostudags-
kvöld var áðurnefndur maður tekinn
til yfirheyrslu. Játaði hann síðan að
hafa farið ölvaður að Fellsseli þar
sem hann skaut úr haglabyssu. Lög-
reglan lagði hald á tvær haglabyss-
ur, sem hann haföi í fórum sínum,
og um þrjú hundruð skot. Maðurinn
hafði ekki byssuleyfi. Það er litið
mjög alvarlegum augum þegar ölv-
aðir menn eru á ferð með skotvopn.
-ÓTT
Skotveiðimenn:
Friðsamlegt á
Öxnadalsheiði
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri:
Ekki dró til neinna tíðinda á Öxna-
dalsheiði um helgina en allt eins
hafði verið reiknað með að þar
myndi slá í brýnu á milli skotveiði-
manna frá Akureyri og Skagfirðinga.
Akrahreppur í Skagafirði og Skot-
veiðifélag Akrahrepps gerðu með sér
samning í síðustu viku sem heimilaði
Skotveiðifélaginu að skipuleggja
veiði á heiðinni og selja leyfi til veið-
anna. Skotveiðimenn á Akureyri
lýstu því strax yflr að þeir myndu
eftir sem áður halda til veiða á heið-
inni og fagna því ef þeir yrðu kærðir.
Menn héldu þó að sér höndum um
helgina en heyrst hefur að um næstu
helgi ætli Ákureyringar að fjöl-
menna á Öxnadalsheiði með byssur
sínar og ganga til ijúpna hvað sem
hver segir. Gæti þá dregiö til tíðinda
og komið til þess að skotveiðimenn
úr Akrahreppi kærðu Akureyring-
ana til yfirvalda.
Vilja rannsókn á
virðisaukaskatts-
svikum og svartri
atvinnustarfsemi
Alþingismennimir Guðni
Ágústsson og Stefán Guðmundsson
hafa lagt fram þingsályktunartil-
lögu um að fram fari rannsókn á
virðisaukaskattsvikum og svartri
atvinnustarfsemi. Þeir benda á aö
árin 1984 til 1986 hafl starfshópur
unnið að rannsóknum á söluskatts-
svikum. Þá hafi komið í ljós að
umfang dulinnar starfsemi hér á
landi hafi numið 5 til 7 prósent af
vergri atvinnustarfsemi. Tap hins
opinbera hafi numið 2,5 til 3 mill-
jörðum króna árið 1985 vegna
þessa.
Þeir telja fulla þörf á að gera aðra
könnun nú eftir hinar miklu kerfis-
breytingar á innheimtu skatta sem
átt hafa sér stað. Virðisaukaskattur
hafi tekið við af söluskatti og stað-
greiðsla skatta tekið við af eftirár-
greiðslu.
Þeir benda á að víða verði þess
vart að boðin séu nótulaus við-
skipti og því full ástæða að láta
kanna þetta mál til hlítar.
-S.dór
Leikendur i Uti eru ævintýri á Selfossi. DV-mynd Kristján
Barnakabarett á Selfossi
Stórhýsi íþóttabandalags Reykjavíkur í móaholtinu í Grímsnesi. DV-mynd Kristján
Stórhýsi útigangshrossa
Kristján Einarsson, DV, Selfossi:
Rétt við Brúará í Grímsnesi stend-
ur 1800 m2 steinsteypt hús sem gapir
tómum gluggatóftunum yfir-ána til
höfuðstólsins Skálholts. Fyrir um
það bil 10 árum réðst íþróttabanda-
iag Reykjavíkur í það stórvirki að
láta byggja þetta hús og var tilgang-
urinn að þarna á móaholtinu skyldi
vönduö miðstöð fyrir íþróttafólk
rísa.
En eitthvað hafa menn misreiknað
sig í áætlunargerðinni því húsið hef-
ur staðið ónotað frá upphafi og eng-
um til gagns nema útigangshrossum.
Hundruð rúmmetra af steypu bíða
þess í sveitasælunni að fá einhvern
tilgang og hlutverk.
Skattlagning bílafríðinda:
Heimild til notkunar gildir
„Við rituðum öllum atvinnurek-
endum í Reykjavík bréf þar sem við
báðum um greinargerð um afnot
starfsmanna á bifreiðum viðkom-
andi fyrirtækja. Flest fyrirtækin
hafa svarað nú þegar og verið er að
vinna úr svörunum," sagði Gestur
Steinþórsson, skattstjóri í Reykjavík,
í samtah við DV.
í bréfinu var beðið um að skýrt
væri frá hvort starfsmenn hafa ótak-
markaða heimild til aö nota bifreiðar
fyrirtækisins í eigin þágu, takmark-
aða heimild eða hvort þeim eru afnot
óheimil.
„Þaö sem gilda mun við skattlagn-
ingu bílafríðinda er hvort starfs-
menn hafa heimildir til að nota bif-
reiðar fyrirtækjanna,“ sagði Gestur.
Hann sagði að sig ræki minni til að
svör hefðu borist frá ráðuneytum
varðandi afnot ráðherra af bifreið-
um.
Garðar Valdimarsson ríkisskatt-
stjóri sagði fyrr á þessu ári að það
væri sinn skilningur á skattalögun-
um að skattleggja bæri afnot ráð-
herra af ríkisbifreiðum. Hann sagði
í samtali við DV að það væri síðan
skattstjóranna í hverju umdæmi að
ákveða það hvort ráðherramir yrðu
skattlagðir vegna bifreiðanota. Það
kemur hins vegar ekki í ljós fyrr en
á næsta ári.
-S.dór
Finnur Ingólfsson:
Niðurstaðan góð
fyrir flokkinn
Kristján Einarsson, DV, Selfossi:
Leikfélag Selfoss sýnir um þessar
mundir bamakabarettinn Úti eru
ævintýri í litla leikhúsinu við Sigtún
á Selfossi. Framsýning var sl. föstu-
dag. Húsfyllir var og móttökur leik-
húsgesta frábærar.
Þetta er 35. verkefni félagsins. Þar
tekur Magnús J. Magnússon, gamal-
kunnur áhugaleikari, saman nokkur
þekkt leikrit og leikstýrir stórum
hópi leikara úr völdum köflum úr
hverju þeirra. Kaílarnir eru úr Dýr-
unum í Hálsaskógi, Rauðhettu, Línu
langsokk, Karíus og Baktus, Kardi-
mommubænum og Öskubusku.
Fjöldi barna og unglinga tekur þátt
í sýningunni og tekst þeim ásamt
þeim fullorðnu að gera skemmtilega
hluti. Verkið var sýnt um helgina og
á mánudag en fimmta sýningin verð-
ur miðvikudaginn 14. nóv. kl. 20.
„Ég er mjög ánægður með niður-
stöðuna. Hún kom mér eilítið á óvart
þar sem ég fékk töluvert meira fylgi
en ég átti von á,“ sagði Finnur Ing-
ólfsson í samtali við DV. Finnur varð
í efsta sæti í skoðanakönnun full-
trúaráðs Framsóknarfélaganna í
Reykjavík um helgina.
Finnur tjáði sig ekki um ummæh
Guðmundar G. Þórarinssonar sem
féll úr fyrsta sæti í annað.
Til þessa hafa ekki orðið breytingar
á framboðshstum Framsóknar-
flokksins umhverfis landið. Vekur
athygli að Reykjavík er eina kjör-
dæmið þar sem nýtt andlit er í topp-
sætinu.
- Flokkurinn er tahnn eiga í vök að
verjast í Reykjavík. Er það þess
vegna sem nýtt andlit er í toppsæt-
inu?
„Flokkurinn á ekki í vök að veijast
í Reykjavík. Hann er á uppleið í skoð-
anakönnunum og staðan er sterk í
höfuðborginni. Um helgina kom ein-
faldlega fram vilji þess fólks, sem
tekur ákvörðun um hvernig fram-
boðshstinn skuh líta út, um að víxla
efstu sætunum. Ég er sannfærður
um að þessi niðurstaða skoðana-
könnunarinnar er mjög góð fyrir
flokkinn í Reykjavík."
-hlh