Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1991, Blaðsíða 6
FÖSTÚDAGUIÍ 8. FEBRÚARl99l. 22 Christopher Lambert og Sean Connery leika tímaflakkara í Hálendingin- um II. Háskólabíó: Hálendingurinn II Eins og þeir muna sem sáu fyrstu jjiyndina um Hálendinginn Connor McLeod þá eru aðalpersónumar tímaflakkarar sem berjast hver við annan á hinum ýmsu tímaskeið- um. Þegar við komum til sögunnar í Highlander II - The Quickening er árið 2074 gengið í garð. Ósonlag- ið er horfið og jörðin er vemduð með heljarmiklum skildi sem stærsta fjrirtæki jarðarinnar rek- ur en það ’var einmitt Macleod sem smíðaði skjöldinn og heldur vemd- arhendi yfir honum. Eitt kvöld, þegar MacLeod situr í stúku sinni í óperunni, heyrir hann rödd úr fortíðinni og er þar kominn vinur hans Raimarez. Þetta verður til þess að löngu liðnar minningar skjóta upp kollinum og hann fmnur á sér að á næstunni verður gerð úrslitatilraun til að eyðileggja skjöldinn stóra. Þetta er byrjunin á Highlander 2 - The Quickening sem frumsýnd er í dág í Háskólabíói og er hér um heimsfrumsýningu að ræða. Það era þeir Christopher Lambert og Sean Connery sem endurtaka hlut- verk tímaflakkaranna. Auk þess leika í myndinni Virginia Madsen og Michael Ironside. Leikstjóri er Russell Mulcahy en hann leikstýrði einnig fyrri mynd- inni. Hann er ástralskur aö upp- runa. Mulcahy gerði sína fyrstu kvikmynd í Astralíu 1985 og hét hún Razorback. Ekki þótti hún merkileg þá og er ekki enn. Sama árið leikstýrði hann fyrri Hig- hlander myndinni sem var geysivel tekið í Evrópu en féll ekki í kramiö vestanhafs. Mulcahy fékk síðan það verkefni að leikstýra Rambo III en eftir 14 mánaða vinnu við mynd- ina var hann búinn að fá nóg af samvinnunm viö Sylvester Stall- one og yfirgaf myndina. Áður en hann tók að sér að leikstýra Hig- hlander II leikstýröi hann sjón- varpsmynd einni sem heitir Cyber- force. -HK Laugarásbíó: Tveir strákanna bera saman ráð sín. Stjömubíó: Flugnahöfðinginn Árið 1963 gerði breski leiksfjór- inn kunni, Peter Brook, eftirminni- lega kvikmynd eftir hinni þekktu skáldsögu nóbelsskáldsins Will- iams Golding, Flugnahöfðingjan- um (Lord of the Fhes). Þar notaöi hann óreynda breska stráka í flest hlutverkin með góðum árangri. Nú hafa Bandaríkjamenn endur- tekið leikinn og nú eru drengimir með amerískan framburð í stað bresks. Myndin gerist á eyðieyju þar sem hópur af skólastrákum verður strandaglópar. í fyrtsu er ævintýrablær yfir öllu enda finnst mörgum drengjanna spennanadi að vera einir á eyju en áður en langt um hður er barist upp á líf og dauða fyrir tilvem sinni. Þaö kemur sem sagt fljótt í ljós meðal hinna tuttugu og fjögurra stráka að það hafa ekki allir sömu hugmyndir um hvernig eigi að framkvæma hlutina og fljót skiptist hópurinn í tvo flokka sem berjast um yflrráðin. Drengirnir í öðmm flokknum vílja lifa samkvæmt því uppeldi sem þeir hafa fengið, með- an hinir temja sér viht lífemi þeirra sem lifa fyrir utan lög og reglur. Flugnahöfðinginn var kvik- myndaður á Jamaica. Framleið- andi myndarinnar, Irwing Allen, framleiddi einnig fyrri myndina. Leikstjóri er Harry Hook sem hefur leikstýrt einni mynd í fullri lengd áður, The Kitchen Toto, sem hann skrifaði einnig handrit að. Sú mynd gerist í Afríku og hlaut mikið lof gagnrýnenda. Hefur hún verið margverölaunuð. Hook ólst upp í Afríku en býr nú í London. Aður en hann gerði The Kitchen Toto gerði hann nokkrar stuttmyndir sem vöktu mikla athygli. Þess má geta að Balthazar Getty, sem leikur eitt stærsta hlutverkið í Flugnahöfðingjanum, er barna- bamabam J. Paul Getty sem á sín- um tíma var talinn ríkasti maður í heimi. -HK Arnold Schwarzenegger sýndi í Twins að ef handritið passar fyrir hann getur hann gert ágæta hluti í gamanmyndum. Nýjasta kvik- mynd hans, Leikskólalöggan (Kindergarten Cop), sem Laugarás- bíó frumsýnir í dag, er blanda af gamansemi og spennu. Schwarzen- egger leikur lögguna Kimble sem er að safna gögnum gegn fíkniefna- sala einum sem er í haldi lögregl- unnar. Til að það sé hægt þarf hann að finna eiginkonu hans sem hefur stungið af með mikla fjárfúlgu og sex ára gamlan son þeirra. Kimble fær upplýsingar um að mæðginin hafi sést í smábænum Astoríu. Til að dyljast gerist Kimble barnakennari á leikskóla. Þar sem hann hefur enga reynslu af starfinu tekur hann það öðmm tökum en krakkamir eiga að venj- ast. Eins og vænta má lendir hann í van'dræðum með bömin og ekki síst með mæður þeirra - mun meiri vandræðum en við að hafa uppi á mæðginunum. Leikstjóri Leikskólalöggunnar er Ivan Reidman en hann leikstýrði einnig Twins. Reidman er í dag einn allra eftirsóttasti leikstjóri í HoUywood. Fyrir utan að hafa leik- stýrt Twins og Kindergarten Cop leikstýrði hann Ghostbusters 1 og 2. Reidman er tékkneskur að upp- Það er ekki nema von að krökkunum finnist nýi kennarinn skrýtinn. Betur virðist liggja fyrir Schwarzenegger að leika eitthvað annað en barnakennara. runa en flutti aðeins fjögurra ára Reidman fékk Tony-verðlaunin, gamall til Kanada. Hann átti að sem eru æðstu leiklistarverðlaun í baki langan og farsælan leikstjóra- Bandaríkjunum, fyrir leiksfjóm feril í sjónvarpi og á leiksviði áður sína á söngleiknum Merhn sem en hann tók til við að leikstýra sýndur var á Broadway. kvikmyndum. Má geta þess að -HK Leikskólalöggan BÍÓBORGIN Uns sekt er sönnuð ★★★ Athyglisveröar persónur í flóknum þriher þar sem gátan er óleyst fram á síðustu stundu. Harrison Ford er frábær. -HK Þrir menn og lítil dama **'A Létt, skemmtUeg og hæfilega væm- in iðnaöarkóraedía. Talsvert betri en forverinn. Einnig sýnd í BíóhöU- inni. -GE Góðir gæjar **** Mjög vel leUdn og spennandi maf- íumynd, hrottafengin en um leið raunsæ. Besta mynd Martins Scor- sese frá þvi hann gerði Raging Bull. -HK BÍÓHÖLLIN Rocky 5 ★★ Óþarft en vel meínt framhald sem er mun skárra en síöustu þrenn slagsmál. Stallone er skammlaus. -GE Ameríska flugfélagið ★ Langdregnar flugæfingar sem em lítið spennandi. Ekki heil brú í handritinu. -PÁ Aleinn heima ★★ 'A Gamanmynd um ráðagóðan strák sem kann svo sannarlega að taka á móti innbrotsþjófum. Mjög fynd- in í bestu atriðunum. MacCaulay Culkin er stjarna framtíðarinnar. Einnig sýnd í Bíóborginni. -HK Sagan endalausa ★ Einstaklega stirðbusalegt ævintýri, laust við aUa þá kosti er fylgja oft- astslíkummyndum. -GE Tveir í stuði *★ Þrátt fyrir góðan ásetning tekst Steve og Rich ekki að kreista mikið útúrþuiruhandriti. -GE Stórkostleg stúlka **'A Létt og skemmtileg mynd þrátt fyr- ir ófrumlegt handrit. Juha Roberts vinnur hug og hjörtu allra. -HK HÁSKÓLABÍÓ Úrvaissveitin **'A Dýröaróður til hermennsku, hug- prýði og karlmennsku. Ágæt af- þreying. -PÁ Nikita ★★* Sterkt myndmál er aðal Lucs Bes- son nú sem fýrr. Hnökrar í per- sónusköpun koma ekki í veg fyrir góða skemmtun. -HK un á hinu yfimáttúrlega. Demi og Swayze eru góð en Whoopi og Gold- wynfrábær. -GE Hinrik V. ★★★'/. Margir kvikmyndageröarmenn hafa glímt viö Shakespeare með misjöfnum árangri. Hinn ungi Kenneth Brannagh sýnir og sannar aö það er hægt að koma snilldar- leikhústexta til skUa í góðri kvik- mynd. -HK Skj aldbökumar ★★ 'A SnUldarlega útbúnar tánings- skjaldbökur og fjörug saga gera þetta aö hinni bestu skemmtun fyr- irbreiðanaldurshóp. -GE Tryllt ást *** Lynch gengur of langt í furðuleg- heitunum en að öðru leyti sterkt ogsérstaktverk. -GE Draugar ★★★ Mjög frumleg og sérstök meðhöndl- Paradísarbíóið *★★ 'A Það líður öUum vel eför aö hafa séð þessa einlægu og skemmtilegu mynd. -HK LAUGARÁSBÍÓ Skuggi ★★ 'A Ðúndurkeyrsla og hraði en upp- bygginguna vantar. Neeson er góð- ur og stendur af sér gallana i sög- unni. -GE Skólabylgjan **'A Skemmtileg tilraun til aö gera ann- aö og meira en „týpíska“ unglinga- mynd. -GE Henry & June ★★ Misheppnuð, mjúk og í meðailagi djörf. Því miður er Kaufman á viUi- götum. -PÁ REGNBOGINN Aftökuheimild ★ Van Damme er ekki vandinn held- ur einstaklega ófrumlegur og óspennandi söguþráður. -GE Ryð ***'A Sterkt drama. ÖU vinna mjög vönd- uö og fagmannleg. -PÁ Skúrkar ★★'/ Háðskt og meinfyndið löggugrín frá Fransmönnum. -GE STJÖRNUBÍÓ Flugnahöfðinginn ★* Endurgerð klassískrar sögu upp á nútímann en hún er kraftlaus og aldrei meira en forvitmleg. -GE. Á mörkum lifs og dauða ★★ Góð hugmynd er klúðurslega unn- in og ekki aUtaf sjátfri sér sam- kvæm. Myndræna hUðin er of- keyrð í von um að auka áhrifin. -GE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.