Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1991, Blaðsíða 3
' ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1991.
3-
Fréttir
Nú vilja tryggingafélögin stórhækka slysatryggingu ökumanna:
Þrefaldast iðgjöldin
á aðeins þremur árum?
- um 90 prósenta hækkun gæfi félögunum tæplega 700 miiljónir í auknar tekjur
Um áramótin hækkuðu iðgjöld af fasteignatryggingum um allt að 48,5%,
af húseigendatryggingum um allt að 40% og almennum slysatryggingum
um 10% að meðaltali. Nú er komiö að stórhækkun á slysatryggingu öku-
Bifreiðaeigendur mega búast við
að tryggingafélögin hækki slysa-
tryggingu ökumanns og eiganda um
allt að 90% á næstunni. Þau hafa
þegar óskað eftir hækkun til Trygg-
ingaeftirlitsins og er búist við að það
verði við þessum beiðnum á næst-
unni.
Samkvæmt upplýsingum frá Bif-
reiðaskoðun íslands eru um 120 þús-
und fólksbílar og um 10 þúsund vöru-
og fólksflutningabifreiðar á landinu.
Ef af hækkuninni verður mun hún
því þýða hátt í 700 milljónir í auknar
tekjur fyrir tryggingafélögin á árinu.
Þrefaldast iðgjaldið frá 1988?
Tryggingin var sett á með lögum
1. mars 1988 og hefur iðgjaldið verið
hækkað í tvígang síðan þá, eða um
16,5% 1989 og 15% 1990. Verði af
umræddri hækkun nú hefur gjaldið
þvi þrefaldast frá því lögin tóku gildi
þann 1. mars 1988. Þá var gjaldið um
3200 krónur en yrði rúmlega 10 þús-
und krónur eftir hækkun. Miðað við
þróun launavísitölu frá því lögin
tóku gildi ætti gjaldið að vera um
4300 krónur en er í dag um 5700 krón-
ur.
Að sögn Ágústs Karlssonar, for-
stjóra Tryggingar hf., er 70 til 80%
hækkun á þessum slysatryggingum
ökumanna og bifreiðaeigenda síður
en svo of há. Hann segir að þegar
lögin voru sett haíi menn ákveðið
iðgjaldið í blindni og að í ljós hafi
komið að útreikningar sérfræðinga
þá voru vitlausir.
„Þó það sé óvinsælt að segja það
þá þyrfti hækkunin að verða minnst
90% til að rétta af tapið hjá okkur
vegna þessarar tryggingar sem við
vorum látnir taka að okkur með lög-
um.“
Aukning á slysum í umferð-
inni
Að sögn Ragnars Ragnarssonar,
deildarstjóra hjá Tryggingaeftirlit-
inu, hefur orðið mikil aukning á slys-
um í umferðinni þó svo að fjöldi bif-
reiðaóhappa hafi ekki aukist í sama
mæli.
Hann segir að miðað við allt árið
1988 hafi samtals 952 öðlast rétt til
bóta vegna þessarar tryggingar, en á
árinu 1989 hafi sú tala verið komin
upp í 1113 einstaklinga. Á síöasta ári
reyndust hins vegar 1323 hafa öðlast
rétt til þessara bótagreiðslna. Með
öðrum orðum, aukningin á fjölda
bótagreiðslna hefur verið milh 17 og
18% á ári eða samtals um 40%.
Ragnar segir að á árunum 1988 og
1989 hafi tryggingafélögin aUs inn-
heimt um 1310 milijónir í slysatrygg-
ingu ökumanns og eiganda en á sama
tíma þurft aö taka að sér greiðslu á
tæplega tveim milljörðum í bætur.
Hann segir því ljóst að félögin hafi
orðið að taka á sig umtalsvert tap
vegna þessarar tryggingar.
Miklar hækkanir á öllum svið-
um.
En þessar hækkanir eru ekki þær
einu hjá tryggingafélögunum. Um
áramótin hækkuðu þau iðgjöld af
fasteignatryggingum um allt að
48,5%, af húseigendatryggingum um
allt að 40% og almennum slysatrygg-
ingum um 10% að meðaltali. Þá hafa
mörg féláganna breytt skilmálum
heimilistrygginga og til dæmis
hækkað tryggingalágmarkið veru-
lega. í sumum tilfellum hafa þessar
breytingar falið í sér allt að helmings
hækkun á iðgjöldum.
Ekki er ljóst á þessari stundu hvort
tryggingafélögin muni hækka iðgjöld
af ábyrgðartryggingum á bifreiðum
á næstunni. Margir telja þó óhjá-
kvæmilegt að hækka þessar trygg-
ingar um allt að 10% til að mæta tapi
af þeim. Ekki er þó talið brýnt að
fara út í þessa hækkun enda vegur
hagnaður tryggingafélaganna af
kaskótryggingum þetta tap upp að
stórum hluta.
-kaa
Baðstrandaferðir
í gæðaflokki og á
gæðaverði
Flogið alla þriðjudaga
frá 28. maí-11. sept.
Með þotuflugi Flugleiða/Balkan Airlines. Kef-Lux-Var (dagflug)
Gistingar: 28. maí 18. júní-4. sept. 4. sept.
Grand Hotel Varna 72.000 83.500 77.000
Dobrudsja Hotel 61.000 72.500 66.000
Slavianka Hotel 58.000 68.000 63.000
Bratislava Hotel 55.000 63.000 60.000
Villa Jug (sumarhús) 55.000 60.000 60.000
Innifalið flug, gisting, morgunmatur, leiðsögn, akstur frá flugv. á hótel
fram og til baka. Verð miðað við 24. jan. '91.
Augnlækningar, tannlækningar.'heilsurækt.
Skoðunarferðir innanlands og utan.
Uppbót á gjaldeyri. Barnaafsláttur að 12 ára aldri.
Tekið á móti pöntunum á skrifstofu okkar.
Opið alla virka daga 8-17 og laugardaga 9-12.
Pantið tímanlega.
Fá sæti í hverri ferð.
Lærið ensku
í Englandi
Við bjóðum upp á enskukennslu í Harrow House, Swanage, suðurströnd
Englands, skammt frá Bournemouth. Hægt er að fara alla sunnudaga í flugi
frá Keflavik - London. Nemendur eru sóttir á flugvöll. Gist er á heimilum eða
i skólanum (heimavist fyrir unglinga). Boðið er upp á kennslu í ensku 30 tíma
á viku. Verð í 4 vikur 102.870,-.
Enskukennslu til undirbúnings prófum í ensku, 15 vikur. Verð kr. 296.580,-.
Enskunám og íþróttir (golf - tennis - veggbolti), ennfremur enskunám fyrir
unglinga, yngri en 16 ára, á páskum og 22.06.-7.09.
Hægt að dveljast eins lengi og hver óskar.
Innifalið í verði: Flug, gisting. Fæði hálft frá mánudegi-föstudags. Fullt um
helgar. Kennsla, námsbækur, þátttaka í iþróttaklúbbi Harrow House, tölvuað-
stoð við nám.
Úll umönnun og læknisþjónusta. Verð er miðað við gengi og flugverð 24.
jan. 1991.
Við sendum enska bæklinga og lánum myndbönd.
Seljum allar tegundir
farseðla, útvegum hótel,
lesta- og skipafarmiða.
Viðurkennd I.A.T.A.
skrifstofa - tölvuvædd.
Ferðaskrifstofa
Kjartans
Helgasonaf
Gnoðarvogi 44-104 Reykjavik-Simi 91-68 62 55
Simnefni: Istravel - Telex 6504016294 MCI UW
FAX-91-688518
Kanaríeyjar alla mánudaga - miðvikudaga - föstudaga. Fiogið samdægurs um London með Fiugieiða-
þotu - Iberia Airbus. Koka Studio eða íbúðir. Verð: 3 vikur, 79.000 (studio), 88.500 (íbúðir) miðað v. 2. Hægt að vera
allt að 2 mánuðum og stoppa í London.