Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1990, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990. Afmæli Guðmundur Daðason Guömundur Daöason, fyrrv. bóndi á Ósi á Skógarströnd, Hraunbæ 152, Reykjavík, er níræður í dag. Starfsferill Guðmundur er fæddur á Dröng- um á Skógarströnd en ólst upp í foreldrahúsum aö Narfeyri í sömu sveit og síðan á Setbergi. Hann kynntist ungur öllum almennum sveitastörfum og vann á búi foreldra sinna og bróður á Setbergi uns hann kvæntist og var b. á Ósi 1933-1968. Guðmundur flutti til Reykjavíkur 1968 og vann í Gúmmísteypu Þor- steins Kristjánssonar. Guðmundur og kona hans hafa verið á Ósi flest sumur fram til þessa. Guðmundur var í hreppsnefnd Skógarstrandar- hrepps um árabil og var oddviti eitt kjörtimabil. Hann var gjaldkeri búnaðarfélags sveitarinnar og deildarstjóri í kaupfélagsdeild Skóg- arstrandar um árabil. Þá var Guö- mundur formaöur sjúkrasamlags- insáannanáratug. Fjölskylda Guðmundurkvæntist22.júlí 1933 Sigurlaugu Jónsdóttur, f. 10. júlí 1908, d. 5. maí 1990. Foreldrar Sigur- laugar eru: Jón Loftsson, b. á Keis- bakka á Skógarströnd, og kona hans, Þórunn Magnúsdóttir ljós- móðir. Guðmundur og Sigurlaug eignuð- ust fimm börn sem öll eru á lífi. Þau eru Þórir, f. 21. júlí 1934, skrifstofu- maður í Reykjavík, kvæntur Hlíf Samúelsdóttur og eiga þau fimm börn, auk þess sem hún átti eitt barn frá því áður; María, f. 9. janúar 1936, starfsmaður hjá Sparisjóði Borgarness, gift Braga Jósafatssyni verslunarmanni og eiga þau fjögur börn; Daníel Jón, f. 1. júní 1937, skip- stjóri í Stykkishólmi, kvæntur Kol- brúnu Gunnarsdóttur ogeiga þau fimm börn; Ásdís, f. 11. mars 1940, gift Rögnvaldi Jónssyni leigubíl- stjóra í Reykjavík, og eiga þau eina dóttur, auk þess sem Ásdís átti tvö börnfrá því áður; Auöur, f. 17. maí 1946, gift Sólmundi Jónssyni, kenn- ara í Reykjavík og fyrrv. skólastjóra á Stöðvarfirði, og eiga þau fjögur börn. Guðmundur átti fjórtán systkini Þau eru: Katrín, gift Birni Kristjáns- syni á Straumi en þau eignuðust fimm börn; Kristín, lést nýfædd; Ingibjörg, gift Sigurði, hreppstjóra í Stykkishólmi, og eignuðust þau fimm dætur, en Ingibjörg lést hundrað og þriggja ára og Sigurður var hundrað ogfjögurra ára er hann lést; Valdimar, lést í barnæsku; Ing- ólfur, var lengi verkstjóri hjá All- iance í Reykjavík, kvæntur Lilju Halldórsdóttur og eignuðust þau sjö börn; Theodóra, lést fjögiirra ára; Sesselja, gift Klemens Samúelssyni, kennara á Gröf í Miðdölum; Sigurð- ur, var lengi verkamaður í Keflavík; Theodóra, gift Ólafi Jónssyni frá Elliðaey en þau eignuðust einn son; Valdimar, var tollþjónn í Reykjavík, kvæntur Ragnheiöi Erlendsdóttur en þau eiguðust tvo syni; Kristín, lést uppkomin; Jón, b. í Miðhúsum í Reykhólasveit, en fyrri kona hans var Petrína Halldórsdóttir og eign- uðust þau þrjú börn og síðari kona hans var Ingibjörg Árnadóttir og eignuðust þau eina dóttur; Ólafur, húsgagnabólstrari í Reykjavík, kvæntur Guðnýju Guðjónsdóttur en þau eignuðust fiögur böm. Ætt Foreldrar Guðmundar voru Daði Daníelsson, b. á Setbergi og víðar á Skógarströnd, en hann lést 1939, og kona hans, María Magdalena And- résdóttir, f. í Flatey á Breiðafirði 1859, en hún var hundrað og sex ára er hún lést og mun er best er vitað hafa orðið þriðji elsti íslendngurinn. Systur Maríu voru hinar þjóðkunnu skáldkonur, Herdís og Ólína. Daði var sonur Daníels, b. í Litla- Langa- dal á Skógarströnd, Sigurðssonar, b. í Litla-Langadal, Sigurðssonar, b. hreppstjóra og skálds í Litla- Langadal, Daðasonar, b. á Leiti á Skógarströnd, Hannessonar. Móðir Sigurðar Sigurðssonar var Þorbjörg Sigurðardóttir, b. á Setbergi, Vigfús- sonar. Bróðir Þorbjargar var Sig- urður stúdent, langafi Elíasar, afa Elíasar Snælands Jónssonar, að- stoðarritstjóra DV. Sigurður var einnig langafi Steinunnar, ömmu Þorsteins Jónssonar í Líf og sögu. Systir Daníels var Þorbjörg, lang- amma Guðbergs, föður Jóns, for- manns Átaks gegn áfengi og öðrum vímuefnum, og Þóris, ellimálafull- trúa Reykjavíkurborgar. Móðir Daníels var Ingibjörg Daðadóttir, systir Sigurðar skálds. María var dóttir Andrésar í Flatey Andréssonar í Flatey Björnssonar. Móðir Andrésar Andréssonar var Guðrún. Systir Guðrúnar var Þóra, móðir Matthíasar skálds Joch- umssonar. Bróðir Guðrúnar var Guðmundur, prestur á Kvenna- brekku í Miðdölum, en María Daða- dóttir ólst upp hjá honum. Dóttir Guömundar og uppeldissystir Mar- íu var Ásthildur, kona Péturs Jens Guðmundur Daðason. Thorsteinssonar, kaupmanns ogút- gerðarmanns á Bíldudal, móðir Muggs og Katrínar Briem, móður Péturs Thorsteinssonar sendiherra. Guðrún var dóttir Einars, b. í Skál- eyjum, Ólafssonar og konu hans, Ástríðar Guðmundsdóttur. Móðir Ástríðar var Guðrún Eggersdóttir, b. í Hergilsey, Ólafssonar. Móðir Maríu var Sesselja Jóns- dóttir frá Djúpadal, systir Sigríðar, móður Bjöms Jónssonar, ráðherra og ritstjóra, föður Sveins Bjömsson- arforseta. Guðmundur tekur á móti gestum í sal Stangaveiðifélagsins, Háaleitis- braut 68, laugardaginn 17. nóvemb- er kl. 15-19. Ami Bergmann Pétursson Árni Bergmann Pétursson raf- virkjameistari, Tjamarlundi 15H, Akureyri, er fertugur í dag. Starfsferill Árni fæddist á Skeggjastöðum í Skeggjastaðahreppi í Norður-Múla- sýslu og ólst upp á Bakkafirði og á Skeggjastöðum. Hann stundaði raf- virkjanám viö Iðnskólann á Akur- eyri og lauk þaðan prófum. Árni hefur veriö búsettur á Akur- eyri frá 1968 að undanskildum árun- um 1973 og ’74 er hann bjó á Þórs- höfn. Hann hefur stundað raf- magnseftirlitsstörf á vegum RARIK og er formaður Félags rafverktaka á Norðurlandi, frá 1987. Fjölskylda Árni kvæntist 25.8.1973 Oddnýju Hjaltadóttur, f. 26.5.1952, húsmóður, dóttur Hjalta Sigurðssonar og Ingi- bjargar Kristjánsdóttur, fyrrv. bændahjóna að Hjalla í Blönduhlíð í Skagafirði. Árni og Oddný eiga þrjú börn. Þau eru Hugrún Arnadóttir, f. 23.7.1973; Inga Sigríður Árnadóttir, f. 3.11. 1981, og Pétur Bergmann Árnason, f.27.4.1983. Árni á fimm bræöur. Þeir eru: Kristinn Pétursson, f. 12.3.1952, al- þingismaöur á Bakkafirði, kvæntur Hrefnu Sigrúnu Högnadóttur og eiga þau tvö börn; Bjartmar Péturs- son, f. 14.12.1954, framkvæmdastjóri í Hafnarfirði, kvæntur Aðalheiði Björnsdóttur og eiga þau þrjú börn; Baldur Pétursson, f. 11.1.1958, deild- arstjóri í iðnaðarráðuneytinu í Reykjavík, kvæntur Salóme Herdísi Viggósdóttur og eiga þau eitt barn; Brynjar Bergmann Pétursson, f. 3.3. 1961, útgerðarmaður á Bakkafiröi, kvæntur Svanhildi Káradóttur, og Ómar Pétursson, f. 9.4.1969, stúd- ent, búsettur á Bakkafirði. Foreldrar Árna: Pétur Bergmann Árnason, f. 8.5.1924, rafveitustjóri á Bakkafirði, og kona hans, Sigríður Guðmundsdóttir, f. 24.7.1929, d. 29.11.1989, húsmóðir á Bakkafirði. Ætt og frændgarður Pétur var sonur Árna, útvegsb. í Höfn í Bakkafirði, Friðrikssonar, b. á Hafursstöðum í Þistilfiröi, Einars- sonar. Móðir Friðriks var Ásta, syst- ir Guðrúnar, langömmu Kristjáns frá Djúpalæk. Ásta var dóttir Benja- míns, b. í Kollavíkurseli, Ágústínus- sonar í Múla, Jónssonar, b. á Arn- dísarstöðum, Halldórssonar, bróður Jóns, afa Jóns Sigurðssonar á Gautlöndum, langafa Jóns Sigurðs- sonar ráðherra. Móðir Árna var Guðrún Árnadóttir, b. á Mel, Jóns- sonar og konu hans, Rannveigar Gísladóttur, b. í Höfn, Vilhjálmsson- ar. Móðir Gísla var Hallný Gísla- dóttir, b. í Strandhöfn, Jónssonar. Móðir Gísla í Strandhöfn var Elísa- bet Jónsdóttir, b. í Geitavík, Árna- sonar. Móðir Jóns var Ingibjörg Jónsdóttir, „Galdra-Imba“. Móðir Péturs írar Petrína Péturs- dóttir, b. í Dalshúsum, Sigurðsson- ar, bróður Hólmfríðar, ömmu Gunnars Gunnarssonar skálds. Bróðir Péturs í Dalshúsum var Jón, afi Jóns Gunnlaugssonar, læknis á Seltjarnarnesi. Móðursystir Árna er Guðríður, skólastjóri og oddviti á Bakkafiröi. Sigríður var dóttir Guömundar Kristins, b. í Kolsholtshelli í Flóa, Sigurjónssonar, b. í Moldartungu í Holtum, Daníelssonar, b. í Kaldár- holti, Jónssonar. Móðir.Daníels var Sigþrúður Daníelsdóttir, systir Guð- rúnar, langömmu Guðmundar Daníelssonar rithöfundar. Móðir Sigríðar var Marta, systir Valdimars, afa Haralds Jóhanns- sonar hagfræðings. Marta var dóttir Brynjólfs, b. á Sóleyjarbakka í Hrunamannahreppi, Einarssonar, b. á Sóleyjarbakka, bróður Matthí- asar, föður Rósu, langömmu Jónu Gróu Sigurðardóttur borgarfulltrúa og Ásgeirs Friðjónssonar fíkniefna- dómara. Einar var sonur Gísla, b. á Sóleyjarbakka, Jónssonar, b. á Spóastöðum, Guðmundssonar, b. á Kópsvatni, Þorsteinssonar, ættföð- ur Kópsvatnsættarinnar, langafa Magnúsar, langafa Ásmundar Guð- Arni Bergmann Pétursson mundssonar biskups og Sigríðar, móður Ólafs Skúlasonar vígslubisk- ups. Móðir Mörtu var Guðríður Eyjólfsdóttir, systir Ingunnar, ömmu Boga Ingimarssonar hrl., en önnur systir Guðríðar var Valgerð- ur, amma Ólafs Ketilssonar. Tekið verður á móti gestum þann 13.11. frá klukkan 20.00-23.00 í Lóni við Hrísalund á Akureyri. Hansína Einarsdóttir Hansína Einarsdóttir, Engjavegi 29, ísafirði, er fimmtug í dag. Hansína fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð en fór á ööru ári í fóst- ur í Hnífsdal og ólst þar upp. Fjölskylda Kjörforeldrar Hansínu voru Einar Steindórsson, f. 20.8.1896, d. 6.2. 1982, framkvæmdastjóri ogoddviti í Hnífsdal, og Ólöf Magnúsdóttir, f. 24.11.1909, d. 18.2.1968, húsmóðir frá Hóli í Bolungarvík. Eiginmaður Hansínu er Kristján K. Jónasson, f. 19.11.1934, húsa- smíðameistari og framkvæmda- stjóri, en foreldrar hans voru Jónas Guðjónsson og Jóna P. Siguröar- dóttir. Böm Hansínu og Kristjáns eru Einar Valur, f. 9.1.1957, húsasmíða- meistari og byggingaverktaki á ísafirði, kvæntur Guörúnu Aspe- lund, f. 10.1.1961, og eiga þau saman tvö börn, Karl, f. 30.9.1984, og Agn- esi Kristínu, f. 5.7.1988, auk þess sem Einar á dóttur frá því fyrir hjónaband, Hönnu Lísu, f. 13.11. 1979; Kristinn Þórir, f. 13.1.1958, húsasmíðameistari og skrifstofu- stjóri á ísafirði, kvæntur Berglindi Ólafsdóttur, f. 28.11.1962, og eiga þau tvær dætur, Ömu Ýr, f. 11.4. 1982, og Ingu Rut, f. 18.10.1987; Steinar Orn, f. 6.3.1960, húsasmíða- meistari í Noregi, kvæntur Maríu Valsdóttur, f. 9.12.1956, og eiga þau saman tvö börn, Kristján Jóhann, f. 1.7.1983, og Tómas Hauk, f. 25.12. 1987, auk þess sem María á tvö börn frá því áður, Söndru, f. 25.11.1973, og Val Björn, f. 2.9.1976; Ólöf Jóna, f. 6.10.1961, stúdent, búsett í Frakk- landi, gift dr. Björgvini Hjörvars- syni, f. 15.10.1958, kjarneðlisfræð- ingi, og eiga þau þrjú börn, Einar Örn, f. 2.1.1983, Margréti, f. 16.8. 1986, og Hönnu Báru, f. 22.3.1990; Guðmundur Annas, f. 27.5.1964, nemi í tölvunarfræðum í Svíþjóö, kvæntur Svanhildi Ósk Garðars- dóttur, f. 24.7.1966, en dóttir þeirra er Geröur, f. 13.9.1985. Hálfsystkini Hansínu, sammæðra, eru Margrét, f. 21.4.1945, d. 1.3.1987, en hún átti þrjú börn; Anna, f. 21.6. 1946, gift Gísla Snorrasyni frá Esju- bergi, og eiga þau tvo syni; Magnús, f. 25.7.1949, kvæntur Eygló Guðjóns- dóttur og eiga þau eina dóttur, og Þórdís, f. 26.11.1955, d. 3.1.1957. Hálfsystkini Hansínu, samfeöra, eru Jón Árni, f. 16.5.1943, og á hann tvö börn; Sigrún Lilja, f. 23.1.1954; Hjörtur, f. 14.8.1956, kvæntur Ingi- björgu Magnúsdóttur og eiga þau þrjú böm; Ásta,*f. 22.10.1957, og á hún eitt barn. Fósturbróðir Hansínu Hansína Einarsdóttir. er Guöjón Ágúst Jónsson, f. 29.8. 1944, kvæntur Birnu Geirsdóttur og eigaþaufjögurbörn. Foreldrar Hansínu: Jósíana Sig- ríður Magnúsdóttir frá Bolungar- vik, f. 26.11.1919, ogHjörtur Jóns- son, f. 5.2.1920. Jósíana er dóttir Hansínu Jóhann- esdóttur frá Súgandafirði og Magn- úsar Kristjánssonar formanns. Hjörtur er sonur Sigrúnar Jóns- dóttur og Jóns Hjartarsonar, kaup- manns í Hafnarfirði. Tilli n * umn 2111 fflvO olfflÆllO IJi I lOVcfflDcl 85 ára 50 ára Sigrún Gunnlaugsdóttir, Víöílundi 14E, Akureyri. 80 ára Sigríður Óskarsdóttir, Móabarði 12B, Hafnarfirði. ÞráinnPálsson, Heiðarbrún 67, Hveragerði. Kristinn Sigmundsson, Þingvallastræti 29, Akureyri. 40 ára 75 ára Bragi Agnarsson, Asparfelli 10, Reykjavík. Jóhann Þorkelsson, Brekkustíg 11, Sandgerði. 70 ára Guðrún Eyjólfsdóttir, Yrsufelli 13, Reykjavík. 60 ára Gerða Pálsdóttir, Gránugötu 20, Siglufirði. Kristin Auðunsdóttir, Kleifarseli 31, Reykjavík. Kristín Þóra Sverrisdóttir, Heiðnabergi 14, Reykjavík. Sigurður Reynir Þórarinsson, Leirutanga 39B, Mosfellsbæ. Baldur Garðarsson, Álfaheiði 11, Kópavogi. Elín Rögnvaldsdóttir, Lindarseli 7, Reykjavík. Stefania Eygló Aðalsteinsdóttir, Suðurengi3, Selfossi. Gunnar Halldórsson, Löngumýri2, Garðabæ. Gunnar Þorsteinsson, Dverghömrum 24, Reykjavík. Bryndís Magnúsdóttir, Túngötu 11, Seyðisfirði. Rut Agnarsdóttir, Grettisgötu 3, Reykjavik. Sara Guðfinna Jakobsdóttir, Heiðmörk 9, Stöðvarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.