Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990.
17
fþróttir
• Július Jónasson er annar markahæsti leik-
maður frönsku 1. deildarinnar.
Júlíus slæst við
Júgóslavana
- um markakóngstitilinn í frönsku 1. deildinni
Júlíus Jónasson, sem leikur meö
Paris Asnieres, er annar markahæsti
leikmaður í frönsku 1. deildinni í
handknattleik meö 47 mörk og er
aðeins einu marki á eftir Saracevic,
júgóslavneska landsliösmanninum
sem leikur með Bordeaux. Saracevic
þessi er vinstri handar skytta og hef-
ur oft gert íslenska landsliöinu skrá-
veifu meö sínum þrumuskotum. í
þriöja sæti er annar júgóslavneskur
landshösmaður, Isaakovic, en hann
'hefur skoraö 46 mörk.
Júlíus og félagar léku ekkert um
helgina vegna Evrópuleikja franskra
félagsliöa. Um fyrri helgi vann París-
arliðið mikilvægan sigur á Ivry,
18-19, í æsispennandi leik.
„Við vorum yfir mestallan tímann
og leiddum með 2-3 mörkum. Undir
lok leiksins jöfnuðu leikmenn Ivry
og komust yfir, 18-17, og hélt maður
þá að reynsluleysi okkar ungu stráka
ætlaði enn einu sinni að verða okkur
að falli en við náðum að skora tvö
síðustu mörkin og tryggja okkur sig-
ur,“ sagði Júlíus Jónasson í samtali
við DV.
Júlíus skoraði 5 mörk í leiknum
og var í strangri gæslu allan tímann.
Paris Asnieres er í 4. sæti í sínum
riðh en á leik til góða gegn meistur-
unum frá i fyrra, Nynies, á miðviku-
daginn. Sigri liðið í þeim leik hoppar
þaö um tvö sæti.
-GH
• Michael Gross hefur fengið frábæra tíma að undanförnu og er til alls líklegur á ný.
Albatrosinn aftur
kominn á fleygtferð
- Michael Gross aftur 1 þýska landsliðið
„Ég er mjög ánægður með árangurinn
sem ég náði á þessu móti og um leið vann
ég mér sæti í þýska landsliðinu í heims-
meistarakeppninni í Ástralíu," sagði „al-
batrosinn" Michael Gross, einn sterkasti
sundmaður allra tíma, eftir þýska meist-
aramótið í sundi sem lauk í Munchen á
sunnudaginn. Gross, sem er 26 ára að
aldri, hefur ekki náð sér á strik í langan
tíma vegna meiðsla en virðist vera á upp-
leið að nýju, Þjóðverjum til mikiÚar
ánægju.
Michael Gross sigraði í tveimur grein-
um, synti 100 metra flugsund á 54,07 sek-
úndum, sem er mjög góður tími og í 200
metra flugsundi á 1:59,06 sekúndum. Gross
er til alls vís á næstunni en hann hefur
verið að synda á frábærum tímum á æfing-
um.
Það bar einnig til tíðinda á mótinu að
stúlkurnar, sem áður syntu fyrir hönd
Austur-Þýskalands, náðu ekki tilskildu
lágmarki fyrir HM í Ástralíu og eru litlar
sem engar líkur á að þær vinni sér sæti í
landsliðinu sem keppir í Ástrahu. Þær sem
hér um ræðir eru heimsmeistararnir
Heike Friedrich og Astrid Strauss og tvö-
faldur Evrópumeistari, Anke Möehring.
-JKS
Erlendur þjálf ari
til Framara
í stað Gústafs?
- Gústaf Björnsson hættur sem þjálfari Fram
Gústaf Björnsson hætti í gær störf-
um sem þjálfari 1. deildar hðs Fram
í handknattleik karla en hann hefur
stýrt hðinu í hálft þriðja ár. Þorberg-
ur Aðalsteinsson landshðsþjálfari
mun verða Frömurum th aðstoðar
með þjálfun þar til eftirmaður Gú-
stafs er fundinn en samkvæmt heim-
hdum DV eiga Framarar i viðræðum
við þekktan erlendan þjálfara og
vonast th þess að geta samið við hann
th að minnsta kosti tveggja ára.
Handknattleiksdehd Fram sendi í
gær frá sér fréttatilkynningu þar sem
sagt var að þetta væri niðurstaða
viðræðna stjórnar deildarinnar og
Gústafs um helgina og bein afleiðing
af slæmri stöðu liðsins í 1. dehd.
Framarar sitja þar á botninum eftir N
10 umferðir, hafa ekki unnið leik og
eru aðeins með tvö stig.
Heimirmeð Fram-
liðiðgegn FH
Heimir Ríkharðsson, stjórnarmaður
í handknattleiksdeildinni, sem jafn-
framt er hðsstjóri Framliösins, mun
stýra því í næsta leik í 1. deildinni
gegn FH annað kvöld.
„Gústaf var ekki rekinn, hann opn-
aði umræðuna sjálfur og það varð til
þess að við fórum að skoða stöðuna
af fullri alvöru. Við sættum okkur
ekki við að sitja á botni deildarinnar
og ætlum að freista þess að bæta
stöðuna. Gústaf er mjög hæfur þjálf-
ari og hefur reynst félaginu mjög vel
1 aha staði og þetta var rosalega erfið
ákvörðun sem við verðum að standa
og falla með,“ sagði Heimir í samtah
við DV í gærkvöldi.
Sagðist hætta ef
vilji væri fyrir því
„Það er ekki rétt sem fram kemur í
tilkynningunni að þetta hafi verið
niðurstaða viðræðna. Eftir tapið
gegn Gróttu á laugardaginn tilkynnti
ég stjórnarmönnum að ef vilji væri
fyrir því að ég hætti með liöið myndi
ég hlíta því. Það væri i höndum
þeirra og leikmanna. í dag, mánu-
dag, höfðu þeir síðan samband við
mig og tjáðu mér að niðurstaðan
væri sú að ég myndi hætta með lið-
ið,“ sagði Gústaf í samtali við DV í
gærkvöldi.
Óbreytt lið glapræði
„Það liggja ýmsar ástæður á bak við
þennan slaka árangur liðsins en það
er fyrst og fremst ungt og reynslu-
laust. Þegar við unnum 2. dehdina í
fyrravor höfðu stjórnarmenn á orði
að það væri glapræði að tefla fram
óbreyttu hði í 1. deildinni í vetur en
síðan var ekkert gert til að styrkja
liðið,“ sagði Gústaf Björnsson.
-VS
Keppendur
voru73á
haustmótinu
Haustmót Júdósambandsins
fór fram um nýliðna helgi í
íþróttahúsi Kennaháskóla ís-
lands. Keppendur voru frá Ár-
manni, Júdófélagi Reykjavíkur,
KA og Ungmennafélagi Grinda-
víkur, samtals 73. Keppt var í 7
þyngdarflokkum yngri en 15 ára
og 6 þyngdarflokkum karla. Úr-
slit einstakra flokka urðu eftir-
farandi:
Drengir yngri en 15 ára, -25 kg
1. Sævar Jónsson, Ármanni
2. Bjarni Þ. Sigurjónsson, UMFG
3. Leon Hafsteinsson, UMFG
3. Birkir Hrafnsson, UMFG
-30 kg
1. Páll B. Sæþórsson, Ármanni
2. Kristinn Amberg, UMFG
3. Ármann Sveinsson, UMFG
3. Edgar Atlason, JR
-35 kg
1. Olafur Baldursson, JR
2. Bjarni Tryggvason, Ármanni
3. Bogi Hallgímsson, UMFG
3. Þorsteinn Davíðsson, Ármanni
-40 kg
1. Bergur Sigfússon, Ármanni
2. Sæþór Sæþórsson, Ármanni
3. Stefán I. Aðalbjömsson, Árm.
3. Guðfinnur Karlsson, UMFG
-45 kg
1. Magnús Ö. Sigurðsson, UMFG
2. Atli Hrafnsson, JR
3. Karl O. ísleifsson, UMFG
3. Teresa Vachunóva, JR
-50 kg
1. Atli Árnason, Ármanni
2. Egili Egilsson, Ármaimi
3. Atli Gylfason, Ármanni
+ 50 kg
1. Kári Agnarsson, Armanni
2. Ásgrímur Guðbjartsson, Árm.
3. Óskar Sigurðsson, Ármanni
Karlar -60 kg
1. Hilmar Kjartansson, UMFG
2. Jón Á. Brynjólfsson, Ármanni
3. Gígja Gunnarsdóttir, Ármanni
3. Eiður Birgisson, Ármanni
-65 kg
1. Baldur Stefánsson, KA
2. Jóhannes Hai-aldsson, UMFG
3. Þorvaldur Sturiuson, JR
3. Ólafur H. Þorgrimsson, Árm.
-71 kg
1. Stanislav Michalovski, UMFG
2. Jón K. Þórsson, JR
3. Karl Erlingsson, Ármanni
3. Tryggvi Gunnarson, Ármanni
-78 kg
1. Freyr Gauti Sigmtmdss., KA
2. Ómar Sigurðsson, UMFG
3. Sigurður Leví, Ármanni
3. Þór Þorsteinsson, Ármanni
-86 kg
1. Halldór Hafsteinsson, Armanní
2. Guðlaugur Halldórsson, KA
3. Jóhann G. Sigurösson, KA
3. Elías Bjamason, Ármanni
+ 86 kg
1. Bjarni Friðriksson, Ármanní
2. Torfi Ólafsson, KA
-GH
i vondu
lann hafi
ta hann.
„Búið að afhenda
Liverpool titilinn“
- Arsenal missir tvö stig og Manchester United eitt
„Kampavínsílöskurnar verða
opnaðar í Liverpool í kvöld. Við
erum það lið sem átti mesta mögu-
leika á að berjast við leikmenn Li-
verpool um meistaratitilinn í vetur
en nú er svo gott sem búið að af-
henda þeim titilinn,“ sagði David
O’Leary, hinn reyndi leikmaður
enska knattspyrnuliðsins Arsenal,
í gær.
Arsenal var í gær svipt tveimur
stigum í 1. dehdinni og Manchester
United einu af stjórn deildakeppn-
innar vegna slagsmálanna sem
brutust út á meðal leikmanna lið-
anna þegar þau mættust fyrir
skömmu. Þetta þýðir að Liverpool
er nú komið með átta stiga forskot
á Arsenal á toppi 1. deildar en sex
stig skildu liðin að áður. Félögin
hafa 14 daga frest til að áfrýja
dómnum.
Arsenal fékk þyngri refsingu en
United vegna þess að þetta var í
annað skiptið á einu ári sem leik-
menn liðsins taka upp á því að slást
inni á vellinum. Það gerðu þeir í
leik gegn Norwich á síðasta keppn-
istímabili. Þetta er í fyrsta skipti í
sögu ensku knattspyrnunnar sem
lið eru svipt stigum vegna agabrota
en áður hefur það gerst hjá liðum
sem ekki hafa mætt til leiks eða
teflt fram ólöglegum leikmönnum.
Þarf Leeds að leika
án áhorfenda
Svo kann að fara að Leeds þurfi að
leika næstu heipialeiki sína án
áhorfenda vegna óeirða stuðnings-
manna liðsins á útileik gegn Manc-
hester City á sunnudaginn. Leeds
fékk skhorðsbundinn dóm í fyrra-
vor eftir svipaða uppákomu í Bour-
nemouth og má því búast við
þungri refsingu í þetta skipti.
-VS
Handbolti
Víkingur - KR
Stórleikur 11. umferðar í
Laugardaishöll í kvöld
__________kl. 20.00._______
Handboltaunnendur
fjölmennum á leikinn.
ÁFRAM VÍKINGUR
sióváUíSaimennar
Nýtt félafi sterkar rætur