Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Side 9
9
ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990.
Útlönd
Þrengir að Thatcher 1 stöðu leiðtoga íhaldsflokksins:
Búist við að
Heseltine reyni
mótframboð
- kosið um nýjan leiðtoga flokksins 20. nóvember
Margrét Thatcher, forsætisráö-
herra Breta, heitir því aö gefa hvergi
eftir innan flokks síns þótt efnt verði
til mótframboðs gegn henni. íhalds-
menn kjósa sér nýjan leiðtoga 20.
nóvember. Búist er við að Thatcher
fái nú fyrsta alvarlega mótframboðið
á eliefu ára ferli sínum.
Thatcher lét þau orð falla í boði hjá
borgarstjóranum í Lundúnum að
hún myndi veija stöðu sína í flokkn-
um með öllum ráðum og sagðist til-
búin að mæta hveijum þeim sem
vogaði sér að hrifsa til sín embættið.
Staða Thatcher hefur ekki verið
svo slæm innan flokksins áður. í
fyrsta sinn nú á þeim tíma sem hún
hefur leitt íhaldsmenn í Bretlandi sjá
menn fyrir sér að hún gæti tapað
kosningu.
Hefð er fyrir því að leiðtogi flokks-
ins gegni einnig embætti forsætis-
ráðherra ráði flokkurinn stjórninni
á annað borð. Þegar er farið að tala
um Michael Heseltine, fyrrum varn-
armálaráðherra, sem mótframbjóð-
anda Thatcher við leiðtogakjörið.
Stjómmálaskýrendur segja að
Thatcher hafi beint orðum sínum
sérstaklega að Heseltine í boði borg-
arstjórnar. Hún notaði óspart lík-
ingamál úr íþróttum og hét því að
berjast um allan völl og láta ekkert
færi ónotað.
Heseltine hefur hvorki játað því né
neitað að hann hafi hug á að fara í
framboð gegn Thatcher. Hann er þó
einn talinn koma til greina því að
Sir Geoffrey Howe, fyrrum aðstoðar-
ráðherra, er með öllu ófáanlegur til
að etja kappi við járnfrúna.
Heseltine á að halda ræðu á fundi
um Evrópumál í Hamborg í dag.
Búist er við að hann svari þar ræðu
Thatcher. Hann verður að hafa gert
upp hug sinn á fimmtudaginn því að
þá rennur út fresturinn til að til-
kynna framboð fyrir leiðtogakjörið.
Afstaða Thatcher til Evrópumál-
anna hefur orðið til að kveikja ófrið-
arbálið innan breska íhaldsflokks-
ins. Þó er ljóst að afstaðan til Evrópu-
bandalagsins ræður ekki öllu um
erflðleika hennar nú. Margir Bretar
eru á sama máli og gætu þess vegna
staðið með henni í afstöðunni til
bandalagsins.
Það veldur Thatcher miklu meiri
erflðleikum að hún virðist vera að
missa tökin á stjórn efnahagsmála.
Verðbólga fer nú vaxandi á ný og
Margrét Thatcher hét því að verja stöðu sína með öllum ráðum i ræðu sem
hún hélt í boði hjá borgarstjóranum í Lundúnum. Augljóst þótti að hún
beindi orðum sínum gegn Michael Heseltine.
Simamynd Reuter
sömuleiðis atvinnuleysið. Þetta hef- - um á stuttum tíma. Járnfrúin er ekki
ur valdið því að íhaldsflokkurinn lengur sigursæl og þá vilja íhalds-
hefur tapað í tveimur aukakosning- mennskiptaumforystu. Reuter
Hiti 1 norskum trúarbrögðum:
Trúmaður úr Veginum
skaut þrjá vini sína
Norðmaður á fertugsaldri, sem
skaut þrjá vini sína í svefni í Ósló á
síðasta ári, hefur veriö dæmdur til
þyngstu refsingar sem norsk lög
leyfa. Fékk hann fangelsisdóm upp á
21 ár.
Morðinginn og vinir hans voru all-
ir í trúfélaginu Veginum. Morðing-
inn hefur þó sagt að ódæðisverkið
snerti á engan hátt trúmál. Hann
hefur hins vegar aldrei viljað segja
hvers vegna hann skaut vini sína.
Morðin voru framin í Slemdal, einu
af betri úthverfum Óslóar. Morðing-
inn segist hafa komið þar í einbýlis-
hús um miðnætti og hafl vinir hans
verið sofandi. Hann segist hafa náð
í marghleypu og gengið inn í her-
bergi þar sem kærustupar svaf sam-
an í rúmi. Hann skaut þau bæði í
höfuðið.
Að því loknu gekk hann að rúmi
þriðja mannsins og myrti hann líka.
Eftir þetta segist hann hafa farið í
sturtu, hringdi síðan í vinnufélaga
sinn og sagði honum að hann kæmi
ekki oftar til vinnu. Þá hringdi hann
á lögregluna og gaf sig fram.
Sálfræðingur hefur úrskurðað að
maöurinn sé ekki geðveikur þótt
hann hafi enga skýringu getað gefið
á framferði sínu. Hann taldist því
sakhæfur og var dæmdur í samræmi
við það. Mjög fátítt er að svo þungir
dómarfalliíNoregi. NTB
-So
VÉTRÍKI
Kazakhstan
rr
yyj ma-Ma
Avalvatn Kírgízía •
Frum
Issyk- Kul
KÍNA
Upptök jarðskjálftans voru við vatnið Issyk-Kul, hundrað kilómetra fyrir
sunnan Alma-Ata.
Öflugur jarðskjálfti
í Kazakhstan
Öflugur jarðskjálfti reið yfir Kaz-
akhstan í Sovétríkjunum nálægt kín-
versku landamærunum í gær. Ekki
hafa borist fregnir af skjálftasvæð-
inu. Upptök skjálftans, sem mældist
6,3 stig á Richterskvarða, voru við
vatnið Issyk-Kul sem er vinsæll sum-
ardvalarstaður um hundrað kíló-
metrum fyrir sunnan Alma-Ata, höf-
uðborg Kazakhstans. í Kína mældist
skjálftinn 6,7 stig á Richterskvarða.
Sænskur jaröskjálftafræðingur
sagði að upptök skjálftans virtust
hafa orðið grunnt undir yfirborðinu
og þar með væri meiri hætta á að
hann hefði valdiö alvarlegu tjóni.
Jarðskjálfti er einnig sagður hafa
orðið í Tashkent, höfuðborg Úzbe-
kistan í miðhluta Asíu, í gær.
Reuter
Táragasárás á
Winnie Mandela
Winnie Mandela, eiginkona
blökkumannaleiðtogans Nelsons
Mandela, varð í gær fyrir táragasár-
ás. Árásin var gerð þegar hún var
að heimsækja fjölskyldur unglinga
sem látist höföu í átökum við lög-
reglu. Að sögn sjónarvotta lenti eitt
á höfði Winnie Mandela.
Winnie Mandela var á ferð í Att-
eridgeville í Pretoríu þegar árásin
var gerð. Þar höfðu orðiö róstur um
helgina og tveir unglingar látist af
völdum skotsára. Að sögn íbúanna
skutu lögreglumenn á blökkumenn
sem reyndu að setja á rafmagn í
borgarhlutanum. Það hafði verið
tekið af þar sem íbúarnir neituðu að
greiða reikninga. Reuter
Vinningstölur laugardaginn 10- nóv. 90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 1 2.512.241
r% puús (gMlÉ 4. 4af5^pí 1 435.900
3. 4af5 118 6.372
4. 3af5 3.37I i 516
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.452.373 kr.
UPPLÝSINGAR: SlMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002