Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990. DV 11 Útlönd Kosið í skugga efnahagskreppu í Færeyjum á laugardaginn: KJósendur vondauf ir um að nýtt Lögþing leysi vandann - jafnaðarmönnum undir forystu Atla Dam spáð sigri Kosningabaráttan í Færeyjum hef- ur til þessa einkennst af vantrú jafnt frambjóöenda sem kjósenda á að nið- urstaða kosninganna breyti nokkru um stöðuna í stjómmálum eyjanna. Kosningar til Lögþings á síðustu árum hafa engu breytt um valdahlut- fóll flokkanna. Þegar síðast var kosið fluttist aðeins eitt þingsæti milli flokka og ekkert bendir til að auð- veldara verði að mynda nýja land- stjórn eftir þessar kosningar en var eftir þær síðustu. Núna hafa allir flokkarnir einka- væðingu atvinnulífsins á stefnuskrá sinni. Síðustu flmmtán ár hefur öll- um þótt sjálfsagt að landstjórnin hefði forystu um uppbygginu at- vinnulífsins. Nú þegar afleiðingarn- ar af forsjárstefnu stjórnarinnar eru að hellast yfir Færeyinga tala stjórn- málamennirnir um markaðslögmál og sjálfstæðan atvinnurekstur þótt fátt sé um skýr svör við því hvernig fótunum skuli komið undir fyrirtæk- in á ný. Því er spáð að Atla Dam og jafnaðarmönnum verði falið að mynda nýja landstjórn í Færeyjum að loknum kosningum. Hann beið ósigur i kosningun- um 1988 og varð þá að víkja úr embætti fyrir Jogvan Sundstein. Færeysk stjórnmál hafa verið í pattstöðu í mörg ár og þrátt fyrir að sú staða verði tæpast leyst núna þá er kosningabaráttan samt um margt ólík því sem verið hefur á undanförn- um árum. Til þessa hafa allir flokk- arnir háð baráttuna í nafni framfara og betri lífskjara en nú býður hver flokkur sína útgáfu af niðurskurðar- pólitík. Landsjóður á hausnum Öllum er ljóst að lífskjör fara versnandi í Færeyjum og eiga eftir að versna til muna á næstu árum. Undanfarin ár hafa Færeyingar búið við falskan hagvöxt og nú er komið að því að greiða skuldirnar. Staða landsjóðsins er afa slæm, greiðslu- getan lítil og hallinn á sjóðnum á síð- asta ári var um 20%. Svo mikill halli þekkist hvergi meðal þjóða á norður- hveli jarðar. Ástæðan fyrir hallanum er að land- sjóðurinn hefur tekið á sig miklar skuldbindingar vegna útgerðar frá eyjunum. Landsjóðurinn hefur ábyrgst lán sem síðan hafa fallið á sjóðinn viö gjaldþrot útgerðarfélaga og við það bætist að sjóðurinn hefur haldið útgerð gangandi með beinum styrkjum. Klofningsflokkur með litla framtíð Sósíalíski sjálfstæðisflokkurinn er þama engin undantekning þótt hann hafi skipað sér yst á vinstri væng stjórnmálanna. Flokkurinn varð til nú í haust eftir að landstjórnin féll. Fyrir honum fara menn sem áður vom flestir í Þjóðveldisflokknum og einnig fólk sem ekki hefur áður látið til sín taka í stjórnmálunum. Það er sundurleit hjörö sem stend- ur að Sósíalíska sjálfstæðisflokkn- um. Nú þegar er komin upp óeining um stefnuna og jafnvel talað um full vinslit milli róttækra og hófsamra flokksmanna. Flokknum er ekki spáð miklum árangri í kosningunum og útilokað talið að hann fái mann á þing fyrir Þórshöfn, stærsta kjör- dæmið. Erfiðara er hins vegar að segja fyrir um útslitin í minni kjör- dæmunum. Almennt er talið að jafnaðarmenn undir forystu Atla Dam fái besta kosningu. Flokkurinn hefur verið í stjórnarandstöðu frá árinu 1988 og er ekki kennt um þrengingarnar í efnahagslífnu nú. Jafnaðarmenn lofa m.a. að koma atvinnuleysistrygging- um á fót en þær hafa ekki þekkst í Færeyjum til þessa. Þá lofa jafnaðar- menn að draga úr skattlagningu en skattahækkun á síðasta ári mætti mikilli mótspyrnu. En þótt jafnaðarmenn fari með sig- ur af hólmi verða þeir eftir sem áður að fmna sér samstarfsflokk til að mynda með næstu landstjórn. Þó er búist við að jafnaðarmenn verði í forystu fyrir næstu stjórn sem stærsti flokkur Færeyja. Þjóðveldismönnum spáð fylgistapi Spámenn um færeysk stjórnmál þykjast einnig sjá það fyrir að hlutúr Þjóðveldisflokksins verði rýr í kosn- ingnum. Sagt er að flokkurinn hafi fórnað öllum sínum baráttumálum fyrir að fá að leiða fráfarandi land- stjórn með Sambandsflokknum og Þjóðarflokknum. Áður voru sam- bandsslit við Danmörku helsta bar- áttumál flokksins en því varð að fórna til að ná samstöðu með Sam- bandsflokknum. Gömlum flokksmönnum þykir sem Þjóðveldisflokkurinn hafl við þetta færst mikið til hægri en hann var áður talinn vinstri- og miðflokkur. Fyrir síðustu kosningar hafði Þjóð- veldisflokkurinn lofað því að land- stjórn undir forystu hans tæki að sér flest þau mál sem enn heyra undir stjórnina í Kaupmannahöfn. Þessum fyrirheitum varð einnig að slá á frest og nú stendur flokkurinn uppi án málefna. í leit að nýjum baráttumálum hafa þjóðveldismenn viljað gera afstöð- una til Evrópubandalagsins að aðai- máh kosninganna. Aðrir flokkar vilja sem minnst um bandalagið tala enda standa fyrir dyrum erflðar við- ræður við það um fiskveiðimál. Þjóð- veldismenn vilja öðlast sérstöðu í færeyskum stjórnmálum sem eini flokkurinn með skýra aftöðu gegn Evrópubandalaginu en allir hinir flokkarnir segjast einnig vera á móti þannig færeyskir stjórnmálaský- rendur sjá litla atkvæðavon í Evr- ópuumræðunni. Ógætileg ummæli um EB Þó kann svo að fara að Þjóðarflokk- urinn tapi á ógætilegum ummælum'" eins frambjóðanda síns um Evrópu- bandalagið. Hér á í hlut Birgir Dani- elsen sem áður var einn helsti út- gerðarmaður og fiskverkandi í Fær- eyjum. Birgir hefur viðrað þá skoðun að Færeyingar ættu að ganga í Evr- ópubandalagið. Ekki er búist við að hlutur fær- eyskra kvenna verði stærri í stjórn- málunum eftir þessar kosningar en var fyrir. Aðeins 13,5% frambjóð- enda eru konur og það er bara í Sós- íalíska sjálfstæðisflokknum sem konur hafa fengið einhvern hljóm- grunn. Staða flokksins er hins vegar nánast vonlaus. Karin Kjölbro kom á þing fyrir Þjóðveldisflokkinn árið 1978 en hún hverfur nú af þingi. Nú eiga þrjár konur sæti á Lögþinginu og þær verða tæpast fleiri eftir kosning- arnar. Á liðnum árum hafa Færeyingar talið það sjálfsagða skyldu sína að kjósa og kjörsókn jafnan verið mjög mikil. í síðustu kosningum kusu 87,2% atkvæðisbærra manna en nú er því spáð að margir sitji heima og mótmæli á þann veg vanmætti stjórnmálamannanna til að leysa brýnustu mál Færeyinga. Ritzau EINDAGI STAÐGREIÐSLUFJÁR ER 15. HVERS MÁNAÐAR Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og reiknuðu endurgjaldi í hverjum mánuði. Með gírókerfi staðgreiðslu er unnt að greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. Eindagi staðgreiðslufjár er 15. hvers mánaðar. Munið að gera skil tímanlega! RÍKISSKATTSTJÓR!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.