Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1991, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1991.
9
Utlönd
Alvara gerð úr hótunum um að skýlast á bak við stríðsfanga:
írakar segja f angana
sára eftir loftárásir
- Bandaríkjamenn saka Saddam Hussein um stríðsglæpi
írakar segja aö stríösfangar, sem
þeir hafa í haldi, hafi særst í loftárás-
um bandamanna á landið. írakar
hafa áður hótað að nota stríðsfanga
sem „mannlegan skjöld“ við hernað-
arlega mikilvæga staði. Engin stað-
festing hefur fengist á að þeir hafi
gert alvöru úr þessum hótunum sín-
um fyrr en nú ef rétt reynist að fang-
arnir hafi verið hafðir í haldi við
skotmörk baridamanna í írak.
Það var útvarpið í Bagdad sem lét
fréttina um stríðsfangana frá sér
fara. Þar var ekki sagt hverrar þjóð-
ar hinir særðu væru, aðeins að um
væri að ræða flugmenn, sem skotnir
hefðu verið niður yfir írak síðustu
daga. írakar eru með bandaríska,
hreska og ítalska flugménn í haldi.
í frétt útvarpsins sagði að nokkrir
flugmenn hefðu særst í árásum
bandamanna á almenna borgara í
landinu. Þá var tekið fram að ekki
væri vitað hvort nokkur flugmann-
Þannig hugsa menn sér vigstöðu Saddams Hussein í skjóli stríðsfanga.
anna hefði látið lífið.
Tuttugu og sjö flugmanna banda-
manna er nú saknað frá því gagn-
sóknin gegn írak hófst þann 17. jan-
úar. Það er sá fjöldi sem bandamenn
viðurkenna að hafi ekki snúið heim
eftir árásarferðir en ekki er vitað
hvort einhverjir þeirra hafi látið lífið
þegar þeir voru skotnir niður.
Viðurkennt er að það stríði gegn
Genfarsáttmálanum um meðferð
stríðsfanga ef þeim er haldið föngn-
um á hættusvæðum. Bandaríkja-
menn hafa hótað Saddam Hussein
ákæru fyrir stríðsglæpi geri hann
alvöru úr hótunum sínum um að
nota stríðsfanga sem „mannlega
skildi".
Bandaríkjamenn hafa jafnframt
sagt að það hafi engin áhrif á hemað-
aráætlanir þeirra þótt írakar hóti að
skýla hernaðarmannvirkjum með
stríðsföngum.
Reuter
Bandamenn hófu sókn gegn
írökum á landi í nótt
Aðeinsfimm
prósenthern-
aðarmann-
virkjaeyðilögð
Þrátt fyrir linnulausar loftárás-
ir bandamanna á hernaðarmann-
virki íraka hafa aðeins fimm pró-
sent þeirra eyðilagst. Þetta er
haft eftir ísraelskum leyniþjón-
ustumönnum.
Þýskir heimildarmenn segja
ísraelska leyniþjónustumenn
hafa- greint þýskum ráðamönn-
um, sem voru í heimsókn í ísrael
í siðustu viku, frá þessu.
Abu Nidal
ásjúkrahúsi
íBelgíu?
Stjórn sjúkrahúss í Bmssel í
Belgíu kvaöst f gær ekki geta úti-
lokað að palestinski skæruliða-
leiöto'ginn Abu Nidal hefði verið
sjúklingur þar en frétt þess efnis
birtist í belgísku vikuriti.
Vikuritið, Le Vif L’Express,
sagði evrópskum leyniþjónustum
hafa borist fregnir um að Abu
Nidal, sem sagður er hafa skipu-
lagt fjölda hryðjuverka í að
rainnsta kosti tuttugu og.átta
löndum, hefði nokkrum sinnum
legið á sjúkrahúsinu vegna
hjartaveilu en undir fólsku nafni.
Vikuritið hefur það eftir heim-
ildarmönnum að lækni á sjúkra-
húsinu, sem myrtur var í október
1989, hafi veriö komið fyrir katt-
arnef þar sem hann heföi þekkt
Abu Nidal.
Fyrr í þessum mánuði kom einn
starfsmanna ráðsins í heimsókn
til Belgíu í boði belgíska utanrík-
isráðuneytisins. Ræddi hann um
lausn belgískrar fjölskyldu sem
rænt var 1987 i skiptum fyrir
fanga í Belgiu. Reuter
Vinningstölur laugardaginn
26. janúar
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 1 7.231.840
o £.. 4af5^jM 5 150.728
3. 4af5 243 5.349
4. 3af5 - * 7.555 L, r; ' 401
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
12.314.842 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Auðbrekku 14, sími 64-21
- hörfuöu eftir að hafa skotið 72 fallbyssuskotum á herinn í Kúvæt
Bandamenn gerðu í nótt stórskota-
liðsárás frá Saudi-Arabíu á herlið
íraka í Kúvæt. Notaðar voru fall-
byssur af stærstu gerð til að sprengja
skotmörk um 10 kílómetra fyrir inn-
an landamærin.
Þetta er í fyrsta sinn sem banda-
menn btósa til sóknar á landi þótt
ekki hafi verið um annað en skyndi-
árás að ræða því að liðið hörfaði aft-
ur eftir að hafa skotið 72 skotum. Til
þessa hafa bandamenn aðeins svarað
í skærum við íraska landherinn.
Skotmark bandamanna í árásinni
var birgðastöð. Ekki er vitað með
vissu hvort árásin heppnaðist en
hermennirnir sögðu að eldar hefðu
blossað upp handan landamæranna.
Ekki er talið að þessi árás sé upphaf-
ið að sókn á landi heldur gæti hún
þjónað þeim tilgangi að sýna að
bandamenn séu reiðubúnir til sókn-
ar þegar minnst varir.
Ekkert lát er á loftárásum banda-
manna á írak. Lítið er enn um lið-
hlaup úr íraska hernum þótt hann
hafi dögum saman verið skotmark
sprengjuflugvélanna. Þar á meðal
hafa B-52 flugvélar haugað sprengj-
um niður á úrvalssveitir íraka í Kú-
væt. Hernaöarsérfræðingar benda á
að aldrei í sögunni hafi loftárásir leitt
til fjöldauppgjafar hermanna og svo
virðist ekki ætla að verða nú. Því
hallast flestir að því að sækja verði
á landi gegn íraska hernum.
Enginn veit nú hvernig ástandið
er í hði íraka í Kúvæt eftir árásirn-
ar. Liðið heldur til í neðanjarðar-
byrgjum en bandaménn halda því
fram að þeir hafi yfir sprengjum að
ráða sem geti sprengt upp slík byrgi.
Enn hefur herstjórn þeirra þó ekki
gefið út áreiðanlegar upplýsingar um
árangur af árásunum. Nú hafa flug-
herir bandamanna farið um 25 þús-
und árásarferðir til íraks og Kúvæt.
í gærkveldi gerðu írakar enn árás
með Scud-eldflaugum á ísrael. Þetta
var 26 flaugin sem beint er að ísrael.
Hún kom niður á vesturbakka Jórd-
anar sem ísraelsmenn hertóku í sex
daga stríðinu. Þar búa einkum arab-
Saudi-arabiskir hermenn virða fyrir sér hluta úr Scud-eldflaug íraka fyrir
utan Riyadh í gærkveldi. Flaugin var skotin niður. Simamynd Reuter
ar. ísraelska herstjórnin sagöi að
engin slys hefðu orðið á fólki. Patri-
ot-gagnflaug var ekki beint gegn
Scud-flauginni.
Scud-flaug var einnig skotið að Riy-
adh í Saudi-Arabíu en flaugin var
skotin niður með gagnflaug og kom
niður fyrir utan borgina.
Reuter