Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1990, Blaðsíða 32
 E Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjalst, óháÖ dagblað FOSTUDAGUR 21. DESEMBER 1990. Stálbræðslan: Sprenging í háspennu- herbergi Mikil sprenging varð í háspennu- herbergi í bræðsluhúsi stálbræðsl- unnar í Hafnarfjaröarhrauni í gær- morgun. Sprengingin var svo öflug að um 25 fermetra hlaðinn útveggur herbergisins þeyttist út í heilu lagi og fór í mél. Engin slys uröu á mönn- um en veggurinn féll þar sem lítið er um mannaferðir, á bak við stál- bræösluna. Veggir inn í bræðsluna héldu. Orsök sprengingarinnar má rekja til bilunar í olíufylltum aflrofa. Við bilunina hefur myndast neisti og valdið sprengingunni. Aö sögn Páls Halldórssonar, fram- kvæmdastjóra íslenska stálfélagsins hf., varð tjónið af völdum sprenging- arinnar ekki umtalsvert. Búnaður- inn, sem bilaði, er í ábyrgð framleið- anda og fæst því bættur. Umræddur rofi hleypir spennu á ofnspenninn en starfsemi bræðslunnar truflaðist aðeins lítils háttar við sprenginguna. Aðspurður sagði Páll þessa bilun og rafmagnstruflanir í Hafnarfirði vera tvö alls óskyld mál. -hlh Forsætisráðherra: Vonbrigði Vatn lak inn í Listasaf nið Vatn lak niður á.gólf í anddyri Listasafns íslands í nótt. Mikill krapi safnaðist fyrir í nótt á þakinu við samskeyti á milli gler- byggingar og kaffistofu. Viðvörunar- keríl fór í gang þegar vatn fór að leka inn í bygginguna. Að sögn lögreglu- þjóns, sem kom fyrstur á staðinn, „bunaöi" vatnið niður. Kallað var á starfsfólk sem hófst handa við að þurrka upp. Að sögn Beru Nordal forstöðu- manns hefur áður lekið inn í húsið en í morgun var um óvenjumikinn leka að ræða. Hún sagði að skemmd- ir hefðu ekki orðið á listaverkum. -ÓTT LOKI Agalegaerþettaþing þreytandi, ég verð að segja það! Dómur í máli fimmmenninganna sem struku af Litla-Hrauni í vor: Sýknaðir af ákæru um samantekin ráð Fimm menn, sem struku úr fang- elsinu á Litla-Hrauni 3. apríl síðast- liðinn, voru sýknaðir í Sakadómi Reykjavíkur af ákæru um að hafa sammælst um aö strjúka af vinnu- hælinu. Ekki þótti sannað að um samantekin ráð hefði verið að ræða. Strok úr fangelsí er ekki refsivert nema ef slikt sannast. Dóminn kvað upp Arngrímur ís- berg sakadómari. Fimmmenningarnir voru á hinn bóginn allir sakfelldir og dæmdir til að greiða skaðabætur fyrir að hafa stolið bíl á Stokkseyri og ekið honum til Reykjavíkur þar sem lögregla handtók flóra þeirra. Fimmta manninum tókst að flýja í hús í Breiðholti en hann gaf sig fram skömmu síðar. Mennirnir hafa aliir komið margoft við sögu sakamála. Siötti maðurinn i málinu, sem var í Reykíavík þegar fangarnir struku, var sakfelldur og dæmdur til að greiða 25.000 krónur í ríkis- sjóð, fyrir aö hafa farið ásamt unn- ustu eins fangans áleiðis til Stokks- eyrar til að aðstoða fimmenning- ana. Við yfirheyrslur fyrir dómi báru fangarnir ýmist fyrir sig minnis- leysi vegna ölvunar þegar strokið fór fram, þeir hafi „bara iúst“ af tilviljun í hesthúsi nálægt fangels- inu eftir að þeir struku, og einn bar fyrir dómi að „flótti hans hefði ver- ið af tilviljun“. Við yfirheyrslur í sakadómi bar einn mannanna að hann hefði sammælst við tvo fanga um að strjúka. Þegar samprófun fór fram bar hann hins vegar fyrri framburð um hin samanteknu ráð til baka. Samkvæmt ákæru áttu mennirn- ir að hafa hist í klefa eins mann- anna um kvöldið, lokað honum með hespu innanfrá, losað um rúðu og rimla fyrir glugga og klifrað nið- ur eftir .öðrum gluggarimlum á húsinu rúma 5 metra niður á jörð. Mennirnir fóru inn i nálægt hest- hús en tveir þeirra héldu síðan til Stokkseyrar þar sem annar þeirra tók bíl traustataki. Fimmmenning- amir fóru allir í honum til Reykja- vikur um nóttina. Lögreglan hafði fyrr um nóttina handtekið sjötta manninn og unn- ustu eins fangans er þau vom á leið til Stokkseyrar að aðstoða fangana. Lögreglan varð vör við bíl fanganna við Rauðavatn um klukk- an 5 um morguninn og veitti hon- um eftirför að hesthúsumun í Víðidal. Þar yfirgáfu mennimir bil- inn. Lögregla handtók flóra þeirra strax en sá fimmti gaf sig fram síð- ar. Strokufangarnir eru nú allir á Litla-Hrauni þar sem þeir afplána sína dóma aúk hegningarauka vegna ýmissa afbrotamála sem dæmt var í samtimis ofangreindri ákæru. -ÓTT Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra segir að .verði afkoma bankanna jafngóð og margir spá að hún verði sé nafnvaxtahækkun Bún- aðarbanka og sparisjóðanna núna ein versta aðför að þjóðarsáttinni sem gerð hefur veriö. „Ég er ekki að mæla meö því að bankar séu reknir með tapi eða geng- ið sé á eiginíjárstöðu þeirra. En vit- anlega verða bankarnir, eins og aðr- ir,aöhaldaaðsérhöndum.“ -JGH Guðni Ágústsson: Steingrímur er mikill Það er ekki þrautalaust að sitja á Alþingi síðustu dagana fyrir jólaleyfi. Fundir hafa staðið frá því snemma á morgnana og langt fram á nótt. Öðruvísi hefði ekki tekist að afgreiða þau mál sem afgreiða varð. Þar ofan í kaupin hafa verið annir hjá ráðherrum við að semja um þetta og hitt, bæði innbyrðis og við stjórnarandstöðuna. Það er því ekki nema von að forsætisráðherra sé orð- inn þreyttur enda hefur mest á honum mætt. DV-mynd GVA „Ég er mjög undrandi á orðum for- sætisráðherra. Steingrímur er geysi- lega mikill íþróttamaður. Eins og gengur með mikla íþróttamenn kem- ur þaö fyrir að í góðum málum gangi þeir of langt. Þannig er það í þessu máli. Það er gjörsamlega eins og Steingrímurvviti ekki hvað nafn- vextir eru. Ég fæ raunar ekki betur séð en að Guðmundur J. hafi ært hann út af brautinni." Þetta sagði Guðni Ágústsson, þing- maður Framsóknarflokksins'á Suð- urlandi og formaður bankaráðs Búnaðarbankans, um óvenjuharða gagnrýni Steingríms Hermannsson- ar forsætisráðherra á bankaráð Bún- aðarbankans eftir vaxtahækkun bankans í gær. Guöni segir ennfremur að í þjóðar- sáttinni sé þess beinlínis krafist af bönkunum að það ríki jafnræði á milli óverðtryggðra og verðtryggðra kjara bankanna. Nafnvaxtahækkun- inni núna sé fyrst og fremst ætlað að jafna þennan mun. „Þess vegna vísa ég þessum orðum Steingríms á bug og finnst það mjög alvarlegt að forsætisráðherra viti ekki hvað nafnvextir eru.“ -JGH Veðrið á morgun: Éljagangur sunnan-og vestanlands Á morgun verður sunnan- og suðvestanátt, nokkuð stíf vestan- lands en kaldi norðaustanlands. Kalt er í veðri og éljagangur sunnanlands og vestan en létt- skýjaö á Noröur- og Austurlandi. Frost verður á bilinu 1 til 6 stig, kaldast norðanlands. D'OR f $ V f 4 f i 4 f f f f 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.