Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1991, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR-1991.
11
Utlönd
Eistland ráðgerir
eigin þjóðar-
atkvæðagreiðslu
Eistlendingar ætla að halda eigin
þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálf-
stæði landsins áður en þjóðarat-
kvæðagreiðslan um nýja sambands-
ríkjasamninginn fer fram. Forsætis-
nefnd eistneska þingsins ákvað þetta
í gær.
Þjóðaratkvæðagreiöslan um sjálf-
stæði Eistlands verður haldin 24. fe-
brúar en þjóðaratkvæðagreiðslan
um sambandsríkjasamninginn verð-
ur haldin í öllum sovésku lýðveldun-
um 3. eða 17.mars.
Samkvæmt nýja samningnum fá
lýðveldin meira sjálfsforræði en nú
en gagnrýnendur hans segja að í
raun verði ómögulegt fyrir lýðveldi
að segja sig úr sovéska ríkjasam-
bandinu.
Eystrasaltsríkin hafa lýst því yfir
að þau muni ekki skrifa undir samn-
inginn þar sem þau hafi aldrei geng-
iðlöglegaíríkjasambandið. Tf
Fulltrúi lettnesku alþýðufylkingarinnar:
Gorbatsjov hef ur svikið Letta
Romuldas Razukas, fulltrúi Al-
þýðufylkingarinnar í Lettlandi, hef-
ur miklar áhyggjur af því sem kann
að gerast 1. febrúar þegar sovéski
herinn tekur við löggæslu í landinu.
„Við höfum géð það sem gerst hefur
í Litháen. Hermennirnir misþyrma
,fólki, ræna það og skjóta á það. Þetta
er það sem getur gerst þegar sveitir
sovéska innanríkisráðuneytisins og
herinn taka við löggæslunni. Hætta
er á að hermennirnir fari inn í bæki-
stöðvar okkar og taki öll okkar
skjöl,“ sagði Razukas í gær.
I dag ætlar Alþýðufylkingin að efna
tú mótmæla gegn tilskipuninni frá
Moskvu um löggæslu sovéska hers-
ins. Razukas sagði að Gorhatsjov
Sovétforseti hefði enn einu sinni
svikið Letta og að nýja tilskipunin
væri brot á mannréttindum og
stjórnarskránni. Sovéski herinn
hefði engan rétt til að ónáða eða
handtaka óbreytta borgara. Gorb-
atsjov væri að gera hræðileg mistök.
Gorbunovs, forseti Lettlands, God-
manis forsætisráðherra, Vaznis inn-
anríkisráðherra og lögreglustjórinn
í Rigu efndu í gær til fundar með
lettnesku lögreglunni og gerðu grein
fyrir ástandinu.
Godmanis sagði það mikilvægt fyr-
ir stjórnina að geta haft eftírlit með
gerðum lögreglunnar. í lögreglunni
eru aðeins fjórtán prósent Lettar.
Aðrir lögreglumenn eru af r ússnesk-
um uppruna eða öðru þj óðerni. tt
Kosnlngarnar í Panama:
Stjórnarandstaðan
hefur undirtökin
Flest bendir til að stjórnarandstað-
an fari með sigur af hólmi í nýaf-
stöðnum þingkosningum í Panama.
í kjördæmunum þar sem talningu er
þegar lokið hafa frambjóðendur
stjórnarandstöðunnar víðast haft
betur. Talningu er þó ekki lokið og
kenna menn bilunum í tölvukerfi
um.
Þetta eru fyrstu kosningarnar í
Panama frá því Bandaríkjamenn
hröktu harðstjórann Manuel Nori-
ega frá völdum. Stjórnarandstaðan
fylgdi áður Noriega að málum. Þótt
hann hafl verið alræmdur í landinu
nýtur skjólstæðingur Bandaríkja-
manna á forsetastóli ekki mikilla
vinsælda og hafa stuðningsmenn
hans átt undir h'ögg að sækja.
Þátttaka í kosningunum var með
eindæmum lítil og segja heimamenn
að almenningur hafl mjög litla trú á
stjórnmálamönnum landsins og gildi
þar einu hvort um er að ræða fylgis-
menn Noriegas eða Endara forseta.
Endara var kjörinn forseti áður en
Noriega var hrakinn frá völdum árið
1989. Noriega neitaði að viðurkenna
kosningu hans og í kjölfarið gerðu'
Bandaríkjamenn innrás og settu
Endara í forsetastól.
Reuter
Keníumenn lofa að
veita Siad Barre hæli
Stjórn Keníu hefur boðið Siad
Barre, flóttaforseta frá Sómalíu, hæli
í landinu. Barre lagði um helgina á
flótta frá höfuðborginni Mogadishu
eftir að hafa átt þar í höggi við upp-
reisnarmenn frá því um áramót.
Hann hafði þá verið forseti í Sómalíu
í 21 ár.
Siad Barre hóf fór sína í suðurátt
að landamærum Keníu í skriðdreka
á sunnudaginn rétt í þann mund sem
liðsmenn hans töpuðu fótfestunni í
höfuðborginni. Með honum eru
nokkrir nánustu stuðningsmennirn-
ir og það litla sem eftir er af stjórnar-
hernum. Þegar síðast fréttist var
fylking forsetans komin til bæjarins
Kismayu og átti þá 200 kílómetra ó-
farna úr landi.
Háttsettur embættismaður í utan-
ríkisráðuneyti Keníu sagði við Reut-
ersfréttastofuna að tekið yrði við
Siad Barre og mönnum hans. „Regl-
an er sú að ef einhver kemur að
landamærum okkar og hiður um
hæli vegna þess að hann á að öðrum
kosti líflát yfir höfði sér þá veitum
við honum hæli,“ sagði embætt-
ismaðurinn.
Enn er þó ekki vitað hvort Siad
Barre ætíar að setjast að í Keníu því
sögur eru þar á kreiki um að hann
hyggist fara til Ítalíu og leita ásjár
stjórnarinnar þar. Sómalía var áður
ítölsk nýlenda.
Siad Barre tók völdin eftír uppreisn
hersins árið 1969. Hann er nú um
áttrætt. Þrátt fyrir að Siad Barre
hafi setið á valdastóli í rúma tvo ára-
tugi þá náðu völd hans aldrei langt
út fyrir höfuðborgina. Hann var því
oft auknefndur „borgarstjórinn í
Mogadishu" en ýmsir ættflokkahöfð-
ingjar stjórnuðu á landsbyggðinni.
Höfðingjarnir hafa nú náð saman
um sinn og heita því að koma á lýð-
ræðislegu stjórnarfari og efna til
kosninga áður en langt um líður.
Reuter
Símamynd Reuter
Litháen:
Sovéskir hermenn á ferð nálægt þinghúsinu í Vilnius i Litháen.
Sprengju varpað
úrflugvél
- löggæslu hermanna mótmælt
Sprengju var varpað úr flugvél í
gær milli tveggja þorpa í suðurhluta
Litháens. Enginn særðist en nokkrar
skemmdir urðu við bóndabæ. At-
burðurinn átti sér stað klukkan 15.40
að staðartíma en ekki fréttíst af hon-
um fyrr en í gærkvöldi.
Að sögn blaðafulltrúa þingsins í
Litháen höfðu margir íbúar þorp-
anna Staynai og Cuizakampiai, sem
eru um 40 kílómetra sunnan við
Vilnius, heyrt í flugvél en enginn sá
vélina. Því næst heyrðist mikil
sprenging.
Stór gígur myndaðist þar sem
sprengjan féll og fundu menn
sprengjubrot. Sovéski herinn hafði í
gærkvöldi ekki tjáð sig um málið.
Blaðafulltrúi þingsins í Litháen
sagði menn gera ráð fyrir því að um
óhapp hefði verið að ræða.
Þingið í Litháen ætlar að fara þess
á leit við Gorbatsjov Sovétforseta að
tilskipunun til hersins um löggæslu
í öllum sovéskum borgum frá og með
1. febrúar komi ekki tíl framkvæmda
í Litháen. Þetta sagði Vytautas
Landsbergis, forseti Litháens, á þingi
í gær.
Landsbergis sagði að tilskipunin,
sem undirrituð var af innanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, Boris Pugo, og
varnarmálaráðherranum, Dmitri
Jazov, myndi auka spennuna í
Eystrasaltsríkjunum og að áfram-
haldandi samningaviðræður milli
yfirvalda í Litháen og Moskvu yröu
ómögulegar.
Á sunnudagskvöld eyðilögðu sov-
éskir hermenn tvær tollstöðvar og
misþyrmdu tollvörðum. Kröfðust
hermennirnir þess að tollverðirnir í
bæjunum Laboriskis og Medimnkei
afhentu vopn sín. Verðirnir gátu ekki
orðið við skipuninni þar sem þeir
voru óvopnaðir og eyðilögðu þá her-
mennirnir tollskrifstofurnar.
TT
Utfór Olafs Noregskonungs á morgun:
Miðborg Óslóar skreytt
blómum og myndum
- miklll ótti við að hryðjuverkamenn láti til sín taka
Mikill viðbúnaður er í Noregi
vegna útfarar Ólafs Noregskon-
ungs á morgun. Norska sjónvarpið
búið að koma fyrir sjónvarpsvélum
víða í miðborg Óslóar þar sem lík-
fylgdin fer um. Öllu verður sjón-
varpað beint.
Víða hefur verið komið upp stór-
um myndum að hinum látna kon-
ungi og við þær logar á kertum og
blómakransar eru undir. Snjó hef-
ur verið rutt af öllum götum og
gangstéttum í miðborginni til að
mannfjöldinn getí komist fyrir en
búist er við að allir borgarbúar sem
vettíingi geta valdið verði á staðn-
um.
Lögreglan hefur mikinn við-
búnað í borginni því óttast er að
hryðjuverkamenn noti tækifærið
til að ráðast gegn einhverjum
þeirra fjölmörgu þjóðhöfðingja,
sem viðstaddir verða. Enn er þó
allt með friði.
Meðal þeirra sem verða við út-
fórina eru frú Vigdís Finnbogadótt-
ir, forseti íslands. Þá er von á Karli
Bretaprins og Dan Quale, varafor-
setaBandaríkjanna. NTB
Ólafur Noregskonungur verður borinn til grafar á morgun.