Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990. Utlönd Ófriðarbálið magnast 1 Austur-Berlín þrátt fyrir aukna hörku lögreglunnar: Unglingar reistu götuvígi og kveiktu í bflum í nótt í það minnsta eitt þúsund ungir ólátaseggir reistu götuvígi í Austur- Berlín i nótt, kveiktu í bílum og rústuðu verslanir. Þetta eru einhver alvarlegustu ólæti unglinga í þeim hluta borgarinnar í langan tima. Upphaf ólátaniia má rekja til þess að lögreglan ákvað að rýma þrjár byggingar sem hústakar höfðu lagt undir sig. Brugðust þeir hart viö og réðust gegn lögreglunni með bensín- sprengjum, grjóti og bareflum. Eldur var lagður í bifreiðar og götur rifnar upp. Vitni sögöu að ungniennin hefðu sungið söngva gegn sameiningu Þýskalands. Þar á meðal er einn sem nýtur vaxandi vinsælda í Þýskalandi og gengur undir nafninu „Aldrei aft- ur Þýskaland“. „Þeir vilja binda enda á lýöræöi í okkar landshluta," sagði ung kona í Austur-Berlín. Lögreglan telur aö ekki sé um skipulagða andstöðu við stjómvöld að ræða heldur uppþot vegna óánægju með versnandi kjör. Segir lögreglan að ólætin í nótt séu af sömu rótum runnin og þegar fót- boltabullur hafa á síðustu vikum far- ið með skemmdarverkum um borgir og bæi í austurhluta Þýskalands eftir knattspymuleiki. Lögreglan í Austur-Berlín er mjög fáhðuð og varð að hörfa undan óláta- - lögreglan er of fáliðuð og óreynd til að ráða við mannfjöldann seggjunum. Fljótlega var gripiö til þess að skjóta táragassprengjum að mannfjöldanum. Háþrýstidælur vora einnig notaðar. Aðeins tólf menn voru handteknir og fjórtán varð að flytja á sjúkrahús. Einn slas- aðist alvarlega þegar hann fékk stein í andUtið. Rúður vora víða brotnar í verslun- um og miklu stoUð af áfengi. Einnig virtust ólátaseggirnir hafa mikinn áhuga á hljómílutningstækjum en mest var þó hugsað um að eyðUeggja. Yfirvöld í Berlín hafa miklar áhyggjur af vaxandi ólátum í borg- inni. Haldi þessu áfram minnka lík- umar á að borgin verði vaUn sem stjórnaraðsetur en margir Þjóðverj- ar vUja að BerUn verði í öllu tUliti höfuðborg landsins. Enp situr stjóm sameinaðs Þýskalands í Bonn en tU stendur að ákveða fyrir áramót hvort stjórn landsins færir sig um set. Svo virðist sem nýnasistar njóti hvergi meira fylgis en í Austur- Berlín. Hafa þeir æst tíl ófriðar. Þá sitja hústakar enn í um 100 bygging- um í borginni og mótmæla miklum skorti á íbúðarhúsnæði. Við þetta bætist að vegna reynsluleysis hefur lögreglan engin tök á ólátaseggjum sem fjölmenna á fótboltaleiki. Grímuklæddir ólátaseggir fóru með eldi um Austur-Berlín i nótt og kveiktu í fjöida bila og rústuðu verslanir. Reuter Símamynd Reuter Israelskir lögreglumenn handtaka araba i gær, Handtakan fór fram eftir að lögreglan hafði eyðilagt nokkur arabísk heimili sem byggð höfðu verið í leyfisleysi. Simamynd Reuter Námsmenn grýttu lög- reglumenn í París Lögreglustjórinn í Jerúsalem, þar sem átján Palestínumenn voru skotnir til bana af lögreglu í byrjun síðasta mánaðar, hefur verið hækk- aöur í tign. Talsmaður ísraelsku lög- reglunnar sagði í gær aö lögreglu- stjórinn, Arieh Bibi, hefði verið skip- aður yfirmaöur mannaflans í ísra- elsku lögreglunni. Því hafði verið spáð í ísrael að lög- reglustjórinn yrði hækkaður í tign sem sárabót fyrir stöðumissinn í Jerúsalem. ísraelsk nefnd, sem rann- sakaði morðin á Musterishæðinni í Jerúsalem, hefur gagnrýnt lögregl- una fyrir að hafa ekki veriö nógu vel undirbúin undir óeirðirnar. Utanríkisráðherra ísraels, David Levy, tilkynnti í gær að ísraelsk yfir- völd myndu samþykkja komu eins rannsóknaraðila á vegum Samein- uðu þjóðanna. Skilyrðið er að Banda- ríkjamenn lofi að hætta að ræða um morðin. ísraelsk yfirvöld hafa vísað á bug fordæmingu Öryggisráös Sam- einuöu þjóðanna á morðunum. Reuter Óeirðalögregla barðist viö ung- menni á Bastillutorginu í París í gær. Námsmenn fóru þar í mótmæla- göngu og kröfðust betri aðstæðna í menntaskólum landins. Mótmæla- gangan endaði með uppþotum og of- beldi. Lögreglan segir að um 90 menn úr liði hennar hafi slasast en enginn veit enn hve margir úr hópi náms- mannanna gegnu sárir af velli. Um 50 mótmælendur voru handteknir. Gangan fór.friðsamlega fram þar til lögreglan ákvaö aö loka einni brú yfir Signu til að koma í veg fyrir að göngumenn gætu lagt leið sína að Elyseehöll þar sem Francois Mitter- rand býr. Lögreglan hafði þó fengið fyrir- mæli um að láta lítið fyrir sér fara í von um að allt færi friðsamlega fram. Þegar námsmenn hófu grjótkast hik- aöi lögreglan við að dreifa mann- fjöldanum. Ófriðurinnn magnaðist þá og særðust margir lögreglumenn af grjótkastinu. Við svo búið var óeirðalögreglan kölluð út og beitti hún háþrýstidæl- um og táragasi til að stöðva för náms- mannanna. Að lokum tókst að hrekja þá af brúnni en þegar námsmennirn- ir dreifðust um borgina kveiktu þeir í nokkur bílum og einni járnbrautar- stöð. Nokkrir fréttamenn slösuðust þeg- ar mótmælendumir réðust gegn þeim og spörkuðu þá niður: Urðu kvikmyndatökumenn aðallega fyrir þessu. Talið er að ekki færri en 200 þúsn- und námsmenn hafi veriö í mót- mælagöngunni. Vitni segja að flestir hafi farið með friði og ólætin megi rekja til lítils hóps sem hafi verið staðráðinn í að hleypa mótmælunum upp. Reuter Morðin í Jerúsalem: Lögreglustjórinn fær stöðuhækkun Aíbrýðisöm eiginkona skotin til bana 1 Texas: För húsavillt í leit að ótrúum eiginmanni Húsmóðir í Houston í Texas var skotin til bana þegar hún reyndi að ráðast inn í hús þar sem hún átti von á að eiginmaður hennar héldi við konu nokkra. Hún fór þó húsavillt og eiginmaðurinn fannst síðar í öðru húsi. Grunur konunn- ar reyndist hins vegar á rökum reistur. Að sögn lögreglunnar í Houston voru málavextir þeir að Prisciila Brayboy fór ásamt vinkonu sinni út seint um kvöld að leita að eigin- manninum í einu úthverfa Hous- ton. Þær komu auga á gráan Volvo af sömu gerð og eiginmaðurinn ók utan við hús nokkurt. Viö svo búið ákváðu þær að ráðast þar til inn- göngu. Brayboy barði að dyrum en var svarað með ókvæðisorðum. Hún ákvað þá að bijóta sér leið inn en í þann mund sem hún kom inn úr dyrunum skaut húsráðandi á hana úr haglabyssu. Vinkonan hljóp þá eftir hjálp en haföi ekki farið langt þegar hún gekk fram á rétta gráa Volvoinn. Lögreglan fann síðar eiginmann- inn í því húsið og sagði að hann hefði ekki verið einn þar. Brayboy var ílutt með þyrlu á sjúkrahús og lést hún af skotsárunum þegar þangað var komið. Enn hefur enginn verið hand- tekinn vegna þessa máls og ekki liggur ljóst fyrir hvort húseigand- inn, sem skaut á konuna, verður sóttur til saka því hann telur sig hafa gripið til vopna í sjálfsvörn. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.