Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Side 25
ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990. 2 Sviðsljós Það var mikill mannfjöldi á bílauppboði Vöku og stemningin eins og best verður á kosið. DV-myndir GVA Bílauppboð Vöku: Þúsundkall fyrir Skóda Um síðustu helgi voru boðnar upp meira en áttatíu bifreiöir í bíla- geymslu Vöku á Smiðshöfða. Um 70 bílar seldust og var verðið allt frá 1.000 krónum fyrir ’84 árgerð af Skóda upp í 550.000 fyrir ’84 árgerð af Bronkó. Að sögn Steinars Más Gunnsteins- sonar, verkstjóra hjá Vöku, gæti Bronkóinn kostað í kringum milljón á bílasölu ef hann er í góðu lagi en það vita kaupendur ekki fyrirfram. Þeir eiga þess einungis kost að kaupa það sem þeir sjá og fá engar upplýs- ingar um innra ástand farartækj- anna. Kaupendur geta því allt eins keypt köttinn í sekknum jafnframt því að eiga möguleika á að gera reyf- arakaup. Steinar Már sagöi það mikið sömu mennina sem kæmu á uppboðin og byðu í bíla. Mest væru það bifvéla- virkjar, réttingamenn, sprautarar og ósköp venjulegir braskarar. Um 400 manns voru viðstödd upp- boðið um helgina og stemningin var eins og hún gerist best, að sögn Stein- ars Más. -H.Guð. Gamli draumurinn að eignast Bens þarf kannski ekki að vera svo fjarlæg- „Jú, jú, stýrið er á sínum stað og útiitið ekki sem verst.. ur eftir allt. Imelda Marcos, fyrrum forsetafrú á Filippseyjum, kom fyrir rétt þann 9. nóvember síðastliðinn. Þar fara fram vitnaleiðslur um hvort henni beri að láta af hendi gersemar að jafnvirði fimm milljarða dala sem hún og maður hennar, Ferdinand Marcos, eru sökuð um að hafa komið undan í forsetatíð Marcosar. Þarna er um að ræða ýmsar þjóðargersem- ar sem Filippseyingar telja að tiiheyri þjóðinni en þau hjón segja að sé ■ eigu þeirra sjálfra. Imelda Marcos dvelur nú í útlegð í Bandaríkjunum. Zsa Zsa Gabor „ætt- leiöir'' svertingja Oft hefur ungverska leikkonan Zsa Zsa Gabor gengið fram af nágrönn- um sínum en aldrei eins og nú. Nýlega „ættleiddi" hún svertingja- mæðgur sem hún kynntist þegar hún innti af hendi þegnskylduvinnu í kt'ennaathvarfi. Með Zsa Zsa og mæðgunum tókst, að leikkonunnar sögn, svo innileg vinátta að leikkonan ákvað að taka þær inn á villu sína í Hollywood þar sem hún býr með manni sínum, Prince Frederick von Anhalt. Ekki hefur frúin á bænum nú gert þetta eingöngu af tómri miskunn- semi því þær mæðgur vinna fyrir mat sínum og vel það. Þær þrífa hús- ið, elda mat og halda húsmóðurinni selskap, þannig að líkast til hefur Zsa Zsa hreinlega séð fram á að þarna næði hún í ódýrt vinnuafl. Tímar þrælahaldsins eru. greinilega ekki liðnir, en það skiptir höfuðmáli að allt sé gert undir réttum formerkjum. Zsa Zsa Gabor með „dætrum" sínum. Ólyginn sagði Rob Lowe er að stillast ef marka má yfirlýs- ingar hans sjálfs. Hann hefur nú lýst því yíir að dagar víns og rósa séu liðnir og nú helgi hann sig rólegri áhugamálum. „Ég er crðinn fullorðinn," segir Robbi. „Áður fyrr, meðan ég var unglingur, helgaði ég mig starfs- framanum af öllu hjarta á meðan jafnaldrar mínir slettu úr klauf- unum. Eftir að ég náði markmið- um mínum og var orðinn þekktur og eftirsóttur leikari tók ég út minn skammt af gleðinni sem ég fór á mis við þegar ég var að klifra upp á toppinn. Nú hef ég hins vegar náð því sem ég sóttist eftir en þegar ég fullorðnaöist og þroskaðist fór gildismat mitt að breytast. Nú nýt ég þess að eiga rólegar stundir,” segir þessi ókrýndi prins. Brooke Shields Japanir halda nú niðri í sér and- anum eftir að hafa komist á snoð- ir um að krónprins þeirra, hinn þrítugi Naruhito, sé að draga sig eftir bandarísku leikkonunni Brooke Shields. Þau ku hafa átt leynilega samfundi í Tokyo fyrir skemmstu og fregnir herma að vel fari á með þeim skötuhjúum. Prinsinn varð fyrst uppvís að áhuga sínum á Brooke árið 1985. Japönsk blöð birtu myndir úr herbergi hans hátignar í Oxford háskólanum. Þar mátti sjá stærð- arinnar plakat af leikkonunni ungu hangandi fyrir ofan hina konunglegu hvílu. Skömmu seinna birtust myndir af Brooke og prinsinum þar sem hann var í heimsókn í Princeton háskólanum í New Jersey, en Brooke stundaði þar nám. Hvort hér er á ferðinni nýtt Grace Kelly-ævintýri er ekki gott að segja en víst er að Japanir bíða spenntir eftir aö frétta nánar af ástarmálum prinsins og leikkon- unnar fallegu. Joan Collins var nýlega í viðtali á breskri sjón- varpsstöð. Eftir þáttinn settist hún makindalega í sófa í stúdíó- inu til að gefa ljósmyndurum og áhorfendum í sjónvarpssal tæki- færi til aö mynda sig. Þá stóð áttræð kona upp til að mynda leikkonuna frægu en ekki tókst betur til en svo að gamling- inn hnaut um koll og kútveltist eftir endilöngum salnum. Joan Collins þaut upp eins og flugeldur og stumraði yfir þeirri gömlu þar til hjúkrunarlið kom á vettvang. Það var síðar haft eftir gömlu konunni að hún væri hæstánægð með umhyggju Collins og að bylt- an sú arna hefði borgað sig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.